Morgunblaðið - 20.01.1959, Síða 19

Morgunblaðið - 20.01.1959, Síða 19
Þriðjudagur 20. jan. 1959 MORCVTSBLAÐIÐ 19 Stefnt til Monte Carlo með fullri terð MONTE CARLO 19. jan. (NTB) Hinn árlegi Monte Carlo-kapp- akstur hófst á sunnud. 322 bíl- ar taka þátt í kepninni og leggja þeir af stað frá 9 stöðum víðs- vegar í Evrópu. Eftir fyrsta sól- arhringinn voru 3 bílar úr leik. Fyrsti bíllinn sem ók yfir dönsk-þýzku landamærin við Krusaa var norskur. Vegurinn í Jótlandi var sæmilegur, dálítið krap á honum sumsstaðar. Ekkert óhapp kom fyrir Norðurlanda- bílana, sem eru 86 að tölu og komust þeir allir til Hamborgar í tæka tíð. Fyrsti bíllinn var 2 kls. á undan áætlun. Frá Varsjá í Póllandi lögðu 22 bílar af stað. Þeir komust allir á réttum tíma yfir þýzk-pólsku landamærin við Slubica. Eru vegir ágætir þar. Sextán bílar lögðu í gær af stað frá Aþenu, höfuðborg Grikk- lands. Fóru þeir yfir grísk-júgó- slavnesku landamærin í nótt. Er búizt við að fyrstu bílarnir komi til Belgrad um kl. 8 síðdegis í kvöld. , Frá Glasgow í Skotlandi, hófu 58 bílar keppnina. Þeir komust allir tímanlega til Dover og eru allir fluttir með sömu ferju yfir Ermarsund. , Mest óheppni var með þeim snjósköflum og ísingu í Vogesa- fjöllum. Lentu tveir bílar, annar frá Ghana og hinn frá Þýzka- landi, í árekstri og urðu úr leik. Af þeim bílum, sem lögðu af stað frá París, komst einn ekki tíman- lega í fyrsta áfanga í Chaumont í Austur-Frakklandi. Þó höfðu frönsku bílarnir fengið 85 mín. framlengingu vegna þess að veg- urinn var lokaður á einum stað, sakir snjóa. PARÍS 19. jan. (Seinustu fregn ir af Monte Carlo kappakstrinum herma að bílar þeir, sem lögðu af stað frá París, Haag og Múnchen eigi í örðuleikum vegna óvenju mikilla snjóalaga í Vogesafjöllum í Austur-Frakklandi. í kvöld varð norskur bíll að hætta þátt- töku skömmu eftir að hann lagði af stað frá Hamborg. Vélin í hon- um hafði bilað. Þá hafa tveir franskir bílar og einn enskur sem lögðu af stað frá Haag, orðið að hætta af því að þeir voru á eftir áætlunartíma og einn þýzkur bíll sem lagði af stað frá Múnchen. Þar með eru 7 bílar úr leik. , Bílar þeir, sem lögðu af stað frá Lissabon, hafa verið heppn- astir. Færðin á vegum Norður- Spánar, hefur verið prýðileg. Bílarnir fóru í kvöld yfir spænsk- frönsku landamærin við Biarritz hóp, sem lagði af stað frá Haag i Þeir munu fá lakari færð í Frakk höfuðborg Hollands. Þeir lentu í > landi. Athngosend við ÞAÐ vakti mikla athygli og um- tal á sínum tíma, er óflutt út- varpserindi var gagnrýnt hér í dagblaði. Bað blaðið síðan að sjálfsögðu lesendur og erindis- höfund afsökunar, en gagnrýn- andinn sá sér vænlegast að rita ekki framar um útvarpsefni. Ekki veit ég hvernig almenn- ingsálitið dæmir það nú, er Sig- urður A. Magnússon gagnrýnir í Morgunblaðinu sögu mína, „Gangrimlahjólið" — án þess að hafa lesið hana. Því ekki ætla ég honum þá varmennsku — og mundi engum ætla — að hann rangfæri söguna og falsi efnis- lega, vitandi vits. Annar meginþáttur sögunnar fjallar til dæmis ekki fyrst og fremst um vélamenninguna og „gangrimlahjólið“ er þar ekki fyrst og fremst tákn hennar, eins og hann vill vera láta, heldur mun hver skyni borinn maður sjá það við lestur, að þar er sögð þróun þjóðfélagshátta og deilt á ofskipulag og einræði. Gangrimla hjólið á þar því ekki táknrænt — fremur en tæknilega í veruleik- anum — neitt skylt við venju- legt vélarhjól, og skapar því eng- in tengsl með þessum þætti sögu minnar og tilnefndu leikriti Thornton Wilders, eins og gagn- rýnandinn gefur í