Morgunblaðið - 29.04.1959, Side 2
2
MORCUNBLAÐ1Ð
Miðvlkudagur 29. apríl 1959
Vill kaupa allar neoan-
iarðarbrautir í New York
MILLJÓNAMÆRINGUR af rúss-
neskum ættum hefur falað allar
neðanjarðarjárnbrautir NewYork
borgar til kaups ásamt öllum
stöðvum, verkstæðum, skemmum
og um 350 kílómetra löngum
brautum. Borgarstj órnin í New
York athugar þetta tilboð gaum-
gæfilega nú um þessar mundir.
Maðurinn er O. Roy Chalk, sem
er forseti flugfélagsins Trans
Caribean Airways. Hann óskar
eftir 50 ára samningi og skuld-
bindur sig til, ef af kaupunum
verður, að framkvæma umbætur
og sjá um lengingar brauta fyrir
um það bil 500 miljónir króna ár-
lega. Þessu tilboði er tekið alvar-
lega af stjórnendum New York
vegna þess, að á undanförnum
árum hefur verið geysiiegt tap á
rekstri neðanjarðarbrautanna, ea
afleiðingar þessa eru þær, að leng
ingar brauta og aðrar nauðsyn-
iegar umbætur hafa ekki verið
framkvæmanlegar. Hr. Clialk,
sem hefur hjálpað sér sjálfur,
heldur að hann geti fljótlega feng
ið fyrirtækið til áð borga sig, þar
sem hann sér fram á að fargjalda •
hækkanir séu nauðsynlegar og
heldur því jafnframt fram, að
þeim verði tekið með jafnaðar-
geði ef þjónusta neðanjarðarlest-
anna verði bætt, en henni er mjög
ábótavant sem stendur. Fyrir,
þremur árum tók Hr. Chalk að
sér allt flutningakerfi Washing- j
ton borgar sem rekið var með
tapi, og á þessum þremur árum,
sem fyrirtækið hefur verið í um-
sjá Chalk hefur vegur þess farið
stöðugt vaxandi. Væri ekki ráð
að vekja áhuga Hr. Chalk á tog-
araútgerðinni íslenzku!
Einn mildasti vetur í
manna minnum á
Hólsfjöllum
GRUNDARHÓLI, Hólsfjöllum,
sumardaginn fyrsta — Þá er nú
þessi veturinn liðinn, og var hann
einn hinn mildasti sem komið
hefir í manna minnum. Fyrri
hlutann allt til jóla, sá varla snjó,
og fé gekk sjálfala í högunum.
Um hátiðirnar spilltist tíð nokk-
uð, og var allfrosthart um þriggja
vikna skeið. Um Þorratunglið
batnaði aftur og hélzt nær óslit-
ið blíða fram um miðjan einmán-
uð, en þá gerði dálítinn risju-
kafla og setti niður nokkurn snjó.
En batnaði laust fyrir sumarmál-
in, og er nú að kalla snjólaust.
Bilfært hefir verið hér af og til
í vetur, og hefir fólk notað sér
það óspart. Um páskana kom
hér fólksbíll frá -Akureyri og
gekk honum vel. Mun það ekki
hafa skeð áður.
Garnaveiki
færist í vöxt
VIÐ rannsókn þá, sem gerð var
á Hólabúinu og getið er á öðrum
stað hér í blaðinu, hefur það
komið í Ijós, að garnaveiki virð-
ist nú á ný vera að færast í auk-
ana á Hólum, enda er bærinn á
einu hinna svonefndu garnaveiki
svæða. Ber bændum skylda til að
senda sýnishorn (mjógarnar-
búta) til rannsóknar úr öllum
nautgripum, sem felldir eru á
hinum svonefndu garnaveiki-
svæðum, en á því hefur víða
orðið misbrestur undanfarin ár.
Er það illa farið, því rannsókn
á görnum og blóðpróf eru einu
ráðin sem tiltæk eru til þess að
fyigjast með útbreiðslu gama-
veikinnar.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu þingi og að honum lokn-
um fundir í báðum deildum.
Dagskrá sameinaðs Alþingis:
1. Mæðiveikivarnir á Vestfjörð-
um, þáltill. — Hvernig ræða
skuli. — 2. Landhelgismálið,
þáltill. — Hvernig ræða skuli.
— 3. Fjárlög 1959, frv. — Frh.
3. umr. (Atkvgr.).
Dagskrá efri deildar Alþingis:
1. Tekjuskattur og eignarskattur,
frv. — Frh. einnar umr. — 2.
Bæjarstjórn í Hafnarfirði, frv.
— 2. umr. — 3. Bjargráðasjóður
íslands, frv. — 2. umr.
