Morgunblaðið - 10.04.1959, Page 20
VEDRID
Léttskýjað — frostlaust.
N. og NA-gola eða kaldi.
oí’pittlíla
80. tbl. — Föstudagur 10. apríl 1959
s. u. s.
er á bls. 8.
Nokkrir af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins bera kistuna í kirkju.
Fjölmenni var
við útför Eyjóifs
Jóhannssonar
í GÆR fór fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík, útför Eyjólfs
Jóhannssonar, forstjóra, frá
Sveinatungu, en hann lézt hinn
1. þ.m. Mikið fjölmenni var við
útförina. — Séra Jón Auðuns,
dómprófastur, flutti ræðuna í
kirkjunni og jarðsöng, en jarð-
sett var í Fossvogskirkjugarði. —
Dr. Páll ísólfsson lék á orgel
Dómkirkjunnar og stjórnaði söng
dómkórsins, en Guðmundur
Jónsson, óperusöngvari, söng
einsöng, „Litanei“ eftir Schu-
bert.
Nokkrir forystumenn . Sjálf-
stæðisflokksins báru kistuna í
kirkju, en félagar úr Oddfellow-
reglunni stóðu heiðursvörð og
báru úr kirkju. í kirkjugarð báru
kistuna stjórnarmenn Vinnuveit-
endasambands íslands.
Kjörnefnd Sjálfstœðis-
félaganna kosin
Vonlaust talið að trillu■
báturinn sé ofansjávar
Á honum var einn maður, ungur
fjölskyldufaðir
EINS og sagt var frá í blaðinu í
gær, var gerð víðtæk leit að 2
lesta trillubát úr Garðinum, sem
síðast spurðist til um kl. 11 á
miðvikudagsmorguninn. Var báts
ins leitað án árangurs allan mið-
vikudaginn og fram á rauða nótt.
í gær var einnig gerð mikil
leit að bátnum, og m. a. gengu
menn úr slysavarnasveitinni í
Garði um fjörur. Á þeim slóð-
um, þar sem trillunnar gat verið
von, hefir sífellt verið fjöldi báta
allt frá því að hennar var saknað.
— Leitin í gær bar engan árang-
ur, og er vonlaust talið, að bát-
urinn sé ofansjávar.
Á trillubátnum var einn mað-
ur, Grétar Gíslason, 25 ára gam-
all, kvæntur, með fjögur börn
á framfæri.
Leiðin til Norðurlands
FUNDUR var haldinn í Fulltrúa-
ráði Sjálfstæðisfélaganna í gær-
kvöldi. Birgir Kjaran, formaður
fulltrúaráðsins setti fundinn og
minntist í upphafi Eyjólfs Jó-
hannssonar. Síðan var kjörin kjör
nefnd fyrir væntanlegar alþing-
iskosningar, en hún er þannig
skipuð:
Baldvin Tryggvason, Birgir Kjar
an, Bjarni Benediktsson, Gróa
Pétursdóttir, Magnús Jóhannes-
son, Maria Maack og Þorvaldur
G. Kristjánsson. Stjórn fulltrúa-
ráðsins er sjálfkjörin, en kjörnir
og tilnefndir af stjórnum félag-
anna eru eftirfarandi: Davíð
Ólafsson, Eyjólfur K. Jónsson,
Helga Marteinsdóttir, Höskuldur
Ólafsson, Soffía M. Ólafsdóttir,
Sveinn Helgason, Stefán Hannes
son og Valdimar Ketilsson.
Að kosningu lokinni tók Bjarni
U mferðarsérfrœðingur
mun sfarfa hér í 2 mánuði
VERKEFNIN, sem verkfræðing-
ur umferðarmálanefndar bæjar-
ins hefur með höndum, eru nú
orðin svo mörg og margvísleg,
að hann einn fær þeim ekki ann-
að. Það tókst ekki að útvega hér
annan verkfræðing til þessara
starfa en fyrir milligöngu ýmissa
stofnana, hefur tekizt að fá hing-
að til starfa um tveggja mánaða
skeið bandarískan sérfræðing i
ATHUGASEMD
Að gefnu tilefni skal það tek-
ið fram, að maður sá, sem sagt
var frá í blaðinu í gær í frétt
frá Gautaborg, er ekki Sverrir
Magnússon, skipasmiður, Sól-
vallagötu 13.
MALFUNDAFELAGIÐ
Ó Ð I N N
efnir til kvikmyndasýningar fyr-
Ir bórn íclagsmanna í Trípólíbíói
n.k. sunnudag kl. 1,30.
Aðgöngumiðar verða afhentir t
Sjálfstæðishúsinu (uppi) í kvöld
frá kl. 8—10 og við innganginn,
ef eitthvað verður eftir.
umferðarmálum. Er hann vænt-
anlegur innan skamms.
1 samtali við lögreglustjóra og
framkvæmdastjóra umferðar-
málanefndar í gær, skýrðu þeir
frá því. að nefndin iiefði ýmis
mál, sem hún myndi fá sérfræð-
ingnum til úrlausnar. Eitt af
þeim væri m.a. hvar leggja beri
höfuðáherzlu'á uppsetningu um-
ferðarljósa, se.n nú er orðið að-
kallandi allvíða. Fá tillögur hans
um lausn ýmissa vandamála á
slæmum hornum víðs vegar um
bæinn og kynna sér almennt um
ferðarmálin í borginni og fá til-
lögur hans varðandi þau, þar sem
hann telur breytinga þörf.
