Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 6

Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 6
e MOR'lJllvnL 4Ð1Ð Föstudagur 17. apríl 1959 : s | Hver verður eftirmaður Adenauers? \ í heimsblöðunum er nú mjög um það rætt, hver verði eftir- maður Adenauers kanzlara eftir að hann tók þá ákvörðun að vera í framboði við forsetakosningar, Etz*.. en það kom öllum á óvart, eins og áður hefur verið getið um í fréttum. Enginn hafði búizt við, að til þess kæmi í'bili að velja þyrfti nýjan kanzlara og eru menn nokk uð á báðum áttum um það, hvað verða muni í því efni. Nær öllum kemur þó saman um, að aðeins tveir menn komi til mála, en það eru Erhard viðskiptamálaráð- herra, sem er núverandi vara- kanzlari og Etzel fjármálaráð- herra. Blaðið Frankfurter All- gemeine tekur svo til orða fyrir fáum dögum, að það sé „vitað“ að Adenauer sjálfur og einnig þingformaðurinn Krone vilji, að Etzel verði eftirmaður Adenau- ers. Hér er um að ræða það blað, sem nýtur einna mésts álits í Þýzkalandi og er öllum; hnútum kunnugt og þar af leiðandi hljóta þessi ummæli að vekja mikla athygli. Almennt hefur verið talið, að sjálfsagt væri, að Erhard yrði eftirmaður Adenau- ers og hafi Adenauer sjálfur bein línis ætlazt til þess, með því að gera hann að varakanzlara. En samkvæmt því, sem blöð og fregnir herma, þá virðist þessu öðru vísi farið og munu liggja til þess margar ástæður. I * Erhard er talinn ómissandi maður í embætti viðskiptamála- ráðherra og honum er þakkað öðrum fremur, hve mikillar vel- gengni þýzka þjóðin hefur notið á sl. 10 árum. Margir telja, að ef Erhard taki við embætti kanzlara, mundi hann minna geta beitt sér að viðskiptamálunum, sem eru svo þýðingarmikil fyrir alla þjóð- ina. Aftur segja aðrir, að það sé þó kanzlarinn sjálfur, sem í raun inni ákveði stefnuna og ef Erhard yrði kanzlari, yrði honum enn léttara um en áður að ráða til fulls stefnunni í viðskiptamál- imum. Þannig stangast þetta á. Enginn er í neinum vafa um það, að Erhard njóti miklu meira álits hjá almenningi en Etzel. — Næst Adenauer er talið að Er- hard sé sá, sem dragi mest til sín að atkvæðum af öllum mönn- um. í sambandi við Etzel er þess að geta að hann er tiltölulega nýr maður í ríkisstjórninni, en hann tók við embætti fjármálaráðherra eftir síðustu kosningar og má segja, að hann sé ekki mikið þekktur meðal alls almennings. Þá hefur nafn hans verið mjög tengt við þungaiðnaðinn, enda er hann frá honum sprottinn. Etzel hófst til mikils álits og mann- virðinga einmitt innan iðnaðar- ins og þaðan er hann svo kominn í embætti fjármálaráðherra. Ýms ir meðal almennings í Þýzkalandi munu líta það miklu hornauga að einmitt maður, sem er tengdur þungaiðnaðinum, verði kanzlari landsins. Á það hefur verið minnzt í þessu sambandi, að það sé raun- verulega enginn, sem geti tekið við af Erhard, eftir því, sem sjáanlegt sé nú, en hins vegar sé tiltölulega auðvelt að finna eftirmann Etzels og er þar bent á ráðherrann Lindrath, sem muni verða sjálfsagður til að taka við embætti fjármálaráðherra. All- ar þessar hugleiðingar um það, hver muni verða eftirmaður Ad- enauers eru vitaskuld meira og minna í lausu lofti, en þær eru almennt umræðuefni manna, bæði í Þýzkalandi og miklu víð- ar, því talið er mjög þýðingar- mikið hver gegni kanzlaraem- bættinu í Þýzkalandi eins og mál um er háttað. Svo er það og annað Kristmann Guðmundsson skrífar um BOKMENNTIR Erhard mál, að búizt er við að miklar breytingar verði gerðar á