Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. jan. 1959 J Sími 13191 i Allir synir mínir • anuni 28. okt. ’38: . . Sýning- Sýning miðvikudagskv. ki. 8. 1 Aðgöngumiðasala kl. 4—7 i j dag og eftir kl. 2 á morgun. 5 BluHaummæU um sýnmguna: \ ý Iriflríði G. Þorsteinsson ■ Tím- ! J ar á þessu leikriti^ er fyrsta) verkefni Leikfélagsins á þessu ' ári og um leið sýning, sem ý markar timamót í íslenzku leik • húsi....... Undirritaður vill j leyfa sér að halda því fram, ! að með þessari sýningu hafi \ ý íslenzkt leikhús að fullu kom- > ist úr því að vera meira og \ minna ein tegund félagslífs, ) yfir í að vera öguð og meitluð \ list .... S S Ásgeir Iljartarson i Þjóðvilj- ■ anum 29. okt. ’58: . . Hér er \ S slegið á marga strengi, stund- í \ um leikið örvei'kt, stundum \ S mjög sterkt, kyrrð og stormar S 5 skiptast á, en við heyrum elcki ^ \ hjáróma rödd, ekki svikinn ( Stón .... S s y | SigurSur Grimsson í Morgun | ý blaðinu 29. okt. ’58 .... Er ý | heildarsvipur leiksins óvenju-| í lega góður og samleikurinn s i þannig að vart verður á betra • t kosið og eru þó hlutverkin ý í allmörg og vandasöm. .. Leik- i | sýning þessi er einhver sú \ S heilsteyptasta og áhrifamesta,! ' sem hér hefur sézt um langt \ skeið — listrænn viðburður, S sem lengi mun vitnað til; enda ^ hef ég sjaldan verið í lei'khúsi S þar sem hrifning áhorfenda' hefur verið jafn mikil og í S Iðnó þetta kvöld .... • Gunnar Bergmann í Vís! 5. \ nóv. ’58: ....... En nú hafa! • s ‘ óvænt og enn meiri tíðindi \ | gerzt í Iðnó gömlu. „Hinir S ! ungu“ í Leikfélagi Reykjavík-^ | ur hafa sett á svið og gefiðs i slíka túikun á ieikritinu „Öll-- um sonum mínum" eftir Art-s hur Miller, að sjónarspilinu á! hinu íslenzka leiksviði hefur\ verið lyft í æðra veldi........) Efni leiksins verður annars^ ekki rakið hér. — TækifæriðS skal hins vegar notað til að| i hvetja sem fiesta að sjá þenn-S | an yfirburða leik, eignast ó-\ i gleymaníega kvöldstund. S i s Y.S.V. í AlþýðublaSinu 5.S | nóv. ’58. .. Leikritið er mikið\ listaverk og boðskapur. þess! | sterkur. Afrek leikfélagsins er^ ! f fullu samræmi við þetta. ÉgS | get tekið undir við það fó!'k,J i sem ég heyrði segja að sýning-s • unni á sunnudagskvöld lokinni: \ i „Þetta er bezta leiksýning, sems I ég hef séð lengi“. ^Þetta er! | eftirminnilegasta stund sem égý i hef átt í leikhúsi". i Þórey Þorleifsdóttir Minningarorð í DAG hinn 13. janúar verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, Þórey Þorleifsdóttir, Bókhlöðu- stíg 2, er andaðist í Landsspítal- anum þann 7. þ.m. eftir langa og örðuga legu. Þórey var fædd á Syðri-Löngu- mýri í Blöndudal 23. júní 1895 og var dóttir hinna þjóðkunnu ágæt- ishjóna: Þorleifs Jónssonar al- þingismann og síðar póstmeistara og konu hans Ragnheiðar Bjarna dóttur. Bar Þórey nafn ömmu sinnar konu Bjarna Þórðarsonar bónda á Reykhólum. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrstu 5 árin á Syðri- Löngumýri og Sólheimum í Húna vatnssýslu en síðan í Reykjavík og þar átti hún sitt heimili alla ævi á Bókhlöðustíg 2. Hún var stjarna síns heimilis, sívinnandi, prúð og elskuleg, allsstaðar til gagns og greiða hvar sem hún fór, enda elskuð og virt af öllu sínu skyldfólki og öðrum heimamönn,- um fyrr og síðar. Faðir hennar Þorleifur póst- meistari féll frá árið 1929 og eft- ir það stjórnaði Þórey verzlun- inni „Silkibúðin" ásamt móður sinni. Nokkur síðustu árin hefir hin aldraða sæmdarkona Ragn- heiður Bjarnadóttir ekki getað annast verzlunina með dóttur sinni og hefir þá Þórey ein ann- ast stjórn hennar og af mikilli prýði, allt þar til að hún veiktist á síðasta vori. Þórey var mjög lengi í stjórn blindravinafélags íslands og allt- af gjaldkeri. Sýndi hún í því starfi mikinn áhuga fórnfýsi og skörungskap. Hún var gáfuð kona svo sem hún átti ætt til; mjög bókelsk og listhneigð. Einkum hafði hún áhuga á tónlist og söng. Matse&ill kvöldsins 13. janúar 1959. Creme-súpa Bagaralion ★ Sleikt ýsuflök m/remoulade ★ Ali-bainborgarhryggur m/rauðkáli eða Tournet'o Maitre de’holel Ávaxta-ís ★ Hnetu-fromage Húsið opnaS VI. 6. NEO-tríóið leikur Leikhúskjallarinn. Á hinu merka höfðingsheimili, Bókhlöðustíg 2, var býsna oft gest kvæmt af vinum og frændfólki, ekki einasta á hátíðlegum dög- um heldur mjög oft endranær. Voru þær mæðgur Þórey og Ragnheiður mjög samhentar um alla rausn, glaðværð og skörungs- skap. Yfir heimilinu hefir alltaf verið hressandi blær og góður andi alúðar, prúðmennsku og manndyggða. Þar hefir oft verið samkomustaður fyrir íjölmennan hóp ættingja og vina og oft glatt á hjalla. Síðustu árin, síðan yngri systirin Salóme kom heim, hefir hún líka tekið góðan og þýðingar- mikinn hlut í því erfiði, sem því fylgir, að stjórna þvílíku heimili. En nú liggja dimmir skuggar sorgar og saknaðar yfir þessum ánægjulega stað, þegar stjarna heimilisins er horfin yfir hafið mikla. En það bjargar miklu, að hin aldurhnigna móðir og glaðlynda og þróttmikla systir eru trúkonur miklar. Þess vegna taka þær sorg inni með trúarlegri stillingu og hugrekki. Hugga sig líka við þá gæfu, að minningarnar um hina horfnu dóttur og systur eru allar góðar og hreinar. Sú hin sama huggun liggur fyrir augum bræðranna, mágkonanna og ann- ars venzlafólks. Blessuð sé minning hinnar látnu sæmdarkonu. Jón Pálmason. BRÓBURKVEBJA Vafasamt kann að teljast að menn skrifi minningarorð um sína nánustu, en hér biður bróðir um leyfi til að segja um látna systur aðeins nokkur orð, sem hafa öllu fremur almennt gildi. Þótt erfitt sé oft og lengi að sjá gildi og árangur listamanns- ferils, þá er augljóst að sá ferill verður aldrei eða sjaldan til, nema foreldrar, skyldmenni eða vinir láti hinum verðandi lista- Lærið gjomlti dansana Nýtt námskeið í gömlu dönsunum hefst í kvöld kl. 7,30 í Silfur- tunglinu. Einnig verða kenndir tangó og enskur vals. Kennari verður frú Sigríður Valgeirsdóttir. Þjóðdansafélag Beykjavíkur BÚTASALA Seljum næstu daga mikið úrval af allskonar BÚTUM, KVENPEYSUM, KARLMANNABLOSS- UM og