Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.1959, Blaðsíða 8
8 MORGVNBT/AÐIh Miðvilíudagur 29. apríl 1959 „Mary Tyrone hefur ásótt mig síðon ég vissi, að ég átti oð leika hana Spjallað við Arndisi Björnsdóttur um leikritið „Húmar hægt að kvöldi og höfund jbess 5UMIR fara í leikhús fyrst og fremst til að hlægja. Aðrir til að hugsa — og finna til. Það á sem sagt engu að síður við um smekk manna og viðhorf gagnvart leikhúsinu heldur en hvað annað, að svo er margt sinnið sem skinnið og að sjálfsögðu er hverjum og einum borgara í lýðfrjálsu landi frjálst að verja sín- am leikhúsmiða til að sjá og heyra það, sem tiugurinn girnist helzt hverju sinni Samt er það svo, að þrátt fyrir ágæti og vinsældir margra gamanleikara, þá eru það jafnan harmleikir, sem fyrr og síðar hafa borið hæst í heimi leiklistarinnar. Harmleikir, þar sem mannlegur breyskleiki og mannleg ör- lög í sinni átakanlegustu nekt og misskunnar- leysi eru dregin fram á sviðið. Undarlegt og öfugsnúið - segja margir — að langa í leikhús til að koma hálfgrátandi og niður- beygður til baka! Já, kannski er það undarlegt, en finnst okkur ekki líka lífið sjálft stundum undarlegt — og langt frá því að vera tómur leikur? Verður okk- ur ekki harmleikurinn hugstæð- ari einmitt vegna þess, að þar finnum við oft okkur sjálf miklu frekar heldur en þar, sem slegið er á hina yfirborðslegri strengi hláturskenndarinnaf? Hið stórbrotna leikrit, sem Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir: Húmar hægt að kvöldi“ eftir bandaríska höfundinn Eug- ene O’Neill er eitt af þeim fáu leikritum, sem grípur mann um sjálfar hjartaræturnar, ef svo mætti segja. Þeir sem fara í leik- hús bara til að hlæja ættu ekki að gera sér ómak til að sjá það. Fyrir hina, sem geta hrifizt svo með áhrifamiklu efni og áhrifa- miklum leik að þeir gleyma því að þeir eru í leikhúsi — er hér hins vegar einstakt tækifæri á ferð. Efni leiksins er annað og meira en átakanlegur skáldskapur. Það er sönn mynd af lífi höfundarins, hvert orð „skrifað með hans hjartablóði" eins og hann komst sjálfur að orði. Hinn sannsögu- legi harmleikur um Gyðinga- stúlkuna Önnu Frank hefir snort ið allan heiminn til aðdáunar og meðaumkunar í senn. örlög O’Neill fjölskyldunnar, í gervi Tyrone fólksins hefir einnig, þótt með ólíkum hætti sé, seitt til sín með undarlegum krafti milljónir leikhúsgesta um allan heim. — Mary Tyrone, móðir skáldsins, Edmunds, er í krafti sínutn og veikleika ein af þessum persón- um, sem halda manni lengi eftir að tjaldið fellur. En hvað um leikendurna sjálfa, ef áhorfandinn er grip- inn svo föstum tökum? Þessi spurning kom ósjálfrátt fram í huga mér, að lokinni sýningu á „Húmar hægt að kvöldi“. Hvi ekki að snúa sér beint til Arn- dísar Björnsdóttur, sem fer af 0 Hjálpræðisherinn Heimsókn frá Noregi KOMMANDÖR EM. SUNDIN Umdæmisstjóri Hjálpræðishersins yfir Islandi, Færeyjum og Noregi. og OFURSTI JOHS. KRISTIANSEN Fjármálafulltrúi Fagnaðarsamkoma verður haldin 1. maí kl. 20,30 í húsi K.F.U.M. K.F.U.M. kórinn syngur. — Lúðra og strengjasvc. Hjálpræðishersins. Verið velkomin! íbúð í Hlíðunum Góð íbúð í Hlíðunum, efri hæð og ris, 150 ferm. er til sölu. — Semja ber við undirritaðan EGILL SIGURGElKftSOi' trl. Austurstræti 3 — Sími löo58. snilld með hlutverk hinnar hrjáðu konu, Mary Tyrone og spyrja hana blátt áfram’ hvernig henni sé innanbrjósts þessa dagana, sem hún stendur í eldinum. — Arndís á um þessar mundir fjöru tíu ára leikafmæli og við vitum, að hún kallar ekki allt ömmu — Jú, — segir Arndís aðspurð. Ég verð að segja að þetta er erfitt hlutverk, það erfiðasta, held ég, sem ég hefi fengið að glíma við. Ég skal segja