Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 19

Morgunblaðið - 17.04.1959, Page 19
Föstudagur 17. aprH 1959 MORCVISBLAÐIW 19 Nýskipan á úthiafun lista manna- launa Frv. þess efnis á Alþingi t GÆR var til fyrstu umræðu I neðri deild Alþingis frumvarp til laga um úthlutun listamanna- lauha. Er í frv. þessu lagt til að tekin verði upp ný skipan þeirra mála. Gerir frv. ráð fyrir, að tíu listamenn skuli hafa föst heiðurs- laun, 35000,00 kr. á ári. Skulu þeir skipa listaráð og vera ríkis- valdinu til ráðuneytis um listmál. Þá skal árlega úthluta listamanna launum í þremur flokkum: 20000,00, 12000,00 og 6000,00 kr. — T visköttun Framhald af bls. 2. lagabreytingum, sem gerðar voru á fyrra ári væri verið að leggja á þessi félög skatta, sem næmu á aðra milljón króna á ári. Sín skoðun væri sú, að með tillögu fjórmenninganna væri ekki verið að taka upp neitt nýtt, heldur verið að undirstrika, að þingheimur vissi ekki í fyrra, að þessi gífurlega breyting á að- stoðu sölusamlaga um skatt- greiðslur væri á ferðinni. Hefðu engir af þeim ýmsu aðilum, sem hefðu komið á fund fjárhags- nefndar í sambandi við þetta mál minnzt á neitt slíkt og ekki verið rætt um það í nefndinni. Skatt- stjóri Reykjavíkur hefði lagt á sölusamlögin og borið fyrir sig þessa lagabreytingu, en yfir- skattanefnd hefði fellt skattinn niður. Fjórmenningarnir vildu með þessari breytingartillögu að eins árétta sinn skilning á lög- gjöfinni, sem sett var í fyrra og hér væri um það að ræða að fá tekin af öll tvímæli. Pétur Pétursson kvaðst ekki reiðubúinn að taka efnislega af- stöðu til þessarar breytingartil- lögu, en taldi að réttara hefði verið, að fjórmenningarnir hefðu flutt frumvarp um þetta efni. Einar Olgeirsson kvað ekki mega dragast lengur, að setja skýlaus ákvæði um ýmis félög og samsteypur, sem væru að rísa upp. Þar væri að rísa upp vald í þjóðfélaginu, sem við réðum bráðum ekki við og væri nauð- synlegt að setja um slíkt ákveðna löggjöf. Kvaðst hann því fylgj- andi, að þessi skattheimta fengi að dankast eitt ár ef það gæti orðið til þess, að gengið yrði frá ítarlegri löggjöf um hin ýmsu félög. Sigurður Ágústsson kvaðst geta fallizt á það sjónarmið, að nauðsynlegt væri að setja lög- gjöf um félögin, en ítrekaði, að hann teldi ákaflega varhugavert, að setja löggjöf, sem beinlínis kvæði á um misrétti milli þeirra félaga, sem störfuðu að útflutn- ingnum. Óiafur Björnsson kvað eftir at vikum rétt að samþykkja tillögu fjórmenninganna. Tilgangur lög- gjafarinnar, sem sett hefði verið í fyrra, hefði einmitt verið að létta skattabyrðina á stærri hluta félögum og öðrum félögum og virtist því mjög óeðlilegt annað en að þessi tillaga yrði samþykkt. Skúli Guðmundsson kvað það sina skoðun, að með lögunum í fyrra hefði engin breyting verið gerð varðandi skattheimtu félag- anna. Að sínu áliti hefðu þau verið skattskyld áður en þau lög voru sett. Jóhann Hafstein kvað skatt- stjóra hafa. lýst því yfir, að lagt hefði verið á félögin samkvæmt þeim lagabreytingum, sem gerð- ar hefðu verið í fyrra. Nú hefði Skúli Guðmundsson lýst því yfir, að hér hefði engin breyting ver- ið gerð og hefði þá orðið sá ár- angur af þessum umræðum, að ekki fengi lengur staðizt, að vitna í nefnd lög við skattaálagningu á umrædd félög. og ekki færri en 25 listamenn skulu njóta 20000,00 kr. Úthlutun skal framkvæmd af fimm manna nefnd, sem skipitð sé til þriggja ára. Skal mennta- málaráðherra skipa formann nefndarinnar, og hina fjóra skal skipa samkvæmt