Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 29. apríl 1959 MORGUWBLAÐ1Ð 3 Engir nautaberklar fundust á Hólum segir i greinagerð berklayfirlæknis og yfirdýralæknis BERKLAYFIRLÆKNIR, Sigurð- ur Sigurðsson, og yfirdýralæknir, Páll A. Pálsson, fóru nýlega norður að Hólum, til berklarann- sóknar á heimilisfólki og nem- endum, sökum þess að í janúar- mánuði sl. veiktist starfsstúlka að Hólum og um svipað leyti einnig einn nemandi, er þar hafði dvalið. Fannst enginn berklaveikur maður við þessa rannsókn, eins og áður hefur ver- ið frá skýrt hér í blaðinu. Berklayfirlæknir og yfirdýra- læknir hafa nú sent frá sér greinargerð um málið. Segir þar að ekki sé hægt að svo stöddu að fullyrða neitt um, hvar þessar tvær manneskjur hafi orðið fyrir berklasmitun, en dau dvelja sem stendur í Kristneshæli. Verður athugunum á því haldið áfram eftir því sem tök eru á. Við próf á nautgripum voru 12 gripir jákvæðir af rúmum 60. Voru hin jákvæðu svör þó eigi eins greinileg og vænta má, ef um nautaberkla væri að ræða, en nautaberklar hafa aldrei fundizt hér á landi svo vitað sé. Voru prófin endurtekin með svipuð- um árangri. Voru þrír gripir felldir í rannsóknarskyni. — Við Aðalfimdur Hins ísl. Biblíu- félags á morgun SAMKVÆMT lögum Hins ísl. Biblíufélags skal aðalfundur þess haldinn í aprílmánuði ár hvert. Verður hann að þessu sinni í Háskólakapellunni kl. 5,30 e.h. á morgun (fimmtudaginn 30. apríl). Auk venjulegra aðalfund- arstarfa mun síra Harald Sig- mar flytja stutt erindi á fund- inum. Á síðasta stjórnarfundi Biblíu- félagsins var m.a. samþykkt að láta binda í fagurt og mjög vand- að skrautband nokkur eintök af útgáfu félagsins af Biblíunni í stóru broti. Verður sú viðhafnar- útgáfa einkar hentug til sérstakra tækifs^risgjafa. — Þá var og sam þykkt, að félagið gæfi eintak af Nýja testamentisútgáfu þess með stóru letri í allar sjúkrastofur í sjúkradeildum elliheimila hér á landi. — Biblíur og Nýjatesta- menti hafa selzt mjög mikið und anfarin ár og því mikið starfs- svið fyrir félagið. Biskup íslands er skv. lögum félagsins sjálfkjörinn forseti þess. Þar eð biskupsskipti verða nú í sumar, og hinn nýkjörni biskup á þegar sæti í stjórn fé- lagsins, ber að kjósa einn stjórn armeðlim á aðalfundinum á morg un. Eriiidi um voruiidirbúniiig í garðinum GARÐYRKJUFÉLAG fslands hefur að • undanförnu haft þrjá fræðslufundi fyrir almenning og veitt ókeypis fræðslu um undir- búning garða og fleira sem að ræktun lýtur. Hafa fundir þess- ir verið mjög vel sóttir og virð- ist að venju ríkja mikill áhugi meðal almennings fyrir garð- rækt á þessu vori. Fjórði og síðasti fræðslufund- urinn verður í kvöld, 29. apríl, kl. 20,30 i stofu 202 í Iðnskól- anum .Þar flytur Jón H. Björns- son erindi^ um skipulag skrúð- garða og Óli Valur Hansson um vorundirbúning í garðinum. krufningu á gripum þessum fundust ekki nautaberklar. Aftur á móti fannst garnaveiki í einum gripnum, íullorðinni kú, er reynzt hafði jákvæð við blóð- próf við garnaveiki og auk þess fannst garnaveiki í líffærum úr öðrum gripum er slátrað hafði verið nokkru áður á Hólum, en garnaveikir gripir geta í vissum tilvikum gefið jákvæð svör við berklaprófi. 