Morgunblaðið - 17.04.1959, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.04.1959, Qupperneq 13
Föstudagur 17. apríl 1959 MORGUN BLAÐIÐ 13 HugleiÖingar ★ um listamannalaun Ólafía K. Hansdóttir ★ ÞAÐ er ef til vill að bera í bakka fullan lækinn að birta þennan greinarstúf, en í landinu er enn- þá hugsana og prentfrelsi, svo ég læt skeika að sköpuðu. Hver sá sem leggur út á hina hálu braut listarinnar, þarf að gera sér það ljóst þegar í upphafi, að framundan bíður ekki ein- göngu frami, heldur þrotlaust erfiði, löng og ströng barátta. Hér á ég ekki við þá fáu listamenn sem alltaf fæðast með öllum þjóð um — og verða aðeins að taka undir með Martin Luther, og segja: „Hér stend ég, ég get ekki annað, guð hjálpi mér. Amen“, — heldur megin þorra þeirra, sem eiga það hlutskipti að velja og hafna. Afstaða hvers listamanns ætti að vera þessi: Hvað get ég gert fyrir landið — ekki — hvað get- ur landið gert fyrir mig. Um fórn verður ávallt að ræða þar sem listsköpun er annars vegar. Hún krefst alls. Það er sannfæring mín, að ytri erfiðleikar, barátta, sé listamann inum holl, því hún vegur upp á móti hinni innri — þöglu baráttu, sem allir listamenn heyja, í ein- rúmi og myrkri — skapar jafn- vægi. En baslið má ekki verða hlutaðeiganda um megn — og það verður það ekki, ef sá hinn sami hefur fulla heilsu til starfa. Sé svo ekki, þarf að rétta hjálp- arhönd. Allar listgreinir krefjast undir- búningsmenntunar — og það er lífsnauðsyn að veita hverjum list nemanda, strax að afloknu námi, öll þau skilyrði til starfa, sem hann þarfnast, meðan áhugi og þrek er ferskt og heilt. Annars gæti komist kal að viðkvæmum gróðri — og við því má enginn — hvorki listamannsefnið né þjóðin í heild. Komi ótvíræð listgáfa í Ijós, hjá ungum manni eða konu, t.d. við listnám eða í frumsmíð skálds, þarf áð tryggja viðkom- anda öruggar tekjur til lífsfram- dráttar, af ríkisfé, svo hann geti heill og óskiptur helgað sig sköp- unarverkum sínum. Hér ber land ið ábyrgð þegna sinna. Höfuðskilyrði fyrir því að lista- maður hljóti fé af fjárlögum rík- isins, ætti að vera það, að hann hafi sýnt það og sannað, að hann sé starfandi listamaður, sem auðgi landið andlegri menning. Vitanlega er hér erfitt um að dæma, því viðhorf til lista eru jafn misjöfn og mennirnir eru margir. Þann mælikvarða einan, þekki ég, sem gildan má taka fyrir sönnu listmati, að þjóðin, fólkið í landinu, hafi hrifizt af listaverkunum — að þau hafr gengið þvi til hjarta — lyft hug- anura — vermt sálina. Oft hefur heyrzt að listamenn séu á undan sinni samtíð — að samtíðin skilji aldrei listamenn sína. Ég held að þegar slíkt kemur fyrir, sé um að kenna fámennum hópi manna sem gerast dómarar um það sem þeir ekki skilja og rugla þar með og veikja dómgreind fólksins. Einnig er það alþekkt að þannig hópur þegi listamanninn og verk hans í hel. Ef þjóðinni er veitt tækifæri til að þekkja listaverk samtíðarinnar — umgangast þau sem helgidóm — er mölur og ryð fær ei grandað — verður hún ör- ugglega fær um að skilja hismi frá kjarna — skynja andardrátt þess lífs er þar bærist. „Þá nær til jarðar himnaelds- ins ylur, ef andinn finnur til og hjartað skilur", segir Einar Benediktsson í kvæði sínu: „Stak ur strengur“. Nú er það svo að listgreinir eru misjafnlega arðvænar. Myndhöggvarar, tónskáld og konsertpíanóleikarar virðast mér standa verst að vígi. Hinir tveir fyrstnefndu, eru oft árum saman að skapa eitt listaverk, og hér á landi er ekki sölumarkaður fyrir slík verk, að ráði. Píanókonsert- leikari þarf að æfa sig marga tíma daglega, ekkert má fyrir hendur hans koma, hann hefur ekki möguleika á að leika með hljómsveit né halda sjálfstæða tónleika, nema einu sinni eða tvisvar á ári. Skari þessir lista- menn