Dagskrá neðri deildar Alþingis:
1. Byggingarsjóður Listasafns ís-
lands, frv. — 2. umr. — Z. Orlof,
frv. — 1. umr. — 3. Virkjun Sogs-
ins, frv. — 3. umr. — 4. Stjórnar-
skrárbreyting, frv. — Frh. 3.
umr.
Heilsufar hefir verið nokkuð
gott, annars fylgir samgöngunum
alltaf einhverjar kvefpestir og
kvillar, og hefir verið nokkuð um
það hérna.
Skepnuhöld hafa verið með af-
brigðum góð, og hefir varla nokk
ur maður misst fé. Hættur fyrir
fé voru aldrei neinar í vor, og er
það nær einsdæmi.
Gróðurnæli er farið að sjást
hér, og eru sumir búnir að sleppa
fé. Lóan var að syngja sitt fyrsta
lag fyrir utan gluggann hjá mér,
þegar ég var að ljúka þessum lin-
um. — Víkingur
Veiðar hafa gengið
illa lijá límibátum
á Bíldudal
BÍLDUDAL, 27. apríl. — Undan-
farið hafa veiðar gengið illa hjá
línubátunum, og hefir afli verið
tregur. 1 sl. viku var uppurin öll
loðna til beitu, og steinbíturinn
tekur ekki síldina, sem nú er
beitt. Einn bátur, sem gerður er
út á handfæraveiðar hefur aflað
sæmilega. Rækjuveiði er góð.
Inflúenza er orðin töluvert út-
breidd hér á Bíldudal. Veikin er
fremur væg. — Hannes.
Óvenjusnjólétt
á Siglufjarðar-
skarði
SIGLUFIRÐI, 28. apríl. — Menn,
sem nýlega gengu Siglufjarðar-
skarð, hafa þær fréttir að segja,
að þar sé nú óvenju snjólétt.
Mun bílfært upp að neðri vega-
mannakofa Skagafjarðarmegin
skarðsins og Siglufjarðarmegin
er ekki snjór að ráði nema í svo-
nefndum SneiðingL
Bæjarstjórn Siglufjarðar hef-
ur af þessu tilefni sent vegamála
stjóra áskorun þess efnis, að nú
þegar verði hafizt handa með að
ryðja snjó úr Siglufjarðarskarði.
— Stefán.
Utanríkisráðlierra
til fundar
PARlS, 28. april. — Utanríkis-
ráðherrar Bretlands, Bandaríkj-
anna, V-Þýzkalands og Frakk-
lands munu nú setjast á rökstóla
til þess að ræða undirbúning að
utanríkisráðherrafundi austurs
og vesturs, sem hefst í Genf 11.
maí. — Bandaríski utanríkisráð-
herrann kom til Parísar í dag.
Félagið Fílharmónía
kemur upp söngsveit
Mun beita sér tyrir flutningi stórra kórverka
Violet Plowman.
Kaharettsöngkona
á Röðli
Veitingahúsið Röðull er nú að
ráða til sín erlenda skemmti-
krafta og fyrsta skemmtiatriðið
að þessu sinni er kabarettsöng-
konan Violet Plowman, sem kem
ur frá London. Hún hefur komið
fram á mörgum skemmtistöðum
í London og víðar um Bretland,
einnig hefur hún komið fram í
kabarettum í Vínarborg, París og
Briissel, alls staðar við góðar
undirtektir. Hin 25 ára, Ijóshærða
Violet Plowman, sem heillað hef-
ur Vínar- og Parísarbúa með
skemmtiatriði sínu, gerir sjálf-
sagt það sama hér norður á
Fróni. Violet Plowman skemmtir
á Röðli næstu viku. Einnig er
von á fleiri erlendum skemmti-
atriðum að Röðli á næstunni. —
KFUK — Kristilegt félag ungra
kvenna — í Reykjavík er 60 árá
í dag. Félagið var stofnað árið
1899, aðeins tæplega fjórum mán-
uðum eftir að bróðurfélagið,
KFUM, hóf starfsemi sína, en það
varð sextugt 2. jan. sl. Bæði
starfa þessi félög innan lúthersku
kirkjunnar, eins og kunnugt er.
Vill Bandaríkja-
her áf ram í Evrópu
PARÍS, 28. apríl. — Murville,
utanríkisráðherra Frakka, sagði
í ræðu í dag, að áætlun Rússa
um framtíð Berlínar gerði ráð
fyrir því, að líf V-Berlínarbúa
væri háð viljaþreki annarra —
meðan þeir biðu þess að verða
gleyptir af kommúnistum. Kvað
hann Vesturveldin ekki mundu
geta sætt sig við áætlanir Rússa
um Berlín. Kvað hann Frakka
mundu halda fast við það, að með
einhliða ráðstöfunum ættu Vest-
urveldin ekki að veikja varnir
sínar — og Bandaríkjaher ætti
enn að vera í Evrópu um skeið.
