Morgunblaðið - 20.01.1959, Page 11
Þriðjudagur 20. jan. 1959
MORGVTSBLAÐIÐ
11
Dr. Benjamin Eiriksson:
Hitaveita eðo hitamidstöð
NOKKRU áður en hafizt var
handa um virkjun írafossstöðvar-
innar við Sogið átti ég samtal við
einn af fjármálamönnum þjóðar-
innar. Hann var a móti þeirri
framkvæmd. Ég færði fram þá
röksemd að það vantaði rafmagn
í Reykjavík. Hann sagði að það
væri til nóg rafmagn, fólk eyddi
því um of. Fóik væri hætt að
slökkva þótt enginn væri í her-
berginu. Ekki þyrfíi annað en
hækka rafmagnsverðið, þá væri
nóg rafmagn. Auðvitað er þetta
rétt röksemd, svo langt sem hún
nær, en ekki þótti mér hún full-
nægjandi. í fyrsta lagi fannst mér
hún í mótsögn við hið almenna
viðhorf þjóðarinnar til átaka og
velmegunar annars vegar eða
værðar og nægjusemi hins vegar.
í öðru lagi fannst mér hún bera
um of svip þeirrar fátæktar, sem
hér ber hátt, og kalla mætti
skömmtunarhugsjónina. Skömmt,
un er yfirleitt merki um skort
eða fátækt, og getur því stund-
um verið réttlætismál. En það
sem nóg er til af þarf ekki að
skammta.
Ég minntist þessa samtals þeg-
ar ég las viðtalið við forstjóra
hitaveitunnar í Morgunblaðinu
sl. sunnudag. Hann boðar þar
5—6 millj. kr. fjárfestingu í fjar-
stýrðum hitastillum til þess að
hægt sé að loka fyrir næturrennsl
ið hjá kaupendum heita vatnsins.
Ég hefi verið á móti nætur-
rennslinu. Ég held það sé óhollt
að sofa í upphituðum húsum, og
mér fellur bezt að sofa í hæfilega
köldu lofti. Bretar, sem er hraust
þjóð og þrautseig, sefur fyrir gal-
opnum gluggum í óupphituðum
herbergjum. Yfirleitt mun það
óþekkt að sofið sé í upphituðum
húsum. Ég er samt ekki sann-
færður um að þetta sé eins rétt
viðhorf hjá stjórnendum hita-
veitunnar, og ræð það af viðtöl-
um við fólk sem lætur renna hóf-
lega á nóttunni. Það segir mér að
íbúðin kólni þá aldrei að ráði, sé
hlý að morgninum. Lítils háttar
aukning á rennslinu að morgn-
inum nægi. Fólkið bendir á að
hinar miklu sveiflur í notkun
heita vatnsins yfir sólarhringinn
hverfi að mestu sé látið renna að
nóttunni. Hin mikla aukning not-
kunar vatnsins fyrir hádegi á
daginn myndi hverfa að talsverðu
leyti, ef þessi siður næði til allra.
Þó virðist mér að myndj þurfa
heldur meira heitt vatn en er til
ráðstöfunar, til þess að þetta gæti
farið vel. En það er ekki nokkur
vafi að sveiflurnar á notkun
heita vatnsins myndu verða
miklum mun minni, ef menn létu
íbúðina ekki kólna með öllu á
nóttunni. En eins og ég sagði hér
að framan er ég ekki hrifinn af
þessu fyrirkomulagi, en það er
af ástæðum óviðkomandi rekstri
hitaveitunnar.
Framanskráð er inngangsorð að
hugleiðingu um hitunarmál
Reykjavíkur. Eins og fleiri, sem
í borginni búa, hefi ég oftlega
hugleitt þetta mál. Bæði er það,
að ég hefi oft orðið fyrir óþæg-
indum vegna kulda i íbúðinni, og
svo það, að ég hefi rekizt á ýmis-
legt í sambandi við það mál, senf
ég tel að lagfæra mætti og hefir
almenna þjóðhagslega þýðingu.
