Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 1
20 slður
46. árgangur
Pasternak lifir í
lýrisku tómarúmi
segir Súrkov ritari rússneska rit-
höfundasambandsins
L.ONDON, 16. apríl. Alexei Sur-
kov ritari rússneska rithöfunda-
sambandsins hefhir enn farið háðu
legum. orðum um Nóbelsverð-
launaskáldið Boris Pasternak.
Kom það fram í samtali sem
brezki blaðamaðurinn Alan
Moray Williams átti við hann og
nú hefur birzt í News Chronicle.
í samtali þessu segir Surkov
m. a.: — Hann (Pasternak) var
einu sinni efnilegt en úrkynjað
skáld, og hann hefur aldrei ver-
ið mikið skáld, vegna þess að
hann hefur alla ævi lifað í lýr-
isku tómarúmi. Við óskum ekki
eftir skáldum, sem eru þeirrar
skoðunar, að það megi ekki ó-
hreinka bókmenntirnar með stað
reyndum hversdagsleikans. Við
óskum ekki eftir því að fólki
þyki eimað vatn gott. Það er ó-
skaðlegt en gagnslaus fyrir lík-
amann. Beztu rússnesku höfund-
arnir hafa verið menn eins og
Gogol, sem unnu lífsstarf í þágu
landsins.
Alexei Surkov sagði hinum
brezka blaðamanni, að þing rúss
nesku rithöfundasamtakanna yrði
haldið í næsta mánuði og myndi
Pasternak-málið komast þar á
dagskrá. Hinsvegar kvaðst Sur-
kov sjálfur ætla að halda þar 3
klst. setningarræðu, en í henni
hygðist hann ekki nefna Paster
nak á nafn.
Alan Moray Williams reyndi
einnig að heimsækja Pasternak
í bústað hans fyrir utan Moskvu.
Hafði Pasternak þá verið fjar-
verandi um skeið en var nýkom-
inn til borgarinnar. Pasternak
kom til dyra, en sagði við
Williams: — Mér þykir það leitt,
að ég get ekki boðið yður inn.
Ég hef haft svo mikið ónæði, að
ég get ekki oftar boðið blaða-
mönnum inn.
Meðan Pasternak mælti þetta
nálgaðist maður einn, er var bú-
inn sem garðyrkjumaður og fór
að leggja hlustirnar við hvað
Færeyska fiski-
mannaverkfallinu
lokið
TORSHAVN í Færeyjum, 16.
apríl — (NTB) — Færeyski
fiskiskipaflotinn lætur úr
höfn á föstudag og laugardag
áleiðis á vorvertíðina við
Grænland, þar sem nú er lok-
ið nær hálfsmánaðar verk-
falli sjómanna. Flotinn var til
búinn að sigla í byrjun apríl,
þegar verkfallið skall allt I
einu á þann 3. apríl. 800 sjó-
menn tóku þátt í verkfallinu.
Verkfallinu var ekki beint
gegn útgerðarmönnum, held-
ur gegn ákvörðun Lögþings-
ins um orlofsfé til sjómanna.
Lögþingið samþykkti að
greiða sjómönnum milljón
krónur árlega í tvö ár að því
skilyrði settu, að útgerðar-
menn og sjómenn semdu um
vinnufrið í tvö ár.
Verkfallinu lauk með þelm
hætti að, samið var um að
sjómenn skyldu fá orlofsféð,
en ef þeir færu í verkfall á
umræddu tveggja ára tíma-
bili, skyldi það falla niður frá
og með byrjun verkfallsins.
ía ?
Pasternak segði, Kveður Willi-
ams það augljóst, að þessi ókunni
maður hafi verið að gæta Paster-
naks.
Verður Herter
skipaður næstu
dag
WASHINGTON, 16. apríl. (NTB)
— Eisenhower, sem aftur er kom-
inn í frí og dvelst í bænum Aug-
usta í Georgíu-ríki, átti í dag
símasamtal við Dulles, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, sem ligg-
ur í Walther Reed-sjúkrahúsinu
í Washington. Er talið víst að
þeir hafi rætt um, hver eigi að
taka við utanríkisráðherraem-
bættinu.
