Morgunblaðið - 17.01.1959, Side 1
16 siður ug Lesbók
46. árgangur
13. tbl. — Laugardagur 17. janúar 1959
Prentsmiðja Morgu'iblaðsins
„Bretar þurfa islenzka fiskinn"
Sjómenn á brezkum togurum
hafna mótmælaverkfalli
FÉLAG brezkra togarasjómanna hefur neitað að eiga nokk-
urn þátt í verkfalli til að mótmæla fisklöndunum úr ís-
lenzkum togurum í Bretlandi. Ástæðan til þess að félagið
vill ekki þvinga fram löndunarbann á íslendinga er sú, „að
Bretland þarf nauðsynlega að fá íslenzka fiskinn.“
Frá þessu var í gær skýrt í skeyti frá Reutersfréttastof-
unni. Þar var sagt frá því, að þriðji íslenzki togarinn, Karls-
efni, hefði landað afla sínum í Grimsby í gær.
Er nú kominn upp ágreiningur
í brezka sjávarútveginum um
það, hvort heimila skuli íslend-
ingum slíkar fisklandanir. Eins
og frá var skýrt í Mbl. í gær
hefur félag skipstjóra og stýri-
manna á brezkum togurum sam-
þykkt að hefja verkfall 12. fe-
brúar til að mótmæla fisklönd-
unum íslendinga í BretJandi.
Hins vegar vekur það athygli
að togaraeigendur hafa lýst því
yfir, að þeir muni virða Parísar-
samkomulagið 1956 um fiskland-
anir Islendinga í Bretlandi. Og
eins og að ofan segir vilja hásetar
á togurunum engan þátt eiga í
verkfalli.
Ályktun félags skipstjóra og
stýrimanna á brezkum togurum
er svohljóðandi:
„Ef löndun á íslenzkum
fiski, þar á meðal kassafiski
er ekki stöðvuð innan eins
mánaðar frá 12. janúar að
telja, og ef ekki er sýnilegur
neinn vilji af íslands hálfu til
að gefa eftir í kröfum sínum
um 12-mílna landhelgi, þá
munu engir meðlimir fólags-
ins frá höfnunum, Hull,
Grimsby og Fleetwood sigla
né aðstoða við siglingu á nein
um togurum til hafs fyrr en
samkomulag hefur náðst“.
Samband brezkra togaraeig-
enda birti eftirfarandi ályktun:
„Eins og nú er ástatt ætl-
ar samband brezkra togaraeig
enda að halda í heiðri sam-
komulag það sem gert var í
Vinsæll söngleikur
sýndur í Svíþjóð
STOKKHÓLMUR, 16. jan. (NTB)
Oscars-leikhúsið í Stokkhólmi
hefur ákveðið að hefja sýningar
á bandarísku óperunni „My Fair
Lady“ þann 14. fberúar. Það er
nýjasti eiginmaður Ingrid Berg-
man, Lars Schmidt, sem hefur
beitt sér fyrir þessum sýningum
og samið við Breta og Banda-
ríkjamenn um lán á leiktjöldum.
Nú þegar er uppselt á fjórar sýn-
ingar.
Mikojan rœðir við þing-
menn og tvisvar við Dulles
WASHINGTON, 16. jan. (NTB)
— Mikojan varaforsætisráðherra
Sovétríkjanna átti í dag 2 Vz klst.
langan fund með Dulles utan-
ríkisráðherra. í lok fundarins var
það skyndilega ákveðið að Miko-
jan skyldi hitta Dulles aftur að
kvöldi, ræða við hapn og snæða
með honum kvöldverð í einka-
klúbb í Washington. Á morgun
mun Mikojan ræða við Eisen-
hower.
Ekkert hefur verið gefið upp
um efni viðræðna þeirra Dulles
og Mikojans, en milli þessara
tveggja viðræðufunda sat Miko-
jan veizlu hjá Theodore Green,
hinum níræða formanni utanrík-
ismálanefndar öldungadeildar-
innar.