PATREKSFIRÐI, 23. apríl. —
Veðurfar hefir verið mjög gott
undanfarna daga. Atvinna hefir
verið mikil, og mikill skortur
á verkafóiki. Afli togaranna frá
áramótum sem landað hefir verið
innanlands er þessi: B.v. Gylfi
892 smál. og b.v. Ólafur Jóhannes
son 865 smál., en hann er nú á
heimleið með ca. 300 lestir af
Grænlandsmiðum, mestmegnis
þorsk. — Afli línubáta var með
bezta móti á vertíðinni.
Nokkrir trillubátar hafa byrj-
að handfæraveiðar og hefir afli
verið góður. Trillubátaeigendur
eru nú sem óðast að búast á
veiðar, og vænta menn góðs af
þeirri vertíð.
Loginn helgi eftir Somerset
Maugham verður frumsýndur n.
k. laugardagskvöld á vegum
Slysavarnadeildarinnar Unnur.
NÝLEGA var stofnað hér í bæn-
Um félag til eflingar tónlistar-
starfsemi í landinu. Félag þetta
nefnist Fílharmónía og hyggst
það einkum beita sér fyrir flutn-
ingi stórra kórverka. Til þess ætl
ar það að koma upp söngsveit,
eða blönduðum kór a. m. k. 70
karla og kvenna, og hefur Robert
A. Ottóson verið ráðinn aðalstjórn
andi hans. Mun hann þjálfa söng-
sveitina og vera ráðunautur fé-
lagsstjórnarinnar um starfsem-
ina.
Gert er ráð fyrir að starfi sveit-
arinnar verði hagað á sem lík-
astan hátt og hjá hliðstæðum
söngsveitum erlendis, er flytja
að staðaldri meistaraverk kór-
sönglistarinnar, en enginn af
þeim kórum sem nú starfar er
megnugur að flytja þessi kór-
verk. Eftir að búið er að færa
verkin einu sinni upp, er ætl-
unin að kórinn hafi þau tiltæk
og flytji þau öðru hverju.
Félagið Fílharmonía hyggst
leita eftir nánu samstarfi við
Sinfóníuhljómsveit fslands, Tón-
listarskólann í Reykjavík, Ríkis-
útvarpið og aðra aðila, er að tón-
listarmálum vinna. Það mun leit-
ast við að veita söngfélögunum
sem bezt starfsskilyrði, t.d. með
því að afla þeim söngkennslu,
eftir því sem þurfa þykir og við
verður komið, enda verður starf
söngfólksins ólaunað. Er það ekk-
ert skilyrði að væntanlegir kór-
félagar hafi sungið í kór áður.
f stjórn félagsins eru: Þor-
steinn Hannesson, óperusöngvari,
form. og meðstjórnendur þeir Jón
KFUK hefir unnið að kristin-
dómsmálum bæði meðal barna og
fullorðinna. Það hefur í mörg
ár starfrækt sunnudagaskóla
ásamt KFUM. Telpnadeild og
unglingadeild hafa fundi sána
vikulega á vetrum, sömuleiðis að
aldeild félagsins, sem er deild
hinna fullorðnu. Þá hafa konur
þær, sem vilja vinna fyrir kristni
boð, stofnað með sér sérstakan
flokk innan félagsins. Sumarbúð-
ir starfrækir KFUK í Vindáshlíð
í Kjós. Þar er myndarlegur
skáli, og gamla Hallgrímskirkj-
an, sem var í Saurbæ, var flutt
þangað í fyrra, og stendur hún
skammt frá skálanum. — Núver-
andi formaður KFUK er frú Ás-
laug Ágústsdóttir. —
í tilefni afmælisins efnir fé-
lagið til söngkvölds í húsi sínu
að Amtmannsstíg 2B á morgun,
fimmtudagskvöld, kl. 8,30. Syng-
ur þar kór félagsins undir stjórn
Helgu Magnúsdóttur. Einnig
verður einsöngur, afmælisþáttur
og hugleiðing. Tekið verður á
móti gjöfum til styrktar starf-
semi félagsins. Allir eru velkomn
ir á samkomu þessa meðan hús-
rúm leyfir, og er aðgangur ó-
keypis.
