Morgunblaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.01.1959, Blaðsíða 20
r VEÐRIÐ NA-kaldi, léttskýjað 8—12 stiga frost. Hitaveita eða hitamiðstöð — sjá bls. 11. 15. tbl. — Þriðjudagur 20. janúar 1959 Verkfall hófst á 48 Vest- mannaeyjabátum á miðnætti VESTMANNAEYJUM, 19. jan. — Eins og kunnugt er, var gengið frá allsherjarsamningum í Reykjavík um fiskverð, sem nær öll sjómannafélög eru nú búin að samþykkja. Forustumenn sjó- mannafélaganna hér í Eyjum und irrituðu á sínuna tíma þetta sam- komulag, en þó með einhverjum fyrirvara, sem nánast var atriði er snertir ríkisvaldið, en ekki út- gerðarmenn hér í Eyjum. Þegar komið var hingað heim til Vestmannaeyja með þennan samning til endanlegrar sam- þykktar í sjómanna- og vélstjóra- félaginu, var samþykkt að taka ekki afstöðu til fiskverðssamn- ingsins, meðan ekki væri vitað neitt um fyrirætlanir ríkisstjórn- arinnar í efnahagsmálum. Hins vegar var þá boðað verkfall frá og með 20. þ. m., svo fremi að ekki lægju fyrir frekari upplýs- ingar varðandi efnahagsmála- fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Nú hafa sjómannafélagið og vélstjórafélagið tilkynnt að verk- fall hefjist á morgun á bátaflot- anum, þrátt fyrir eindregin til- mæli útgerðarmanna hér í Eyj- um, um að fresta því a. m. k. þar til margumrætt efnahags- málafrumvarp ríkisstjórnarinnar lægi fyrir, er upphaflegt afstöðu- leysi félaganna byggðist á. Þessu var synjað í gær. Útgerðarmenn hafa að sjálf- sögðu boðizt til þess að undir- skrifa þá þegar þá samninga, sem undirritaðir voru af LÍÚ fyrir þeirra hönd og fulltúrum sjó- mannasamtakanna í Reykjavík á dögunum. — Forustumenn sjó- mannasamtakanna hafa nú hins vegar farið fram á að útgerðar- menn ábyrgist fast verð á fisk- inum, án tillits til nokkurs verð- lags og verðmyndunarbreytinga í landinu. Útgerðarmenn telja sig ekki geta fallizt á þetta sjónar- mið, þar sem um er að ræða mál, sem heyrir beint undir sjálfa ríkisstjórnina. Svona standa málin í dag. — Þykir Vestmannaeyingum for- ráðamenn sjómannasamtakanna hafa tekið einkennilega afstöðu til tilmæla útgerðarmanna um frestun verkfallsins, þar sem vit- að er að verðið til sjómanna á slægðum þorski með haus, er samkvæmt núgildandi vísitölu 191 eyrir pr. kg. og tilsvarandi á öðrum fisktegundum, en var í samkomulaginu við ríkisstjórn- ina og LÍÚ 175 aurar, miðað við vísitöluna 185. Fiskverðið hefur þannig hækkað um 16 aura frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir, nú í þessum mánuði. Sýn- ist því flestum verkfallsboðunin hefði mátt dragast a. m. k. meðan fiskverðið til sjómanna fer hækk andi. Bátar eru í róðri í dag og afli lélegur, enda slæmt sjóveður. — Verkfallið mun stöðva 48 báta, er það skellur á, á miðnætti. Standa 20 báfar í Eyjum uppi í vetur? VESTMANNAEYJUM, 19. jan. — Svo sem getið er á öðrum stað í blaðinu, eru nú 48 bátar byrjaðir róðra héðan. Langflestir bátanna eru með línu. Afli hefur verið mjög góður, miðað við þennan árstíma. Munu flestir bátar verða komnir með yfir 60 tonn miðað við óslægðan fisk. Aflinn hefur heldur minnk- að síðustu daga og var tregur hjá þeim bátum sem komnir voru að klukkan 6 í kvöld. Mjög erfiðlega hefur gengið að manna bátana og enn mun vanta á um 30 báta fleiri og færri menn. Fullvíst er að fáist ekki færeyskir sjómenn, þá muni allt að 20 bátar standa uppi í vetur sökum mann- eklu. Fiskurinn sem kominn er á land hér hefur að mestu verið langa og nokkuð af keilu, en þorskur og ýsa hefur þó verið að glæðast í aflanum seinustu daga. Ekki leit björgulega út hjá hraðfrystihúsunum um áramótin með vinnuafl, en seinustu daga hefur þetta skánað mjög og fram Lýðrœðissinnar töpuðu Þrótti UM síðustu helgi fór