Morgunblaðið - 17.01.1959, Síða 16

Morgunblaðið - 17.01.1959, Síða 16
V EÐRID NA-kaldi. — Skýjað. — 13. tbl. — Laugardagur 17. janúar 1959 Bókaþáttur Sjá bls. 9. Lýðtœðissinnar leggja tram lista I Pagsbrún LYÐRÆÐISSINNAR í Dagsbrún lögðu í gær fram lista sinn til stjórnarkjörs í félaginu, en kosn- ingar eiga að fara fram um helg- ina 24. og 25. þ.m. Listinn, sem er B-listi, er skipaður eftirtöld- um mönnum: ASalstjórn: Jón Hjálmarsson, form., Ingólfsstr. 21A. Jóhann Sigurðsson, varaform., Ásgarði 19. Kristiníus Arndal, ritari, Heiðargerði 35. Daníel Daníelsson, gjaldkeri, Þingholtsbr. 31. Magnús Hákonarson, fjárm.r. Garðsenda 12. Tryggvi Gunnlafugsson, Digranesv. 35. Gunnar Sigurðsson, Bústaðavegi 105. Varastjórn: Guðm. Jónss., Bræðrab.st. 22. Sigurður Þórðarson, Fossg. 14. Karl Sigþórsson, Miðtúni 68. Stjórn Vinnudeilusjóðs: Sigurður Guðmundsson, Freyjugötu 10A. Guðm. Nikuláss., Háal.v. 26. Sigurður Sæmundsson, Laugarnescamp 30. Varastjórn: Þórður Gíslason, Meðalholti 10. Hreiðar Guðlaugss., Ægiss. 107 Endurskoðendur: Guðm. Kristinss., Sörlaskj. 17. Guðm. Sigurjónss., Baldursg. 28 Til vara: Jón Sigurðsson, Kársnesbr. 13 Dagsbrúnarstjórnin var samþykk hrunstefnu fyrrv. ríkisstjórnar GREINILEGT var á Þjóðviljan- um í gær, að kommúnistarnir í Dagsbrún hafa orðið óttaslegnir, er þeir vissu að andstæðingar þeirra myndu bera fram lista til stjórnarkjörsins. Bera þeir verka mönnum þeim, sem að listanum standa það á brýn, að þeir ætli að beita sér fyrir stórfelldri kjara íslendingur fœr náms- styrk frá Rotary Inter- national NÝLEGA var úthlutað náms- styrkjum til framhaldsnáms er- lendis úr Rotary Foundation, sem er sérstakur sjóður innan Rotary International. Námsstyrkir þessir eru ætlaðir til eins árs náms við erlenda háskóla og eru með hæstu styrkjum sem veittir eru eða að meðaltali $ 2.600. Meðal þeirra, sem hlutu þenn- an styrk fyrir skólaárið 1959— 1960 er íslendingur, Jónas Hall- grímsson, cand. med. Jónas er Skaftfellingur að ætt, sonur Hall gríms Jónssonar, húsvarðar hjá Sláturfélagi Suðurlands og Þór- önnu Magnúsdóttur konu hans. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1951 og læknisfræðiprófi frá Háskóla ísland* sl. vor með einni hæstu einkunna, sem teknar hafa verið í þeirri deild. Síðan Tilboð LÍÍJ sent færeyska útvarp- inu í GÆR sendi Landssamband ísl. útvegsmanna útvarpinu í Fær- eyjum, greinargerð, um ráðning- arkjör þau, sem boðin hafa verið færeyskum sjómönnum, er til ís- lands vilja koma. 1 gærkvöldi var ekki vitað hvaða undirtektir þessi orðsend- ing LÍÚ hlaut hjá forráðamönn- um færeyzka útvarpsins. Með þessu vildi LÍÚ reyna að tryggja það, að sjómennirnir, sem nú ganga atvinnulausir þar í stór hópum, fái rétta mynd af tilboði íslenzkra útvegsmanna til þeirra. Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 s.d. SPILAKVÖLD Á AKRANESI Sjálfstæðisfélögin Akranesi halda spilakvöld í Hótel Akranes Sjálfstæðishúsinu á sunnudags- L kvöldið kl. 8,30. í vor hefur hann starfað á Rann- sóknarstofu Háskólans. Jónas hyggst nota styrkinn til framhaldsnáms í lyflæknisfræði við Minnesotaháskóla í Banda- ríkjunum, en þar er talin vera mjög góð læknadeild. Er gert ráð fyrir að styrkur þessi dugi fyrir ferðakostnaði, uppihaldi og öðru sem nauðsynlegt er til eins árs námsdvalar. Styrkveitingar Rotary Inter- national eru einn þáttur í því starfi Rotary að auka kynni þjóða á milli og skilning á alþjóða vandamálum. Styrkirnir eru ein- göngu veittir stúdentum, sem sýnt hafa sérstaka hæfileika og skarað fram úr við