skyn. Þá lætur ungi maðurinn í hinum megin- þætti sögunnar ekki í ljós neina löngun til að fara á sjóinn, heldur maðurinn með stimpilinn; þar vinnur gagnrýnandinn það afrek að gera eina persónu úr tveim. Sanna bæði þessi dæmi, ásamt fleiri rangfærslum, að gagnrýn- andinn hefur ekki gert sér það ómak að lesa söguna, er hann dæmir; virðist aðeins hafa gripið ofan í hana af handahófi og þó ekki víða. Tölunum er ekki stráð um lesmálið, hending hvergi lát- in ráða kaflaskiptum og þættirnir samdir samstætt; er mér engin niðrun að játa að um tvö fyrri atriðin hafði ég samráð við menn, sem teljast munu gagn- rýnandanum lærðari og reyndari bókmenntamenn. Hitt má reikna gagnrýnandan- um til afsakanlegrar fáfræði, að hann virðist álíta nýstárlegt, er Th. W. fleygar tilnefnt leikrit fortíðarsvipmyndum; þeirri tækni hafa leikritahöfundar beitt öldum saman, enda skiljanlega auðveldara á sviði en í sögu. Einnig er vélarhjólið þar marg- notað tákn, — má t. d. benda á leikritið „Hjólið“ eftir J. Corrie því til sönnunar, er flutt var í Ríkisútvarpið á sínum tíma. Ekki veit ég hver verða við- brögð þess dagblaðs, er hér á hlut að máli, en hvað gagnrýn- andann sjálfan snertir, þykir mér ekki órökræn bjartsýni að ætla að hann hafi mann- dóm „fyrirrennara" síns. Að endingu vil ég taka fram, að ég hef aldrei svarað og mun aldrei svara gagnrýni á verk mín, en rangfærslur og efnislegar falsanir eru ekki gagnrýni, hver svo sem orsök þeirra er eða til- gangur, og engin hæverska að leyfa hverjum gikki að eyðileggja með þeim verk, sem maður hef- ur vandað og lagt í mikið starf og erfitt. Og ég bið gagnrýnend- um engrar vægðar, — en leyfi mér hins vegar að ætlast til þess af þeim, að þeir lesi fyrst og gagn rýni síðan eins og efni standa til, en rangfæri ekki og falsi eftir hendinni. Loftur Guðmundsson. Athugasemd við athugasemd Ef einhver skyldi taka mark á þeirri fullyrðingu að ég hafi ekki lesið „Gangrimlahjólið" áður en ég skrifaði um það, vil ég benda á að ritdómurinn er í Morgun- blaðinu sl. laugardag. Við hann hef ég engu að bæta. Sigurður A. Magnússon. Bændahús — Framh. af bls. 18 koma þeim í það horf, sem teldist fullnægjandi í sambandi við vænt anlegan rekstur. Jón Pálmason kvaddi sér aftur hljóðs í gær þann 19. þ. m. og flutti langa ræðu. Meðal annars kvað hann hið umrædda gjald ekki nema tvær milljónir króna á ári miðað við núgildandi verð- lag, en það hlyti þó að verða miklu meira þegar hið mikla gengisfall krónu okkar kæmi til framkvæmda, sem liti út fyrir að verða óhjákvæmileg afleioing af þeirri glæframennsku, sem fyrr verandi ríkisstjórn hefði leitt yfir þjóðina. Þá kvað Jón Pálmason á öðru meiri þörf hér í Reykja- vík, en fleiri og stærri verzlunar- húsum, veitingahúsum og gleði- sölum, enda væru takmörk fyrir því, hve lengi væri hægt að græða á verzlun og veitingasölu. Bændur hefðu líka annað og þarf- ara við fjármuni sína að gera, en að gerast miklir aðilar að sam- keppninni á þessu sviði. Mætti líka í þessu sambandi minna á hve lítið hefði fengizt til vega- og brúargerða á síðustu árum. Þörfin á nýjum vegum, nýjum brúm á árnar og rafleiðslum út um landið, væri svo brýn, að það væru áreiðanlega fieiri en hann og fyrri þm. Rangæinga, sem teldu meiri þörf á að bæta úr því, en að leggja 40-—50 milljónir króna í þessa hallarbyggingu hér suður á Reykjavíkurmelum. Jón Pálmason vék að því, hver væri vilji bænda í þessu máli. Kvað hann allar líkur benda til þess, að meirihluti bænda í Norðlendingafjórðungi væri því andvígur og kvaðst hann eink- um byggja það álit sitt á því að á Stéttarsambandsfundi í haust hefðu fjórir fulltrúar af sex úr þremur sýslum (Húnavatnssýsl- um báðum og Skagafjarðarsýslu) verið á móti málinu, en tveir með því. Eins hefðu bændafélögin í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjar- sýslu sent harðorð mótmæli gegn þessu máli á sl. vetri. 