Morgunblaðið - 20.01.1959, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriffiudagur 20. jan. 1959
Kommúnistar ógiltu
tramboðslista Framsókn
armanna í Dagsbrún
ALÞÝÐBLAÐIÐ segir frá því sl.
sunnudag, að k-ommúnistar í Dags
brún hafi ógilt framboðslista
Framsóknarmanna til stjórnar-
kjörs i félaginu. Segir blaðið að
listinn hafi verið gerður ógildur
aðallega vegna skulda á félags-
gjöldum.
Dagana áður en framboðsfrest-
ur var útrunninn til stjórnar-
kjörs í Dagsbrún en það var sl.
föstudag urðu Dagsbrúnarmenn
þess varir að Framsóknarmenn
voru að undirbúa uppstillingu í
félaginu. Fóru sendimenn þeirra
á fjölda vinnustaða í bænum og
söfnuðu meðmælendur á fram-
boðslista.
Rétt um sex leytið á föstudag
fóru svo fulltrúar Framsóknar-
manna með listann á skrifstofu
Dagsbrúnar og lögðu h »nn fram.
En svo undarlega bregður við
að síðan hefur ekki heyrzt um
málið hvorki í Tímanum eöa
Þjóðviljanum. Þjóðviljinn sagði
frá því á laugardaginn að aðeíns
tveir listar hefðu verið lagðir
fram. þ. e. a. s. listi lýðræðissinna
og listi kommúnista, en minntist
ekki á lista Framsóknarmanna og
það sem er enn undarlegra, Tím-
inn steinþegir líka.
Eins og kunnugt er hefur Fram-
sóknarmönnum í Dagsbrún og
öðrum stéttart'élögum verið skip-
að að styðja kommúnista í öllum
kosningum á undanförnum árum.
Vitað er að ýmsir Framcóknar-
menn voru óánægðir með þessa
flokksskipun, en hafa samt látið
beygja sig. Þangað til nú að þeir
hófust handa um uppstillingu í
Dagsbrún. En kommúnistar not-
uðu þá aðstöðu sina í stjórn félags
ins til að ógilda lista þessara
fyrri stuðningsmanna sinna og
ástæðan er talin sú, að svo marg-
ir þeirra sem að listanum stóðu
væru skuldugir, en auðvitað er
það fyrst og fremst vanræksla af
hálfu stjórnar Dagsbrúnar að
innheimta ekki félagsgjöldin.
Hvers vegna svo Tíminn þegir
um þetta gerræði Dagsbrúnar-
stjórnarinnar er lítt skiljanlegt
nema það sé vegna þess að Fram-
sóknarmenn í Dagsbrún hafi farið
af stað með listann í óþókk for-
ustumanna Framsóknarflokksins,
sem ennþá eru sama sinnis um
stuðning við kommúnista í einu
og öllu og finnst ekki taka því að
flokksblað sitt verji sína fylgis-
menn þegar þeim er sýnt ofríki.
íbúðarhúsið á Beitistöð-
um brann fil ösku á klst.
Engu bjargað af
slapp áskaadað
AKRANESI, 19. jan. — Á áttunða
tímanum í gærkvöldi kom upp
eldur í íbúðarhúsinu á Beitistöð-
nm í Leirársveit, og brann það
til kaldra kola á tæpri klukku-
stund. — Vindur var af norð-
austri og gríðarlega hvasst, en
sem betur fór stóð vindurinn af
hlöðu og peningshúsum, sem
bæði eru nýlega byggð, og varð
því ekki tjón á þeim.
Hjónin á Beitistöðum, Óskar
Guðmundsson og Jóhanna Ólafs-
dóttir, voru úti í fjósi að mjólka,
er eldurinn kom upp. Voru þrjú
af fimm börnum þeirra þar hjá
þeim, en tvær ungar telpur voru
inni í bænum. — Er þau hjónin
höfðu verið að mjöltun alllanga
hríð, bað Jóhanna einn drengj-
anna að skjótast inn í bæ og
huga að telpunum litlu. Dreng-
urinn kom hlaupandi aftur að
vörmu spori og kallaði, að húsið
væri orðið fullt af reyk.
Óskar bóndi brá þegar við og
þaut inn í húsið, eins og hann
Ipróttafréttamenn
unnu KR 12:11
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ fóru
fram að Hálogalandi tveir tví-
sýnir og skemmtilegir kappleikir.
Hinn fyrri var milli Hafnarfjarð-
ar og úrvalsliðs Reykjavikur (án
KR-inga) og endaði með jafn-
tefli, 18 mörk gegn 18. Hinn síð-
ari var milli íslandsmeistara KR
(klæddir pokum) og liðs íþrótta-
fréttamanna. íþróttafréttamenn
sigruðu eftir afar tvísýnan leik
með 12 mörkum gegn 11. Vegna
rúmleysis verður frásögn að bíða.
Dagskrá Alþing's
í DAG er boðaður fundur í neðri
deild Alþingis kl. 1,30. Fjögur
mál eru á dagskrá.
1. Bann gegn botnvörpuveið-
um, frv. — 3. umr.