fleiri vörutegundum með tækifæris verði. Vesturgötu 4 manni í té aðstoð og traust — og oft mikla þolinmæði langt fram eftir aldri. Sá jarðvegur, sem við systkin- in vorum úr sprottin, niótaðist af hugsjónum og erfiðleikum full- veldisbaráttunnar. Menn, sem varla höfðu til hnífs og sjceiðar, að því er nú yrði talið, höfðu bundizt samtökum til að gera ísland frjálst, enda þótt ljóst þætti oft að sjálfum þeim ein- stökum til framfæris væri við- urkenning á sambandinu við Dani vænlegra. Faðir okkar var um skeið gjaldkeri gamla Sjálf- stæðisflokksins, og hann stjórn- aði pósthúsinu í Reykjavík upp úr aldamótunum. Skyldurækni var fyrsta boðorðið. Þó að skip kæmu t.d. að nóttu með póst frá útlöndum, þá þótti sjálfsáfgt að allir starfsmenn mættu þegar á vinnustað og lykju að koma póst- inum í hólf og undirbúa útburð- inn áður en gengið væri til svefns, enda þótt yfirvinna væri ekki greidd. Ekki gerði faðir okkar miklar kröfur til hins daglega lífs, og ekki man ég eftir að hann hafi nokkurn tíma óskað neins handa sjálfum sér. Umhyggjan fyrir öðrum sat fyrir. Þegar móð- ir okkar hafði með ofurlitlu láns fé stofnað verzlun, þá var keypt handa Þóreyju systur píanó, sem varð tilefni til að ég sem yngri var, komst í tengsli við tónlist. Er faðir okkar kenndi síns banameins, þá sagði hann lausu embætti sínu frá árslokum 1928 og notaði mánuðina, sem hann átti ólifaða, til að setja Þóeyju systur, er var ein barna í heima- húsum, inn í bókhald, alls kon- ar undirbúning og aðstoð við móður okkar, og umhyggja og samvizkusemi Þóreyjar varð hin. sama og föður okkar. Hún tók við örðugu hlutverki, sem hún hafði ekki ætlað sér. Hún var sem einstæð kona móður sinni til aðstoðar í þrjátíu ár og sýndi fjarverandi bróður sínum, und- irrituðum, í erfiðleikum lista- I mannsferilsins alla tíð sömu tryggð og jafnvel þótt mjög mik- ið á reyndi. Fjörutíu ár eru lang- ur tími að bíða eftir árangri af starfi listamanns, og mikils þarf til að missa ekki þolinmæði og traust fyrir þá, sem standa þó fyrir utan sjálfa baráttuna. Ef til vill eiga síðar fleiri en undirritaður eftir að finna til þakklætis til Þóreyjar fyrir þetta, því að fordæmið hefir í þessum efnum sem öðrum varanlegt gildi fyrir þá, sem á eftir koma: Hún brázt aldrei er mest á reyndi. Þegar erfiðleikar voru í seinasta ófriði jafnvel á yfirfærslu hinna opinberu listamannalauna til und irritaðs erlendis, þá gafst Þórey ekki upp fyrr en málin voru afgreidd. Þegar hann svo kom heim alsnauður eftir ófriðinn og settist að í móðurhúsum, en lista mannsferill hans í rústum við of- sóknir beggja megin vígstöðv- anna, þá brázt Þórey ekki held- ur. Þegar hann svo hóf baráttu fyrir því að knýja fram laun til höfunda án árangurs árum sam- an, þá missti Þórey ekki trúna, þrátt fyrir óvinsældir, gagnáróð- ur og vantraust annarra. Hún fékk verðskuldaða viður- kenningu. Vér vonum að hún megi nú látin helga sig því, sem hugur hennar stóð til mest. Jón Leifs. Crímur Crímsson - kveðja í DAG fer fram