Morgunblaðið - 17.01.1959, Side 2
2
MOitr.inyni. aðið
Laueardaerur 17. ian. 1959
Nýr félagsskapur Vest-
ur-íslendinga Canada-
lceland Foundation
í KANADA er um þessar mund-
ir verið að stofna félagsskap, sem
ber heitið Canada- Iceland
Foundation. í vesturíslenzka blað
inu Lögbergi 1. jan. skrifar
Stefán Hansen grein, þar sem
hann gerir grein fyrir hinu nýja
félagi. Hér fer á eftir stuttur úr-
dráttur úr henni:
Meira en áttatíu ár eru nú
liðin síðan fyrstu íslenzku land-
námsmennirnir komu til Kanada,
og á þeim tíma hafa frumherj-
arnir ásamt afkomendum sínum
lagað sig eftir kanadískum þjóð-
félagsháttum. Vegna margs kon-
ar samskipta og tengda við hér-
lent fólk hafa þjóðareinkenni
Vestur-íslendinga orðið smám
saman óaðskiljanlegur hluti hinn
ar kanadísku þjóðasamsteypu.
Slíkur samruni hefir breytt þjóð-
félagslegum, efnahagslegum og
menningarlegum viðhorfum vor-
um. Þannig má segja, að sum
þeirra málefna, sem félög hinna
fyrstu íslendinga vestur hér létu
til sín taka, hafi að nokkru leyti
úrelzt..........Á hinn bóginn
eygjum vér nú nýjar leiðir og ný
málefni, sem hægt er að vinna að
og til gagnsemdar mega horfa.
Ætti slíkt að endurlífga áhuga
vorn og virðingu fyrir því, sem
verðmætast er í hinum íslenzka
arfi vorum.
Höfuðstefnuskráratriði Canada-
Iceland Foundation eru sem hér
segir samkvæmt stofnskrá félags
ins:
1. Að efla menningarleg tengsl
milli Kanada og íslands og
auka gagnkvæman skilning
þeirra þjóða, sem þessi lönd
byggja.
2. Að efla virðingu manna fyrir
skyldum menningarerfðum
áðurnefndra tveggja þjóða, en
þær erfðir birtast oss m.a. í
lýðræðislegu stjórnarfari og
virðingu fyrir lögum og rétti.
3. Að koma því til leiðar, að
íslenzk tunga verði viður-
kennd sem föst námsgrein í
sambandi við æðra enskunám
í kanadískum háskólum.
4. Að styðja stúdenta, sem
stunda íslenzkunám við kana-
díska háskóla, og veita þeim
námsstyrki.
5. Að efla áhuga Kanadamanna
af íslenzkum ættum á listum,
bókmenntum og þjóðfélags-
fræðum og styrkja þá til
náms og starfs í þessum grein-
um.
6. Að veita íslenzkum stúdent-
um fjárstyrki til náms við
kanadíska háskóla og greiða
götu þeirra hér vestra á einn
eða annan hátt. Að styðja á
sama hátt kanadíska stú-
denta, sem hafa í hyggju að
stunda nám við Háskóla ís-
lands.
7. Að stuðla að því, að íslenzkar
bókmenntir verði þýddar á
ensku og kanadískar bók-
menntir á íslenzku.
8. Að koma á gagnkvæmum
heímsóknum kanadískra og ís-
lenzkra listamanna og stuðla
að gagnkvæmri kynningu í
list þeirra. Koma hér til
greina sýningar á listaverk-
um, leiksýningar, hljómleik-
ar og útgáfustörf.
9. Að stuðla að söfnun og varð-
veizlu listaverka, listmuna,
bóka, tímarita, handrita og
skjala, sem á einhvern hátt
varða ísland eða íslendinga
og fólk af íslenzkum uppruna.
í fyrrgreindri stofnskrá hefir
Canada-Iceland.Foundation áskil
ið sér rétt til þess að styrkja fé-
lög, útgáfufyrirtæki og annars
konar stofnanir, sem stefna að
svipuðum markmiðum og greind
eru hér á undan í stefnuskrá fé-
lagsins.
Heiðursverndarar félagslns eru
Vincent Massey, landstjóri
Kanada og herra Ásgeir Ásgeirs-
son forseti fslands. Meðal heiður-
ráðgefenda eru utanríkisráðherr-
ar beggja landanna biskup ís-
lands, rektor Háskóla íslands og
rektor háskólans , Alberta og
meðal heiðursfulltrúa Thor
Thors, rektorar ýmissa kanadíska
háskóla o.fl. Forseti félagsins er
W.J. Lindal dómari og varafor-
seti Dr. P.H.T. Thorláksson.
