Morgunblaðið - 10.04.1959, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.04.1959, Qupperneq 19
MORGUIVBLAÐIÐ 19 Töstudagur 10. apríl 195S Sjötugur í dag Ólafur Bjarnason á Brimilsvöllum P & Ó ný herravöru- verzlun í Austurstrœfi FYRIR 70 árum, 10. apríl 1889, fæddist að Hofi á Kjalarnesi Óf- afur Bjarnason, bóndi og hrepp- stjóri á Brimilsvöllum í Fróðár- hreppi á Snæfellsnesi. Foreldrar Ólafs voru þau Bjarni, bóndi og hreppsstjóri Sigurðsson, og kona hans, Vigdís Sigurðardöttir, bónda á Sandi í Kjós. Árið 1898 fluttist Ólafur, 9 ára gamall, með foreldrum sínum frá Hofi á Kjal- arnesi að Brimilsvöllum á Snæ- fellsnesi — og þar hefur hann átt heimili síðan, bæði meðan hann dvaldist í föðurhúsum og eftir að hann hóf búskap sjálfur ásamt eiginkonu sinni, frú Kristó línu Kristjánsdóttur, bónda á Haukabrekku, mikilli myndar- konu. Börn þeirra hjóna eru þessi: Sigurður, lyfjafræðingur í Reykjavík, giftur Þorbjörgu Jónsdóttur; Rögnvaldur, fram- kvstjóri á Hellissandi, giftur Jónu Ágústsdóttur; Björg, gift Sigurjóni Sigurðssyni, fulltrúa í Reykjavík; Bjarni, verkstjóri í Ólafsvík, giftur Mörtu Kristjáns- dóttur, og Hlíf, ógift, til heimilis í Reykjavík. Tvö börn sín misstu þau hjónin, Hrefnu, sem dó á fermingaraldri, og Kristján, sem dó rúmlega tvítugur. Ólafur er sómi sinnar stéttar, enaa greindur, íhugull og dug- mikill. Hann hefur setið vel stór- býlið Brimilsvelli, bæði hvað ræktunarframkvæmdir og húsa- kost snertir. Á Ólaf hafa hlaðizt margs konar trúnaðarstörf, eins og oft vill verða um þá menn, sem eru ósérhlífnir og traust- vekjandi. Hann hefur verið — 30 kappar Framh. af bls. 1. Dalai Lama væri á leiðinni til Nepals. Þá var það einnig m°ð ráðum gert að láta þá frétf ber- ast út, að Dalai Lama væri al- varlega særður. Á sama tíma hafði Dalai Lama og fylgdarlið hans lagt af stað meðfram norðurströnd Yandrak- vatnsins, og var síðan haldið í suðaustur til hins mikla fjall- lendis fyrir norðan Bhutan. Barizt upp á líf og dauða Hópurinn með tvífarann hélt í austurátt og varð á vegi vöru- bílanna með kínversku hersveit- irnar. i Karo-skarðinu mitt á miili Yandiak-vatns og Gyantse sló í bardaga milli Kínverjanna og hinna 30 sjálfboðaliða. Sumar heimildir herma að þeir hafi allir látið lífið, en aðrar að tvífari Dalai Lama hafi verið handtek- inn og sendur til Lhasa. Það þykir hafið yfir allan vafa, að Dalai Lama eigi hinum 30 hraustu Khamba-hermönnum líf sitt að launa. Þegar Kínverjar áttuðu sig loks á gabbinu, var hann kominn upp í fjöllin þar sem ómögulegt var að hafa upp •á honum. hreppstjóri Fróðárhrepps síðan 1924, sýslunefndarmaður frá því 1922, formaður sólcnarnefndar, formaður búnaðarfélagsins í ára- tugi .hreppsnefndaroddviti um skeið og fulltrúi á búnaðarsam- bandsfundum. Þá var Ólafur um- boðsmaður þjóðjarða Arnar- stapa- og Skógarstrandaumboðs frá 1926 og til þess tíma að um- boðið var lagt niður sem sjálf- stætt starf. Hann var og skipaður í Búnaðarráð 1944. Ég, sem þessar línur rita, hef haft náin kynni af Ólafi í yfir 40 ár, átt sæti með honum í sýslu- nefnd Snæfellsness- og Hnappa- dalssýslu í 22 ár og haft gagn og ánægju af því samstarfi — enda er Ólafur tillögugóður og rétt- sýnn á menn og málefni. Ég hef notið margra