framúr, ber að veita þeim eðlileg mánaðarlaun af ríkisfé. Aðrir tónlistarmenn, nema ef um afburða fiðlu eða celloleik- ara sé að ræða, ættu að vera á föstum launum sem meðlimir Sin fóníuhljómsveitarinnar og stunda venjuleg kennarastörf, í hinum ýmsu greinum sem þeir hafa hlot ið menntun til. Leikarar, hinir beztu, hvort heldur þeir eru ungir eða gamlir, eiga að vera á föstum launum hjá Þjóðleikhúsi og Borgarleikhúsi, þegar þar að kemur. Minni spá- mennirnir verða að sætta sig við að vera á öðrum samningum, en allir þurfa að fá tækifæri til starfa — svo þeir geti sýnt hvað í þeim býr. Um einsöngvara gildir hið sama. Hinir beztu eiga að vera á föstum launum við starfandi Óperu inn- an Þjóðleikhússins. Það virðist óverjandi með öllu, að ennþá, eft- ir að Þjóðleikhúsið hefur starfað í nær því tíu ár, og reynslan sýnt það og sannað, að söngleikir hafa verið lang bezt sóttir allra sýn- inga leikhússins, skuli tillaga um Óperu mæta þar andstöðu, og þjóðin þurfa að horfa á æ fleiri söngvara • hrökklast burt frá heimalandinu, þar sem þó er brýn þörf fyrir þá. Listmálurum þarf að veita skil- yrði til starfa — t.d. með þvi, að land og bær leggi saman og byggi stóran Sýningarskála, með björt- um, hlýjum vinnustofum á efri hæð, sem listamennirnir fengju til afnota eftir þörfum. í salnum gætu þeir sýnt og selt sínar and- legu afurðir, ef svo má að orði komast. Sem greiðslu til ríkis og bæjar, fyrir leigu, myndu þeir lóta af hendi eitt gott málverk, — Bókaþáttur Framhald af bls. 6. Frðilausa sál! Láttu vængi vindanna bera þig yfir djúpin. Gleymdu þinni hvítu álfaborg sem liggur grafin undir rótum bleikrá skóga“. „Þrjár rósir“ er fallegur skáld- skapur, „Haustlauf“ snoturt, „Draumurinn“ skrítið kvæði: „Svartvængjaður varstu, víðförull. Einnig í bláum kufli komstu hvítur fyrir hærum“. „Mánaljós" er laglegt en „Nótt in og vindurinn" sýnir meiri til- þrif: „Rætur trjánna hlusta niðri í moldinni á draum jarðar“, „Myndir í mosa“, „Gamla bréfið“ og „Konan við gluggann" eru einnig virðingarverð og „Sorg“ á sér töfra. En eirma bezt þykir mér „Sólblik“: „Þú varst sem sólblik er hvarf mér út í geiminn. Augu þín brosa ennþá inn í hugskot mitt blíð og djúp, botnlaust dýpi af bláum sjó. Heitar bárur við hvíta sanda. Golan mjúk hlý lék sér að ljósbjörtum lokkum þínum. Mynd þín er sem vorblár skuggi í grænum skógi. Því skal svo ekki leynt, að þarna eru allmörg kvæði, sem lítið gefa lesandanum í aðra hönd, en ekki nenni ég að tina upp galla þeirra, þeir eru flestir svo augljósir, að þess þarf ekki með. árlega. Listaverk verða aldrei metin til fjár. Skáldin okkar hafa að ýmsu leyti betri aðstöðu en aðrir lista- menn. Þau yrkja alls staðar og hvergi. Beri þau á sér blýant og blað, er þeim að mestu borgið. Þó þurfa þau vitanlega tíma og næði til útfærslu ' hugmynda sinna. Það þarf að greiða götu skálda og rithöfunda á þann hátt, að þeim sé gert auðvelt að fá gef- in út verk sín — og sé borgað vel fyrir góð handrit. Um ölmusu er aldrei að ræða, þegar listaverk eru framboðin. Sé stórskáld á ferð — og stórskáld leynist aldrei — ber að veita því mánaðarlaun af ríkisfé. Yfirleitt finnst mér að eigi að greiða götu listamanna eftir megni — og það hafa einstakling ar ætíð gert, og gera enn — í kyrrþey. Ýmsir opinberir aðilar gætu tek ið upp merki þeirra, t.d. flugfé- lög og skipafélög, sem ættu að gefa listamönnum kost á að sækja um ókeypis farmiða til útlanda, sé erindi þeirra í beinu sambandi við liststörf, hvort heldur er til aukinnar þekkingar eða út- breiðslu listarinnar. Listamenn þurfa oftar að ferðast um heim- inn en flestir aðrir, og of oft eru það hinar dýru ferðir til og frá landinu, sem allt strandar á. Fyrir dyrum stendur bygging Listasafns