Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 13
Laugardagur 24. jan. 1959 MORGUNBLAÐ1Ð 13 — Alþingi Frh. af bls. 8 kvörðun se^_ fjármálaráðherra tæki og hefði hann aldrei heyrt þess getið, að ráðherra velti þess- ari ábyrgð af sér yfir á embætt- ismenn. Þá minntist Eysteinn Jónsson á greiðsluafgang frá fyrra ári, sem sumir þingmenn hefðu talið allt að refsiverðan. Enn kvað hann ekki vitað, hve mikill þessi greiðsluafgangur yrði, en veru- legur hluti hans færi til að greiða greiðsluhalla fjárl. ársins á und- an. Á síðasta ári hefði verið ó- venjumikill innflutningur fyrir lánsfé og þjóðartekjur mjög góð- ar. Ef ekki hefði orðið greiðslu- afgangur við þessi skilyrði, hefði ekki verið hægt að gera sér von um hallalaus fjárlög í meðalári. Eysteinn Jónsson vék að ræðu Lúðvíks Jósefssonar frá deginum áður. Hann hefði lýst sig mótfall- inn þeim kenningum að afnema bæri vísitöluna. Ekki væru þó nema nokkrir mánuðir síðan fyrr verandi ríkisstjórn hefði gefið það út að það væri gjörsamlega vonlaust að stöðva verðbólgu- hjólið, ef vísitalan væri notuð áfram. Nú virtist Lúðvík Jósefs- son alveg vera búinn að skipta um skoðun. Þá hefði sami ræðu- maður talað um of mikla eyðslu í rikisrekstrinum, en kommúnist- ar byggju ekki yfir neinum töfra meðulum, sem horfa til sparn- aðar í þeim efnum. Þeir vildu að vísu minnka löggæzlu í landinu, leggja niður sendiráðið hjá NATO og sendiráðin á Norður- löndunum og skera niður verk- legar framkvæmdir í landinu. Þá vék Eýsteinn Jónsson að ræðu Einars Olgeirssonar og kvað hann einan hafa lýst á hendur sér vígi fyrrverandi rík- isstjórnar. Kvaðst hann ekki viss um að allir stuðningsmenn Ein- ars væru jafn ánægðir með þetta Og hann væri sjálfur. Lúðvík Jósefsson hefði í ræðu sinni minnzt á sjávarútvegsmál og sagt, að óhæfilegu miklu fé hefði verið varið til útgerðarinn- ar. Væri fróðlegt að heyra frá honum, hverjir hann teldi að hefðu fengið of mikið, hvort það væru kannske fiskimenn. í fyrr- verandi ríkisstjórn hefði hann lýst því yfir, að hæfilegt væri að útflutningsframleiðslan fengi 39 milljónir. Þá vék Eysteinn Jónsson að ræðu Bjarna Benediktsonar, sem hann sagði að hefði fjargviðr- ast mjög um vanskilavíxla og ó- skaplegt sukk úr tíð fyrrverandi stjórnar. Þá sagði hann, að með þessu frumvarpi væru Sjálfstæð- isflokkurinn að senda þjóðinni reikning og innheimta það sem hann hefði blekkt með í sumar. Það væri alrangt að Framsókn- armenn hefðu átt nokkurn þátt í kauphækkunarbaráttunni og væri ekki annað en slúðursaga, er Bjarni Benediktsson hefði sagt frá því að varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins hefði lagt til á bæjarstjórnarfundi í sept. að umsvifalaust yrði fallizt á 12% hækkun til verkamanna. Kvað hann samhengi í þessu máli það, að það hefði verið ætlun Sjálfstæðismanna að skilja Dags brún eftir, þegar aðrir fengju kaup sitt hækkað. En tillaga bæjarfulltrúa Framsóknarflokks- ins hefði hinsvegar verið til þess eins lögð fram að hindra það að