Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 1
20 siður
46. árgangur
95. tbl. — Miðvikudagur 29. apríl 1959
Prentsmiðja Mor runblaSsiM
íslendingar
knýja sig
láta ekki Breta
til undanhalds
í landhelgismálinu
Utanrikismálanefnd flytur báltill.
um landhelgismálið
f GÆR var útbýtt á Alþingi svo
hljóðandi tillögu til þingsálykt-
unar um landhelgismál.
Utanríkismálanefnd flytur til-
löguna, sem er á þessa leið:
Alþingi ályktar að mótmæla
harðlega brotum þeim á íslenzkri
fiskveiðilöggjöf, sem brezk stjórn
arvöld hafa efnt til með stöðug-
um ofbeldisaðgerðum brezkra
herskipa innan íslenzkrar fisk-
veiðilandhelgi, nú nýlega hvað
eftir annað jafnvel innan fjög-
urra mílna landhelginnar frá
1952. Þar sem þvílíkar aðgerðir
eru augljóslega ætlaðar til að
knýja íslendinga til undanhalds,
lýsir Alþingi yfir, að það telur
ísland eiga ótvíræðan rétt til 12
mílna fiskveiðilandhelgi, að afla
beri viðurkenningar á rétti þess
til landgrunnsins alls, svo sem
stefnt var að með lögunum um
vísindalega verndun fiskimiða
landgrunnsins frá 1948, og að
ekki komi til mála minna fisk-
veiðilandhelgi en 12 mílur frá
grunnlínum umhverfis landið.
Greinargerð
Utanríkismálanefnd hefur á
fundi sínum 27. apríl 1959 ákveð
ið að flytja tillögu þá til þings-
ályktunar um landhelgismál, sem
Norðmenn fá
fjarstýrð skeyti
WASHINGTON, 28. apríl. — A
morgun munu Norðmenn taka
við fyrstu fjarstýrðu flugskeyt-
unum, sem þeir fá frá Bandaríkj-
unum. Er hér um að ræða Nike
flugskeyti og allan útbúnað þeim
fylgjandi. Skeytin munu form-
Iega afhent í Bandaríkjunum, en
þar hafa tæplega 200 Norðmenn
verið við þjálfun i meðferð flug
skeytanna að undanfömu.
hér er fram borin. Voru allir
nefndarmenn því samþykkir.
í utanríkismálanefnd eiga sæti
Ólafur Thors, Bjarni Benedikts-
son, Gísli Guðmundsson, Stein-
grímur Steinþórsson, Emil Jóns-
son, Finnbogi R. Valdimarsson og
Sveinbjörn Högnason.
Mont-
kominn
Montgomery
MOSKVU, 28. apríl. —
gomery marskálkur er
til Moskvu í þriggja daga einka-
heimsókn. Dvelzt hann í brezka
sendiherrabústaðnum. Ekkert er
vitað annað um tilgang fararinn-
ar annað en það, að hann ætlar
sér að ræða við rússneska ráða-
Kúbumenn gera innrás
í Panama
PANAMA 28. apríl. — í dag
gengu 80 kúbanskir innrásarliðar
á land í Panama — og búizt var
við að fleiri gengju á land í
nótt. Bandaríkjamenn hafa heitið
stjórn Panama aðstoð til þess að
hrinda innrásarherjunum úr
landi — og munu vopn verða
send hið bráðasta.
Samkvæmt síðustu fregnum
hafa innrásarhermennirnir skipzt
í tvo hópa — og halda inn í land.
Öruggar heimildir eru fyrir því
að 300 manna herflokkur gangi á
land í nótt og ríkir mikið upp-
lausnarástand í landinu.
Ráðamenn í Panama staðhæfa,
að kommúnistar standi fyrir land
göngunni og kenna Castro um.
Sendiherra Kúbu í Panama hef-
ur hins vegar borið það til baka
að stjórn hans standi fyrir innrás
inni. Sagði sendiherrann, að gerð
ar hefðu verið ítrekaðar tilraun-
ir til þess að koma í veg fyrir að
hinir herskáu Kúbubúar legðu
upp í Panamaförina, en árang-
urslaust.