Kvöldvaka Sögu-
félags Isfirðiuga
ÍSAFIRÐI, 28. apríl. — 1 síðustu
viku efndi Sögufélag ísfirðinga
til kvöldvöku í fundarsal Kaup-
félags ísfirðinga. Þar flutti Jó-
hann Gunnar Ólafsson, bæjar-
fógeti, erindi um stofnun bæj-
arstjórnar á ísafirði, en árið
1966 eru 100 ár liðin frá því bæj-
arstjórn var kjörin hér í fyrsta
sinn.
Erindi Jóhanns Gunnars var
bæði fróðlegt og skemmtilegt. Að
erindinu loknu var sýnd kvik-
mynd frá byggðum Vestur-ís^
lendinga í Kanada. Fundarsalur-
inn var þéttskipaður áheyrend-
um. — G. K.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar, dr.
Páll ísólfsson, tónskáld, Jóhannes
Nordal, bankastjóri, Bjarni
Bjarnason, læknir, Guðrún Páls-
dóttir, söngkennari og Ingólfur
Guðbrandsson, söngnámsstjóri.
Stofnendur félagsins eru áhuga
menn um tónlist úr öllum stétt-
um þjóðfélagsins, og hafa þeir
tekizt á hendur að koma kórn-
um af stað og styðja við bakið á
honum, eins og forráðamenn fé-
lagsins komust að orði í viðtali
við blaðamenn. Stofnendur eru:
Árni Kristjánsson, skólastjóri,
Björn Guðmundsson, fulltrúi,
Björn Jónsson, framkvæmdast.,
Björn Ólafsson, fiðluleikari,
Davíð Davíðsson, prófessor, Gísli
Guðmundsson, fulltrúi, frú Guð-
rún Sveinsdóttir, Guðrún Þor-
steinsdóttir, söngkennari, Gunn-
ar Guðmundsson, forstjóri, Har-
aldur Sigurðsson, forstjóri, Hauk
ur Gröndal, forstjóri, Jón Nordal
tónskáld, Jórunn Viðar, tónskáld,
Ólafur Þorgrímsson, hrld., Ragn-
ar Jónsson, forstjóri, Róbert A.
Ottóson, söngstjóri, Sigurbjöm
Einarsson, prófessor, Sigurður
Birkis, söngmálastjóri, Dr. Sigurð
ur Sigurðsson, berklayfirlæknir,
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
og Þórarinn Guðnason, læknir.
Félagið Fílharmonía auglýsir
í blöðunum þriðjudaginn 28. apríl
eftir væntanlegum þátttakend-
um.
Fyrstu lömbin
á Akranesi
AKRANESI, 27. apríl. — Hjá eln-
um fjáreiganda hér í bænum eru
fimm ær bornar samtals 10 lömb-
um, og 3 ær eru bornar hjá öðr-
um samtals 5 lömbum. Einlemb-
an bar á fyrsta sumardag þrílitu
hrútlambi. — Oddur.
V arsjárbandalagið
,,sammálau
VARSJÁ, 28. apríl. — Utanríkis-
ráðherrar Varsjárbandalagsríkj-
anna átta luku tveggja daga fundi
í dag. Fundurinn var haldinn að
tilhlutun Ráðstjórnarinnar og
áttu Kínverjar fulltrúa þar. Tal-
ið er, að allir ráðherrarnir hafi
lýst stuðningi við stefnu Ráð-
stjórnarinnar í einu og öllu og
verið sammála hvað viðvíkur
ákvörðuninni um að afhenda A-
Þjóðverjum Berlín í vor.
Söngmót Kirkjii-
kórasambands Mýr
arprófastsdæmis
á Akranesi
BORGARNESI, 27. apríl —
Kirkjukórasamband Mýrar-
prófastsdæmis hélt söngmót hér
í Borgarnesi í gær. Þar sungu
kirkjukórar Borgarnessóknar,
Hvammssóknar, Hjarðarholts- og
Norðtungusóknar, Stafholtssókn
ar og Borgarnessóknar. Á söng-
skrá voru fjögur lög hjá hverjum
kór, og síðan sungu þeir samegin-
lega fimm lög. Söngstjórar voru
Halldór Sigurðsson og Bjarni
Andrésson, og undirleikarar Stef-
anía Þorbjarnardóttir og Kjartan
Jóhannesson. Ávarp flutti séra
Leó Júlíusson, en prófasturinn
séra Bergur Björnsson þakkaði
söngfólki, söngstjórum og undir-
leikurum. í kórnum eru samtals
um 100 manns. Söngnum var
mjög vel tekið, söngfólkinu ákaft
fagnað og var samkomuhúsið
troðfullt af áheyrendum.
— Friðrik
KFUK 60 ára í dag