Almennt er talinn lítill vafi á
því að Christian Herter, settur
utanríkisráðherra, verði fyrir
valinu. Háttar málum svo, að
þegar hefur verið ákveðið að
hann skuli verða fulltrúi Banda-
ríkjanna á ráðstefnu utanríkis-
ráðherra stórveldanna, sem hefst
í Genf þann 11. maí. Nú þegar
Dulles hefur sagt af sér verður
varla hjá því komizt að Herter
verði skipaður í embættið áður
en hann fer til Genfar. Nokkrar
raddir heyrast þó um það að
Alfred Gruenther, fyrrum yfir-
hershöfðingi NATO, eigi að taka
við embættinu.
Þessa mynd sendi fréttastofa kommúnista í Kína út. Á hún að sýna tíbetska hermenn, sem af-
henda Kínverjum vopn sín, eftir að uppreisnin í Lhasa var brotin á bak aftur.
Rammefldur eldflaugnahreyf■
ill gerður i Bandaríkjunum
Los Angeles.
BANDARÍSKIR eldflauga-
sérfræðingar hafa smíðað
nýja tegund eldflaugahreyf-
ils, sem er miklu aflmeiri en
nokkur annar eldflaugahreyf-
Firna miklir vafna
vextir í La Plata
BÚENOS AIRES, 16. apríl. —
(NTB). — Stórrigningar sam-
fara álandsvindi valda nú meiri
flóðum í La Plata-fljóti en dæmi
eru til áður. Veður þetta hefur
staðið í þrjá daga. Hafa ár á La
Plata-svæðinu bólgnað upp í
rigningunum, en vatnið nær ekki
að renna til sjávar, því að sterk-
ur álandsvindur stendur beint á
mynni La Plata-fljótsins. Hefur
fljótið tekið að breiða sig út yfir
Heimsækir Nixon
Rússland ?
WASHINGTON, 16. apríl. —
(NTB). — Líklegt þykir, að
Richard Nixon, varaforseti
Bandaríkjanna, fari í einka-
heimsókn til Rússlands í sam-
bandi við bandaríska iðnsýn-
ingu, sem opnuð verður í
Moskvu 25. júlí. Heimsóknin
verður í sama dúr og heim-
sókn Anastas Mikoyans til
Bandaríkjanna i vetur.
LONDON, 15. apríl. — Debre og
Macmillan eru sammála í öllum
helztu atriðum í utanríkismál-
efnum segir í tilkynningu, sem
gefin var út eftir fund þeirra.
Munu þeir jafnframt hafa ákveð-
ið að Bretar og Frakkar tækju
höndum saman og veittu löndum
Afríku margvíslega aðstoð á efna-
hags- og tæknisviðum.
óshólmá og sléttur, þar sem mikil
byggð er. Höfnin í Búenos Aires
hefur lokazt í veðrahamnum.
Fjöldi fólks, sem býr á slétt-
unni meðfram La Plata-fljóti,
hefur orðið að flýja hús sín. —
Munu mörg hundruð þúsund
manns vera heimilislaus vegna
flóðanna. Talin er hætta á að
taugaveiki komi upp meðal flýj-
endanna.
Það er vitað að í bænum Con-
cordia hafa 60 þúsund manns yf-
irgefið hús sín, en um 5000 eru
einangraðir á hæðardragi einu
skammt frá borginni. Sjálfur hér
aðsstjóri fylkisins er meðal
hinna einangruðu.
í Úruguay hafa % hlutar Iands
ins orðið illa úti í þessu fárviðri
og flóðum. Er sýnilegt að hrís-
grjóna- og olífuuppskera lands-
ins í ár hefur ónýtzt. Hefur þjóð
þingið verið kallað saman í
Montevideo til sérstaks fundar
vegna hins stórfellda tjóns. öll-
um brúm í nágrenni Montevideo
hefur skolað burt, þjóðvegir eru
skemmdir og flugvellir liggja
undir vatni.