nám. Ræður styrþeginn því sjálfur hvar hann stundar námið. þau Jón Bergs, stundar námið. Áður hafa þrír íslendingar hlotið slíka styrki, þau Jón Bergs, Jón Tómasson og María Sigurðardóttir. — Af þess- um fjórum styrkþegum hefur einn stundað nám í Þýzkalandi, hinir í Bandaríkjunum. Jóns Magnússonar minnzt á Alþingi FUNDIR voru séttir í báðum deildum Alþingis á venjulegum tíma í gær. í upphafi fundar minntust deildarforsetar þess, að hundrað ár voru liðin frá fæð- ingu Jóns Magnússonar forsætis ráðherra og risu þingmenn úr sæt um sínum til virðingar við minn. ingu hans. Eitt mál var á dagskrá efri deildar, frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýra- lækna. Var það til þriðju umræðu og samþykkt, en verður sent aft- ur til neðri deildar vegna breyt- inga, sem gerðar voru á því í efri deild. Tvö mál voru á dagskrá neðri deildar. Frv. um skipulagningu samgangna var tekið út af dag- skrá, en frv. um breyting á lögum um bæjarstjórn í Hafnarfirði var til fyrstu umræðu og samþykkt samhljóða til annarrar umræðu og vísað til allsherjarnefndar. Er efni þess frumvarps á þá leið, að breyta takmörkum lögsagnarum- dæmis Hafnarfjarðar, en bærinn hefur á síðustu árum vaxið út fyrir kaupstaðatakmörkin skerðingu. Jafnframt ráðast þeir að ákveðnum andstæðingum sín- um í félaginu á sinn venjulega hátt: með persónulegum svívirð- ingum. Öðrum ferst en ekki þeim, sem hafa á undanförnum árum staðið fyrir stórfelldari kjaraskerðingu heldur en áður hefur þekkst með vísitölubindingu, víitölufölsun, stórfelldri skattpíningu, gengis- lækkun, hækkimum á neyzluvarn ingi og stórlega minnkandi kaup mætti launa. Allt þetta gerðist í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, en þar fóru kommúnistar með stjórn efnahagsmálanna sem kunnugt er og forystulið Dagsbrúnar studdi stefnuna í efnahagsmálun- um eftir megni. Þegar svo stjórn hinna „vinn- andi stétta“ loks féll eftir að ráðu nautar hennar í efnahagsm.álum höfðu lýst yfir því, að nú væri' aðeins eftir, að ganga fram af brúninni, voru kommúnistar — og þá auðvitað stjórn Dagsbrún- ar einnig — reiðubúnir þess að framkvæma enn stórkostlegri kjaraskerðingu en áður hafði verið gerð, til þess að tryggja Hannibal og Lúðvík áframhald- andi setu í ríkisstjórninni í skjóli Framsóknar. Verkamenn þekkja þessa sögu vel og munu þess vegna dæma kommúnista eftir verkum þeirra er þeir greiða atkvæði við þær stjórnarkosningar sem framund- an eru. Vatnið í vatnsból- inu þverr óðurn AKRANESI, 16. jan. — Vatnið í Seleyrargili undir Hafnarfjalli sem er vatnsból Borgnesinga þverr nú óðum, vegna mikilla og langvinnra frosta. Munu Borg- nesingar óttast að svo geti farið sem fór hér fyrir nokkrum ár- um, að vatnið fraus í leiðslunni, og senda varð bíla til að flytja vatnið að í tunnum og tönkum. Vestur á Valhúsahæð er byrjað að hengja upp keilu og löngu til herzlu, á fisktrönum, sem Ingvar Vilhjálmsson útgerðar- maður á þar. Tók ljósmyndari Mbi. þessa mynd þar vesturfrá I gærdag, er strákarnir voru í bezta veðri að hengja upp stærðar keilur. I Bátur eldi stórskemmdist Njarðvíkum i EldsupptÖk líklega frá ljósaperu, sem sprakk KEFLAVÍK, 16. jan. — Um klukk an 4 í dag kom upp mikill eldur í vélskipinu Braga frá Reykja- vík, sem er til viðgerðar í drátt- arbraut Njarðvíkur. Þegar eldur- inn brauzt út, var verið að vinna við að koma fyrir stefnisröri. Var verið að renna niður sjóðandi stálbiki með rörinu til þéttingar og lagði allmikinn reyk frá því. Er maðurinn, sem vann þetta verk, hafði hellt bikinu, brá hann