Huðmyndina að stofnun félags
ins átti Walter J. Lindal, dómari,
sem skipar forsæti innan sam-
takanna. Hann hefir að verulegu
leyti haft veg og vanda af því að
koma málum vorum í núverandi
horf. Um skipulagningar- og
framkvæmdaratriði ýmiss konar
hefir dómarinn notið stuðnings
og hollráða þeirra manna, sem
nú eru skráðir stofnendur félags-
ins.
ísland — Kandada-ráff
Á íslandi hefur verið gengizt
fyrir félagsstofnun, sem nefnist
ísland—Kanada ráð. Starfar það
ráð á svipuðum grundvelli og
Canada-Iceland Foundation. Eft-
irtaldir menn eiga þar sæti: Hall
grímur F. Hallgrímsson, ræðis-
maður Kanada á íslandi, Vil-
hjálmur Þór, bankastjóri, próf.
Þorkell Jóhannessón rektor, Ás-
mundur Guðmundsson biskup,
Gylfi Þ. Gíslason, mennta.
málaráðherra, Guðm. I. Guðm
mundsson, utanríkisráðherra,
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, Bjarni Benediktsson, rit-
stjóri, Sigurður Nordal fyrrv. am
bassador, Sigurður Sigurðsson,
berklayfirlæknir og Guðmundur
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri.
Þrír hinir fyrstnefndu eru
í stjórnarnefnd, en forsæti skipar
Hallgrímur F. Hallgrímsson.
Fyrst um sinn mun aðalverkefni
ráðsins verða í því fólgið að láta
í té stuðning og leiðbeiningar
varðandi umsóknir frá íslandi
um námsstyrki þá, sem Canada
Council hefir auglýst samkvæmt
grein nr. 8 í reglugerð þeirrar
stofnunar.
Þessi mynd er tekin í hinni nýju fiskbúff aff Dunhaga 18. —
Fyrir innan búðarborðið standa (frá vinstri): Páll Pálsson,
skrifstofustjóri Fiskhallarinnar, Steingrímur Magnússon, for-
stjóri, og Halldót Sigurðsson, sem veitir hinni nýju búð forstöðu.
Nýtízku fiskbúð opnuB í
gœr að Dunhaga 18
HINN kunni fisksali hér í bæ,
Steingrímur Magnússon, forstjóri
Fiskhallarinnar, opnaffi í gær
nýja fiskbúð að Dunhaga 18, í
nýju húsi, þar sem fleiri verzl-
anir mun hefja starfsemi innan
skamms.
Steingrímur Magnússon er,
sem kunnugt er, einn af frum-
herjum í fisksölumálunum hér í
Reykjavík. Hann hóf fyrst verzl-
un með fisk hér árið 1913. Hefur
hann stundað þessa verzlun síð-
an óslitið og smám saman fært
út kvíarnar, þannig að hann rek-
ur nú sjö fisksölubúðir í bæn-
um, í ýmsum hverfum, auk þess,
sem fyrirtæki Steingríms sér ein-
um átta útsölustöðum að auki
fyrir fiski.
Þegar fiskbúðin nýja var opn-
uð í gær — en þar voru viðstadd-
ir fréttamenn blaða og útvarps,
auk annarra gesta — lét Stein-
grímur m. a. þau orð falla, að
hann hefði aldrei gert neinn form
legan samning um fisksölu á öll-
um sínum verzlunarferli, utan
einu sinni, — og sá hefði reynzt
Brezkir síldveiðimenn
vilja loka Norðursjónum
BREZKIR síldarútvegsmenn
krefjast þess að síldveiðar í
Norðursjó verði takmarkaðar.
Náist ekki samkomulag um
veiðitakmarkanir óttast þeir
að rússneskir og pólskir veiði
flotar gereyði síldarstofninum
á Norðursjó. Norska blaðið
Aftenposten skýrir nýlega frá
þessu.
Tilefni þessara hugleiðinga er
það, að vetrarsíldyeiðunum
brezku er lokið. Vertíðin hefur
brugðizt ár eftir ár, en aldrei hef-
ur hún þó verið lakari en einmitt
í vetur. Samtals voru lögð á land
í Austur Anglia 61 þúsund mál.
en það er um 50 þúsund málum
minna en í fyrra, þegar vertíðin
var þó léleg. Á síðustu sjö árum
hefur tala síldarbáta í Lowestoft
og Yarmouth lækkað úr 365 í 172.
