Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ AHhvast með snjókomu og síðar rigningu itnMá Dagsbrúnarfundur í gærkvöldi — Sjá bls. 13. 19. tbl. — Laugardagur 24. janúar 1959 Var grafinn sjö klst. í snjóflóði — 30 kindur fórust i þvi mms FJÁRMAÐURINN á Arnórsstöð- um á Jökuldal, Jón Þorkelsson, var hætt kominn með fé sitt í fyrrakvöld undir svokölluðum Loðinshöfða, er snjóflóð féll yfir hann og fjárhóp, sem hann rak á undan sér. Þetta gerðist um nónbil á fimmtudaginn. Var Jón að reka Breytt veður í dag í GÆRKVÖLDI var yfirleitt 6—10 stiga frost um allt land, nema á Vestfjörðum, þar var hiti um frostmark og snjókoma nokk- ur. Hér í Reykjavík var 10 stiga frost, logn og hreinviðri klukkan 8 í gærkvöldi. En samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar mun veður hér taka að breytast í dag. — Djúp lægð var í gærkvöldi tekin að nálgast vestan yfir sunn- anvert Grænland, og mun hún valda suðlægri átt hér þegar í dag. Taldj Veðurstofan, að all- hvasst mundi vera orðið um há- degið, og mundi fylgja nokkur snjókoma, er síðan breyttist í slyddu og loks rigningu. Þess má geta í sambandi við þessa væntanlegu veðrabreyt- ingu, að segja má að frost og stillur hafi verið samfleytt í rúm an mánuð, a. m. k. hér um suð- vestanvert landið. féð heim. — Loðinshöfði er um einn kílómetra frá Arnórsstöðum; er hann snarbrattur. Mikill snjór var í höfðanum, laus ofan á harðfenni. — 'Svo snögglega skall snjóflóðið á Jón og fjárhópinn ofan úr hlíðum höfðans, að engr- ar undankomu var auðið, og grófst hann í flóðinu, þar sem hann stóð. Mun hann aðeins hafa borizt stuttan spotta með því. Jón missti meðvitund, en hversu lengi hann lá í öngviti veit hann ekki. Er hann komst aftur til meðvitundar, áttaði hann sig fljótlega á því, að hann hafði grafizt djúpt í fönnina. Með hægð tókst honum smám saman að losa um sig, um hendur sínar og fætur. Hver klukkustundin leið af annarri. — Hvíldarlítið hélt hann áfram að krafla sig upp úr flóðinu. Heima á Arnórsstöðum var Jóns ekki saknað, og enginn vissi, hvað fyrir hann hafði komið. Þar taldi heimilisfólkið víst, að hann væri á næsta bæ. Á ellefta tíman- um um kvöldið kom Jón heim á sokkaleistunum, berhentur og þjakaður nokkuð og sagði frá því, sem fyrir hann hafði komið undir Loðinshöfða. — Hafði hann verið um sjö klst. að brjótast út úr flóðinu. Við það hafði hann misst báða vettlinganna, skóna og sokk ana af öðrum fætinum, en svo heppinn var hann að vera í tvennum sokkum, og þurfti því ekki að ganga berfættur heim í hríð, sem á var og tíu til tólf stiga gaddi. Það er síðan af Jóni Þorkels- syni að segja, að honum hefir ekki orðið meint af volkinu, en nokkuð var hann lerkaður í gser, svo sem voníegt er. — Jón er maður á fimmtugsaldri. Þykir hann hafa sýnt frábært þrek og stillingu, sem vafalítið hefir bjargað lífi hans í þessum kring- umstæðum. í fjárhópi þeim, sem Jón var með, er snjóflóðið skall á hann, voru 30 kindur, og fórst hver einasti þeirra. Átti hann kindurn- ar sjálfur. Kjósid B-listann Kristínus Magnús Tryggvi Gunnar Dagsbrúnarkosningarnar: B-listinn tryggir verkamönn- um lýðræðislega forystu Kona fannst örend við Seljalandsveg í gœr t GÆRDAG, klukkan að ganga