Það virðist liggja í augum uppi,
að það hljóti að vera sérlega hag-
kvæmt að taka vatnið, sem nátt-
úruöflin hafa hitað handa okkur,
og dreifa því til borgarbúa. Þetta
sparar innflutt eldsneyti. Þetta
sparar vinnu við kyndingu. Þetta
eykur þægindi. f stað þess að
bæta á eldinn þarf ekki annað en
skrúfa frá krana. Þá þýðir þetta
aukin þrifnað. Aska og sót minnk
ar. Þessi hugmynd er rétt nefnd
með nafninu Hitaveita Reykja-
víkur. Þessi hugmynd (con-
ception) er sú, að hitaveitan sé
fyrirtæki til að dreifa heitu vatni
sem fyrirfinnst í náttúrunni. Hug
myndin er röng að mínu áliti. En
á þessari hugmynd grundvallast
lausn hitunarmála Reykjavík-
inga.
Samkvæmt þessari hugmynd er
því heita vatni, sem leitt. er til
bæjarins, eða sprettur þar upp,
veitt um bæinn, og það hitar hý-
býli manna og vinr.ustaði, að svo
miklu leyti sem það hrekkur til.
Nú er það ekki svo að hið heita
vatn náttúrunnar fáist fyrir ekki
neitt. Eftir því verður að bora,
það þarf að leiða það langar
leiðir, o. s. frv. Þótt ekki væri
af neinni annarri ástæðu en þess-
ari byggir þessi hugmynd um
Hitaveitu Reykjavíkur á stað-
reyndinni um ónógt heitt vatn úr
náttúrunni til þess að hita alla
Reykjavík árið um kring. Hita-
veitan er hugsuð sem gagnleg og
ódýr viðbót við eigin upphitun
Reykvíkinga. Hún gerir ekki að-
eins ráð fyrir að upphitunartækj-
unum sé haldið við í gömlu hús-
unum, heldur einnig að sett sé
niður miðstöð í hverju nýju húsi,
sem í flestum tilfellum þýðir í
hverri nýrri íbúð.
Til samanburðar við þessa hug-
mynd Hitaveitu Reykjavíkur,
ætla ég að setja aðra hugmynd.
Hún er sú að Reykvíkingar komi
upp hjá sér sameiginlegri mið-
stöð, sem ég ætla mér að kalla
Hitamiðstöð Reykjavíkur. Það
liggur í hlutarins eðli að mið-
stöðin verður að híta allt hús-
næði í Reykjavík á öllum tímum
árs, og það á þann hátt sem kaup-
endur hitans segja til um. Hitann
verða neytendurnir að fá, þegar
þeir telja sig þurfa hans með og
vilja greiða hann.
Það fyrsta sem af þessu leiðir
er að það þarf að skipuleggja
og byggja mannvirki sem getur
látið bæjarbúum í té heitt vatn
að þörf. Sumt af þessu vatni
myndi vera það heita vatn, sem
náttúran nú lætur í té. Já, í raun-
inni myndi þetta nægja meiri-
hluta ársins.Þetta vatn mun nú
nema yfir 350 lítrum á sekúndu.
Það þyrfti því miðstöð sem gæti
hitað sennilega um 100 1. á sek.
miðað við útbreiðslu hitaveit-
unnar nú, en að sjálfsögðu langt-
um stærri miðstöð eftir að hún
næði til allra húsa í Reykjavík.
Og auðvitað ætti Hitamiðstöð
Reykjavíkur að ná til allra Reyk-
víkinga, ekki síður en rafmagn
og kalt vatn.
Við samanburð á þessum hug-
myndum sjáum við að hitamið-
stöðin hefur ýmislegt fram yfir
hitaveituna. Hún er almenn, nær
til allra íbúanna. Með henni nýt-
ist hið náttúrlega heita vatn
miklu betur hina hlýrri mánuði
ársins. Þægindin ná til fleiri. Hún
hlýtur því að spara miklu meiri
innflutning eldsneytis en hita-
veitan. Hún sparar alla vinnu við
kyndingu á íbúðum og á vinnu-
stöðvum. Hún eykur þrifnaðinn
meir en hitaveitan, þar sem aska
og sót er nú algjörlega útlægt.