Dagsbrúnarmenn yrðu útundan. Er Eysteinn Jónsson hafði lok- ið máli sínu, laust fyrir kl. 11 var gert hlé á þingfundi til kl. 11,30. en gert var ráð fyrir að 1. umræðu um niðurfærslufrum- varp nótt. ríkisstjórnarinnar lyki í Dagsbrúnarfundur i gærkveldi Verkamenn hafa fengið af þjónkun kommúnista nog við Dagsbrúnarstjórnin fór mjög fyrir vægðarlausri gagnrýni stuðnings- manna B-listans félagsstj. i ríkisstjórn halloka í GÆRKVÖLDI var haldinn fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún. Var hér um að ræða hinn venjulega kosninga fund. Fjölmenni var á fund- inum og urðu umræður all- Dauðarefsing afnumin á Kúbu eftir aftökurnar sagði Castro frétfamönnum Havana, 23. jan. Reuter. — Fidel Castro foringi uppreisnarmanna á Kúbu fór i dag áleiðis til Cara- cas, höfuðborgar Venezuela, til að taka þátt í hátíðahöldum í til- efni af flótta Perez Jimenez ein- ræðisherra í Venezuela í fyrra. Þegar Castro steig upp í flugvél- ina á flugvellinum i Havana, var honum fagnað af miklum mann- fjölda. Hann var mjög þreytu- legur. Þetta er fyrsta utanför Castros síðan Batista einræðis- herra var steypt af stóli á Kúbu. Dauðadómur í dag var liðsforingi úr her Batista dæmdur til dauða fyrir að pynda og drepa 108 manns. Réttarhöldin fóru fram á leik- vangi í Havana að viðstöddum um 17.000 manns. Liðsforinginn, Jesus 'Sosa Blanco, er 50 ára gam- all. Hann var jafnframt ákærður fyrir að brenna um 200 bænda- býli í Oriente-héraði. Réttarhöldin eru fyrstu „stríðs- glæparéttarhöldin“ á Kúbu eftir byltinguna. Það tók dómstólinn 12 V2 tíma að kveða upp dóminn. Verjandi Blancos kvaðst mundu skjóta málinu til hins nýja hæstaréttar Kúbu, en hinir fimm dómarar hans hafa ekki enn verið til- nefndir. í gær átti Fidel Castro fund með 350 erlendum blaðamönnum, sem hann hafði sérstaklega boðið til Kúbu. Fór fundurinn fram í hinu glæsilega Riviera-hóteli, þar sem Castro er búsettur. Ekki kommúnisti Hann lagði ríka áherzlu á, að hann væri ekki kommúnisti, en hins vegar mundu kommúnistar á Kúbu ekki verða ofsóttir. Hann kvaðst óska eftir vináttu og að- stoð Bandaríkjamanna, en kærði sig ekki um íhlutun þeirra. Hann kvað viðskiptaheimildir erlendra fyrirtækja á Kúbu verða ógildar, ef þær væru ekki í samræmi við lögin. Castro bjóst rið að um 400 „stríðsglæpamenn" yrðu teknir af lífi, en af þeim hefðu þegar verið líflátnir um 250 menn. í Havana er enn mikil byltingar- ólga, og hvarvetna eru gerðar háværar kröfur um hefndir á fylgismönnum Batista. Castro upplýsti, að þegar hættulegustu og illræmdustu stríðsgiæpamennirnir hefðu vcr- ið teknir af lífi, mur.di dauða- refsing verða afnumin á Kúbu. Hann sýndi fréttamönnum mynd- ir af limlestum likum, sem hann kvað hafa fundizt i skrifstofum Batistastjórnarinnar, og sagði að hún hefði látið drepa 20.000 karla, konur og börn. heitar. Svo hafa koniið í Dagshrún sem kunnugt er fram tveir listar við stjórnarkjör Ljósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnússon, tók pessa mynd niðri