Morgunblaðið - 20.01.1959, Side 1

Morgunblaðið - 20.01.1959, Side 1
20 SÍður Aftökum er erm haldið áfram á Kúbu HAVANA, 19. jan. (NTB) Fidel Castro, foringi hinna sigursælu uppreisnarmanna á Kúbu, hefur lýst því yfir, að ekki verði tekn- ir af lífi fleiri en 450 af fylgis- mönnum Batista einræðisherra. Pá var og tilkynnt í dag að rétt- arhöldum yfir nokkrum háttsett- ustu embættismönnunum yrði frestað fram á fimmtiudag til þess að gefa blaðamönnum frá öðrum Ameríkuríkjum tækifæri til að vera viðstaddir réttarhöldin. Hefur 350 blöðum, útvarps- stöðvum og sjónvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og í Latnesku Ameríku verið boðið að senda blaðamenn til að fylgjast með réttarhöldunum, sem eiga að fara fram í aðal-dómhöll Havana. Nokkru áður en réttarhöldin hefjast munu hundruð þúsunda Kúbu-búa taka þátt í fjöldagöngu að forsetahöllinni í Havana til að sýna stuðning sinn við upp- reisnarmenn og krefjast dauða- dóma yfir fylgisveinum Batista. Meðal fanganna sem nú sitja í herfangelsi Havana-borgar er Cantilla hershöfðingi, sem rak Batista frá völdum um áramót- in og afhenti uppreisnarmönnum öll ráð á Kúbu. Hann er sakaður um að hafa svikið samkomulag er hann gerði við Fidel Castro uppreisnarforingja, þar sem hann hafði heitið því að láta handtaka Batista. í stað þess leyfði hann hinum hataða einræð- isherra að sleppa úr landi. Fidel Castro fór í gær í heim- sókn til vestasta héraðsins á Kúbu, sem nefnist Pinar del Rio. Þegar hann sneri aftur til Hav- ana lýsti hann því yfir, að þrátt Framh. á bls. 2. Hollendingar uggandi yfir ofveiðinni í Norðursjó Mynd þessi var tekin fyrir nokkrum dögum í bænum Santiago á Kúbu, þegar fjórir fyrrverandi fylgismenn Batista einræðisherra voru leiddir fyrir herrétt og dæmdir til dauða. FULLTRÚI hollenzka fiskimála- ráðuneytisins hefur lýst því yfir' að Hollendingar séu allkvíðandi Stórar auglýsingar í færeyskum blöðum KAUPMANNAHÖFN 11. jan. (Frá Páli Jónssyni) — Berlingske Tidende skýrir í dag frá því að færeysku blöðin birti um þessar mundir stórar auglýsingar frá ís- lenzkum útvegsmönnum, þar sem óskað er eftir starfsfólki til frysti húsa og flökunarstöðva á fslandi. Það fylgir með fréttinni, að ekki séu taldar líkur á að þessi aug- lýsingaherferð beri mikinn árang ur, vegna 55% gjaldeyrisálagsins. vegna yfirlýsingar Nils Lysö, fiskimálaráðherra Noregs, um að Norðmenn kynnu að vera til- neyddir til að víkka landhelgi sína úr 4 sjómílum í 12. Hinn hollenzki fulltrúi segir, að Hollendingar stundi að vísu ekki fiskveiðar við Noregsstrend- ur og því snerti landhelgisvíkk- un þá ekki beint. Þeir óttast hins vegar að þær þjóðir sem nú stunda veiðar við Noreg muni sækja þeim mun meir á miðin í Norðursjónum og muni slíkt valda hollenzkum sjávarútvegi stórfelldu tjóni. Hollendingar benda á það, að ofveiði sé nú þegar í Norðursjón- um og sé sízt á það bætandi. Þarafleiðandi telja þeir útvíkkun landhelginnar við Noreg á móti sínum hagsmunum. Allsherjarverkfall líf og samgöngur í En rikisstjórnin kveðst muni beita her- valdi gegn ólöglegum verkföllum BUENOS AIRES, 19. janúar. (NTB). Útlit var fyrir það í dag, að allt athafnalíf í Argentínu myndi lamast fullkomlega í allsherjarverkfaili, sem hreiðist út um landið, eins og logi á akri. Útvarpsstöðvar landsins hafa í allan dag útvarpað að- vörunum frá Frondizi forseta um það að ríkisstjórnin muni ekki hika við að beita hervaldi til að bæla niður ólöglegar aðgerðir, sem beinast gegn lögmætri ríkisstjórn landsins. Allsher j ar verkf allið lamar athafna- Argentínu er svar verkalýðshreyfingarinnar við þeim aðgerðum ríkisstjórnarinn- Eisenhower leggur fram sparn- aðar-fjárlög — Aukin út- gjöld til eldflauga og geimflugs WASHINGTON, 19. janúar. (NTB). I dag lagði Eisenhower forseti fjárlagafrumvarp sitt fyrir bandaríska þjóðþingið. Forsetinn leggur megináherzlu á það að takmarka útgjöldin og koma í veg fyrir vaxandi verðbólgu. Hann áætlar heiidarútgjöld 77 milljarða doli- ara, eða 4 milljörðum dollara lægri en í fyrra. Lækkunin kemur einkum fram á útgjöldum til verklegra framkvæmda í Bandaríkj- unum sjálfum. Útgjöld til landvarna og til aðstoðar við önnur lönd haldast lítt breytt. Búizt er við að bandaríska þjóðþingið geri mikl- ar breytingar á frumvarpinu, en ný fjárlög eiga að ganga í giidi 1. júlí og gilda