Þá sparar hitamiðstöðin mikil
verðmæti fyrir íbúana þar sem
eru skemmdir á húsum vegna
frosta. Staðreyndin er sú, að þótt
mönnum sé ætlað að hafa kynd-
ingartæki og halda þeim við, þá
er margt sem gerir að þetta er
ekki alls staðar svo. Seinustu 15
árin hafa kyndingartækin í
gömlum húsum gengið úr sér og
ekki alltaf verið endurnýjuð.
Kyndingarhúsnæði og jafnvel
reykháfar hefir verið tekið til
annarra nota. Húsum hefur verið
breytt o. s. frv. Svo er það og,
að það er dýrt að hafa kyndingar-
tæki, sem Kannske þarf að nota
örfáar vikur úr árinu. Fyrir utan
þetta er svo allt umstang og ó-
þægindi, sem fyigir því að sinn.a
þessu fyrirtæki nokkra- daga úr
árinu, svo brýnt sem það er þá.
Þetta er eins og ef menn þyrftu
að hafa einkarafstöð til notkun-
ar 2—6 vikur á ári, eða ailan við-
búnað til að notast við steinolíu-
ljós þann tíma. í rauninni er þetta
þannig, að Hitaveitan byggir á
10—12 þúsund toppstöðvum í
Reykjavík. Og þá nokkurn veg-
inn jafnmörgum kyndurum eldi-
viðarstæðum, öskufötum o. s. frv.
Hitamiðstöðin myndi aftur á
móti vera sín eigin toppstöð.Fram
Dr. Benjamín Eiríksson
kvæmdin myndi í rauinni hefjast
með byggingu miðstöðvarinnar,
en henni ekki bætt við á eftir
sem toppstöð. Seinní aðferðin
byggist á hitaveituhugmyndinni.
Hitamiðstöðin hefur einnig það
frma yfir hitaveituna, að hún
sparar sem svarar eitt (kjallara)
herbergi á íbúð eða hús.
Einn stærsti sparnaðurinn er
samt sá, að ekki þarf einkamið-
stöðvanna með. Þegar byggt er
nýtt hús er að sjálfsögðu sett í
hað hitalögn. En eins og nú er
ástatt, er auk þess sett niður
ketill og kyndingartæki, sem
sennilega mun kosta kringum 18
þúsund krónur á íbúð (sumstað-
ar minna, sumstaðar meira). Á
síðastliðnu ári voru fullgerðar
tæpar 1000 íbúðir í Reykjavík.
Stofnkostnaður vegna ketils og
kyndingartækja myndi sam-
kvæmt þessu nema um 18 millj.
króna. En nú eru að sjálfsögðu
byggð hús til fleiri nota en íbúð-
ar. Þau þarf einnig að kynda. Þótt
stundum séu nokkrar íbúðir
saman um kyndingu er samt aug-
ljóst að um stóra fjárhæð er að
ræða.
Það er augljóst að hitamiðstöð-
in myndi geta fengið talsvert fjár
magn með því að láta greiða sér
þennan stofnkostnað sem tenging
argjald fyrir ný hús. Fyrir utan
það, að flestir myndu vilja
greiða meira en sem þessu næmi,
til þess að fá hitunarvandamálið
leyst fyrir sig í eitt skipti fyrir
öll, og vera þar með laus allra
mála.
Þótt ýmis sparnaður, sem
fylgja myndi hitamiðstöðinni,
hafi verið talinn, þá er samt ýmis-
legt ótalið. Má þar til dæmis
benda á, að ekki svo fá hús eru
komin með heitavatnsdælur. Þær
kosta þúsundir króna (eins og
kaldavatnsdælurnar, sem einnig
eru komnar í sum hús). Menn
reyna í vandræðum sínum að
dæla heita vatninu til sín frá ná-
grannanum. í þennan skrælingja
brag fer því talsvert fjármagn.
Þá er spurningin: er óhætt að
leggj a niður einkatoppstöðvarnar V
Það er rétt að þjónust hitamið-
stöðvarinnar gæti truflazt, t. d. af
völdum jarðskjálfta, svo eitthvað
sé nefnt. En því er til að svara,
að við þessu mætti nota lausa raf-
magnsofna. í neyðartilfelli yrði
að draga úr notkun rafmagns til
annarra nota meðan verið væri
að koma í lag dreifingu hitans
frá hitamiðstöðinni, og svo er það
að engum hefur dottið í hug, að
hver íbúi ætti að hafa einkaraf-
stöð, aðeins vegna þess að trufl-
un verður stundum á dreifingu
rafmagnsins, og gegnir þó raf-
magnið miklu fjölbreyttara hlut-
verki en heita vatnið.
