Morgunblaðið - 13.03.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1959, Blaðsíða 1
24 siður Á níunda hundrað fulltrúa sœkja lands- fund Sialfstœðisflokksms , , i Fró lands- í gœr voru rœdd utanríkis-, landhelgis-, landbún- | fundinum i gær aðar- og heilbrigðismál Fundurinn heldur áfram kl. 10 f.h. i dag LANDSFUNDUR Sjálfstæðismanna hélt áfram í gær. — Ncfndir störfuðu fyrrihluta dagsins en kl. 4 síðdegis hófst iundur í Sjálfstæðishúsinu. Á þeim fundi voru Bjarni Bene- diktsson og Davíð Ólafsson framsögumenn utanríkis- og Jandhelgismálanefndar. Voru báðir salir Sjálfstæðishússins þéttskipaðir fulltrúum. Samtals höfðu þá 814 fulltrúar verið íkráðir þátttakendur á fundinum, að meðtöldum flokksráðs- mönnum. — Ólafur Thors setti fundinn og lagði til að Ásmundi Ólsen frá Patreksfirði yrði falin fundarstjórn. Síðan voru þeir Axel Tulinius frá Neskaupstað og Barði Friðriksson út- nefndir fundarritarar. Frá landsfundinum í gær. — Bjarni Benediktsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flytur framsöguræðu sína um utanríkismál. — Til vinstri á myndinni Ólafur Thors, form. flokksins, Ásmundur Olsen, fundarstjóri og til hægri fundarritararnir Barði Friðriksson og Axel Tulinius. De Gaulle vmnur með leynd að tillögum til lausnar ,,kalda stríðinu" Utanríkis- og landhelgismál Fyrstur tók til máls Bjarni Benediktsson, fyrri framsögu- maður utanríkis- og landhelgis- málanefndar. Gerði hann grein fyrir tillögum nefndarinnar og flutti alllanga og ýtarlega ræðu um utanríkismálin. Hann ræddi fyrst um varnarmálin, hvernig þau hefðu þróazt síðan vinstri flokkarnir samþykktu þingsálykt unartillöguna um brottrekstur varnarliðsins og það, hvernig stefna Sjálfstæðismanna hefði staðizt dóm tímans. Síðan vék hann að landhelgis- málinu og afstöðu þess til At- lantshafsbandalagsins. Sýndi hann fram á, að jafnframt því sem kommúnistar hefðu vafa- laust viljað stækka landhelgina og tryggja rétt okkar íslendinga í þeim efnum, hefðu þeir viljað nota tækifærið til að sá illu milli okkar óg þeirra þjóða, sem næst okkur standa að legu og menn- ingu. Tillögur Sjálfstæðismanna um grunnlínubreytingar Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, •íðari framsögumaður, tók næst- ur til máls og skýrði glögglega gang landhelgismálanna frá fyrstu tíð. Hann benti sérstak- lega á það, hve allur undirbún- ingur landhelgismálsins hefði verið vandaður í stjórnartíð Ólafs Thors, en á þeim örugga undir- búningi hafa allar síðari aðgerðir okkar verið byggðar. Hann gerði grein fyrir tillög- nm Sjálfstæðismanna um grunn- línubreytingar, sem vinstri stjórn in kom ekki í framkvæmd, enda þótt Genfarráðstefnan hefði veitt heimild til slíks og sagði að ts- lendingar þyrftu að sýna einhug í þessu máli, láta ekki undan siga fyrir erlendu ofbeldi né sætta sig við minni fiskveiðilandhelgi en nú hefur verið ákveðin. Taldi Davíð að Sjálfstæðisflokknum væri bezt treystandi til að halda svo á málunum að sigur ynnist. Um sexleytið var gert fundar- hlé, en laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi setti formaður Sjálf- stæðisflokksins, Ólafur Thors, fund að nýju. Lagði hann til, að Sveinn Jónsson, bóndi á Egils- stöðum, yrði fundarstjóri á þeim fundi og tók hann við fundar- stjórn og skipaði fundarritara þá Jón Pálsson, dýralækni, og Steina Guðmundsson, bónda á Valdastöðum. Fyrsta málið, sem tekið var fyrir á kvöldfundinum var land- búnaðarmál og hafði Jón Pálma- son, alþm., framsögu í málinu af hálfu landbúnaðarnefndar Flutti hann í upphafi máls síns greinargott yfirlit yfir þróun landbúnaðarmálá síðustu árin og áratugina og nú síðast í tíð V- stjórnarinnar. Þá gerði hann ítar- lega grein fyrir tillögum landbún aðarnefndar í málinu. Að ræðu Jóns Pálmasonar lok- inni urðu fjörugar umræður um landbúnaðarmál og voru bornar fram nokkrar breytingartillögur við nefndarálitið. Þessir tóku til máls: Sigmundur Sigurðsson, Syðra-Langholti, Guðmundur Er- lendsson, Núpi, Þorlákur Björns- son, Eyjarhólum, Halldór Jóns- son, Leysingjastöðum, Sigurður Björnsson frá Veðramóti, Othar Hansson Reykjavík, séra Svein- björn Sveinbjörnsson, Hruna, Egill Jónsson, Guðrún Guðlaugs- dóttir, Árni Jónsson, Guðmundur H. Garðarsson og Jón Pálmason. Næsta mál, sem tekið var fyrir, var heilbrigðismál. Hafði Kjart- an Jóhannsson, alþm., framsögu í málinu af hálfu heilbrigðisnefnd ar, en næstur talaði Einar Thor- oddsen, bæjarfulltrúi. Fleiri