stjérn- inni, þegar nýr kanzlari kemur til valda og er ýmsum getum leitt að því hverjirmunigegnaþar einstökum ráðherrastöðum, en.að því verður ekki vikið hér. Njála í íslenzkum skáldskap. Eftir Matthías Johannessen. Hið íslenzka bókmenntafélag. RIT þetta tilheyrir hinum virðu- lega bókaflokki: „Safni til sögu íslands og íslenzkra bókmennta", (annar flokkur, II. I.). Það er þvi að sjálfsögðu' vísindarit, en eigi að síður „alþýðlegt“ í bezta lagi, svo að hver maður getur haft bæði gaman og gagn af að lesa það. Eins og nafn þess bendir til og höf. tekur fram í formála, fjallar það „um Njálu í íslenzk- um skáldskap. þ.e.a.s. þau kvæði sem hafa verið ort um söguna frá fyrstu tíð og til okkar daga“. Það er í allmikið ráðizt og naumast von að höf. hafi tæmt efnið, enda segir hann í formála, að efnið sé að því leyti ótæmandi að alltaf geti „gleymst vísur og jafnvel eitt ög eitt lítið þekkt eða óþekkt kvæði, sem rekja má til Njálu“. Hressilegs yfirlætis gætir hjá höf. er hann bætir við: „ — en þó er ósennilegt að margt hafi verið skilið eftir af slíku tagi. Hygg ég að heildarmynd þessarar merkilegu þróunar eigi ekki eftir að breytast frá þvj sem hún birtist í þessari bók“. Þótt efnið sé ekki tæmt, (und- irritaður veit um ýmislegt, sem vantar í bokina, þar á meðal eitt kvæði um Skarphéðin, sem birt- ist í Morgunblaðinu fyrir nokkr- um árum,) þá hefur höf. vissu- lega gert því hin virðingarverð- ustu skil, og segja má með full- um rétti, að bókin opni lesandan- um nýtt viðhorf í skilningi þess, hve djúptæk áhrif góðar bók- menntir hafa á þjóðarsálina. Og sérhvað, sem auka má skilning manna á því, er mikilsvert fyrir fslendinga, sem eiga öðrum þjóð- um fremur tilveru sína að þakka skáldskapnum. Ritið hefst á því, að höf. rekur áhrif Njálu í elzta skáldskap, og rímum, nokkuð stuttlega, en því næst er kafli um „Hallgerðar- deilur“, þ.e. deilur manna um Hallgerði langbrók. Um þær er einnig fjallað í 7. kafla, þar sem rætt er um Njálukvæði Sigurðar Breiðfjörðs. Þykir mér ritið rísa með þeim kafla og er skemmtilegt aflestrar úr því. — „Nú er flag Fljótshlíð orðin“ er stuttur kafli, en eftirtektarverður um kvæði Bjarna Thorarensen, er sækja efni í Njálu. Þátturinn um Gunn- arshólma Jónasar er og ljóst rit- aður og 10. kaflinn: „Svart er í vestri og svipir dauðir“ prýði- lega gerður, einkum sá hluti hans, er fjallar um skáldskap Gríms Thomsen. Þar kemur fram næmur skilningur á þessu stór- merka og þjóðlega ljóðskáldi, sem virðist, því miður, vera lítið lesið að yngri kynslóðum þjóðarinnar. f þættinum: „öxi og sverð í sveiflum gljá sem óðast“ tekur höf. til meðferðar kvæði ýmissa nýrri tíma skálda, sem sótt hafa efni í Njálu að einhverju leyti. Er þar margt athyglisvert, en einna bezt skil finnst mér hann gera Jakob Thorarensen, sem raunar kveður mjög í anda fornra hetjusagna. Merkastan tel ég síðasta kafl- ann, þar sem höf. birtir yfirlit og niðurstöður rannsókna sinna. Er hann skýrt og skilmerkilega rit- aður, efninu hvorki of þröngur né of víður stakkur skorinn, en vel og samvizkusamlega með það farið. Þetta er í rauninni sjálf- stæð ritgerð og mesta átak bók- arinnar, — ætti hún að birtast í einhverju víðlesnu tímariti, til þess að vekja athygli almennings á verkinu. Vísindalegan mælikvarða get eg ekki lagt á rit Matthíasar, en sem fræðirit frá almennu sjónar- miði verður það að teljast mjög athyglisvert. Þá hefur það þann góða kost að vera læsilegt og all- fjörlega skrifað. Og hugleiðingar