tilnefningu heimspekideildar háskólans, menntamálaráðs, Listráðs og fulltrúaráðs BÍL. Listamannalaun skulu breytast í hlutfalli við þær breytingar, er verða á kaupgjaldsvísitölu frá því að lög þessi eru samþykkt. Menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslasön hafði framsögu fyrir frv. en að því loknu var því vísað til 2. umr. og menntamálanefndar. Lóðsbáturinn sökk HAFNARFIRÐI. — Aðfaranótt þriðjudagsins sökk lóðsbáturinn hér, þar sem hann var bundinn við Gömlu bryggjuna. Með hvaða hætti það vildi til, er ekki með vissu vitað, en talið er að hann hafi, þegar fjaraði, festst á þverbita í bryggjunni og sokkið af þeim sökum. í gær og fyrra- dag voru menn frá Hamri í Reykjavík, undir stjórn Bjarna Jónssohar, fengnir til að ná bátn- um upp, og tókst það síðdegis í gær með aðstoð froskmanns og kranabíla. Reyndist hann ekki vera skemmdur að öðru leyti en því, að vélina þarf að sjálfsögðu að hreinsa. — G. E. Misjöfn aflabrögð hjá togurumim HAFNARFIRÐI — Landað hefir verið úr þremur togurum hér í vikunni: Surprise, sem kom með fullfermi á mánudag, Röðli á þriðjudag 54 tonnum af saltfiski og 85 af nýjum, og Ágúst í gær, en hann mun hafa verið með 150 t. — Landlegur eru nú hjá neta- bátunum, en annars hefir verið fremur rýr afli hjá þeim upp á síðkastið. f framhaldi af frétt um hinn nýja togara, sem ákveðið er nú að verði smíðaður í Þýzkalandi fyr- ir Bæjarútgerðina, má geta þess, að hann mun rúma um 500 lestir af fiski, en til samanburðar má geta þess, að togarinn Júní, sem er með stærri togurum okkar fs- lendinga, er fullfermdur með um 340—50 lestir. Hann verður knú- inn díselvélum, sem farið er að nota í æ ríkari mæli í togara og reynzt hafa afarvel. Ganghraðinn er áætlaður 15 mílur. Kostnaðar verð er nú reiknað með að verði 4 milljón þýzk mörk eða um 24 millj. ísl. krónur. — G. E. 162 lestir AKRANESI, 16. apríl. — Heildar- aflinn hér í gær var 162 lestir. Minnstur afli var ein lest á bát. Aflahæstir voru þessir: Reynir 20,6, Ver 20, Keilir og Sveinn Guðmundsson með 19 lestir hvor, og Skipaskagi með 14 lestir. Hingað kom togarinn Akurey í morgun eftir 10 daga útivist með 150 lestir. Rennilokar 2%, 4. 5 og 6 tommu. = HEÐINN” Vélaverzlun. Málari getur bætt við sig vinnu. — Upplýsingar í síma 23407. Heiðavegir teppast vegna skafrenn- ings HOLTAVÖRÐUHEIÐI og Öxna- dalsheiði eru nú báðar ófærar bifreiðum, og svo mun einnig vera um Vaðlaheiði. — í fyrra- dag aðstoðuðu ýtur nokkra bíía yfir heiðina. Sagði vegamála- stjóri, er blaðið hafði tal af hon- um í gærkvöldi. að nokrir bílar mundu þegar biða færis beggja rnegin hciðar að komast leiðar sinnar í dag, ef fært þætti. Ann- ars yrði vegurinn ruddur jafn- skjótt og veður lægði og hætti að skafa, en engin eða svo sem engin ofanhríð hefir verið á heið inni. Svipað er að segja um Öxna- dalsheiði, þar hefir verið skaf- renningur mikill, og lokaðist vegurinn í fyrrinótt. Þó var nokkrum bílum hjálpað yfir í gærmorgun. Voru það ýtur vega- gerðarinnar á Akureyri, sem það gerðu. Aðalhindrunin- mun vera á flóanum fyrir ofan Bakkasel. — Nokkrir bílar höfðu í gær safnazt saman í Varmahlíð, þar sem þeir bíða þess, að Öxnadals- heiði verði aftur fær. Ef ekki gerir snjókomu, verður hægt að opna veginn jafnskjótt og veður lægir. — Visnakver Framhald af bls. 3 helzt mæfcti jafna til rímnakveð- skapar um daga Jónasar Hall- grimssonar. Að vísu er sá munur á, að þá þótti leirburður hinn snjallasti skáldskapur, ef hann var nógu þaulrímaður, en nú, á öld rím leysunnar, er þessu öfugt farið. Vísnakverið olli engnm umbrotum í íslenzkri ljóðagerð í öndverðu og mun heldur ekki gera nú. En rammur safi málfarsins, þungur og steikur kliður rímsins, fast meitl- aðir, fornir hættir og stórbrotið efni mun enn um sinn or.ka á hugi lesenda með krafti, sem Iítt förlar. Island, íslenzk örlög og íslenzk list lifa í þessum kvæðum. Þess vegna fyrnast þau ekki né ganga úr gildi, þótt tímar líði fram.