við höfn d dögunum. — Þar hefir oft undanfariö mátt sjá skip búin kaldri klakabrynju stafna milli, eins og þetta, sem myndin er af. — það, sem fram fer nú um helgina. Fyrsti ræðumaður fundarins var • Eðvarð Sigurðsson, ritari Dagsbrúnar, og talaði hann fyrir hönd A-listans, eða lista komm- únista. Ræða Eðvarðs var mjög lituð þeim áróðri, sem kommún- istar hafa nú helzt á takteinunum í umræðum um aðgerðir núver- andi ríkisstjórnar í efnahagsmál- um. Var það helzt inntak ræðu hans, að hinar ýmsu aðgerðir fyrr verandi ríkisstjórnar í efnahags- málunum, svo sem vísitölufölsun, kaupbinding, skattaálögur o. m. fl. hefðu á engan hátt rýrt kjör launþeganna. Var að þessu sinni óvenjumikið um falsanir á tölum og tilvitnunum í ræðu Eðvarðs og þegar hann vefengdi niður- stöðutölur hins nýja frumvarps, þá var það með þeim orðum, að hann væri „næstum alveg viss um að þetta væru of lágar töl- ur“. Ástæður dýrtíðarinnar kvað hann að miklu leyti vera „þá verðhækkun, sem bændur stálu í haust“. Um hinar nýju ráðstaf- anir almennt sagði Eðvarð að svar verkalýðshreyfingarinnar yrði að verða það, að skera upp herör gegn þeim. Jón Hjálmarsson, formanns- efni B-listans, lista lýðræðissinna í Dagsbrún, talaði næstur. Hann hóf mál sitt með stuttu yfirliti yf ir þá óheillaþróun sem hefði orðið í efnahagslífi þjóðarinnar sl. 2'/2 ár. Hvað hann það mætti vera hverju mannsbarni ljóst að það, sem fyrir lægi nú, væri að finna ráð til þess að stöðva þá verð- bólguöldu, sem fyrrverandi ríkis- stjórn hefði skellt yfir þjóðina. Á því væri engin vafi að vísi- talan myndi við þá breytingu, sem fyrirhuguð væri verða í mun réttara hlutfalli við verðlagið heldur en hún hefði nokkurn- tíma verið í valdatíð fyrrv. ríkis- stjórnar. Enda væri það óvé- fengjanleg staðreynd að kaup- máttur launa myndi við aðgerð- þessar aukast um 1,6%. Eðvarð hefði rætt um aðgerðir þær, sem fyrrverandi ríkisstjórn hefði framkvæmt haustið 1956 þegar hún afnam 6 vísitölu- stig óbætt, og sagt að þær hefðu verið allt annars eðlis heldur en það, sem nú væri verið að gera. Já, mikið rétt, sagði Jón, Þá fylgdu í kjölfarið stórfenglegir skattar og mikil hækkun vöruverðs, sem rýðri kjör launþega stórlega til viðbót- ar því, sem þeir misstu við ráhið á 6 vísitölustigunum. En þá hétu þessar aðgerðir allt öðru nafni. Þá voru það „bjargráð" þegar kommúnistar voru að stórauka greiðslurnar til atvinnuveganna — og samt var þá ekki um að ræða neinar kauphækkanir hjá launþegum. Verkamenn vilja kauphækkanir. en þær verða að vera raunhæfar, sagði Jón, og rifjaði upp vinnubrögð Dagsbrún arstjórnarinnar á s.l. hausti, þeg- ar hún fékk Lúðvík Jósefsson, þáv. sjávarútvegsmálaráðherra, til þess að gera baksamning við vinnuveitendur, samning, sem heimilaði þeim að taka þá kaup- hækkun, sem verkamenn fengu aftur, í hækkuðu verðlagi og því- umlíku. Það var hin mikilvæga aðstoð Lúðvíks, sem Þjóðviljinn gumaði svo mikið af á þeim tíma. Síðan ræddi Jón um ýmislegt það er snertir félagsmálin, sva