1 þessu sambandi er þess getið, að sú tegund berkla í nautgrip- um, sem mönnum getur stafað hætta af, eru nautaberklar, því þeir virðast jafnhættulegir mönn um og mannaberklar og geta auðveldlega borizt úr sjúkum gripum í menn. -Hins vegar geta nautgripir smitazt bæði af manna berklum og fuglaberklum, en sú smitun leiðir yfirleitt ekki til neins sjúkdóms í nautgripum, og eru því nautgripir, þótt fengið hafi slík smit, ekki hættulegir. í nágrannalöndum okkar, Norður- löndum, Þýzkalandi og Bretlandi hafa nautaberklar til skamms tíma verið mjög útbreiddir, en aldrei fundizt hér á landi. Einnig er þess getið í umræddri grein- argerð, að fuglaberklar hafi nokkrum sinnum verið staðfestir hér á landi í hænsnum, svínum og einstökum nautgripum og sauðfé. Fuglaberklar eru taldir hættulitlir mönnum. Kvcðjuathöfn í Flateyrarkirkju FLATEYRI, 27. april. — í dag var kveðjuathöfn í Flateyrar- kirkju um Sigurð Kristjánsson sjómann, sem lézt af slysförum á b.v. Gylli frá Flateyri þann 23. þ.m. Sóknarpresturinn, séra Jón Ólafsson, flutti minningar- ræðu, en karlakór undir stjórn frú Rögnu Sveinsdóttur söng. — Mikið fjölmenni var við jarðar- förina. — B.S. 1000 sovésk síldarskip eru nú að veiðum í Norðursjón- um. Þau toga bæði eftir síld og fiski. STAKSTEINAR Síðasta vetrardag var hér á ferð formaður alþjóðahreyfingar Lionklúbba, mr. Dudley Simms. Var hann hér á kynnisferð ásamt framkvæmdastjóra Lionklúbbanna á Norðurlöndum, Hadar Wan- renby (Svíi), og áttu þeir viðræður við yfirmenn Lionhreyfingarinnar hér á landi. í frásögn af blaðaviðtali við mr. Simms kom fram sá misskilningur að Lionfélagar í heiminum væru 14300. Það rétta er Lionklúbbar eru 14300 talsins og telja um 600 þúsund félaga samtals. Hér á mynd- inni sjást frá vinstri, Ólafur Jónsson, ritari Lionhreyfingarinnar hér, Hadar Wanrenby, Dudley Simms, Þór Guðjónsson, formaður Lionhreyfingarinnar hérlendis, og Magnús Kjaran, einn af upphafsmönnum hennar hér á landi. AfmœlishljómSeikar Jóns Leifs annað kvöld SINFÓNÍUHLJ ÓMS VEIT ís. lands og Ríkisútvarpi, hafa ákveð ið að heiðra Jón Leifs tónskáld í sambandi við sextugsafmæli hans með því að efna til sér- stakra tónleika, þar sem ein- göngu verða flutt verk eftir hann. Tónleikarnir verða annað kvöld í Þjóðleikhúsinu. Stjórn- ar höfundurinn sjálfur sinfóníu- hljómsveitinni nema hvað dr. Hallgrímur Helgason stjórnar einu verki og því stærsta, kant- ötunni „Þjóðhvöt". í upphafi tón leikanna mun Þorsteinn Ö. Stephensen lesa kafla úr kvæð- inu „Langspilið“ eftir Einar Benediktsson. Tónskáldið sjálft mætti í gær á fundi með blaðamönnum í Naustinu. Þar skýrði hann m.a. frá því, að kantatan „Þjóðhvöt“ væri samin við kvæði úr Alþing- ishátíðarljóðum Davíðs Stefáns- sonar. Dvaldist