Þeim mun enn fækka eftir þessa
útkomu.
í næstu viku verður haldin í
Lundúnum alþjóðleg fiskveiðiráð
stefna og taka þátt í henni þau
ríki sem undirrituðu sáttmála um
fiskveiðar í Norðursjó 1946. Hafa
síldarútvegsmenn haldið fundi
með sér til undirbúnings þessari
ráðstefnu. Þeir segja að hinn
gamli sáttmáli nægi nú ekki leng-
ur. Formaður síldarútvegsnefnd-
ar Breta Mr. F.E. Catchpole segir
meira að segja að það sé þýðing-
arlaust að vera að setja reglur um
möskvastærð, því að reynsla sé
sú, að slíkar reglur séu ekki
haldnar.
Sagt er að strangt eftirlit sé
með möskvastærð brezkra báta
og hljóta þeir tafarlaust refsing-
ar, ef þeir brjóta reglurnar. En
rússnesku og pólsku togararnir,
sem flykkjast í hundraðatali á
miðin og sem hafa verksmiðju-
skip með sér, halda engar reglur,
heldur moka síldinni upp, af
hvaða stærð sem hún er. Þessir
risaflotar hafa samstarf sín á
milli og ef þeir finna síldargöng-
ur kemur fjöldi þeirra á vettvang
og áður en við er litið hafa þeir
gersamlega sópað síldartorfunni
upp.
Brezkir sjómenn kalla sildveiði
flota Rússa og Pólverja „ræn-
ingjaflotana". Þeir segja, að
strax og brezkur bátur finnur
síld á einhverjum stað í sjónum
séu Rússarnir og Pólverjarnir
komnir að þeim og byrjaðir að
„sópa“. Bretar eru sannfærðir um
að það sé ekki eini tilgangur þess
ara „ræningja“ að fullnægja
þörfum heimamarkaðar, heldur
sé ætlun þeirra beinlínis að
þurrka út brezkan sjávarútveg.
Á í sambandi við þessa
frétt er rétt að benda á það,
aff sáttmálinn frá 1946 um
fiskveiðar í Norðurjó fjallar
um möskvastærð og minnstu-
stærð veiddra fiska. En þær
reglur ná ekki til síld og
makrílveiða. ,
Það skal tekið fram að fisk-
veiðar Rússa og Pólverja á
Norðursjó fara fram á opnu
hafi. Þær fara fram miklu
lengra frá ströndinni en 12
milur.
illa. Var á honum að heyra, að
hann mundi ekki reyna slíkt í
annað sinn. Þess virðist heldur
ekki þörf, þar sem fyrirtækið
hefur blómgazt svo sem raun ber
vitni. að taka upp aðra viðskipta-
háttu en tíðkazt hafa þar til
þessa.
Jafnframt því sem hin nýja
fiskbúð var opnuð, hefur verið
lögð niður búðin að Fálkagötu 19,
sem þar hefur starfað um skeið
í ófullkomnu húsnæði. — Aftur
á móti er óhætt að segja, að i hinu
nýja húsnæði, að Dunhaga 18, sé
öll aðstaða hin bezta. — Búðin,
ásamt geymsluherbergi á bak við,
þar sem jafnframt er tekið á móti
fiskinum, sem að berst, er um
50 fermetrar að stærð. Er þar
hið bezta frá öllu gengið og inn-
rétting mjög smekkleg.
Verða þarna seldar allar þær
tegundir fiskmetis, sem á mark-
aði eru. í sama húsi verða auk
þess í framtíðinni aðrar matvöru
verzlanir, eins og fyrr er getið,
þannig að segja má, að þarna
verði „allt á sama stað“ fyrir hús-
mæðurnar í Högunum og þar x
kring.
Mikið veiðaríæra-
tjón
OSLÓ, 16. jan. (NTB). — Norsk-
þýzka togaranéfndin mun halda
fundi í Tromsö í Norður-Noregi
20.—22. janúar. Nefnd þessi úr-
skurðar um skaðabætur til
norskra útvegsmanna fyrir
skemmdir sem þýzkir togarar
valda þeim á veiðarfærum. —
Norsku útvegsmennirnir hafa
aldrei gert jafnháar skaðabóta-
kröfur sem nú. Nema þær milli
300 þús. og 400 þús. kr. norskum.
Sýnir þetta aukinn ágang er-
lendra togara.