Einn nefndarmanna, Hubert
Humphrey hefur sagt frá því
helzta sem bar á góma í veizlu
öldungadeildarinnar. Hann segir
að Þýzkalandsmálin hafi helzt
verið til umræðu, en ekki hefði
neitt nýtt komið fram í því máli
hjá Mikojan,
Hinn rússneski valdamaður var
spurður, hvers vegna Rússar
vildu ekki fallast á frjálsar kosn-
ingar í Þýzkalandi sem undir-
stöðu að sameiningu landsins
Mikojan svaraði því einu til, að
íbúar Austur-Þýzkalands styddu
austur-þýzku stjórnina.
Mikojan sagði að Rússar
styddu tillögu Rapackis utanrík-
isráðherra Póllands um kjarn-
vopnalaust svæði í Mið-Evrópu.
En Rússar vildu jafnvel ganga
enn lengra. Þeir vildu að allt
herlið yrði flutt á brott af svæði
sem væri 800 km sitt hvoru meg-
in frá Saxelfi. Sovétríkin eru
jafnvel fús að ræða enn frekari
vopnleysi Evrópu.
Hubert Humphrey kveðst þó
telja af ummælum Mikojans, að
hann hafi ekki verið eins harður
Berlínarmálinu eins og Sovét-
stjórnin hefur verið til þessa.
Virðist sem Mikojan sé nú orðið
fullljóst, að öll bandaríska þjóð-
in stendur sameinuð að baki
þeirri stefnu, að Vestur-Berlín
skuli ekki ofurseld kommúnist-
París 1956 milli íslenzkra og
brezkra togaraeigenda og sem
batt endir á fjögurra ára deilu
við ísland um fjögurra mílna
landhelgina. Núverandi deila
við ísland er deila milli ríkis-
stjórnanna og Samband
brezkra togareigenda mun
halda áfram að styðja brezku
stjórnina í tilraunum hennar
til að ná samkomulagi. Við
getum ekki gefið yfirlýsingu
varðandi ákvörðun yfirmanna
á togurunum fyrr en við höf-
um haft tækifæri til að ræða
málin við þá, eins og þeir hafa
líka stungið upp á“.
Meginþorri allra norskra
fiskimanna vill víkkun
landhelginnar
NILS Lysö fiskimálaráðherra
Noregs hefur fyrirskipað norsku
landhelgisgæzlunni að fylgjast
með því, hvort erlendum togur-
um fjölgar á miðunum fyrir
Norður Noregi. Telur hann að ef
um aukinn ágang sé að ræða,
verði ekki hjá því komizt að
víkka norska landhelgi úr 4 í 12
sjómílur. Telur hann ástandið
nógu slæmt í norskum sjávarút-
vegi þótt aukinn ágangur er-
lendra togara bætist ekki ofan á.
Eins og kunnugt er hafa fiski-
menn í Norður Noregi ítrekað
sett fram kröfur um að landhelg-
in þar verði víkkuð. Fiskimenn
allt suður í Þrændalög hafa ein-
dregið talið að víkka bæri land-
helgina tafarlaust.
Bretar hóta að auka
landhelgishrot 12. febr.
LUNDÚNAFRETTARITARI
norska blaðsins Aftenposten
skýrir frá því að brezkir tog-
arar ætli að auka veiðar sín-
Rússar mótmæla
flugvallargerð
á Svalbarða
OSLO, 16. jan. — (NTB) —
Sovétríkin hafa sent orðsend-
ingu til Norðmanna þar sem þau
mótmæla flugvallargerð á Sval-
barða. Halvard Lange, utanríkis-
ráðherra Norðmanna, hefur lýst
því yfir, að ekkert ákvæði í Sval
barðasamningi Norðmanna og
Rússa sé því til hindrunar, að
flugvöllur verði gerður þar.
Það er norska fyrirtækið
Norsk Polar Navigasjon h.f. sem
hefur fengið ieyfi tii að gera
einkaflugvöll við Kvadehuken
um 100 frá Nýja Álasundi, helzta
bæ Svarðbarða. Nægilegt fjár-
magn er fyrir hendi tii að vinna
verkið og á flugvallargerðin að
hefjast 15. júní n. k.
ar undan íslandsströndum frá
og með 12. febrúar n. k. ef
ekki takist fyrir þann tíma að
koma á samkomulagi í fisk-
veiðideilunni.
Að sögn Aftenposten er
ætlunin að setja upp þrjú
fiskveiðibelti frá 12. febrúar,
en hvert þessara fiskveiði-
belta verður 200 mílna breitt.