ríkisins. Mér er ó- kunnugt um tilhögun þeirrar byggingar, en ég tel það nauð- synlegt og æskilegt á allan máta, að einn salur verði þar ætlaður tónlistarflutningi, þar sem flytja mætti hvern sunnudag, t.d. kamm ermúsik, fiðlu, cello og píanó sóló, — þar sem einsöngvarar fengju sín tækifæri, leikarar gætu lesið upp, skáld og rithöf- undar flutt verk sín. Mjög væri það örvandi að hinir ýmsu list- greinir ættu skjól undir sama þaki, í fögru umhverfi — og uppbyggjandi æsku landsins — arftaka andlegrar menningar þjóðarinnar. Ég er komin út fyrir það sem ég ætlaði mér í upphafi að ræða, listamannalaun, og bið á því vel- virðingar. Á öllum málum eru ótal hliðar. Að lokum þetta: landið má ekki ala heilan hóp manna á lista- mannalaunum, sem viðhalda að- eins meðalmennskunni. Hún er, því miður, nóg fyrir. Steingerður Guðmundsdóttir. — Utan úr heimi Framh. af bls. 10 hækkaði stöðugt í tign, og þegar stríðinu lauk bar hann ofursta- nafnbót. — Skömmu eftir stríðs- lokin kvæntist hann, en eftir að- eins fjögurra ára hjónaband lézt konan af slysförum. Þau áttu saman tvo syni. ★ Þegar hér var komið, var Niv- en farinn að líta lífið alvarlegum augum. Nafn hans var horfið úr slúðursögum blaðanna, og hann sást mjög sjaldan í næturklúbb- unum. — Nokkru eftir lát konu sinnar hitti Niven unga og fallega sænska sýningarstúlku, Hjördísi Genberg-Tersmeden, sem þá var nýskilin við mann sinn. — Hann varð þegar í stað yfir sig ástfang- inn, en stúlkan var þreytt og taugaspennt eftir skilnaðarmálið og virtist ekki hrífast sérstaklega af hinum myndarlega, skozka leikara í fyrstu. En tíu daga „um sátur“ var 'nóg — virkið féll. Og sagt er, að hjónaband þeirra sé stöðugt eitt af þeim fáu ham- ingjusömu, sem saga Hollywood- borgar kann frá að greina. — Þau lifa. kyrrlátu lífi og umgang ast fámennan, náinn vinahóp. Spjátrungurinn og drabbarinn er orðinn ráðsettur, miðaldra maður, fyrirmyndar-heimilisfað- ir og — bezti leikari ársins. . . . Sigurður Ölason Hæslaréltarlögma9ur Þorvaldur Lúðvíksson Hcraðsdómslögnmður Málflutningsskrifstofa Austurstræti 14. Sínti 1-55-35 Minningarorð Það finnst víst fáum,aðstórtskarð verði fyrir skildi, þó gömul kona kveðji þennan heim, kona, sem lifði og starfaði langa ævi í kyrr- þey, og gerði ekki kröfur til ann- ars en eyða orku sinni í annarra þágu, en ef til vill einmitt vegna þess skilur hún eftir, í hugum okkar, sem eftir lifum og þekkt- um hana bezt, það skarð, sem seint verður fyllt. Ólafía Katrín Hansdóttir, en svo hét hún fullu nafni, var fædd að Gautastöðum í Hörðudals- hreppi í Dalasýslu, 17. apríl 1874. Foreldrar hennar voru Hans Ólafs son, ættaður úr Húnavatnssýslu og Guðrún Sigurðardóttir, frá Hofsstöðum í Stafholtstungum. Stóðu að Ólafíu traustar ættir, en . eigi mun hirt um að rekja ættir hennar nánar hér. Ólafía ólst upp í föðurgarði til fullorðinsára, varð snemma bráðger til flestra hluta, og svo afkastamikil til allrar vinnu að af bar. Hún var höfðingi ásýndum og höfðingleg í raun, enda var alla tíð gestkvæmt mjög á heim- ili hennar og manns hennar, og þó sérstaklega eftir aðþaufluttust til Reykjavikur, en í Reykjavik var heimili hennar í rösk þrjátíu ár, síðast í Garðastræti 4, þar sem hún bjó með dóttur sinni. Man ég það frá bernsku minni, er sveit ungar mínir fóru til Reykjavík- ur, og sögðu, er heim kom, frá ánægjulegum kvöldstundum á heimili þeirra Ólafíu- og Krist- jáns, því þar þótti alltaf sjálf- sagt að koma, enda gestrisni og hjartahlýja þeirra hjóna nægilega mikil til þess, að gestinum fynd- ist hann sem heima. Get ég full- yrt, áð margur Dalamaður, sér- staklega Hörðdælingar, hafi fundið þar sitt annað heimili. Þann 29. júní 1895 giftist Ólafía Kristjáni Guðmundssyni frá Dunki í Hörðudal