sem breytingar á skipulagi fél- agsins, innheimtu félagsgjalda og aukameðlimakerfið, sem hann kvað réttilega vera byggt á rang. lætinu einu saman. Hvatti Jón að lokum félagsmenn til þess að standa þétt saman gegn verð- bólgustefnu kommúnísta. B-list- inn er listi lýðræðissinna, sagði hann, listi þeirra, sem vilja stuðla að því að reynt verði á raunhæf- an hátt að hamla gegn flóðbylgju dýrtíðarinnar,- Guðmundur J. Guðmundsson hellti úr sér flóði persónulegra svívirðinga um andstæðinga sína í félaginu og þá ekki hvað sízt um Jón Hjálmarsson og Jóhann Sigurðsson, og níddi þá báða allt hvað hann gat. Síðan sagði hann: „Ég skora á Jón Hjálmarsson, að hætta rógi sínum og ósannindum um þá menn sem eru í stjórn Dagsbrúnar“, og gátu þá margir ekki stillt sig um að brosa að Guðmundi! Jóhann Sigurðssen varafor- mannsefni B-listans talaði næst- ur. Var ræða hans málefnaleg og rökföst. Rakti hann svik fyrrv. ríkisstj. við verkalýðshreyfing- una og þá verðbólguöldu sem hún velti yfir þjóðina. Og nú þegar fram koma raunhæfar tillögur til þess að royna að stemma stigu við þeim ófögnuði sem fyrrv. rík- isstjórn vakti upp, þá verða kommúnistar alveg óðir af illsku og hafa allt á hornum sér, sagði Jóhann og spurði: Vilja nú ekki verkamenn heldur þessar tillögur núv. ríkisstjórnar, sem fela í sér eftirgjöf á 10 vísitölustigum, hverskyns verðlækkanir, án þess þó að leggja verði á þjóðina aukna skatta, vilja menn ekki þetta heldur en ráðstafanir komm únista 1956, þegar þeir afnámu 6 vísitölustig, hækkuðu verð á aT.ri nauðsynjavöru og lögðu 350 millj. kr. nýja skatta á þjóðina? Hvort álíta nú Dagsbrúnarmenn raun- hæfara, hvort hagstæðara? Og við skulum hafa það hugfast að við þessar ráðstafanir mun kaup- máttur launa aukast um 1,6 prós- ent. Mér virðist svo sem að með þessu frumvarpi sé stjórnin að stíga fyrsta skrefið gegn vágest- inum mikla: verðbólgunni. Þá ræddi Jóhann nokkuð um hina stórfelldu skuldaaukningu í tíð fyrrv. ríkisstjórnar. en í valdatíð hennar varð skuldaaukningin 500 millj. kr., þ. e. 200 millj. kr. á ári. Kommúnistum er mjög órótt núna, sagði Jóhann, þeir berjast heiftúðlega gegn hvers konar ráðstöfunum, sem beitt er gegn dýrtíðinni, en það er stað- reynd að fyrir síðustu áramót voru þeir reiðubúnir til hvers sem var, aðeins til að halda sætum sínum í ríkisstjórninni. Þá skipti það þá engu máli hvort 10 eða 15 vísitölustig voru afnumin algjör- lega bótalaust, stólarnir voru þeim allt. En verkamenn hafa, sagði Jóhann að lokum fengið nóg af þjónkun félagsstjórnarinn- ar við kommúnista í ríkisstjór.i. Það var ríkisstjórn þeixra sem samþykkti æ ofan í æ stórfelldar kjaraskerðingar fyrir launþega. Verkamenn munu nú um helg- ina fylkja liði um B-listann, þeir munu kjósa sér til forystu menn, sem berjast gegn aukinni verð- bólgu i landinu, þá sem vilja ekki minnka kaupmátt launanna heldur auka hann. Fundinum var ekki lokið þeg- ar blaðið fór í prentun í gær- kvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.