sér upp á þilfar, en ekki var neinn eldur óbirgður niðri, er orsakað gat íkveikju. Maðurinn var rétt kominn upp, er hann varð var við að eldur var laus niðri. Kallaði hann til manna, sem hann vissi að voru í brúnni og aðvaraði þá. Voru þrír menn í skipstjóraklefanum og sluppu þeir ,þaðan nauðuglega út. Svo ört breiddist eldurinn um brúna, að hún var alelda á svipstundu. Geta menn sér til að orðið hafi sprenging frá færiljósi (hundí) er fallið hafði en rafmagnsperan sprungið. Loftið var mettað bráð eldfimum stálbiks reyk. Slökkvilið Keflavkur og flug- vallarins komu þegar á vettvang. Mjög erfitt var að komast að eld- inum þar sem brú skipsins er úr Stálu brétum úr póstbox- um og hirtu frimerkin KOMIZT hefur upp um póstþjófn að hér í Reykjavík. Hafa verið hér að verki tveir drengir, 14 ára, sem farið hafa í eitt og sama póstboxið síðan fyrir jól. Drengir þessir voru staddir í boxaherberginu. Fundup þeir þar á gólfinu póstboxalykil. Þeir tóku lykilinn og reyndu hann í öllum boxum unz þeir hittu á það rétta. Síðan fóru þeir alloft í boxið, og tóku þar bréf, póstkröfur og alls konar póst, sem frímerki voru á. Báðir voru drengirnir miklir áhugamenn um Er | ífimerkjasöfnun, frumvarpið flutt samkv. ósk bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar. Svo var það nú fyrir nokkrum dögum, að þeir komu niður í póst hús, í póstboxaafgreisðluna, að þeir komu að boxi, sem lykillinn hafði gleymzt í. Þeir tóku hann líka. Hugðust þeir hafa þetta póstbox undir líka við frímerkja- söfnun sína. Ekki hafði rannsóknarlögregl- unni verið tilkynnt um að póst- boxlyklar þessir væru horfnir. í gær fékk lögreglan ábendingu um þetta og var þá brugðið skjótt við og drengirnir teknir til yfir- heyrzlu. Þeir skiluðu aftur þó nokkru af póstkröfum og öðrum pósti, sem viðtakandi hafði átt að senda svar við. Einnig báðum póstbox- lyktlunum. stáli og eldtungur léku þar um og niðri í skipinu var allt alelda. Varð að rjúfa tvö göt á brúna með logsuðutækjum. Eftir nærri 3 klst. tókst loks að ráða niður- lögum eldsins. Höfðu þá orðið miklar skemmdir á skipinu. Inn. rétting öll í brúnni er gerónýt svo og káeta skipsins. Þá er aftur- þilfar skipsins að mestu ónýtt og mikið af innviðum aftur í mikið brunnir. Verið var einnig að koma fyrir nýrri vél í skipinu. Var hún niðri í lest. Ekki er vitað hvort hún skemmdist mikið, en yfirbreiðsla var yfir henni, og brann hún ekki. Mb. Bragi er tréskip smíðað í Ameríku og er um 90 tonn. Eig- andi skipsins er Valdimar Björns son í Njarðvíkum og fleiri. Meðan slökkviliðsmenn voru að berjast við eldinn í skipinu kom brunakall um að eldur væri í íbúðarhúsi einu við Holtgötu í Njarðvík. Voru sendir þangað tveir slökkviliðsbílar. Var eldur þar ekki mikill aðeins í mið- stöðvarklefa og var slökktur á augabragði. — Ingvar. Ekki annað eins veður síðan 1895 ÓLAFSVÍK, 16. jan. — Einn elzti íbúi Ólafsvíkur, Magnús Krist- jánssón smiður og meðhjálpari, sem nú er kominn yfir áttrætt og haldið hefur dagbók yfir veðrið hér í þorpinu síðan hann var 12 ára gamall ,sagði mér í dag, að síðan í janúar 1895, hefði ekki komið svo langur stillukafli sem nú. Undanfarna viku hefir verið hér slíkt fádæma logn að ekki hefur hár bærzt á höfði. Sjómennirnir hafa líka sótt sjóinn af kappi dag hvern síðan róðrar hófust 8. þ.m. Er heildar- aflinn nú orðinn rúmlega 320 tonn og meðalafli á bát tæplega 6 tonn í róðri. Aflahæstur er Jök- ull með 54,3 tonn í 7 róðrum. Héðan stunda nú 10 bátar róðra. — B.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.