Ég held að það sé álitið, að
hitagildi eldsneytisins myndi nýt
ast' betur í sameiginlegri miðstöð
heldur en í 10 til 12 þúsund einka
miðstcvðum. Þ<»r við bætist .- /o
hagnaðurinn af' nýtingu hins
heita vatns i<at. úrunnar. En nve
mikið á að sækja eftir því er Cjar-
hagsatriði, því ein? og áður segir
kostar fé að afla þess. Þar se:n
toppnotkun s<endur aðeins brot
úr árinu er það augljóslega úti-
lokað að byggja hitamiðstöð á
náttúrlegu lcita vatni, eins og
raunar hitaveitan sannar. Með
henni verður aldrei nægilegt
heitt vatn kaldasta tímann, fyrst
og fremst af fjárhagsástæðum.
Hið heita vatn náttúrunnar er og
verður alltaf of dýrt fyrir topp-
notkunina.
Ég er sannfærður um það. að
auk alls þess sem telja má Hita-
miðstöðinni til gildis, myndi hún
reynast mjög arðvænlegt fyrir-
tæki. Það liggur í hlutarins eðli
að neytandinn verður að greiða
það verð, sem þjónustan kostar.
En það verð yrði áreiðanlega
lægra en verðið sem helmingur
bæjarbúa má nú greiða, og svarar
til verðs á olíu og kolum. Þar sem
hitaveitan er sameign bæjarbúa
má segja að hér sé einnig um
talsvert réuiætismál að ræða.
Þegar byrjað var að framleiða
bíla, litu menn svo á, að þeir
væru að smíða einskonar hest-
vagna með mótor. Smátt og smátt
fór þeim að skiljast, að bíll er
ekki hestvagn, og að önnur lög-
mál gilda um byggingu hans. Eitt
hvað svipað mætti kannski segja
um hitaveituna. Hún er í fyrstu
hugsuð sem dreifingarkerfi fyrir
heitt vatn náttúrunnar. En nú
er sú reynsla komin, sem ætti
að nægja til að menn sjái að
þessi skilningur hrekkur skammt
til að leysa aðkallandi vandamál
á þessu sviði.
BÆ, Höfðaströnd, 14. jan. — Eins
og getið hefur verið í fréttum,
var bezta tíð í allt haust fram um
15. des. Kúm var meira að segja
beitt nokkuð fram í nóvember,
og er það óvanalegt á þessum
slóðum. Um miðjan desember
gerði hríðarskot, og tók að mestu
fyrir jörð — og í Fljótum setti
niður mikinn snjó. Hlákubloti
kom þó rétt fyrir jól, svo að bíl-
færi varð gott um jólin og fram
undir áramót. Stillt var þá og
gott veður hvern dag, enda óspart
notað af fólki, sem heimsótti
hvert annað.
Síðan um áramót hefir snjóað
meira og minna hvern dag, a. m.
k. hér utarlega í firðinum. En nú
að mestu jarðlaust fyrir allar
skepnur. Eins og oft vill verða
er víða for, en færi ólíkt þegar
kemur inn fyrir Hofsós. Er nú tal-
ið ágætt færi og mjög lítill snjór
fram í firðinum, þó ekki sjái á
dökkan díl hér ytra, enda finnst
okkur stundum misskipt gæðum
náttúrunnar.
Skemmtanir
Eins og gefur að skilja var
góða veðrið og færið óspart not-
að. Unga fólkið lét aka sér á
Sauðárkrók, í Húnaver, og alls
staðar þar sem dansleikir voru
haldnir, var yfirfullt. Löggæzlu-
menn höfðu vitanlega nóg að
gera — en aðspurðir sögðust þeir
þó stundum hafa séð það svartara.
Eldra fólkið skiptist á heimboð-
um og spilaði bridge, vist og
hjónasæng langt fram eftir nótt-
um, svo mörgum þóttu þetta víst
skemmtileg jól.