tvö, fannst kona örend úti á víðavangi austarlega hér í bæ, , O • r ;u í Sjo- mannafél. Hafnar- f jarðar lýkur í dag HAFNARFIRÐI — Frá 25. nóv- ember hefir staðið yfir stjórnar- kjör í Sjómannafélaginu og lýkur því á hádegi í dag. Eru tveir listar í kjöri, listi, sem lýðræðissinnar standa að og er A-Iisti, og B-listi, sem er borinn fram af kommún- istum. Á A-listanum eru eftirtaldir menn í kjöri: Einar Jónsson formaður, Halldór Hallgrímsson ritari, Kristján Sigurðsson gjald- keri, Kristján Kristjánsson vara- formaður, Oddur Jónsson vara- gjaldk. og Hannes Guðmundsson og Sigurður Pétursson meðstjórn- endur. Einnig verður kosið í trún aðarmannaráð. Eru lýðræðissinnar hvattir til að fjölmenna núna fyrir hádegi til að kjósa, því að eftir hádegi er það of seint, kosningu lýkur kl. 12.—G.E. Varðarkaffi i ValhÖll í dag kl. 3-5 s.d. eða nánar tiltekið við afleggjara nokkurn á Seljalandsvegi. Er fremur fáförult á þessum slóðum, en maður nokkur, sem átti leið þarna um, fann konuna. Lá hún rétt hjá skúr nokkrum, sem þarna stendur. Tilkynnti mað- urinn lögreglunni þetta þegar. Mbl. gat litlar upplýsingar fengið hjá lögreglunni um atburð þennan í gærkvöldi, en hér mun hafa verið um að ræða 48 ára gamla konu, Elinborgu Ólafsdótt- ur, Sigtúni 45 hér í bæ. Ekki vissi lögreglan til, að nein ir áverkar hefðu verið sjáanlegir á líkinu. Kommúnistar hafa ofboðið verka- mönnum með pólitiskri misnotkun félaginu smm a Listi lýðræðissinna í Dags- brún er skipaður eftirtöld- um mönnum: Jón Hjálmarsson, formað- ur, Ingólfsstræti 21A; Jó- hann Sigurðsson, varaform., Ásgarði 19; Kristínus Arn- dal, ritari, Heiðargerði 35; Daníel Daníelsson, gjald- keri, Þingholtsbr. 31; Magn- ús Hákonarson, fjármálarit- ari, Garðsenda 12; Tryggvi Gunnlaugsson, Digranesveg KEFLAVÍK, 23. jan. — Bátarnir voru ekki á sjó í gær, þar eð all- hvasst var. — í dag réru aftur á móti nær þrjátíu bátar héðan, en afli þeirra var fremur lélegur, hjá flestum frá fjórum og upp í sex lestir. Einn bátur var með 8 lesta afla. Einn bátur hefur stundað hér veiðar á handfæri; er það Ver. Afli hjá honum hefur verið frem- ur tregur, 35; Gunnar Sigurðsson, Bú- staðavegi 105. Varastjórn: Guðmundur Jónsson, Bræðrab. st. 22; Sigurður Þórðarson, Fossag 14; Karl Sigurþórsson, Miðtúni 68. Stjórn Vinnudeilusjóðs: Sigurður Guðmundsson, Freyjiu Blað kommúnista á Lsafirði með kjördæma- brcytingunni „BALDUR“, blað kommúnista á fsafirði lýsir sl. laugardag yfir fylgi sínu við hina fyrir- huguðu kjördæmabreytingu. Kemst blaðið þannig að orði að „allir stjórnmálaflokkarn- ir, nema Framsóknarflokkur- inn, sóu breytingunni sam- þykkir. Hér er lika um full- komið réttlætismál að ræða“, segir „Baldur“ að lokum. Hækkun afnotagjaldsins kemur ekki til greina Hún var ákveðin i tið V. stjórnarinnar menntamálarAðherra, Gylfi Þ. Gíslason, lýsti því yfir á Alþingi í gær í sambandi við frv. ríkisstjórnarinnar um efna- hagsmálaráðstafanir, að ákvörð- unin um 50% hækkun afnota- gjalds Ríkisútvarpsins hefði ver- ið tekin í tíð vinstri stjórnarinn- ar. I byrjun desember sl. hefði verið ákveðið að heimila útvarp- inu að hækka afnotagjöld sin úr 200 kr. á ári í 300 kr. Skyldi þessi hækkun koma til fram- kvæmda 