Jón erlendis á þeim árum og var tónverkið sam- ið í Baden-Baden og Trave- múnden 1929—1930, án tillits til sjálfrar Alþingishátíðarinnar, enda var tónsmíðinni ekki lokið fyrr en undir haust 1930 og hún flutt í fyrsta skipti í Greifswald í Þýzkalandi í nóvember 1930 og þá með þýzkum texta. Jón kveðst mikið hafa hugsað heim, er hann var að semja þetta tónverk. Árið 1929 dó faðir hans, Þorleifur Jónsson póstmeistari. Kveðst tónskáldið þá oft hafa hugsað til föður síns, en einmitt með honum hafði hann átt marg- ar yndislegar stundir á Þingvöll- um. Jón Leifs skýrði einnig frá því, að tónverk þau, sem hann hefði samið á þeim sextíu ár- um, sem hann hefur lifað, væru nú 46 talsins. Stærstu verkin eru einskonar ballettverk, sem tek- ur IY2 klst. að flytja. Sögusin- fónía og tvær óratoríur, sem hann nefnir Sköpun heims og Líf guð- anna. Óratoríurnar eru í flokki fjögurra slíkra verka, en seinm tvær óratoríurnar í þeim flokki sem eiga að heita Ragnarök og Endurreisn, hefur tónskáldið ekki lokið við. Hann virðist samt vongóður um, að það takist, því að menn séu ungir fram á sjötugs aldur, svo að hann eigi enn eftir tíu ár af æsku sinni. Það kom fram á fundinum, að Tónskáldafélag íslands sam- þykkti þann 15. nóvember s.l. að Fimmtugur en ekki sextugur í YFIRSKRIFT á grein um Ólaf Ragnars kaupmann á Siglufirði í blaðinu í gær, stóð að hann væri 60 ára. Þarna var prentvillupúk- inn að verki. Ólafur Ragnars varð fimmtugur þennan dag, eins og raunar kom skýrt fram í grein inni sjálfri. beita sér fyrir því að Jón yrði heiðraður á afmælinu og var kos- in til þess nefnd, sem í áttu sæti Skúli Halldórsson, Páll ísólfsson og Sigurður Þórðarson. Varð síð- an úr, að Sinfóníuhljómsveitin og Ríkisútvarpið efndu til afmæl- istónleikanna, en nefnd félags- ins hefur annast framkvæmdir. Mesta verkið í sambandi við þessa tónleika hefur verið að æfa kantötuna „Þjóðhvöt", sem aldrei fyrr hefur verið flutt hér á landi. Er hún flutt með 50 manna blönd uðum kór. Tók Hallgrímur Helgason að sér að safna söng- fólki í kórinn og hefur haft 50 æfingar með honum. Önnur verk sem flutt verða á afmælishljómleikunum og sem höfundur stjórnar sjálfur eru: Minni Islands, hljómsveitarfor- leikur, Grettir og Glámur, þátt- ur úr Sögusinfóníunni, Rímna- danslög og mimodrama og sorgar göngulag úr tónleikum við Galdra Loft. Eftir tónleikana verður Jóni Leifs haldið samsæti í Þjóðleik- húskjallaranum. Afmæli hans er daginn eftir, 1. maí. Ágætur afli c; SANDGERÐI, 28. apríl. — 22 bátar lönduðu hér í Sandgerði í gær. Þar af eru þrír aðkomubát- ar. Fengu þeir samtals 393 tonn. Hæstur var Muninn með 35,8, næstur Dux með 34 og þriðji Sæ- rún með 32. Allur þessi fiskur er tveggja og þriggja nátta og fer mest af honum í herzlu. Allir Sandgerðisbátar eru á sjó í dag. — Axel. „Náð hámarki“ Ekki hefur Tíminn enn beðið reykvísku stúlkurnar, sem hann móffgaði mest á dögunum, fyrir- gefningar. En sorpskrif Tímana vekja víffar hneyksli