fram alls- herjaratkvæðagreiðsla um stjórn arkjör í Vörubílstjórafélaginu Þrótti. Tveir listar voru í kjöri: A-listi, er skipaður var lýðræðis- sinnum, og borinn var fram af fyrrverandi stjórn félagsins og trúnaðarmannaráði, og B-listi kommúnista og bandamanna þeirra. Úrslit urðu þau, að B-listinn hlaut 129 atkvæði, en A-listinn 115 atkvæði. Stjórn félagsins er nú þannig skipuð: Einar Ög- mundsson, formaður, og með- stjórnendur: Ásgrímur Ólafsson, Gunnar S. Guðmundsson, Bragi Kristjánsson, Árni Halldórsson, Hákon Ólafsson og Ari Agnars- son. B-listinn hlaut þess vegna alla mennina kosna. Fjölmennur fundur trúnuður- mnnnu Sjúlfstæðisflokksins í Eyjufirði og ú Akureyri AKUREYRI, 19. jan. — Sl. laug- ardag var haldinn fjölmennur fundur stjórna fulltrúaráða og trúnaðarmanna í félögum Sjálf- stæðismanna í Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri. Fundurinn var haldinn í Landsbankasalnum hér í bæ. Frummælandi var Magnús Jóns son, alþm., framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Ræddi hann ýtarlega stjórnmálaviðhorfið í dag, tildrög stjórnarslita og mynd un núverandi ríkisstjórnar. Þá ræddi hann og tillögur um breyt- ingu á kjördæmaskipun og kosn- ingalögum og skýrði þær. Á eftir urðu almennar umræður og komu fram í þeim fyrirspurnir ýmsar, sem Magnús svaraði í lok fund- arins. Til máls tóku: Jón M. Jóns- son Dunhaga, Jónas G. Rafnar Akureyri, Karl Friðriksson Ak- ureyri, Vignir Guðmundsson, Ak- ureyri, Sveinn Bjarnason Akur- eyri, Einar G. Jónasson Lauga- landi, Gísli Jónsson Akureyri og Árni Jónsson Akureyri. Sem fyrr segir voru saman- komnir óvenjumargir trúnaðar- menn á þessum fundi, bæði úr bæ og sýslu, m.a. frá Dalvík, Ár- skógsströnd, Arnarneshreppi, Glæsibæjarhreppi, svo og úr inn- sveitum Eyjafjarðar. Geta má þess að samgöngur um sýsluna voru tregar sökum fannfergis og vetrarhörku. Fundarstjóri var Árni Jónsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæð- isfélaganna á Akureyri, en fund- arritari var Gísli Jónsson, mennta skólakennari. — vig. boð aukizt, einkum er það kven- fólkið sem komið hefur til starfa. Vantar þó ennþá, að allar stöðvamar séu fullmannaðar. Einn af útilegubátunum héðan frá Reykjavík, Guðmundur Þórðarson, kom úr veiðíför í gærdag með ágætan afla og land- aði þá eftir 5 daga útivist. Var aflinn 43 tonn, allt slægður fisk- ur með haus, þorskur og ýsa. — Ljósmyndari Mb!. tók þessa mynd á bryggjunni. Stórbruni í gærmorgun er Hæli í Hreppum brann til ösku Börnum var bjargað út um glugga — Slökkvistarf reyndist vonlaust STÓRBRUNI varð í gærmorgun er bærinn Hæli í Gnúpverja- hreppi, þar sem þeir búa bræð- urnir Steinþór og Einar Gests- synir, brann til kaldra kola og einnig brann allt sem í bænum var af innanstokksmunum í búi þeirra bræðra. Eldurinn kom upp á Hæli um klukkan 9 í gærmorg- un. Steinþór bóndi var þá úti í fjósi, en Einar bróðir hans var í Reykjavík. Það heimilisfólk, sem ekki var klætt er eldurinn brauzt út, bjargaðist út fáklætt. Úti var gaddur og hvassviðri. Frú Steinunn Matthíasdóttir, kona Steinþórs, var niðri í kjall- ara hússins að kveikja upp í mið- stöð hússins. Þá heyrði hún brak að ofan. Fór hún upp í eldhúsið til þess að athuga þetta nánar. Er hún opnaði hurðina sá hún að eldhúsið var allt fullt af reyk. Steinþór sagði Mbl. í gær, að er hann kom út úr fjósinu, út á hlaðið rétt eftir að eldurinn kom upp í húsinu, hafi eldurinn ver- ið orðinn svo magnaður í eldhús- inu, að rúðurnar voru að springa vegna hiíans frá eldinum og reyknum. Það var ekki ráðrúm til eins eða neins, sagði Stein- þór. Fyrst var að koma heimilis- fólkinu út, en móðir mín öldruð var ekki komin á fætur. Einnig voru börnin mín og börn Einars