þér alveg eins og er, að ég hefi fjanda- kornið ekki getað losað mig við Maríu Tyrone, síðan í desem- ber í vetur, þegar ég fyrst vissi, að ég ætti að leika hana. — Varla, að ég hafi getað fest mig niður við að lesa góða bók. María Tyrone hefir óðar verið komin þar, — hún hefir bókstaflega ásótt mig. Heldurðu ekki að það sé í fyrsta skipti, sem slík persóna — kona á valdi eiturlyfja — er sýnd á íslenzku leiksviði? Ég skal nú ekki fuliyrða neitt um það — en þó hygg ég, að svo muni vera. En eiturlyfið er það einmitt, sem gerir hlutverkið í senn svo vandmeðfarið og seið- magnað. Hinar feykisnöggu skap breytingar — gerbreyttur svip- ur — gerbreyttar hreyfingar —, sem alltaf 'verða að haldast í hendur, vera í samræmi hvert við annað — og allt í einu augna bliki — þetta er mjög erfitt. Auð- vitað er alls ekki hægt að leika svona hlutverk nema undir góðri leikstjórn og mig langar til að þakka leikstjóranum okkar, Ein- ari Pálssyni sérstaklega fyrir hve duglegur og nákvæmur hann hef- ir verið við að leiðbeina mér einmitt um þessi vandamiklu atriði. Það er svo einkennilegt segir Arndís eftir dálitla þögn, — og horfir framfyrir sig eins og ann- ars hugar, — alltaf þegar ég fæ nýtt hlutverk, þá sé það fyrst fyrir mér í litum. María Tyrone var í einhverjum fölvakenndum blágráum lit — með gulleitum blettum. Kannski hef ég sett gráa litinn í sambandi við þok- una, sem höfundurinn notar greinilega sem tákn ógæfunnar — eiturlyfsins og eymdarinnar í kjölfar þess. — Já, ég sé þau öll fyrir mér í litum — nema „kerlinguna mína“ í Gullna hlið inu. Hana sé ég alltaf — eða réttara sagt heyri — í tónum. Mér fihnst ég heyra óminn af sálmalaginu „Vist ertu Jesú kóng ur klár“ í sambandi við hana — þessa guðhræddu góðu konu. — Bros færist yfir andlit leikkon- unnar, en við snúum okkur aft- ur að Eugene O’Neill og Tyrone fjölskyldunni. — Voruð þið ekki lengi að æfa þetta leikrit? — Við æfðum það í rétta tvo mánuði og höfum lifað og hrærst í því allan tímann — og reyndar áður, eins og ég sagði áðan. Ég hefi lesið heil ósköp, ekki einungis um leikritið sjálft heldur ekki síður um höfundinn sjálfan, Eugene O’Neill, bæði af einskærum áhuga og til þess um leið að fá sem gleggstan skilning á leikritinu. Nokkrir leikarar í Stokkhólmi sendu mér, er þeir vissu, að ég átti að fara með hlutverk Maríu Tyrone, bók, sem hefir að geyma margar merki- legar upplýsingar um O’Neill og ævi hans. Þar kemur fram, eins og reyndar víðar, að hann skrif- aði þetta leikrit beinlínis til að létta af sér fargi minninganna um hið misheppnaða og gæfu- snauða fjölskyldulíf hans, yfir- skyggt sífeldum ugg og vonleysi. Það hefir hvílt á honum eins og mara. Það virðist ef til vill dá- lítið harðýðgislegt af honum að draga líf nánustu ástvina svo miskunarlaust fram í dagsljósið, enda mælti hann svo fyrir, að leikritið skyldi eigi sett á svið fyrr en að þeim — og honum sjálfum látnum. Það hefir líka komið í ljós, að Eugene O’Neill hafði mörg og merkileg áform á prjónunum, sem honum entist ekki heilsa og aldur til að koma í framkvæmd. En honum voru búin þau dapur- legu örlög að honum varð mein- að að tjá það, sem hann bjó yfir hið innra. Sjúkdómur í heila, sem olli lömun á talfærum og gerði hann um leið ófæran til að skrifa, varnaði honum að koma á framfæri fjölda leikrita, sem lágu ófullgerð í skrifborðs- skúffunni hans, en bera þó svo greinileg merki stórfenglegra listaverka, að augljóst er, að við höfum þarna misst mikils. Það er einkennilegt fólk, þessi Skrifstofusfúlka Skrifstofustúlka vön erlendum bréfaskriftum óskast. Gísli Jónsson & C.o. h.f. Ægisgötu 10, Reykjavík, Sími 11740 Tiillubótur 4,5 smál. 20 H.A. Buhk