höfðu ekki kvatt sér hljóðs er blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Situr Dulles. fundinn ? WASHINGTON, 12. marz. — Ekki er ólíklegt, að Dulles utan- ríkisráðherra taki þátt í fundum þeirra Macmillans og Eisen- howers, er brezki forsætisráð- herrann kemur vestur um haf í næstu viku ásamt utanríkisráð- herra sínum, Selwyn Lloyd, til þess að greina forsetanum frá Moskvuförinni. Fundirnir munu a. m. k. standa þrjá daga og verða haldnir á búgarði forset- ans utan við Washington. Dulles liggur enn í sjúkrahúsi og nýtur daglegra geislalækninga við innvortis krabbameini. Hann hefur hresstst nokkuð eftir upp- skurðinn á dögunum. PARÍS, 12. marz. — Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að de Gaulle, forseti Frakklands, muni birta mjög ýtarlegar og róttækar tillögur um lausn „kalda stríðs- ins“ í síðustu viku þessa mánað- ar. De Gaulle hefur að undan- förnu skoðað Berlínardeiluna og aðrar deilur austurs og vest- urs niður í kjölinn. o+o Hann hefur rætt við Macmill- an, Adenauer og rússneska sendi- herrann í París. Með mikilli leynd undirbýr hann tillögur sínar og sagt er, að einungis fáir ráðunautar hans og sérfræðingar hafi nasaþef af því hvað þarna Skotið heppnaðist ADELAIPE, 12. marz. — Bretar skutu Black Knight eldflaug sinni upp frá Woomera tilraunastöðinni í Ástralíu í dag. Ileppnaðist til- raunin vel. Náði eldflaugin 320 míina hæð. Sennilegt er, að Bret- ar reyni ð skjóta fyrsta gervi- tungli sínu með þessari eldflaug. er á ferðinni. Hyggst forsetinn halda tillögunum leyndum til loka mánaðarins, en birta þær skömmu áður en leiðtogar At- lantshafsbandalagsríkjanna hitt- ast í Washington 2.—4. apríl — og áður en hugsanlegur utanrík- BONN, 12. marz. — Macmillan og Adenauer ræddust við í dag ásamt utanríkisráðherrum sín- um. Viðræður þeirra voru hinar leyndustu og hefur ekkert verið látið uppi um efni þeirra né nið- urstöður. Þó er fullvíst talið, að rætt hafi verið um Berlínarmálið nær eingöngu og styrkleikahlut- föllin í Evrópu. Ekki mun nein opinber yfirlýsing verða gefin út áður en Macmillan heldur heimleiðis á morgun. Talið var, að ágreiningur væri kominn upp með þeim Macmill- an og Adenauer. Kvaðst hinn fyrr nefndi geta stutt tillögur um að draga úr vopnabúnaði Evrópu. Adenauer hafði hins vegar hald- ið fast við að núverandi vopna- búnaði yrði haldið svo lengi sem Rússar ógnuðu með ofbeldi. Síðdegis í dag létu talsmenn beggja í það skína, að hér hefði verið um misskilning að ræða. Macmillan væri ekki fylgjandi vopnlausu belti í Evrópu heldur að dregið yrði úr vopnabúnaði undir ströngu gagnkvæmu eftir- liti — og mun Ádenauer alls ekki vera mótfallin því í meginatrið- um. isráðherrafundur stórveldann* verður haldinn. Þá er og haft eftir áreiðan- legum heimildum, að de Gaulle geri sér vonir um að ef gengiS verður að tillögum hans, sem honum þykja aðgengilegar fyrir báða aðila, verði dregið úr við- sjám með austri og vestri um allan heim. Hann mun þó ekki ganga að neinni þeirri lausn Berlínardeilunnar, sem ekki fel- ur í sér framtíðarsetu hernáms- liðanna í Berlín. Vitað er, að de Gaulle er síður en svo andvígur ríkisleiðtoga- fundi, ef utanríkisráðherrarnir undirbúa slíkan fund nægilega vel. — Reuter. Haft er eftir góðum heimild- um, að ekki hafi gætt neins meg inágreinings í viðræðum þeirra st j órnmálaf oringj anna. DEHLI, 12. marz. — Nehru for- sætisráðherra Indlands, skýrði svo frá í dag, að Indverjar hefðu fengið nægilega tryggingu frá Bandaríkjamönnum um að varn- arsamningur Bandaríkjanna og Pakistan yrðu ekki notaðir af Pakistönum til árásar á Ind- land. ★------------------------★ Föstudagur 13. marz. Efni blaðsins m.a.: Landsfundarræða Ólafs Thors, er á bls. 3, 8, 9, 10, 11, 13, 14 o g 15. Bls. 6: íslenzkur fiskur á framtíð fyrtr sér á sænskum markaði. — 12: Forystugreinin: Sterkasta afllS í íslenzkum stjórnmálum. Utan úr heimi: Fjórir lögreglu- menn áttu fullt í fangi met Söru Churchill. — 16: Happdrætti Háskólans. ★------------------------★ Lan ’slundurlnn heldur úfrum I Sjólfstæðishúsinu kl. 10 LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- verzlunar- og iðnaðarmál. — flokksins heldur áfram kl. 10 Eft*r hádegið verður rætt um í dag í Sjálfstæðishúsinu. - ef*fhagsmál önnur mál eftir þvi sem nefndir skila Verða fyrst tekin til umræðu störfum. Leynilegar viðrœður Mac- millans og Adenauers

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.