og hófu þau þar búskap, síðar fluttu þau að Selárdal, en lengst bjuggu þau að Hamri í sömu sveit. Þau eign- uðust fimm börn, sem öll komust til fullorðinsára og urðu hið mann vænlegasta fólk, en þau voru: Hans Ágúst, bóndi að Ketils- stöðum, Hörðudal, nú látinn. GuðmUndur, myndskeri og bóndi að Hörðubóli, Miðdölum. Kristín, iðnkona í Reykjavík. Snorri, starfsmaður hjá heildv. Eggerts Kristjánssonar. Kristján, húsa- smíðameistari, Reykjavík, nú lát- inn. Á þessum árum virtist fram- tíðin blasa við þeim hjónum, óvenju björt. Bæði voru þau kapp söm við alla vinnu, og þó ómegð væri nokkur, var afkoman góð. En stormar lífsins mæddu snemma á þeim, og kom sér þá, að Ólafía var mikil þrekkona, sem aldrei æðraðist á hverju sem gekk. Er börnin voru enn í bernsku missti Kristján heilsuna, lá hann þá oft langar og þungar legur. Máttu þau þá bregða búi og koma nokkru af börnum sín- um í fóstur annars staðar. Það var henni þó raunabót, að sjá börn sín heima og heiman vaxa upp sem dugandi fólk. Sjálfsagt hefur henni ekki ævinlega liðið vel á þessum stundum, en Guð ræður, þótt mennirnir áformi og handleiðslu hans treysti hún alla ævi. Guð var það eina afl, sem hún beygði sig fyrir án þess að kvarta. Lífið gaf frú Ólafíu mik- ið, en lagði líka mikið á hennar traustu herðar. Fyrir fjórtán ár- um fékk hún að sjá á bak elzta syni sínum á bezta aldri, frá hálfn uðu lífsstarfi og misseri síðar fylgdi hún manni sínum til graf- ar, og enn barði sorgin á dyr hjá henni fyrir ári síðan, er yngsti sonur hennar féll frá. Eftir það átti hún þá eina ósk, að fá að fylgja þeim ástvinum sínum, sem á undan voru farnir. Heilsu henn- ar hrakaði síðastliðið sumar, þó hún héldi andlegum kröftum óskertum fram til hinztu stund- ar. — Hún fór á spítala til rann- sóknar skömmu fyrir jól, þá kom í ljós, að enginn bati var vænt- anlegur. Hún andaðist 9. janúar síðastliðinn, södd lífdaga, en sátt við Guð og menn og var jarðar- för hennar gerð viku síðar að við- stöddu fjölmenni. Ég hef stiklað á stóru hér að framan, að öðru leyti er saga hennar saga móðurinnar, sem vinnur sín störf, hljóðlátt og án annarra launa en þeirra, er starfs gleðin ein veitir. Þar er ekki 1 spurt um það, hvort unnið er klukkutímanum lengur eða skemur, þar er það þörfin, sem ræður hverju sinni. Og ennþá er þörf fyrir vinnu- samar fórnfúsar mæðrahendur, sem reiðubúnar fórna sér fyrir komandi kynslóðir og ef til vill er þörfin aldrei meiri en einmitt nú á þessum timum tæknilegs hraða og upplausnar. Því þakka afkomendur og venzlamenn hinni látnu heiðurskonu fyrir samferð- ina, fyrir allar ánægjulegar stund ir, fyrir allt það, sem hún hefur lagt þeim til liðs, og óska henni blessunar Guðs handan landamær anna lífs og dauða. E. Á. Tvö lömb lieimlust af fjalli VALDASTÖÐUM, 15. apríl. Fyr- ir 2 dögum, fundust 2 lamb- gimbrar, sem gengið hafa úti í all an vetur. Fundust þau á svonefnd um Meðalfellsdal, sem skerst norður úr Esjunni. Eigandi lamb- anna telur þau vera í góðú standi. Eigandi þeirra er Oddur bóndi í Eilífsdal. Varð hann fyrst lamb- anna var rétt fyrir páskana, en gat þá ekki komið þeim heim vegna styggðar. Telur hann líkur fyrir því, að lömbin hafi braggazt um miðjan veturinn. Aldrei hafði þeirra orðið vart á s. 1. hausti. — St. G. Málfundafélag jafnaðarmanna hefir opnað skrifstofu í Mjóstræti 3, Opið kl. 15—18 daglega, sími 2-36-47. Skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði 140 ferm. að flatarmáli í nýlegu húsi rétt við höfnina til leigu nú þegar. Húsnæðið er á 3. hæð, ósundurhólfað, með svölum og góðu útsýni yfir höfnina. STEINN JÓNSSON, HDL., Kirkjuhvoli — Símar 19090 — 14951. lögfræðiskrifstofa — fasteignasala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.