Hinn bandaríski sérfræðingur
hefur að baki sér mikla reynslu
og þekkingu á þessu sviði.
Ekki íramhald
á aflahrotunni
VESTMANNAEYJUM, 9. apríl.
— Ekki virðist ætla að verða
framhald á aflahrotunni, en á
þriðjudaginn var hér landburður
af fiski, eins og frá hefir verið
skýrt í fréttum. — Raunar öfl-
uðu bátarnir allvel í gær, en þó
var aflinn hvergi nærri eins mik-
ill og í fyrradag og miklu mis-
jafnari veiði hjá bátunum. —
Aðeins fáir bátar úr flotanum
eru komnir að þegar þetta er
skrifað, en afli þeirra er fremur
rýr. — Bj. Guðm.
Benediktsson til máls og gerði
grein fyrir gangi kjördæmamáls-
ins.
Stöðugir fundir
um k jördæmamálið
í FYRRADAG voru stöðugir
fundir með fulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins, Alþýðuflokksins og
Alþýðubandalagsins um af-
greiðslu kjördæmamálsins, og
stóðu þeir fundir langt fram á
nótt. — f gær héldu viðræðu-
fundir flokkanna enn áfram og
var þeim viðræðum ekki lokið
um það bil, sem blaðið fór í
prentun í gærkvöldi, svo ekki
er hægt að skýra frá, hvort sam-
komulag hefur náðst um af-
greiðslu málsins eða ekki.
Bílageymsluhús
UMFERÐARNEFND Reykjavík-
ur hefur mikinn hug á því. að
hér í bænum verði reist nokkurra
hæða bílageymsluhús, svo sem
tíðkast í borgum erlendis. Hefur
nefndin þetta aðkallandi mál til
athugunar. Hún hefur augastað
á nokkrum lóðum sitt hvoru meg
in við Lækinn. Til greina koma
t.d. lóð við Kalkofnsveginn eða
bílastæðið í Garðastræti.
enn teppt
EINS og frá var skýrt í blaðinu
í gær, tepptist vegurinn yfir
Holtavörðuheiði í fyrradag vegna
I snjókomu og skafrennings. —
Samkvæmt upplýsingum vega-
málaskrifstofunnar í gær, hélt
áfram að skafa á heiðinni, bæði í
fyrrinótt og gærdag. Menn frá
vegagerðinni bíða tilbúnir með
ýtur til þess að ryðja leiðina,
jafnskjótt og veður batnar, en
talsvert hvasst var enn á heið-
inni r gær. — Norðan heiðar bíða
8—10 bílar, bæði farþega- og
flutningabílar, eftir því að leiðin
opnist.
Tólf brezkir
á Selvogsbanka
ENN halda brezku herskipin
uppi gæzlu á þrem verndar-
svæðum, til ólöglegra veiða fyrir
brezka togara hér við land. —
Verndarsvæði þessi eru á sömu
slóðum og þau hafa verið að
undanförnu.
í gær voru 12 brezkir togarar
að ólöglegum veiðum á vernd-
arsvæðinu á Selvogsbanka, en
engir á hinum tveim. Þá var vit-
að um 20 togara að veiðum utan
fiskveiðitakmarkanna á Eldeyj-
arbanka, þar af 5 brezka. Einnig
var vitað um 70 togara af ýmsu
þjóðerni utan fiskveiðitakmarka
á svæðinu frá Grindavík að Eini-
drang.
Annars staðar við landið var
í gær ekki vitað um togara að
veiðum nálægt takmörkunum.
(Frá Landhelgisgæzlunni).
öxnadalsheiði og Vaðlaheiði
voru „slarkfærar" stórum bílum
enn í gær, en engu má þó muna,
að þeir vegir teppist alveg. —
Vegurinn í Dalina var orðinn
alófær í gær, en sæmileg færð er
yfir Kerlingarskarð vestur í
Stykkishólm, og hægt mun að
komast Skógarstrandarveginn og
út í Grundarfjörð, þótt engan
veginn séu þær leiðir greiðar. —
Annars munu vegir hér sunnan-
og suðvestanlands yfirleitt í vel
ökufæru ástandi.
Ból ú miðjum
Luuguvegi
UM kl. 3.30 síðd. í gær var
slökkviliðið kvatt að Lauga-
vegi 15 liér í bæ — húsi
Ludvigs Storr & Co. — en
þar hafði kviknað í tveim um-
búðakössum, fullum af hálmi,
þar sem þeir stóðu við hús-
ið, og varð af bál allmikið
eins og sést á myndinni. —
Einn af starfsmönnum
franska sendiráðsins var að
flytja inn í íbúð á efstu hæð-
inni í húsi Ludvigs Storr. —
Voru húsmunir í kössum
þessum, og var aðeins búið
að losa þá fyrir nokkrum
mínútum, er eldur kom upp
í þeim. Skipti það engum
togum, að þeir stóðu í björtu
báli. Var þegar kallað á
slökkviliðið, og slökkti það
skjótt eldinn, en kassarnir
brunnu mikið til, og nokkr-
ar rúður í húsinu brotnuðu
og sprungu af hitanum.
(Ljósm. Sig. J. Einarsson).