2. Skipulagning samgangna,
frv. — 2. umr.
3. Húsnæði fyrir félagsstarf-
semi, frv. — 1. umr. Ef deildin
leyfir.
4. Búnaðarmálasjóður, frv. —
Frh. 2. umr. (Atkvæðagieiðsla).
innbúi — en fólk
ætti líf að leysa — sem og var.
Greip hann báðar telpurnar í
fang sér og eitthvað af sængur-
fötum með og óð gegnum eld og
reyk út aftur með börnin. Mátti
það ekki tæpar standa, því að
húsið fuðraði upp á skammri
stundu, svo að ekki var viðlit að
hætta sér aftur inn til þess að
reyna að bjarga neinu. Voru
sængurfötin, sem Óskar hafði
gripið, því það eina af innbúi
þeirra hjóna, sem bjargaðist úr
eldinum.
Á skammri stundu dreif að
fjölda manns af næstu bæjum til
hjálpar, en lítið var hægt að
gera. Sótt var vatn í fötur niður
I Leirá til þess að skvetta á eld-
inn, en það kom að engu haldi.
Magnaðist eldurinn svo skjótt, að
talið var algerlega tilgangslaust
að kalla á slökkvilið, enda
brann húsið til grunna á tæpri
klukkustund, eins og áður var
sagt.
Ibúðarhúsið á Beitistöðum var
rúmlega tuttugu ára gamalt, ein
hæð (3 herbergi og eldhús) með
lágu risi, og kjallari. — Stendur
nú aðeins reykháfurinn eftir upp
úr brunarústunum. — Talið er
líklegast, að kviknað hafi í út
frá rafmagni, því eldurinn virtist
eiga upptök sín uppi á loftinu.
Hús og innanstokksmunir var
hvorttveggja eitthvað vátryggt.
Fjölskyldan á Beitistöðum hefur
fengið húsrúm til bráðabirgða á
næsta bæ, hjá Hafsteini bónda í
Vogatungu. — Oddur.
Stýrið úr sambandi
- bíllinn út í flóa
AKRANESI, 19. jan. — Síðastlið-
inn laugardag bar svo við, að
stýrið á mjólkurbílnum M-16 fór
skyndilega úr sambandi, svo bíl-
stjórinn missti alla stjórn á vagn-
inum.
Bíllinn var á nokkurri ferð á
beinum vegi í Bæjarsveit, þegar
óhappið vildi til, og rann hann
stjórnlaus út af veginum og út í
flóa. — Var kastið mjög mikið,
og skekktist bíllinn allur og
skemmdist að neðan — fjaðrirn-
ar kubbuðust í sundur, og a. m.
k. tvö af hjólunum rifnuðu und-
an vagninum. — Hins vegar
slapp bílstjórinn ómeiddur.
Frönsk —
ensk — frönsk
Á laugardagskvöld snæddu dansmeyjar frá frægasta næturklúbb Parísar kvöldverð á Reykja-
víkurflugvelli. Þær voru á vegum Loftleiða, komu með „Sögu“ til Reykjavíkur á leið til Banda-
ríkjanna, þar sem þær munu dansa (m. a. „nektardansa") í Las Vegas í 10 vikur. — Ekki þótti
blaðamanni Mbl. hópur þessi eins föngulegur og hann hafði búizt við, en þó var fallegt kvenfólk
innan um. — Stúlkurnar eru frá Frakklandi, Hollandi, Bretlandi, Ástralíu og víðar. Hinar yngstu
voru 16 eða 17 ára. — Á myndinni má sjá þær, sem vöktu einna helzt athygli Ijósmyndara Mbl.
Glæsilegur sigur
Friðriks í Hoilandi
SKÁKMÓTINU í Beverwijk í Hollandi er lokið. Friðrik Ólafsson
fór með glæsiiegan sigur af hólmi hlaut 7Vz v., tveim vinningum
meir en sá er næstur kom, stórmeistarinn Eliskases. Þó Friðrik
hefði þegar unnið mótið er hann settist andspænis Bent Larsen,
gaf hann hvergi eftir og lagði Larsen að velli. Friðrik var sá eini
er vann í síðustu umferð, jafntefli varð í hinum skákunum fjórum.
Endanleg röð á skákmótinu
varð þessi:
Friðrik Ólafsson........ IVz
Eliskases ........... 5Vz
Donner ................. 5
O’Kelly .................. 4%
Toran .................. 4’/2
van Sheltinga ............ 4%
Barendregt ............... 4%
Larsen ................. 4
van der Berg ........... 3
Langeweg ............... 2
Þegar umferðar-
ljósin bila
í SAMBANDI við litla frétta-
klausu um umferðarljósin hér í
bænum og umferðarrétt, undir
þeim kringumstæðum að ljósin
séu biluð, hefur átt sér stað
meiriháttar misskilningur.
Það var haft eftir rannsóknar-
lögreglumanni, að ef umferðar-
ljósin bili, t.d. á horni Pósthúss-
strætis og Austurstrætis, þá gildi
hin almenna regla, að bifreiða-
stjóra beri að víkja fyrir öku-
tækjum sem koma honum á
vinstri hönd.
