Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.01.1959, Blaðsíða 17
Laugardagur 24. jan. 1959 MORGUNBLAÐIÐ 17 — Utan úr heimi Framh. af bls. 10. sögnum um skemmdarstarfsemi er vísað ákveðið á bug. Öll þau óhöpp, sem SAS hefir orðið fyrir með DC—7 hreyflana, eru orðin allt að því óteljandi. Hreyflarnir, sem eiga að knýja þessar 70 lesta þungu flugvélar, eru stærstu strokkhreyflar, sem framleiddir hafa verið fyrir flug- vélar. Curtiss Wright, sem hefir framleitt stóru strokkhreyflana, fyrir Douglasflugvélaverksmiðj- urnar, hefir látið þá afkasta 3500 hestöflum. En slíkt gerist þó ekki nema með mjög nákvæmum út- búnaði á þjöppurunum og mjög margbrotnu tannhjólakerfi, sem getur auðveldlega orðið til þess, að skrúfurnar taka að snúast stjórnlaust. Flugvirkjar og flugverkfræð- ingar hjá SAS viðurkenna, að of mikið álag er á Curtiss Wright mótorunum. Því bíða menn eftir- væntingarfullir þeirrar stundar, er DC—8 farþegaþotan komi í staðinn fyrir núverandi „flagg- skip“ SAS-flugflotans. Mokoyan lætur ekkert tækifæri ónotað til að vera aðlaðandi og elskulegur. Hann tók á hné sér tvo litla Bandaríkjamenn, sem voru samferðamenn hans í flug- vélinni, Alan litla, 16 mánaða gamlan, og Daníel, 6 mánaða. Fað ír Daníels, Harry Cahill, var á leið til Oslóar og mun starfa í bandaríska sendiráðinu þar. Mik- oyan spjallaði um bíla við Alan og kitlaði Daníel. Smákökur voru m. a. á boðstól- um í flugvélinni. Mikoyan gaf Alan litla kökurnar sínar og ávann sér þannig alla hylli drengsins og velvild foreldranna. Varaforsætisráðherrann var ekki aðeins alúðlegur við þessa litlu samferðamenn sína heldur og við aðra farþega í flugvélinni. Er flugvélin sneri við, vildi Mikoyan eftirláta sæti sitt frú Cahill, sem sat með Daníel litla 1 fanginu. Mikoyan taldi, að sæti hans væri öruggara en sæti henn- ar. Boðinu var neitað, af því að flugfreyjan lýsti því yfir, að öll sætin væru jafn örugg. Þarna getið þér séð, sagði dipló mat frá rússneska sendiráðinu í Kaupmannahöfn sigri hrósandi. Hann er nákvæmlega eins og all- ir aðrir menn. m Mikoyan var s«t. preyttur, er hann gekk til náða um kl. 5,30 á fimmtudagsmorguninn í rúss- nesku sendiráðsbyggingunni við Kristjaníugötu í Kaupmanna- höfn. Húsið var umkringt ein- kennisbúnum og borgaralega klæddum lögreglumönnum. Starfsmenn úr sendiráðinu og embættismenn úr fylgdarliði Mikoyans voru á verði í stigum og á svölum hússins. Er SAS-flugvélin lenti klukkan rúmlega hálf fimm á Kastrup- flugvellinum, yfirgaf Mikoyan flugvélina fyrstur manna. Hann kvaddi flugstjórann með handa- bandi og gekk síðan rösklega fram hjá suðandi kvikmynda- vélum fréttamanna frá ýmsum sjónvarpsstöðvum. Hann neitaði að gefa nokkra opinbera yfirlýs- ingu, enda var honum erfitt um vik, því að hann var allt að því borinn af sterklega vöxnum rússneskum og dönskum lögreglu mönnum út í bifreið, sem beið varaforsætisráðherrans. í fylgd með Mikoyan voru son- ur