höf. um „tendens“ sögunnar og boðskap hennar til samtíðarinnar, eru bæði skarplegar og alldjarf- ar — eins og þær koma fram á bls. 183—84 til dæmis: „Þegar sagan er fullsamin á síðari hluta 13. aldar, er um líf eða dauða að tefla. Höfundur hennar vissi, að hverju stefndi, hann reynir að stugga við þjóð sinni, vekja ættjarðarástina í brjósti hennar — og til þess verð ur hann að byggja úr öðru efni en því, sem hendingin hefur skil að á fjörur hans. Nýr tími krefst nýrrar hugsunar, og með því að kanna þann skáldskap, sem til er um Njálu, getum við kynnzt þess ari „nýju hugsun“ eins og hún birtist á öllum öldum. Haugbúa- skrifar úr daglega lífinu Hárréttar klukkur á enda- stöffvar strætisvagnanna. ÞAÐ virðist hafa orðið mikil bót að þeirri ráðstöfun að dreifa endastöðvum strætisvagnanna í miðbænum og rýma á Lækjar- torgi. Að vísu gerir það fólki erfiðara að skipta um vagn á skömmum tíma, en einhverjar ráðstafanir voru nauðsynlegar, og sjálfsagt hefur þetta verið hag- kvæmasta lausnin. En þó strætisvagnarnir fari frá mismunandi stöðum, þá mega þeir undir engum kringumstæð- um fara eftir mismunandi tíma- mælum. Á hverri endastöð verð- ur að vera hárrétt klukka, sem allir vagnarnir fara eftir. Kona nokkur segir þá sögu, að um daginn hafi hún ætlað að taka Kópavogsvagninn í Lækjargöt- unni. Hún stanzaði til að tala við konu á móts við Skerjafjarðar- vagninn skammt frá endastöð hans, en þaðan gat hún haft auga með torgklukkunni. Þegar þá klukku vantaði tvær minútur í heila tímann, lagði Kópavogs- vagninn allt í einu af stað og konan stóð eftir. Aftur á móti beið Skerjafjarðarvagninn eftir að klukkan væri á mínútunni, en báðir áttu að fara á sama tíma. Þetta ' >m sér ákaflega illa fyrir konuna, sem nú þurfti að bíða þarna í hálftíma. — Velvakandi tekur stundum Skerjafjarðar- vagninn og hefur orðið var við, að hann fer ekki alltaf nákvæm- lega á réttum tíma, en sem betur fer hefur hann í þau skipti ver- ið á eftir tímanum og það e. t. v. orðið til þess að bjarga Vel_ vakanda frá að verða stranda- glópur, eins og alloft kemur fyrir. Klukku hefur verið komið fyr- ir úti á Kalkofnsveginum, en þarna vantar klukku, sem allir geta fylgzt með, bílstjórar og far- þegar. Og að sjálfsögðu verða allar klukkurnar þrjá að vera réttar upp á sekúndu. Annað langar mig til að minn- ast á í þessu sambandi. Ég hef hvergi komið auga á skilti á Lækj artorgi, með upplýsingum um hvar hver vagn stanzar. Það er ekki hægt að ætla fólki að leita að ákveðnum vagni á Kalkofns- vegi, í Lækjargötunni og á Lækj- artorgi. Skólamórall. VEGFARANDI, sem leið átti fram hjá Austurbæjarskól- anum fyrir skömmu, heyrði börnin syngja eftirfarandi vísu: Að rífa kjaft við kennarann, að kasta skít í dómarann. í skólanum, i skólanum, er leiðinlegt að vera. Fyrr má nú rota .... K. H. skrifar: „'JT'YRR má nú rota en dauð- * rota“, sagði kerling ein af vissu tilefni. Já, minna má nú gagn gera en að misnota svo að- stöðu sína, eins og innheimta útvarpsins gerir. Hún dembir yfir hlustendur sína mörgum sinnum á dag, sjálfsagt í heilan mánuð, áskorun og áminningu um að greiða afnotagjöld til Rxk- isútvarpsins fyrir 1 maí, og jafn framt er lofað að hækka þau um 20 krónur, verði þau ekki greidd innan ákveðins tíma. Þessi inn- heimtuaðferð á víst engan sinn líka, enda hefur enginn svipaða aðstöðu til innheimtu og myndu sjálfsagt fáir vilja nota hana svo freklega. Sumar opinberar stofn- anir virðast gleyma því, að þeim er falið trúnaðar. og