Óvíst er uin kjör-
dag biskups
SJÓRNARBLAÐÍD Alþýðublað-
ið skýrir frá því í gær, að biskups
kjör muni fram fara hér í marz-
mánuði næstkomandi.
Morgunblaðið hefur nú aflað
sér nánari upplýsingar málið
varðandi. Kom brátt í ljós, að
þeir sem gjörst ættu það að vita,
að sjálfum kirkjumálaráðherra
slepptum, töldu að sjálf kjör-
nefnd biskupskjörsins væri ekki
búin að taka neina ákvörðun um
kjördaginn.
Þá spurðist Mbl. fyrir um mál-
ið hjá formanni Prestafélags ís-
lands, séra Jakobi Jónssyni.
Hann vissi ekki til að ráðuneyt-
ið væri búið að gefa neina til-
kynningu um nýjan frest til
biskupskjörs. Stjórn félagsins bíð
ur einmitt eftir ákvörðun kirkju-
málaráðuneytisins um það
hvenær kjörið skuli verða, með
tilliti til þess að hægt verði að
ljúka þeim prófkosningum meðal
presta landsins, sem gert er ráð
fyrir að fram fari áður en sjálfar
biskupskosningarnar fara fram.
Ferð til Venusar
og Marz undirbúin
WASHINGTON, 16. jan. (NTB)
— Bandaríski flugherinn hefur
gert samning við Convair-flug-
vélaverksmiðjurnar bandarísku,
að þær smíði eldflaugahreyfil,
sem verður nógu öflugur til að
knýja eldflaug til Venusar eða
Marz. Er þess vænzt að fyrsta
geimfarið sem eldflaug þessi á
að lyfta vegi 5 tonn.
Ceylon verður
lýðveldi
Samvinnunefnd beggja deilda
þykkt að leggja til að lýðveldi
þjóðþings Ceylons hefur sam-
verði stofnað á eynni, sem lúti
þá ekki lengur hinni brezku
drottningu, heldur hafi sinn
eigin forseta.
Hins vegar leggur nefndin til
að Ceylon verði áfram innan
brezka samveldisins.
Tamil-flokkurinn sem er
stærsti stjórnmálaflokkur Ceylon
neitaði að starfa í nefndinni.
Hann er flokkur þjóðernisminni-
hluta Tamila á eynni.
Kommúnistar í nefndinni voru
samþykkir því, að Ceylon yrði
lýðveldi. Þeir voru mótfallnir því
að eyjan yrði áfram innan brezka
samveldisins.
Nefndarálitið fer nú fyrir sam-
einað þjóðþing og þarf % hluta
atkvæða til þess að ná samþykki.
Ljóst þykir að nægur meirihluti
fáist, þar sem allir stjórnmála-
flokkar Ceylon utan Tamila-
flokkurinn eru samþykkir stofn-
un lýðveldis.
Lokið rannsókn í þjófn-
aðar- og skemmdaverka-
málum drengja
I SAMBANDI við innbrot þau í Drengirnir komust oftast
suðvesturbænum að undanförnu, I á auðveldan hátt inn í íbúðirnar,
sem rannsóknarlögreglan hefur
haft til meðferðar, hafa 10 dreng-
ir á aldrinum 11—14 ára verið
kallaðir fyrir og hafa þeir allir
reynzt meira og minna flæktir í
málið.
Það er ekki einasta um að ræða
þessi húsbrot heldur og hnupl og
þjófnaði í verzlunum. Tveir
drengjanna hafa farið inn í 14
íbúðir hér í bænum. Þar hafa
þeir ýmist stolið eða framið
skemmdarverk.
Hinir drengirnir átta, undir
forustu 14 ára drengs, hafa geng
ið í verzlanir og hnuplað ýmis
konar varningi, sem þeir yfirleitt
hafa eyðilagt.
þar sem þær voru opnar og mann
lausar, eða opinn gluggi. í aðeins
fáum tilfellum var um að ræða
innbrotsþjófnað á þann hátt að
þeir hafi hreinlega brotizt inn í
íbúðirnar.
Foreldrar drengjanna voru
með öllu grunlausir. Drengirnir
gerðu þetta um hádagiim og
ekkert óeðlilegt var við útivist
þeirra eða hangs úti á kvöldin,
er vakið gæti minnstu grunsemd-
ir. Ekki er talið að drengirnir
hafi leiðzt út í þetta í því skyni
að auðga sig, heldur miklu frem-
ur af algjöru dómgreindarleysi og
barnaskap.