dieselvél, línuspil og raflýstur. Upplýsingar í símum 238 og 141 Akranesi. Tyrone-fjölskylda, — finnst þér það ekki? Stöðugt reiðubúið til að bera hvort annað hinum grimmilegustu sökum og jafn- reiðubúið til að fyrirgefa og gleyma — og rifja upp á ný! Já, það er nóg um ásakanir, en í rauninni er ekki hægt að tala um sök hjá neinu þeirra. Þetta er aðeins fólk, sem lífið hefir farið illa með. Fólk, sem hefir ekki verið nógu sterkt til að standa af sér erfiðleikana heldur hefir sligazt. ólukkan er kannski fyrst og fremst sú, að tvær svona afskaplega óiíkar manneskjur eins og Tyrone-hjón in eru skuli lenda sarnan. Þau eru gripin úr gerólíku umhverfi og eiga svo sem ekkert sameigin- legt — nema ástina hvort til ann ars, sem endist þeim furðu vel. Það er nú auðvitað ljósi punkt- urinn í því öllu. — En til hvers að setja allt þetta á leiksvið? — Já, það er nú það. — Og Arndís kímir við, er nún held- ur áfram: Mér hefir stundum verið borið á brýn, að ég sé hreinasti „sudisti“, vegna þess, hve ég hafi jnikl&r mætur á öllu „tragisku“ á ieiksviði. Ég, sem vil helzt ekki þurfa að horfa á flugu deyja! — Mér hefir líka alltaf þótt SKemmtilegt að horfa á gamanleiki og hlæja af hjarl- ans lyst. Hins vegar hefi ég aldrei getað skilið fólk, sem ekki hefir neinn áhuga á að sjá, hvernig brugðizt er við hinu sorglega og alvarlega 1 lífinu. Ekki snertir það þó okkur minna en hitt, sem við hlæjum að. — Og er það ekki einmitt lífið sjálft, í gleði þess og alvöru, sem verið er að reyna að túlka á leiksviðinu? Mér dettur í hug atvik frá liðnum árum. Ég var stödd í húsi með mörgu fólki. Ég sá, að kona ein meðal gestanna var ekki rétt vel frísk og þegar leið á kvöld- ið bauðst ég til að fara með henni heim. Við fengum okkur leigu- bíl og ókum heim að húsi kon- unnar, en þegar við stigum út úr bílnum leið hreinlega yfir hana og bílstjórinn bar hana inn þann ig á sig komna. — Viðbrögð eig- inmanns hennar, er hann kom á móti okkur í stiganum, áður en nokkurt tóm hafði gefizt til skýr- inga, greiptist með einhverjum hætti í undirvitund mína — eða það fann ég fyrst mörgum ár- um síðar, er ég átti á leiksviði, í „Loganum helga“, að túlka við brögð móður, sem er að játa sig seka um að hafa byrlað barninu sínu eitur — að vísu til að stytta því þjáningafullt og gleðisnautt líf. Þetta var sterkt og örlaga- ríkt augnablik í leiknum — augnablik játningarinnar, og með einhverjum undarlegum hætti, sem ekki er gott að út- skýra — hvarf ég eins og ósjálf- rátt mörg ár aftur í tímann, er ég sá manninn standa andspæn- is þeirri hugsanlegu staðreynd, að konan hans hefði orðið fyrir alvarlegu slysi — væri jafnvel dáin. Ég sá allt í einu fyrir mér, \ hvernig hann slaknaði allur á einu augnabliki og það var sem lífsglampinn hyrfi úr augum hans og svip. — Það var eins og þetta augnabliksviðbragð manns ins hefði ljósmyndazt í undir- meðvitund minni og nú skaut „ljósmyndinni" upp, þegar ég þurfti hennar með — og ég tók augnablikið að láni. Ég vissi, að mér hafði tekizt að túlká það, sem ég ætlaði mér, þegar eirm leikhúsgestanna sagði við mig á eftir, að ég hefði á einu augna- bliki elzt um mörg ár. Ég má til með að bæta því við, segir Arndís, að konunni, sem um var að ræða varð ekkert frekara meint af yfirliðinu og maður hennar fyrirgaf mér fús- lega, er ég sagði honum hrein- skilningslega, hvernig ég „tók hann að láni“! En svona er það oft með okkur leikarana, að við eins og ljósmyndum ósjálfrátt í undirmeðvitund okkar ýmis kon- ar reynslu og atvik úr hinu raun verulega lífi og geymum „ljós- myndina", þangað til við þurfum á henni að halda. Slb .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.