útför Gríms Grímssonar, Bragagötu 36, er -nd aðist 2. þ.m. Hann fæddist að Nauthól í Seltjarnarneshreppi 7. apríl 1893 og var því á 66. aldursári er hann andaðist. Fóreldrar hans voru þau Sig- ríður Ólafsdóttir og Grímur Gunnlaugsson, en hann andaðist árið 1894 frá konu og sex börn- um og þvi sjöunda ófæddu. Við andlát manns síns, varð Sig ríður að koma börnunum í fóst- ur hjá vandalausu fólki, nema Grími. Hann hafði hún alltaf hjá sér og ól hann upp og var svo alla tið með honum, þar til hún andaðist á áttræðisaldri. Grímur reyndist móður sinni hinn ágæt- asti sonur. Grímur kvæntist árið 1931 Guð rúnu Guðbjartsdóttur, beykis, frá ísafirði, hinni ágætustu konu, sem lifir mann sinn ásamt þrem dætrum: Kristínu, gift Halldóri Björnssyni, Sigríði, gift Ólafí Lárussyni og Guðríði, sem enn er í foreldrahúsum. Son eign- aðist Grímur, áður en hann kvæntist, Björgvin, kvæntan Ástu Guðlaugsdóttur. Þegar ég minnist Gríms, kemur mér fyrst í hug hin góða skap- gerð hans, hreinlyndi og glað- lyndi, enda kom hann öllum í gott skap og ávann sér með því vináttu þeirra sem hann komst í kynni við. Hann var fljótur til svars og kom vel fyrir sig orði. Yfirborðsmennska og mont voru honum fjarri skapi, enda gat hann veriS meinyrtur í garð þeirra, sem þannig voru gerðir, en sjaldan hægt að reiðast hon- um fyrir það, því alltaf skaut hann slíku fram í gáska. Eigi fékk Grimur aðra mennt- un en þá, sem tilskilin var til fermingar, enda býst ég við, að hann hefði ekki unað vel setu á skólabekkjum, til þess hafði hann of mikla starfsþrá og starfs- orku. Hann gat aldrei setið auð- um höndum. Fyrir fermingaraldur hafði hann keyrt margar hjólbörur af nýjum fiski, sem hann seldi bæj- arbúum. Þar kom í ljós sölumanns hæfileikar hans, sem síðar urðu snar þáttur í ævistarfi hans. Um fermingaraldur byrjaði hann að starfa í Nordalsíshúsi, fyrst sem sendisveinn, en tiltölu- lega fljótt sem afgreiðslumaður. Það starf hæfði honum vel, enda kom hans góða skapgerð og lip- urð sér vel, til þess að laða að sér viðskiptamennina. Afgreiðslu starfið var því hans aðalstarf til vorsins 1945 að starfsemi íshúss- ins lagðist að fullu niður, en við það starf þekktu flestir Reykvík- ingar Grím í íshúsinu. En hann átti einnig til að bera verkstjórnarhæfileika, sem komu sér_ vel þegar hann sá um ísupp- töku á Reykjavíkur-tjörn, svo og ísafgreiðslu til skipa og fleiri verka sem tilheyrðu starfi íshúss- ins. Að loknu starfi í íshúsinu gerð- ist hann samstarfsmaður Björg- vins sonar síns í Fatagerðinni og að því loknu var hann um skeið starfsmaður hjá A. J. Bertelsen, heildsala, eða þar til hann missti heilsuna fyrir þrem árum. Með glaðlyndi sinu og hrein- lyndi ávann Grímur sér vináttu og traust allra sem hann komst í kynni við, svo að segja má, að hann hafi átt „aðeins vini“. Að síðustu þakka ég Grími fyr ir samstarfið og einlæga vináttu og votta eiginkonu hans, böm- um og öðru skyldfólki innilega samúð. Sig. Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.