1. apríl nk. Kemur ekki til framkvæmda Menntamálaráðherra lýsti því jafnframt yfir, að þar sem núverandi ríkisstjórn legði allt kapp á að stöðva vöxt verð- bólgunnar og hækkanir á hvers konar þjónustu, þá hefði hann ákveðið að láta fyrr- greinda hækkun afnotagjalda ekki koma til framkvæmda, eins og ráðgert hafði verið. Mótmæli Sjálfstæðismanna í útvarpsráði I framhaldi af þessu má geta þess, að hinn 13. janúar sl., var frá því skýrt á fundi í útvarps- ráði, að ráðherra hefði ákveðið 50% hækkun afnotagjalda frá 1. apríl nk. Hafði álits útvarpsráðs ekki verið leitað um þá ráðstöf- un. Sigurður Bjarnason bar þá þegar fram mótmæli gegn hækk- uninni fyrir hönd fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins í útvarpsráði. — Benti hann á, að þessi mikla hækkun á þjónustu Ríkisútvarps- ins við almenning væri í algeru ósamræmi við þá stefnu, sem þjóðin væri hvött til þess að sam- einast um, stöðvun verðbólgunn- ar með niðurfærslu kaupgjalds og verðlags. Útvarpsstjóri upplýsti á þess- um fundi að afnotagjald útvarps- ins hefði ekki verið hækkað sl. 7 ár. götu 10A; Guðmundur Nikulás- son, Háaleitisv. 26; Sigurður Sæ- mundsson, Laugarnesc. 30. STJÓRNARKOSNING í verka- mannafélaginu Dagsbrún fer fram um þessa helgi og mun standa yfir frá kl. 2 e. h. í dag til kl. 10 e. h. og á morgun frá kl. 10 f. h. til kl. 11 e. h. Kosið verður í skrifstofu félagsins í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu. —• Tveir listar hafa komið fram, og er B-listinn listi lýðræðissinna. Við síðustu stjórnarkosningar kom fram greinileg óánægja verkamanna með núverandi stjórn félagsins. Var andúðin augsýnilega vegna pólitískrar misnotkunar kommúnista ó félag- inu og algjörs afskiptaleysis þeirra í almennum félagsmálum. Algjör undirlægjuháttur komm únista í verkalýðshreyfingunni gagnvart forystu Sósíalistaflokks- ins kom bezt í ljós sl. 2Vi ár, meðan þeir áttu ráðherra í ríkis- stjórn, en bezt sást þó skilyrðis-' laus hlýðni kommúnistanna í Dagsbrún við forustuliðið í sam- bandi við kjaramál félagsins á sl. sumri, þegar dregið var langt fram á haust að semja. En þegar það loksins var gert gerði Lúðvík Jósefsson leynisamning við at- vinnurekendur um það, að taka mætti af verkamönnum kaup- hækkunina með hækkuðu verði á vörum og þjónustu. Voru þau vinnubrögð algjört einsdæmi í kaup- og kjarasamningum hér- lendis. Dagsbrúnarmenn verða nú um helgina að sameinast um það að velta af sér þessu oki kommún- ista. Ofbeldislegt einræði þeirra í félaginu og það hvernig þeir halda V4, hluta félagsmanna á aukameðlimaskrá ætti að opna augu manna fyrir því af hverj- um heilindum þeir starfa í verka- lýðshreyfingunni. Verkamenn! Tryggið félagi ykkar lýðræðislega forystu! — Tryggið því framfarir í félags- málum og farsæld í kjarabarátt- unni! Kjósið lista lýðræðissinna í Dagsbrún, B-listann. Kosningoskrifstofa B-listans s s s s s Skrifstofa B-listans í Dagsbrún verður í Breiðfirðinga- í búð (efri hæð). Símar: 15411 og 17343. ; s SJÁLFBOÐALIÐAR ■ Þeir verkamenn, sem vllja veita B-Iistanum aðstoð sína S í þcssum kosningum, eru beðnir um að hafa samband við; skrifstofuna í Breiðfirðingabúð. s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.