ekki komin framúr. Hvasst var af norðaustri og 8—10 stiga frost. Eldurinn flögraði á svipstundu um allt húsið, en við braéðurnir sem byggðum þetta hús árið 1936, bjuggum í sitt hvorum enda þess. Húsið byggðum húsið árið 1936. Það voru engin tök fyrir okkur að hafast neitt að til þess að hefta útbreiðslu eldsins. Munu vart hafa liðið meir en svo sem 10 mín. þar til húsið var allt orð- ið alelda. í því vetraríki, sem hér hefur verið, voru engin tök á því að ná í vatn til slökkvi- starfa. Fólk dreif fljótt að. Vind- ur stóð þannig, að gripahús og önnur útihús voru ekki í hættu, vegna brunans. Slökkvilið Sel- foss kom á vettvang um það bil 1 klst. eftir að eldurinn kom upp, en þá var bæjarhúsið að Hæli hrunið að hinum steinsteypta grunni sem undir því var. Síð- degis í gær logaði enn í rústun- um í kjallaranum. Það mest 1 bókasafninu okkar, sagði Steinþór. Þetta safn var allstórt og þar margt góðra bóka. Það var Gestur á Hæli sem komið hafði bókasafninu á fót, en við það hafði bætzt allverulegur bóka kostur. Einnig fóru forgörðum í bruna þessum nokkrar vatns- litamyndir er Ásgrímur Jónsson Samnmgarnir samþykktir HAFNARFIRÐI — Á sunnudag- inn fór fram atkvæðagreiðsla meðal bátasjómanna um fisk- verðið og kjarasamningana, og voru þeir samþykktir með 15 atkvæðum gegn 14 einn seðill var auður. Fram að þessu hafa aðeins tveir bátar með línu komið hing- ir að inn daglega og tveir verið í útilegu, en næstu daga munu fleiri bætast í hópinn. Aflabrögð hafa verið allsæmileg, t. d. kom Fiskaklettur hingað inn á laugar- dag með um 45 lestir eftir 5 lagnir. Togarinn Ágúst kom af Ný- fundnalandsmiðum á sunnudag með fullfermi. Aðrir togarar eru á veiðum. — G. E. listmálari daga. hafði málað í gamla í heimilum þeirra Steinþórs og Einars bróður hans eru konur þeirra, Steinunn Matthíasdóttir og Halla Bjarnadóttir hvor með fimm börn í heimili. Nú eru tvö börn heima, en hin eru að heim- an í skóla. Þá er í heimili Stein- þórs öldruð móðir þeirra bræðra, Margrét Gísladóttir ,ekkja Gestt á Hæli. Loks eru þrír vinnumenn hjá þeim bræðrunum. Alls eru þetta 18 manns, en um þessar mundir er heimilisfólkið alls 12 manns. En það, sem mest er um vert, sagði Steinþór, er að við erum öll ómeidd. Tjónið er skiljanlega mikið og tilfinnanlegt fyrir okk-. ur. Margt af því sem eyðilagðist er með öllu óbætanlegt, þótt vá- tryggt hafi verið, t.d. bókasafnið svo nokkuð sé nefnt. Sveitungum okkar vil ég biðja Mbl. að færa þakkir fyrir hjálpsemi þeirra við slökkvistarf- ið. Þeir hafa einnig hlaupið und- bagga með okkur, og opn- að hús sín og heimili fyrir okkur. Með vorinu munum við hefjast handa á nýjan leik við að byggja nýtt bæjarhús að Hæli, sagði Steinþór. Steindór sagði að lokum að erfitt væri að gera sér grein fyr- ir því hvað valdið hefði elds- upptökum. Brennandi bátur dreginn til hafnar SIGLUFIRÐI, 19. jan. — Um kl. 2,30 í dag kom vélskipið Gunn- ólfur frá Ólafsfirði hingað inn með vélskipið Baldvin Þorvalds- son í togi. Höfðu skipverjar á Gunnólfi farið bátnum til aðstoð- ar úti á miðunum, en eldur hafði komið upp í vélarrúmi Baldvins. Skipverjar á Baldvini Þorvalds- syni höfðu tæmt 3 handslökkvi- tæki, án þess að fá við eldinn ráðið. Síðan hafði vélarrúminu logaði verið lokað. Ekki yfirgáfu skips- menn þó hinn brennandi bát. Þegar Gunnólfur hafði lagt bátnum að bryggju stukku um borð í hann brunaverðir úr slökkviliðinu hér. Þeim gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Talið er þó að báturinn sé allmikið brunninn. í vetur ætlaði Þráinn Sigurðs- son útgerðarmaður, að gera mb. Baldvin út en aflinn skyldi lagð- ur í ísafoldarfrystihúsið hér í bænum. — Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.