en hér I bæ. íslendingur minntist þeirra hinn 10. apríl og sagði m. a.: „Á flokksþingi Framsóknar- flokksins í sl. mánuði stóff upp kona ein, og deildi all-hart á 3. síffu dagblaffsins Tímans, sem ymist hefur veriff nefnd „sorp- síffan“ effa „klámsíffan". KvaS hún blaffinu hafa veriff ætlaff annað hlutverk en aff etja kappl viff lélegustu sorprit samtíðar- innar. Aff enduffu máli frúarinn- ar reis upp „faffir“ síffunnar, og kvaff siffur en svo ofgert í þessu efni. Þyrftu síðurnar helzt aff vera tvær! Á þessari alþekktu „3. síffu" er aðalefnið þýddar hneykslissög- ur og frásagnir af glæpum, eitui- lyfjanautn, vændi o. þ. h., en nektarmyndir tíffast hafffar til skreytingar. Ekki varff séff, að blaffiff hefffi tekiff tillit til um- vöndunar frúarinnar á flokks- þinginu, því aff síffur en svo hef- ur veriff linnt á sóffaskapnum síff- an. En hámarki náffi þessi sorp- blaffamennska sl. sunnudag er blaðið skýrir frá möguleikum ungra, íslenzkra stúlkna til aff ráffa sig í enska næturklúbba fyr-. ir ágæt laun“. Síffar í sömu grein segir: „Svo rúmfrekur er 3. síffu- maðurinn, aff byggja verffur út úr blaðinu „Þætti kirkjunnar", sem vant er aff birta þar „(í blaff- inu)“ á helgidögum. Hins vegar hafa nöfnin á fermingarbörnum dagsins naumlega komizt fyrir í sömu opnu og næturklúbbafögn- uffurinn“. Eiríkur ,,hreinsaður“ og 3. síðan Þó aff Tíminn hafi brugffist þeirri sjálfsögffu drengskapar- skyldu aff biðja stúlkumar afsök- unar, hefur hann fariff heldur hægar í sorpskrifin síffan. Nóg er nú samt sem á bjátar á heim- ilinu því. Alþýffublaðið minnist t. d. í gær á orðbragð Fram- sóknarmanna í þingræffunum um kjördæmamáliff á Alþingi. Blaðiff segir í forystugrein: „Helzt vakti athygli, hvílíks taugaóstyrks gætir í fari Fram- sóknarmanna af tilefni kjördæma breytingarinnar. Tveir þingmenn flokksins í neffri deild, glöggir menn og prúffir í venjulegu dag- fari, töldu með henni stefnt aff liliðstæðu örlaga Tíbets, innlim- unar Eystrasaltsríkjanna og valda töku nazismans í Þýzkalandi. — Þriffji þingmaðurinn varff svo of- stopafullur, aff Tíminn sleppti persónulegustu köflum ræffu hans í frá sögn sinni af uinræff- unum. Eirikur Þorsteinsson sætti þannig sömu meffferð og þriffja síffa Tímans. Hann var hreinsaff- ur, enda naumast vanþörf á“. „Honum Ólafi Thors“ Eitt dæmi um ‘,hreinsunina‘ á Eiríki er þetta. Tíminn prentar orffrétt eftir honum: „Frumvarpiff boffar algera bylt ingu á íslandi enda var ekki unnt aff koma því fram hér á Alþingi nema aff fá til liðs viff það upp- reisnarforingjann Einar Olgeirs- son. Þaff er hann og gamáll sálu- félagi hans, Áki Jakobsson ásamt honum Ólafi Thors, sem ráða ferffinni í þessu réttlætismáli, eins og þeir kalla þaff“. Þeir, sem hlustuffu á Eirík halda ræffu sína, heyrðu hann segja „ásamt hálf-dananum Ólafl Thors“. Af hverju mega lesend- ur Tímans ekki vita, hvaff maff- urinn í raun og veru sagði?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.