Seinni fregnir:
Ráð bandalags Ameríkulýð-
veldanna samþykkti á fundi sín-
Geislavirkt ryk
tvöfaldast
LONDON, 28. apríl. — Macmillan
skýrði svo frá á þingi í dag, að
samkvæmt mælingum vísinda-
manna hefði geislavirkt ryk auk-
izt um helming í Bretlandi síðasta
árið. Enda þótt mikil hætta staf-
aði af hinu geislavirka ryki, sér-
staklega að strontium 90, sem tal-
ið er að valdið geti krabbameins-
myndun í beinum ungbarna,
taldi forsætisráðherrann, að enn
sem komið væri mundi engin yfir
vofandi hætta vegna geislavirkn-
innar.
um í dag, að lýðveldin, sem eru
21 að tölu skyldu aðstoða
Panamastjórn við að brjóta inn-
rásarherinn á bak aftur. Einn
af öldungadeildarþingmönnum
demokrata krafðist þess í dag,
að Eisenhower forseti sendi þeg-
ar í stað orrustuþotur til þess
að hrekja innrásarmenn á flótta.
Út í geiminn
eftir 18 mánuði
Út í geiminn eftir 18 mánuði?.. 4
AMSTERdam, 28. apríl — Banda-
rískur vísindamaður, Andrew G.
Haley, lét svo um mælt í dag, að
Rússar mundu sennilega skjóta á
loft mönnuðu geimfari innan 18
mánaða. Sagði hann Rússa hafa
mikla möguleika til þess að vinna
kapphlaupið, sem nú er háð milli
Bandaríkjamanna og Rússa um
það hvor verður á undan að ná
þeim merka áfanga. „Ég er sann-
færður um að Rússar geta gert
þetta innan 18 mán.“. En Banda-
ríkjamenn gætu e. t. v. gert það
líka. Kvaðst Haley vera þessarar
skoðunar eftir viðræður sínar við
forseta rússnesku akademíunnar.
Bandaríkjamenn væru hins vegar
komnir lengra í smíði ýmiss kon-
ar mælitækja og nákvæms út-
búnaðar í sambandi við geim-
ferðir.
Tíbetbúar standa allir
að uppreisninni segir Nehru
NÝJU DHELI og PEKING 28.
apríl — Þúsundir Tíbetbúa hafa
nú flúið land og leitað hælis í
Indlandi, sagði Nheru í indverska
þinginu í dag. Hann kvaðst
harma mjög stefnu kínverskra
kommúnista gagnvart Tíbetbú-
um — og vísaði eindregið á bug
ásökunum kommúnista um að
Indverjar stæðu að baki uppreisn
inni í Tíbet. Kvað hann komm-
únista hafa sneytt algerlega hjá
sannleikanum í málflutningi sín-
um.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum mun kínverska kommún-
istastjórnin hafa mótmælt form-
lega við indversku stjórnina ó-
látum við kínverska sendiráðið
í Bombay á dögunum. Mikill
fjöldi manna safnaðist þar sam-
an og gerði hróp að sendiráð-
inu og starfsmönnum þess — og
mótmælti miskunnarlaust vald-
beitingu Kinverja í Tíbet. Köst-
uðu Indverjarnir skemmdum tó-
mötum að sendiráðinu — og
reyndu að hæfa stóra mynd af
Mao Tse Tung, sem hékk á út-
veggi sendiráðsbyggingarinnar
Margir munu hafa hæft í mark.
- Nehru harmaði í dag aðförina
að sendiráðsbyggingunni — og
sagði þar óhlutvanda menn að
verki.
En hann kvað atburð þennan
ekki breyta þeirri staðreynd, að
Dalai Lama hefði komið af frjáls
um vilja til Indlands og honum
væri frjálst að hverfa þaðan
hvenær sem hann vildi. Nehru
sagði að í Tíbet væri nú víðtæk
uppreisn, þjóðerniskenndin hefði
náð tökum á Tíbetbúum — og
uppreisnin hefði verið gerð af
landsmönnum, jafnt æðri stétta
sem lægri.
Dalai Lama var vel fagnað í Indlandi. Hann ferðaffist um há-
fjallalönd og lítt byggð héruð í hart nær mánuð.
Fjárlögin greibslu-
hallalaus
Erlent lán til
framkvæmda
FRUMVARP til fjárlaga fyrir
árið 1959 var tekið til 3. umræðu
á fundi sameinaðs Alþingis í gær.
Magnús Jónsson, framsögumaður
fyrsta minni hluta fjárveitingar-
nefndar, tók fyrstur til máls um
frv., gerði hann grein fyrir brtt.
sem fjvn. flytur við frv. við þessa
umræðu og einnig gerði hann
grein fyrir tillögum 1. minni
hluta nefndarinnar.
Magnús Jónsson skýrði svo
frá, að við 2. umr. fjárlagafrv.
hefði verið gerð grein fyrir því
að ýmis erindi biðu afgreiðslu
þar til við 3. umr. Jafnframt
hefði þess verið getið, að við þá
umræðu yrðu lagðar fram tillög-
ur til að jafna greiðsluhalla
frumvarpsins, svo það yrði af-
greitt greiðsluhallalaust. Fjár-
veitinganefnd hefði nú haft þessi
erindi til athugunar, og hefði
einnig gert tillögur til að jafna
þann halla, sem á frv. væri eftir
2. umr. Hefði ekki orðið sam-
komulag um ráðstafanir til að
jafna hallan á frv. og fjvn. klofn
að í þrennt um það atriði.