Atvinna
En nú fækkar fólkinu, þar sem
allir fara suður í atvinnu sem með
nokkru móti eiga heimangengt. !
Um daginn fóru til dæmis úr litla
Sumt af þessu, sem hér er skriN
að, er byggt á persónulegri
reynslu. Ég hefi ævinlega fundið
að hitaveitustjóri væri reiðubú-
inn að gera allt sem á hans valdi
stæði til þess að leysa vandræðin
hverju sinni. En ég held, að 5—6
milljónum króna til hitunarmál-
anna væri hægt að verja betur
en til hitastillanna. Þá mætti
einnig segja mér að bæjarbúar
væru reiðubúnir að greiða hærra
verð fyrir heita vatnið en þeir
gera, en vera í þess stað iausir
við ýmsan annan kostnað, fyrir
utan angur og umstang.
Við höfum nýiega séð margra
ára vandræði á vettvangi kalda
vatnsins leyst að miklu leyti, á
furðu skömmum tíma. Það virðist
hafa átt sér stað einhver „um-
mublering" í hugmyndaheimin-
um. Er hugsanlegt að á vettvangi
heita vatnsins vanti fyrst og
fremst breytingu af sama tagi?
Fagerholm forseti
HELSINGFORS, 14. jan. — Fag-
erholm úr flokki jafnaðarmanna
var í dag kjörinn forseti finnska
þingsins. Jafnaðarmaður og
kommúnisti voru kjörnir vara-
forsetar. Fagerholm hlaut kjör í
annarri atkvæðagreiðslu þar eð
enginn einn hlaut meirihluta at-
kvæða í fyrstu umferð. Hann hef-
ur áður verið þingforseti.
NAPOLI, 14. jan. — ítalskl
vinstri-jafnaðarmannaflokkurinn,
flokkur Nennis, efnir nú til
fjögurra daga flokksþings, sem
hefst hér á morgun. Flokkur
þessi er hinn þriðji stærsti á
Ítalíu. Er þingið haldið til þes*
að efla samstöðu flokksins gegn
kommúnistum.
sjávarþorpinu Hofsósi um 40
manns, enda finnst fólkinu sem
eftir er dauft og tómlegt, en ann-
að er ekki hægt, þar sem engin
atvinna er hér að vetrinum.
Afkoma fólks held ég að sé
mjög sæmileg, a. m. k. hjá þeim
sem ekki hafa lagt of mikið í
kostnað, en framkvæmdir eru
alltaf talsverðar. Vélakaup, húsa-
byggingar og ræktun þarf alltaf
að gera, hvernig sem allt velt-
ist.
Vegagerð til Siglufjarðar frá
Hofsósi þokast alltof hægt, svo
að með þvj áframhaldi sem var
í sumar sem leið er ekki sjáan-
legt að sú kynslóð sem nú lifir
njóti þeirra hlunninda sem sá veg
ur mun gefa. Er það þó almæli að
a.m.k. Fljótunum sé það lífsnauð-
syn að komast í öruggt vegasam-
band sem fyrst. Nú að umliðnum
áramótum er allt á kafi í fönn,
þegar kemur út fyrir Hofsós, en
vel greiðfært og góð sauðjörð,
þegar fram í héraðið kemur, en
sá vegarkafli sem þegar er kom-
inn hér út frá Hofsósi að Keldum
í Sléttuhlíð er alltaf greiðfær til
umferðar. Sýnir það bezt að þó
fannfergi sé töluvert á þessum
slóðum muni hár upphleyptur veg
ur að jafnaði gefa öruggar sam-
göngur.
Ekki er sjór neitt stundaður nú,
þar sem flestallir sem sjósókn
leggja fyrir sig eru farnir burt
í atvinnu.
Heilsufar
Þó kvefpest og magakvillar séu
alltaf á ferðinni, má víst heilsu-
far teljast sæmilegt. Mislingar eru
eitthvað að færast yfir, en eru að
sögn ekki svæsnir.
Fólkið unir við sitt — sinnir
sínum daglegu störfum — og bið-
ur og þreyir eftir vordögunum —
sól og sumri. — B.
Úr Austur-Skagafirði
Ágætt tíðarfar — fólk leitar burt í atvinnu
— vegegerð miðar seint