ánægjustunda á heimili þeirra hjóna á Brimils- völlum — og veit, að ég mæli fyrir munn fjölda Snæfellinga, er ég á þessum merku tímamót- um votta þeim hjónum þakklæti og virðingu fyrir drengskap og höfðingslund, er Snæfellingar hafa notið í ríkum mæli á heim- ili þeirra í marga áratugi. Máttar stólpar hvers þjóðfélags eru góð heimili, þar sem drengskapur og manndómur ríkir. Á Snæfells- nesi er margt slíkra heimila — og er heimili þeirra Brimilsvalla- hjóna eitt af þeim. Ég færi Ólafi vini mínum beztu heillaóskir frá okkur hjón- unum og bið honum farsældar og langra lífdaga, fjölskyldu hans og byggðarlagi okkar til heilla. Sig. Ágústsson. Hekluferð imi helgina VORHUGUR er nú að koma í menn, sumir jafnvel farnir að hugsa til hreyfings, til sumar- ferðalaga, eða a. m. k. að skreppa út úr bænum einhvern góðviðris- daginn. Glögg merki þess, að ferðahugurinn sé að vakna, sjást nú í því, að Páll Arason ætlar að fara fyrstu Hekluförina á laug ardaginn, eftir hádegið. Þetta er tveggja daga ferð, gist verður í Næfurholti og gengið á Heklu með leiðsögumanni á sunnudag. Þá um kvöldið verður komið aftur til bæjarins. Þetta er þriðja hópferð Ferðaskrifstofu Páls Arasonar á árinu. Tvcir hásetar slösuðust AKRANESI, 9. apríl. — Svo slysalega vildi til, er verið var að draga netin á vb. Keili í dag, að tveir hásetanna, þeir Snorri Árnason og Trausti Jónsson, lentu samtímis í spilinu, og hand leggsbrotnuðu báðir. — Skipstjór inn „keyrði" þegar til lands, og vcru hinir slösuðu fluttir í sjúkru húsið hið snarasta. Þegar búið var að gera að meiðslum mannanna, fengu þeir að fara heim til sín, því að hjá hvorugum var um opið brot að xæða. — Oddur. Frv. um vöruhapp- drætti SÍBS afgrcitt sem lög Á FUNDI efri deildar Alþingis í gær var frumvarp til laga um vöruhappdrætti Sambands ís- lenzkra berklasjúklinga tekið til þriðju umræðu í deildinni. Urðu engar umræður um frumvarpið og var það samþ. með samhljóða atkvæðum og verður afgreitt til ríkisstjórnarinnar sem lög frá A1 þingi. P & Ó heitir ný herrafataverzlun sem í dag opnar í Austurstræti 14. Eru þar á boðstólum hvers konar herravörur aðrar en skó- fatnaður. Verzlunin er til húsa á 1. hæð (inngangur frá Pósthús- stræti) en í kjallara er deild fyr- ir tilbúinn fatnað karlmanna. Eigendur P & Ó eru Ólafur Maríusson og Pétur Sigurðsson, sem um nær þriggja áratuga skeið hafa starfað hjá verzl. Har. Árnasonar. Reynsla þeirra og sér þekking á herravörum er því mikil. Þeir verða einir afgreiðslu- rnenn í hinni nýju verzlun fyrst í stað og sögðu við fréttamenn Mbl. í gær, að þeir myndu kapp- kosta að hafa ávallt vandaðar. Bömin brenna sinu ÞAÐ ER freistandi fyrir krakk- ana að kveikja í sinu, þegar far- ið er að þorna um og veðrið er gott. Hefir Slökkvilið Reykjavík- ur haft nokkurt ónæði af slíkum smá-sinubrunum síðustu dagana, en sem betur fer hefir ekkert tjón hlotizt af þessum barnabrek um. — Síðdegis í gær var slökkvi liðið tvisvar kvatt út vegna sinu- bruna, í fyrra skiptið að Nýbýla- vegi 40, en þar höfðu krakkar kveikt í þurri sinunni rétt hjá húsinu, og síðar að vatnsgeymun- um á Háteigshæðinni. — í fyrra- dag var slökkviliðið þrisvar ó- náðað af sams konar tilefni. í gær var slökkviliðið einnig kvatt að Laugavegi 