Magnús Jónsson skýrði svo
frá, að tillögur þær, sem 1. minni
hluti fjvn. gerði, stuðluðu allar
[ nema ein að því að hækka tekju-
| liði frumvarpsins. Sú tillaga,
sem stuðlaði að lækkun á tekju-
| hlið frv. væri á þá leið að verja
Við viljum vera í Kína
sagði Panchen Lama undanfama daga, sagði hann, að
Kínverjar mundu halda áfram
af framlagi á 19. gr. til útflutn-
ingssjóðs fé til að koma í veg
fyrir verðhækkun erlends áburð-
ar vegna efnahagsráðstafanna á
sl. ári umfram þá verðhækkun,
sem orðið hefur á innlendum
áburði. Væri með þessari tillögu
komið til móts við þingsályktun-
artillögu, sem Ingólfur Jónsson
og Jón Sigurðsson hefðu flutt á
þessu þingi.
Tillögur 1. minni hluta fjvn.,
sem stuðluðu að hækkun á tekju-
hlið frv., væru um hækkun á
verðtolli, söluskatti og leyfis-
gjaldi. Þé væri lagt til að lækk-
að yrði framlag til Iðnskóla í
Reykjavík, gjöld útflutningssjóðs
yrðu lækkuð, óviss útgjöld lækk-
uð og 500 þús. kr. sparnaður yrði
vegna breytinga á framkvæmd
orlofslaga.
Magnús Jónsson sagði þvi
næst, að miðað við að þessar til-
lögur yrðu samþykktar, og þær
tillögur, sem nefndin öll stendur
að, yrðu fjárlög greiðsluhalla-
laus, eða 100 þús. kr. greiðsluaf-
gangur.
Þá skýrði Magnús Jónsson svo
frá, að 1. minni hluti fjvn. legði
til, að tekið yrði erlent lón að
upphæð allt að 6 millj. dollara.
Af þeirri fjárhæð skulu eftirtald-
ar upphæðir endurlánaðar, svo
sem hér segir:
Til raforkusjóðs .. 45 millj. kr.
Til ræktunarsjóðs . 25 millj. kr.
Til hafnarframkv. . 28 millj. kr.
★-----------------------★
Mi ikudagur 29. apríl.
HONG KONG og TAIPEI 28.
apríl — Á fjöldafundi í Peking í
dag þar sem 10 þúsundir manna
voru saman komnar flutti Pan-
chen Lama ræðu. Sagði hann, að
Tíbetbúar vildu vera undir
stjórn Kínverja. Tíbet væri þeg-
ar orðið kínverskt. Tíbetbúar
vildu alltaf verða undir Kina.
Var Panchen Lama vel fagnaff.
í dag var útnefning Liu Shao
Chi, sem forseta hins kommún-
iska Kína tilkynnt í Peking.
í stuttri ræðu, sem hann hélt að
afloknu þinginu, sem setið hefur
á sömubraut og Mao Tse Tung
hefði markað, halda áfram til
nýrra sigra.
Blöðin á Formósu telja, að út-
nefning Liu Shao Chi beri greini-
lega Vott um það, að Moskvu-
valdið sé að herða tökin á Peking
stjórninni.
í lok flokksþingsins var gerð
samþykkt þess efnis, að auka
ber iðnaðar- og landbúnaðarfram
leiðslu landsins um 40% á næsta
ári — og í sérstakri samþykkt
um Tíbetmálin voru Indverjar
víttir fyrir „íhlutun sína“.
i blaðsins m.a.:
Bls
3: Engii’ nautaberklar fundust á
Hólum.
— 6: Forysta Breta I alþjóðamálum.
(Erl. yfirlitsgrein).
Andstæðingar NATO fóru hall-
oka í Færeyjum.
— 8: „Mary Tyrone hefur ásótt
mig“ — Samtal vií| Arndisl
Björnsdóttir.
u— 10: Forysáugreinin: Einhuga Al-
þingi mótmælir ofbeldi Breta.
Slagorðin eru 96 að þessu sinnl
(Utan úr heimi).
— 11: Án samþykkis fólksins verður
þessu landi ekki stjórnað. (Frá
umræðum á Alþingi).
— 12: Ræða Jóhanns Hafstein vil
kjördæmamálsumræður á Al-
þingi.
— 18: íþróttir.