Fylkið Rio Granda do Sul í
Brasilíu hefur einnig orðið fyrir
alvarlegum áföllum. Munu 100
þúsund manns í því vera heim-
ilislausir og um 60% af uppsker-
unni ónýtt. Brasilíski flugherinn
hefur sent fjölda flutningavéla
og þyrilvængja til flóðasvæðis-
ins til að taka þátt í hjálparstarf-
ill. sem kunnugt er um. Þessi
nýi hreyfill framleiðir IV2
milljón punda þrýsting. Má
til samanburðar geta þess að
sterkustu eldflaugahreyflar
Bandaríkjamanna fram til
þessa hafa framleitt 500 þús-
und punda þrýsting og Rússa
um 1 milljón punda þrýsting.
Það er Rocketdyne-félagið,
deild í North American-flugvéla-
verksmiðjunum, sem framleiðir
hinn nýja hreyfil. Hafa tilraunir
með hann staðið yfir undanfarn-
ar vikur í Santa Susanna-dal í
Kaliforníu. Segja verkfræðingar
að tilraunirnar hafi gengið í alla
staði vel.
Það er upplýst, að einn slíkur
hreyfill (eitt þrep) myndi nægja
til að skjóta smálestarþungu
skeyti til tunglsins og talið er að
verkfræðingar hraði nú rann-
sóknum sínum á hreyfli þessum
til þess að hægt verði að nota
fjóra slíka til að skjóta eldflaug
til reikistjörnunnar Marz, þegar
hún verður næst jörðu síðar á
þessu ári.
Sérfræðingar telja, að með
smíði þessa eldflaugahreyfils séu
Bandaríkjamenn að komast íram
úr Rússum á þessu sviði.
Boidogar geisa um viikisbæ
appieisnaimanna í Tíbet
Kalimpong í Indlandi,
16. apríl — (NTB)
HARÐIR bardagar geisa nú
milli tíbetskra og kínverskra
herja við virkisbæinn Nangar
Tse-tsong, sem hefur undan-
farnar vikur verið sterkasta
virki uppreisnarmanna. —
Kommúnistar reyndu að taka
bæinn með áhlaupi í byrjun
apríl, en áhlaupið fór út um
þúfur við mikið mannfall í
liði þeirra.
Uppreisnarmenn náðu bænum
á sitt vald fyrir um sex mánuð-
um. Hann liggur 240 km fyrir
suðaustan höfuðborgina, Lhasa,
við þjóðveginn milli Lhasa og
Gyangtse.
Síðan áhlaup kommúnista í
byrjun apríl mistókust hafa þeir
sent hundruð vörubíla þangað
hlaðna fótgönguliðum og vopn-
um. Uppreisnarmenn ráða einnig
yfir fjalllendinu kringum Gy-
angtse, sem er ein stærsta borg
Tíbets. Áður en kommúnistar
geta snúið sér gegn herjum upp-
reisnarmanna þar, þurfa þeir að
vinna bug á uppreisnarflokkun-
um í Nangar Tse-tsong.
Fregnir frá höfuðborginni,
Lhasa, herma að enn sé órólegt
í borginni og hafi borið á
skemmdarverkum innfæddra á
vopnum og tækjum Kínverja.
Vegna þessa hefur kínverska her
stjórnin sett öryggisreglur til að
hindra skemmdarverk. Þáttur í
þeim aðgerðum er að allir íbúar
borgarinnar verða að mæta hjá
fulltrúum Kínverja og láta ljós-
mynda sig og taka af sér fingra-
för. Útgöngubann er enn í gildi
í borginni frá sólsetri til sólar-
upprásar, og enn hafa búðir í
borginni ekki verið opnaðar.
★--------------------------★
Föstudagur 17. apríl.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Samtal við sendiherra fsraels.
— 6: Hver verður eftirmaður
Adenauers?
Kristmann Guðmundsson skrftf-
ar um bókmenntir
— 8: Christian Herter líklegasti eftir-
maður Dullesar
— 10: Forystugreinin: Sterkari að-
staða héraðanna
— 11: Þegar David Niven varð kvik-
myndaleikari.
— 13: Hugleiðing um listamannalaun