Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 13
Miðvik'udagur 29. apríl 1959
MORGVNBLAÐ1Ð
13
Grétar Jónsson - Minning
í DAG er til moldar borinn ung-
ur sveinn, Grétar Jónsson. Hann
var fæddur á Nesjavöllum í
Grafningi hinn 28. febrúar 1945.
Náttúrufegurð og fjölbreytileiki
er þar með því mesta, sem land
vort má bjóða. Á aðra hönd er
Hengillinn með sínu umhverfi og
á hina Þingvallavatn. Varla mun
uppvaxandi æska eiga völ unaðs-
legra umhverfis. Þarna óx hann
upp í hópi átta systkina og skjóli
foreldra sinna. Hann varð stór
eftir aldri, fríður sýnum, ljúfur í
lund og eins og geisli af Ijósi
gæfunnar. Hann horfði fram til
lífsins og vænti góðs. Fyrsti áfang
inn varð fermingardagurinn á
næsta vori og síðan allir fram-
tíðardraumarnir.
í skólanum veiktisí hann og var
fluttur á sjúkrahús á Selfossi. Þar
var hann skorinn upp við botn-
langabólgu 3. febrúar, Allt gekk
vel í fyrstu, og menn hugðu þetta
smámuni eina. En um það leyti,
sem batinn hefði átt að algerast,
varð breyting í öfuga átt og hélt
svo fram. Hinn 10. marz var hann
fluttur á Landsspítalann og skor
inn þar að nýju. Var allri tækni,
kunnáttu og alúð þéirrar stofn-
unar beitt honum til bjargar.
Þess skal með þakklæti getið, því
mikið liggur við að líknarhendur
bregðist ekki. Eigi að síður varð
við ekkert ráðið. Sólarhring eftir
þriðja uppskurðinn andaðist hann
hinn 19. apríl. Hafði hann þá
barizt við sjúkdóm og þjáningar
í 17 daga.
Líkn er það i sorg foreldra hans
og systkina að minnast þess hug-
rekkis og rólyndis, sem hann
sýndi í baráttu sinni. Með þakk-
látssemi og prúðmennsku létti
hann og hjúkrunarliði störf þess.
Meiri huggun er þó vissa heil-
agrar trúar, hún sér gegnum og
yfir allt sorgarmyrkur og von-
brigði og veit að sérhver Guðs
gjöf hefur tilgang og nær hon-
um. Gildir þá eins um þá gjöf,
sem maður sér á bak fyrr en
maður óskaði.
Vertu sæll, vinur.
Inga Bjarnadóttir.
4ra herbergja íbúð
Höfum til sölu í Laugarneshverfi mjög faliega 4ra
herb. íbúð 113 ferm. Teppalögð gólf. Sér hiti. Stórt
geymsluherbergi fylgir. Tvöfalt gler
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl. Gísli G. Isleifsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignasala
Austurstræti 14, II. hæð Símar 2-28-70 og 1-94-78
í BÚÐ
3 herbergi og eldhús við Brávallagötu til sölu. Nánari
upplýsingar gefur
mAlflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar
Aðaistræti 6, III. hæð.
sem gefur nánari uppi. Símar: 1-2002, 1-3202, 1-3602
Aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkur árið 1959 fer
fram við hús sérleyfisbifreiða Keflavíkur dagar a 4.—19.
maí næstk. kl. 9—12 og kl. 13,30—16,30, svo sem hér
segir:
Mánudag 4. maí Ö-1 til ö-ioo
Þriðjudag 5. — 0-101 — Ö-150
Miðvikudag 6. — 0-151 — Ö-200
Föstudag 8. — Ö-201 — Ö-250
Þriðjudag 12. — Ö-251 — Ö-300
Miðvikudag 13. — Ö-301 — Ö-350
Fimmtudag 14. — Ö-351 — Ö-400
Föstudag 15. — Ö-401 — Ö-450
Þriðjudag 19. — Ö-451 — Ö-550
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skírteini.
Sýna ber og skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og
vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1958 séu greidd
og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki
framkvæmd og bifreiðin tekin úr umferð, þar til gjöldin
eru greidd.
Kvittun fyrir greiðslu afnotagjalds útvarpsviðtækis
í bifreið, ber og að sýna við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
réttum degi, án þess að hafa áður tilkynnt skoðunar-
mönnum lögmæt forföll með hæfilegum fyrirvara, verður
hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðalögum og
Iögum um bifreiðaskatt, og bifreið hans tekin úr umferð,
hvar sem til hennar næst.
Þetta er hér með tilkynnt öllum þeim, sem hlut eiga
að máli.
Bæjarfógetinn í Keflavík, 27. apríl 1959.
Alfreð Gíslason
HAPPDRÆTTISLÁN f. í
TRYGGIÐ YÐUR HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF STRAX í DAG
— Ldtið ekki happ úr hendi sleppa —
'k
k
255 Vinningatr að verðmæti 380 þús. kr.
102 Aukavinningar (aðeins þetta eina skipti)
þar á meðal:
Flugferð til Parísar fyrir tvo ásamt
hálfsmánaðar dvöl.
Flugferð til Kaupmannahafnar fyirir tvo
ásamt hálfsmánaðar dvöl.
Happdrættisskuldabréfin kosta aðeins 100 kr.
og verða endurgreidd 30. des. 1963 með 134 kr.
Happdrættisskuldabiréfin fást hjá öllum
afgreiðslum félagsins og flestum bönkum og
sparisjóðum
y/f/rem
/CJF/A jVjOA //?