Randaríkin gefa
stórfé til heilbrigð
ismála
GENF, 15. jan. Reuter. — Banda-
ríkin hafa lagt fram 3 milljónir
dollara til Alþjóða-heil'brigðis-
málastofnunarinnar í því skyni
að uppræta mýrarköldu í heim-
inum á þessu ári. Var upphæðin
afhent í Genf í gær, og hafa þá
Bandaríkin alls lagt fram 14V2
milljón dollara til baráttunnar
við mýrarköldu síðan 1956.
Starfið að upprætingu mýrar-
köldunnar hefir borið furðu-
góðan árangur.
Þegar kemur suður á Mæri og
Firði hafa fiskimenn hins vegar
verið hikandi í afstöðu sinni. Þeir
höfðu hagsmuni að gæta í sam-
bandi við úthafsveiðar sínar í
kringum ísland og Grænland.
Nú hefur sú merkilega þróun
orðið að fiskimennirnir suður á
Mæri og Fjörðum eru komnir á
þá skoðun að það beri að víkka
landhelgina. Munu það vera síld-
veiðarnar við Noregsströnd, sem
þeir hafa í huga. Má þá heita að
meginþorri norskra fiskimanna
krefjist víkkunar.
Nils Lysö fiskimálaráðherra
sagði nýlega í samtali við Aften-
posten, að vegna aukins ágangs
útlendra togara verði æ örðugra
fyrir norsk fiskiskip að athafna
sig fyrir utan 4-mílna landhelg-
ina. Nemur tjón norskra útvegs-
manna af ágengni Breta hundr-
uðum þúsunda króna.
í sama blaði af Aftenposten og
skýrt er frá þessu birtist enn ein
fréttin frá Norður Noregi um það
að útlendur togari hafi vaðið yfir
veiðarfæri norskra sjómanna í
Vesturálnum. Veiðarfæri að verð
mæti 13 þúsund norskar krónur
eyðilögðust. Þau voru öll glöggt
og réttilega merkt. Ekki tókst að
ná nafni né númeri hins útlenda
togara.
Mynd þessi var tekin viff setningu norska stórþingsins í þinghúsinu viff Karl Johannsgötu.
Aff undanförnu hafa vífftækar breytingar og endurbætur farið fram á þinghúsinu og lítur þing-
saiurinn út eins og nýr. —
Ekki rætt mn þing
S. Þ. í Möskvu
NEW YORK, 16. jan. — NTB. —
Hammarskjöld framkvæmda-
stjóri S. Þ. sagði í dag, að hann
væri gla'ður yfir því, að honum
gafst tækifæri til að hitta Mik-
oyan varaforsætisráðherra Rúss-
lands í gær. Segist hann hafa
rætt við hann almennt um mál,
sem skipta S.Þ. Hins vegar var
ekki rætt um þann möguleika
að næsta Allsherjaarþing S. Þ.
yrði haldið í Moskvu.
Óeirðir í Leopold-
ville?
BRÚSSEL, 16. jan. (NTB). Lausa
fregnir frá Leopoldville hermdu,
að í dag hefði á nýjan leik komið
til óeirða í borginni. Belgísk yf-
irvöld og útvarpsstöðin í Leopold
ville hafa þó algerlega neitað
þessum orðrómi.
Laugardagur 17. janúar.
BIs. 3: Stjórnarkjör í Þrótti í dag of
á morgun.
Eimskip 45 ára.
— 6: Alvarlegt ástand í Finnlandi.
— 8: Ritstjórnargreinin: Sekir menn.
Utan úr heimi: Undir ísbreið-
unni í Grænlandi.
— 9: Bókaþáttur: Gairgrimlahjólið
eftir Loft Guðmundsson (sam).
Hestamannarabb II: Fóðrun og
hirðing reiðhesta.
— 15 fþróttir.
L E S B Ó K
fylgir blaðinu í dag.
Efni hennar er m.a.:
Framtíðarlandið Alaska.
Úr sögu skóganna á íslandi, eft
ir Jón Jósep Jóhannesson, cand.
mag.
Nýtt afrek læknislistarinnar:
Daufir fá heyrn.
Úr ríki náttúrunnar: Bambus.
Bridge, Fjaðrafok o.fl.