“ Útgáfan er hin vandaðasta í alla staði. — Samkomur S A M K O M A Dr. theol. Carl Tr. Wislöff talar á almennri samkomu í húsi KFUM og K í kvöld kl. 8,30. All- ir velkomnir. AKUREYRI Roskin barnlaus hjón sem starfa úti, óska eftir einu her- bergi með eldunaraðgang. Til- boð leggist á afgr. Mbl. í Rvík fyrir 23. apríl merkt: 5981. Lltill trillubátur Al dekkaður, í góðu standi með nýrri vél, til sölu. Upplýsingar í síma 32838, mitli kl. 7 og 10, næstu kvöld. Verkfæri ÚTSKURÐARSETT KANTVINKLAR PLÖTUVINKLAR JÁRNHEFLAR SAGIR BRYNJA Svanella að vciðum út aí Garðskaga BREZICI togarinn Svanella, sem varðskipið Óðinn var hindrað í að taka að veiðum í fiskveiði- landhelginni út af Snæfellsnesi sl. þriðjudag, er nú farinn af þeim slóðum. Er flugbátur landhelgisgæzl- unnar, Rán, var á gæzluflugi út af Garðskaga síðdegis í gær, sást togarinn úr flugvélinni um 32 mílur út af vitanum. — Svan- ella er um sjö ára gamall togari, gulur að lit, en það er óvenju- legur Utur á togurum. — Hvasst var, er Rán flaug þarna yfir, en togarinn eigi að síður að veiðum. Ægir var á varðbergi þarna skammt frá, en í kringum skipin hringsólaði eitt af brezku her- i skipunum. Félagslíf Ferðafélag íslands fer göngu og skiðaferð & Skarðsheiði á sunnudaginn. Lagt af stað kl. 9 um morguninn frá Austurvelli og ekið fyrir Hval- fjörð að Laxá í Leirársveit, gengið þaðan á fjallið. Far- miðar seldir við bílana. Ármenningar og annað skíðafólk! Skíðaferð í Jósepsdal um helgina. Innanfélagsmót ísvigi í öllum flokkum. Áríðandi að alUr mæti. Ferðir frá B. S. R. — Stjónrin. Sundfólk! Munið skemmtifund sunddeilda KR og Ármanns, sem verður í Félagsheimili KR í kvöld kl. 9. — Stjórnirnar. Köflótlar telpnalmxur allar stærðir. Hugheilar þakkir til allra sem glöddu mig með blóm- um, skeytum, gjöfum og heimsóknum á 75 ára afmæli mínu 23. marz. Guð blessi ykkur öll. Jónína Oddsdóttir, Kársnesbraut 18, Kópavogi. Hjartans þakkir og kveðjur sendi ég öllum vinum og vandamönnurh sem heiðruðu mig og glöddu með gjöfum, heillaskeytum og kveðjum í tilefni af sjötugasta og fimmta afmæli mínu 12. 4. s.l. Guð blessi ykkur öll. Bjarni Aðalsteinsson, Hverfisgötu 40 Rvík. 4 Þakka innilega auðsýnda vináttu á sjötugsafmælinu. * Auðunn Sæmundsson frá Vatnsleysu. Útför eiginmanns míns ÞORVALDAR GUÐJÖNSSONAR skipstjóra frá Vestmannaeyjum, er andaðist 13. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni laugar- daginn 18. þ.m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni í Dómkirkjunni verður útvarpað. Jarðsett verður í Fossvogskirkju- garði Fyrir hönd vandamanna. Klara Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför JÓNS SIGURÐ ARSON AR járnsmíðameistara Laugaveg 54. Börn og tengdaböm. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför GUÐMUNDAR GOTTSKÁLKSSONAR Varmahlíð, Hveragerði. Guð blessi ykkur öll. Helga Sæmundsdóttir, synir og tengdadætur. Innilegustu þakkir fyrir samúð við andlát og jarðarför HÓLMFRÍÐAR ÞORLÁKSDÖTTUR DBrni*- Asfríður Ásgrims og dætur. ©

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.