hans, Serg, 29 ára, túlkur hans Troianovsky og þrír diplómatar, sem vafalaust gegndu jafnframt störfum lífvarða, Burdin, Solda- tov og Smolianitsjenko. Klæðnaður Rússanna bar þess vitni, að þeir hafa enn mest dá- læti á sams konar fötum og voru í hátízku, er Chaplin var að taka þöglu myndirnar sínar. Þegar komið var til sendiráðs- ins, neitaði Mikoyan enn einu sinni að segja nokkuð um ástand- ið í heiminum og um heimsókn sína til Bandaríkjanna. Þess má geta, að á flugvellin- um var Mikoyan afhent gjöf frá H. C. Hansen. Var það skopteikn- ingi af Mikoyan, gerð af teiknar- anum Hans Bendix. Gömlu dansarnir í G. T. húsinu í kvöld kl. 9. Söngvarar með hljómsveitinni: ★ Sigríður Guðmundsd. og ★ Haukur Morthens I kvöld heldur áfram hin spennandi 5 kvölda keppni í ASA-DANSl um tvö þúsund króna peningaverðlaun auk snoturra verðlauna hvert kvöld. 3 pör komast í úrslit, hvert kvöld, og keppa því 15 pör, að lokum um þessi glæsilegu verðlaun. ★ Það er vissara að vera með frá byrjun, finnst ykkur það ekki? ★ Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 1-33-55. Silfurtunglið Dansleikur í kvöld kl. 9. Nýju dansarnir. Ceró kvintettin leikur. Söngvari: Sigurður Scheving. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 4. SILFUBTUNGLH), sími 19611. Glasgow—London frá REYKJAVÍK til GLASGOW og LONDON alla þriðjudaga til REYKJAVÍKUR frá GLASGOW og LONDON alla miðvikudaga Loftleiðis landa milli LOFTLEIÐIR — Sími 18440 — ☆ Keflavík Dansleikur Þorrahlótið hafið „Gub gœfi; ap égværi feoimnn í rúmið, háttaður, sofnaðui; vaknaður aftur og farinn að éta" Hámskeið í föndri Starfsemin hefst í næstu viku. Innritun á Fríkirkju- vegi 11 (bakhúsi í dag og á morgun kl. 2—4. Ungu fólki á aldrinum 12—25 ára heimil þátttaka meðan húsrúm leyfir. Innritunar- og námskeiðsgjald er kr. 20. Tómstundaheimili ungtemplara. Fokheld íbúð 1 herbergi, eldhús, W.C. og forstofa ca. 45 ferm. til sölu í Sólheimum 35 (Jónskjör). fbúðin er skemmtilega stað- sett móti suðri. Múrhúðuð utanhúss og miðstöðvarlagn- ingu lokið. íbúðin verður til sýnis milli kl. 3—6 í dag og á morgun. í kvöld kl. 9. Fimm í fullu fjöri leika. • Dansað frá kl. 3~6 á morgun (sunnudag). Dansleikur annað kvöld kl. 9. Fimm í fullu fjöri leika. F ramsóknarhúsið DANSLEIKUR í kvöld kl. 9. Hið fræga sjónhverfingapar Los Tornedos skemmta. Hljómsveit Gunnars Ormslev. Söngvarar: Helena Eyjólfsdóttir og Gunnar Ingólfsson. Miðapantanir ísíma 22643. F FBAMSÖKNARÉLÖGIN. F. L. R. R. Rafvirkjameistarar ARSHAtIÐIN verður haldin föstudaginn 13. febr. í Þjóðleikhúskjallaranum. — Nánar í bréfi. SKEMMTINEFNDIN. Grímuball ALMENNUR GRlMUDANSLEIKUR verður haldinn Upplýsingar gefa Lögmenn Geir Hallgrímsson, Eyjólfur Konráð Jónsson Tjarnargötu 16 — Símar 1-1164 og 2-2801. í Breiðfirðingabúð 5. febrúar kl. 9 stundvlslega. Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst í síma 22851.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.