Þetta gildir ekki á fyrrgreindu
götuhorni, þar sem Austurstræti
er aðalbraut, merkt sem slík.
Hefur því bílaumferð um Aust-
urstræti forgang framyfir Póst-
hússtrætisumferð. Þannig er regl
an alls staðar þar sem umferðar-
Ijós eru á gatnamótum sem merkt
eru aðalbraut, að bili Ijósin, þá
er það aðalbrautin sem réttinn
hefur að sjálfsögðu. Séu engin
aðalbrautarákvæði við gatnamót
þar sem umferðarljós bila, gilda
að sjálfsögðu hinar almennu um-
ferðareglur.
Er blaðið hafði tal af Baldri
Möller út af þessum síðasta skák-
sigri Friðriks sagði hann m. a:
Árangur Friðriks Ólafssonar á
þessu móti, að verða efstur með
7y2 vinning, tveim vinningum
fyrir ofan næsta mann, með 6
vinningsskákir og 3 jafntefli í 9
skákum, er mjög ánægjuleg stað-
festing á hinni glæsilegu frammi-
stöðu hans í Portoroz í Júgó-
slavíu á sl. hausti. Keppinautar
hans í Beverwijk voru auðvitað
ekki jafnokar hinna efstu í Port-
NAPÓLl, 19. jan. (NTB). _
Pietro Nenni vann í dag mikinn
sigur á flokksþingi sósíalista-
flokksins, þegar hann og 14
fylgismenn hans voru kjörnir í
framkvæmdanefnd flokksins. —
Enginn af kommúnistum innan
flokksins náði kosningu.
Nú er framkvæmdanefndin
skipuð 47 fylgismönnum Nennis,
27 kommúnistum og 7 mönnum,
sem standa í miðjunni milli
vinstri og hægri arms flokksins.
Af þessum úrslitum þykir það
nú sýnt að sósíalistaflokkurinn
muni hætta hinu nána samstarfi
við ítalska kommúnista, eins og
Nenni hefur stefnt að undanfar-
ið. —
Giuseppi Saragat, foringi jafn-
aðarmanna, lýsti því þó yfir í
dag, að sízt bæri að fagna þessum
úrslitum, því að nú hygðist sósíal
istaflokkurinn grafa undan Jafn-
aðarmannaflokknum. — Hann
myndi eftir sem áður verða und-
irlægja kommúnista, þótt hann
breýtti eilítið um ytra gervi.
því að verða 2 vinningum fyrir
ofan Eliksases og síðan Donner,
O’Kelly, Larsen o. fl. í aðeins 9
skákum, hefði enginn hinna frá
Portoroz, Tal, Gligoric, Petrosjan
o. s. frv. getað búizt við fyrir-
fram, ef þeir hefðu verið í spor-
um Friðriks. (Friðrik auðvitað
ekki heldur að óreyndu)
Hinir liggja þó vissulega ekki
á liði sínu heldur. Tal er eftir
því sem fregnir herma í farar-
broddi í Rússlandsmeistaramót-
inu og Bobby Fisher orðinn
Bandaríkjameistari (í jólafrí-
inu?) í þriðja sinn í röð og það
fyrir ofan Reshevsky sem fyrr
og með vinning á móti honum.
Ef einhverjir aðdáendur Frið-
riks hér heima hafa þurft stað-
festingu á því, að hann sé fulL
gildur þátttakandi í keppninni
um allra efstu sætin í kandídata-'
mótinu næsta haust (og í heims-
meistaraeinvíginu að ári) þá
hafa þeir nú fengið hana. Að svo
stöddu er rétt að bíða eftir úr-
slitum hins mikla móts í Sviss á
komandi vori til frekari spádóma,
en ljóst er að Friðrik er á réttri
leið. Við óskum Friðrik til ham-
Jafnaðarmannaflokkur Sara-
gats klofnaði út úr sósíalista-
flokknum fyrir tólf árum af ó-
ánægju vegna vináttu Nennis og
kommúnista.
Aftökum —
Framhald af bls. 1.
fyrir erlend mótmæli yrði af-
tökum haldið áfram á eynni. Þó
væri víst að ekki yrðu fleiri en
450 teknir af lífi. Hann bætti því
við að öllum ákærðum yrði gef-
ið tækifæri til að bera hönd fyrir
höfuð sér.
í Havana-blaðinu Crisol var í
morgun viðtal við biskupinn af
Havana, að nafni Alfredo Dull-
er. Hann segir þar, að þótt kaþ.
kirkjan sé mótfallin dauðadóm-
um, séu aftökur þær sem nú fara
fram á Kúbu óhjákvæmilegar.
Fjöldi félagasamtaka á Kúbu hef-
ur lýst yfir stuðningi við aftök-
urnar. Stafar það af hatri sem
lengi hefur verið innibyrgt.
ui yjjLui x
Friðrik hefur þarna sýnt, með ingju. — B. M.
Nenni vinnur sigur í
sósíalisfaflokki sínum