15, þar sem kviknað hafði í umbúðakössum, sem stóðu úti á götu. Er sagt frá því annars staðar í blaðinu. — Einnig slökkti það eld, sem kom upp milli þilja í Sænska frysti- húsinu, sennilega út frá raf- magni. — í fyrrinótt kom upp eldur í vinnuskúr við Hagamel. Var skúrinn alelda, er slökkvi- liðið kom á vettvang, og eyðilagð ist hann. Yfirlýsing AÐ marggefnu tilefni viljum við taka það fram að efni blaðs- ins „Nýjar fréttir“, sem kom út um páskana, var ekki skrifað af undirrituðum, þótt ábyrgðar- menn teldust af sérstökum ástæð um. Fer því fjarri, að skammir þær og árásir á menn og málefni, er þar birtust, séu okkar skoðanir eða meining og biðjum við þá, er fyrir leiðindum urðu, velvirð- ingar á þessu. Steingrímur Thorsteinsson. Heimir Br. Jóhannsson. Akranesbátar AKRANESI, 9. apríl. — Heildar- afli í gær hjá 21 báti var 153 lestir. Aflahæstur var Sæfari með 23 lestir, næstur Ólafur Magnússon með 17,3 1. og þriðji Sveinn Guð- mundsson með tæplega 12 lestir. í dag eru 20 bát.ar á sjó. 1 —Oddur. vörur og leitast við að leiðbeina viðskiptavinum um vöruval. Húsnæði verzlunarinnar er mjög smekklega innréttað og varningi vel og snyrtilega fyrir komið. En hvað mesta athygli gestsins vekur þó „kjallarinn" þar sem viðskiptavinir geta skoðað tilbúinn fatnað og mátað buxur og jakka í umhverfi sem er e-inkar nýstárlegt og þægilegt. Bradfordvél óskast keypt. Má vera ógang- fæ- Tokið á móti tilboðum í ' síma 50426, föstudag og laug- j ardag. — Málarastofan Barónsstíg 3. Sími 15281. Gerum gömul húsgögn, sem ný. RyShreinsun & Málmhúðun s.f. Sími 35400. EGGURT CLAESSEN og GÚSTAV A. SVEINSSON , hæstaréttarlögmenn. Þórfhamn við Templarasunð PÁLL S. PALSSON MÁLFLUTNINGSSKRIFSPOFA Bankastræti 7. — Sími 24 200. Einbýlishús til leigu Nýtt 5 herb. einbýlishús í Hafnarfirði til leigu í 1 ár. Laust nú þegar. Upplýsingar gefur: Árni Gunnlaugsson hdl., Austurgötu 10, Hafnarfirði, sími 50764, 10—12 og 5—7 --------^ Hjartans þakkir til barna minna, tengdabarna og barnabarna og til þeirra mörgu vina minna sem heim- sóttu mig og færðu mér gjafir og blóm og heillaóskir á 95 ára afmæli mínu 5. apríl 1959. Guð blessi ykkur öll. Guðríður Jónsdóttir, Kirkjubraut 23 Akranesi. Mínar innilegustu þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig á 75 ára afmæli mínu 3. apríl sl. með heim- sóknum, gjöfum, blómum og skeytum. Jónas Eyvindsson, Sjafnargötu 7. Þakka hjartanlega þeim, sem heiðruðu mig með heim- sóknum, skeytum og gjöfum á 70 ára afmæli mínu 29. marz sl. Sigurður Gíslason. Móðir mín JÓLMFRlÐUR ÞORI.ÁKSDÓTTIR Bergstaðastræti 3, sem andaðist 7. þ.m., verður jarðsung- in frá Dómkirkjunni laugardaginn 11. þ.m. kl. 10.30 f.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. — Blóm afbeðin Ásfríður Ásgríms. Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föður míns og afa SIGURÐAR ÓLAFSSONAR tésmiðs. Guðrún Sigurðardóttir, Sóiveig Axelsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns SIGURÐAR H. PÉTURSSONAR Brunngötu 20 Isafirði. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Óiöf Júlíusdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför BJARNA E. EINARSSONAR frá Ögurnesi. Eiginkona og börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.