'Þá kvaðst Jón Pálmason vilja mótmæla því harðlega, að skatta- álöguvald Alþingis væri notað til að kúga þann hluta bændastétt arinnar, sem væri á móti þessu máli, til þess að leggja fram gegn vilja sínum háar fjárhæðir til hallarbyggingar ofan á öll önn- ur sligandi útgjöld. Vald Alþing- is ætti ekki að nota til þess, að gera úpp deilumál innan bænda- stéttarinnar á þann hátt, að ann- ar helmingurinn gæti kúgað hinn, ef ekki þá hitt, sem væri allt eins líklegt, að minnihlutan- um væri hjálpað til þess að kúga meirihlutann. Á þessum grundvelli hef ég flutt mína rökstuddu dagskrá og á þessum grundvelli vil ég mega vænta þess, að meirihluti hv. þingdeildarmanna samþ. hana, sagði Jón Pálmason að lokum. Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs, og var umræðum þar með lokið, en atkvæðagreiðslu var frestað. LokaS á dag vegna jarðarfarar. Vélar og verkfærl h.f. Guðmundur Jónsson h.f. Skrifstofusfúlka Fyriirtæki í Miðbænum vill ráða duglega stúlku (ekki yngri en 19 ára) nú þegar til skrifstofu og afgreiðslustarfa. Tilboð með uppl. um aldur, menntun og fyrri stö»rf, sendist afgr. Morgnblaðsins fyrir 23. þ.m. merkt „Rösk—4162“. LokaÖ í de* ’ egna jarðarfarar. Hér með tilkynnist að SIGURÐUR EYJÓLFSSON frá Þorláksstöðum í Kjós, andaðist á Elliheimilinu Grund aðfaranótt s.l. sunnudags. Einar Ólafsson. Jarðarför GUÐRUNAR GlSLADÓTTUR Hólavallagötu 7, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. þ.m. kl. 1,30 síðd. Blóm vinsamlegast afbeðin. Anna Guðmundsdóttir. Útför JÓNS BJÖRNSSONAR kaupmanns frá Þórshöfn, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. janúar kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. F.h. vandamanna. Jakob Guðjohnsen. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föðursystir okkar JÓNlNU AÐALBJARGAR JÓNSDÓTTUR F.h. aðstandenda. Páll Þorláksson. Hjartanlega þökkum við allan þann mikla vinarhug og samúð, sem okkur hefur verið sýndur við andlát og útför mannsins míns og föður okkar TORFA KR. GlSLASONAR verkstjóra. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristinn Torfason, Sigurbjörn Torfason, Gísli Torfason. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för litlu dóttir okkar og systur. Una Nikulásdóttir, Óskar Kr. Sigurðsson og systkini, Kirkjuveg 6, Hafnarfirði. Öllum þeim fjölmörgu nær og fjær er aðstoðu og sýndu okkur vinsemd og hlýhug við andlát og jarðarför JÓHANNS MAGNÚSAR HELGASONAR flytjum við hugheilar þakkir. Guð blessi ykkur ðll. Kristín Jóhannsdóttir, Helgi Tryggvason, María Helgadóttir, Lenharður Helgason, Tryggvi Helgason, Helga Helgadóttir, Sigþrúður Helgadóttir, Marteinn Sigurðsson, Kristján Jónsson, Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför konu minnar KRISTlNAR STEFANSDÓTTUR Hítarnesi Júlíus Jónsson. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ÓLAFS GUÐLAUGSSONAR Ingibjörg Jónsdóttir og börnin Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður minnar, FRÚ ÓLAFlU K. HANSDÓTTUR, Garðastræti 4. Sérstakar þakkir flyt ég læknum og hjúkrunarliði sjúkrahússins Hvítabandið, sem annaðist hana af frábærri alúð í veikindum hennar F. h. aðstandenda. Kristín Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.