þjónustu- starf fyrir almenning og að eftir því beri þeim að haga sér. Einka fyrirtæki vita betur hvað við á og forustumenn þeirra læra furðu fljótt hvaða háttvísi þarf að við- hafa til að eignast „hug fólksins". Kannski forráðamenn „inn- heimtunnar" hvíli okkur annan hvorn dag! Það er ekki víst að árangurinn verði neitt verri fyrir það“. vísan er gott dæmi um þessa þró- un. í lok þjóðveldisins, þegar lífs hætta beið við hvert fótmál, datt engum í hug að setja bleika akra og slegin tún í sambandi við rag mennsku eða hetjulund, heldur tæra og óflekkaða föðurlandsást. En boðskapur „hlíðarinnar“ kom samt of seint. Glóðin var að kulna út. Og frelsisþráin hverfur inn í myrkur aldanha ásamt boðskap hinna bleiku akra. En í kvæðum Bjarna og Jónasar er hann aftur glæddur nýju lífi.....“ Ofar dagsins önn. Eftir Jakob Jóh. Smára. Sálarrannsóknafélag Islands. Hér birtist úrval úr greinum Smára, þó ekki þeim, sem um dulræn efni fjalla ,eins og ætla mætti, þar eð Sálarrannsóknafé- lagið hefur gefið bókina út. En höf. segir í formála, að hanrx hafi viljað gefa félaginu handritið, til að grynna á þeirri þakkarskuld, sem hann standi í við sálarrann- sóknirnar. Flestar eða allar hafa greinar þessar birzt áður í tímaritum, en fyrir alllöngu síðan. Sumar las ég í æsku minni og þótti þá að vísu meira til þeirra koma en nú, og þó skemmtilegt að rifja þær upp aftur t.d. „Söngvatrega“ og „Hugljómun“. Allar eru þær vel og lipurt ritaðar, en ekki fæ ég séð að þær risti djúpt; mér þykir miklu meira koma til kvæða þessa skálds en prósans. Þetta er nokkurskonar lýrísk-heimspeki- legt riss — og þær greinar beztar, sem eru einvörðungu í þeim anda gerðar, en lakari hinar, eins og t.d. „Hugleiðingar um skáld- skap“, og „Fjarlægir reykháfar1*. — „Einvera” „María Guðs móðir“, og „Ský“ eru fallegar lýriskar smágreinar sem lesandinn minn- ist, þótt þær snerti hann ekki djúpt. — En merkastar eru tvær greinar ,er nefnast: „Sálrækt" og „Brot úr trúarsögu minni“. Þó hefði sú síðari mátt vera ýtar- legri, en í henni kemur fram svo heilbrigð og jákvæð lífsskoðun, að henni þyrftu sem flestir að kynnast. Ég get ekki stillt mig um að tilfæra endi greinar þess- arar, því ég held að þar takist bezt upp í allri bókinni: „Ég þrái land hins eilífa kær- leika, friðar og fullkomnunar eins og hestur á stroki, sem stefnir hiklaust dag og nótt yfir heiðar og öræfi. í huga hans er aðeins ein mynd, átthagarnir, og hann gefur sér varla tíma til að grípa niður. Vilji einhver hondla hann, tekur hann til hlaups í stórum boga, og fyrir hugskotssjónum hans Ijómar ennþá greinilegar takmarkið, er hann keppir að. Eins og strokhestur á leið til átthaganna, ó Guð, leitar sál mín þín. Inquietum est cor nostrum, donec requiescat in te“. (En það er útlagt: Órólegt er hjarta vort, unz það hvílist í þér). Raiutt lauf í mosa. Eftir Elínu Eiríksdóttur frá Ökrum. Forlag höfundar. ELÍN Eiríksdóttir hefur áður kvatt sér með heiðri hljóðs á skáldaþingi. Ljóð hennar eru, enn sem komið er, ekki stórbrot- in, en hún á sinn eiginn tón og syngur með sínu lagi, einföld en ósjaldan tófrandi smáljóð, sem lifa í minni manns líkt og horf- in angan. Hver vildi t.d. ekki hafa gert þetta ljóð: „Þú leitar blárra skugga í köldu ljósi mánans. Á hvítum hallarmúrum þú leitar að hring með hvítri perlu, sem hönd þín bar fyrir mörgum öldum. Undir þessum hallarrústum hvíldu í friði með þinn perluhring. Framh. á bls. 13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.