til jafnlengdar 1960. kjarnorkutilrauna, enda Fjárframlög til landvarna eru langstærsti liður fjárlagafrum- varps Eisenhowers, eða 41 millj- arður dollara. Til hernaðarað- stoðar við önnur lönd er áætlað 1,8 milljarðar dollara eða 462 millj. dollara minna en s. 1. ár. Til efnahagsaðstoðar við önnur lönd eru áætlað 1,6 milljarðar dollara, eða um 80 milljónum dollara meira en sl. ár. Til kjarnorkurannsókna er áætlað að veita 2,7 milljarða doll segir Eisenhower að stjórn Bandaríkj- anna hafi ákveðið að hætta til- raunum með kjarnorkuvopn. Eisenhower áætlar að verja 530 milljónum dollara til geim- flugs. Spáir hann því að ekki muni líða á löngu þar til menn fljúga til tunglsins. Hann ætlast til þess að útgjöld til þjóðvega og íbúðarhúsabygg- inga dragist saman. Þá áætlar hann að skattar lækki, nema en ekkert fé er veitt til póstgjöld, sem eiga að hækka og afgjald af flugvéla- sömuleiðis benzíni. Þetta fjárlagafrumvarp forset- ans gengur þegar undir nafninu sparnaðarfrumvarpið. Talið er að með útbýtingu þess hefjist mikið ófriðarbál í þingsölum Banda- ríkjanna. Þannig er ástatt að eft- ir þingkosningarnar í nóvember sl., hafa stjórnarandstæðingar, demókratar, meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Þykir það nú víst að þingið sé miklu eyðslusamara en forsetinn. Má vænta þess að það samþykki til- lögur um stóraukin útgjöld. Eink anlega er talið að demókratar leggi áherzlu á auknar opinberar framkvæmdir á sviði heilbrigðis-, mennta- og húsnæðismála. Robert Anderson, fjármálaráð- herra, átti í dag fund með blaða- mönnum, þar sem hann útskýrði fyrir þeim hið nýja fjárlagafrum- varp. Hann sagði m. a., að fjár- lögin undanfarin ár hefðu átt sína sök á verðbólgunni. Taldi hann það skyldu ríkisstjórnarinn ar að leggja fram fjórlög með fyllstu aðgætni. ar að beita hervaldi gegn verk- fallsmönnum í kjötiðnaðarmið- stöð Búenos Aires sl. laugardag. Höfðu um 5000 starfsmenn mið- stöðvarinnar búið um sig á kjöt- markaðnum til að mótmæla því að verksmiðjan yrði færð úr ríkiseign í einkaeign. Á laugardaginn komu 1000 lög- reglumenn og hermenn á vett- vang og notuðu skriðdreka til að brjótast inn á kjötmarkaðinn. — Vörðust verkfallsmenn í 4 klst. undir herópinu: „Peron“, en var um síðir dreift með táragasi. Þá þegar var engu líkara en Búenos Aires væri hernumin borg. Her- lið og skriðdrekar fóru um stræt- in, en þegar fregnirnar af árás- inni á verkfallsmenn bárust út um borgina hófu starfsmenn í kjötiðnaði og sláturhúsum sam- úðarverkfall. Það eru fylgismenn Perons, fyrrverandi einræðis- herra, sem fyrst og fremst beita sér fyrir mótmælaverkföllunum Peron dvelst nú í útlegð í Domini kanska lýðveldinu. Hafa Peron istar notað tækifærið að efna til óeirða einmitt nú, þegar Frondizi forseti var að leggja af stað úr landi í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Stærstu verzlanir í Búenos Aires urðu að loka í dag vegna þess að afgreiðslufólkið gerði verkfall. Sömuléiðis hafa allar flugferðir til og frá landinu stöðv azt. Strætisvagnar í borginni hafa stöðvazt og járnbrautarverk- fall er yfirvofandi. Sagt er að í dag hafi 70 leið- togar verkalýðshreyfingarinnar verið handteknir. Sé það rétt verður að aflýsa fundi, sem for- ingjar verkalýðshreyfingarinnar ætluðu að halda um framtíðar- stefnu í verkalýðsmálum. í dag var gefin út tilkynning um að allir karlmenn í varalið- inu, fæddir árið 1936, yrðu að gegna herkvaðningu meðan ár- gangarnir 1935 og ’34 eiga að vera viðbúnir að gegna kalli. ★ v Þá skýrði ríkisstjórnin frá því, að búast mætti við að í kvöld yrði gefin út tilskipun um að kveðja allt starfslið strætisvagna og sporvagna til opinberrar þjón- ustu. Verður starfsliðið þá allt að mæta til vinnu að viðlögðum þungum refsingum. Efni blaðsins m.a.: Þriðjudagur 20. janúar. Bls. 3: Vann 10 þús. kr. í útvarpsþætti. — 6: Andlegur leiðtogi Norðmanna látinn (Erl. yfirlitsgrein). Læknisleysi, atvinnuleysi, vega leysi (fréttabréf frá Ströndum). — 8: Aldarminning sr. Bjarna Páls- sonar í Steinnesi. — 9: Búnaðarfélagshúsið nýja (frá umræðum á Alþingi). — 10: Forystugrein: Lýðræðisskylda að kjósa. Aprikósa en ekki epli. (Utan úr heimi. — 11: Hitaveita eða hitamiðstöð, eft- ir dr. Benjamín Eiríksson. — 13: Hlustað á útvarp. Patreksfjarðarbréf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.