Morgunblaðið - 29.04.1959, Side 16
16
MORCTiivnr jntÐ
Miðvikudagur 29. apríl 1959
TÆmm
IFT/R M/CHAEL GRAT SOLT/KOW
50NN NJOSNARSAGA OR.
NEIMSSTYR.JÓLD/NN/ SÍÐAR/
,Þama — sjáið þér“.
Emile bendir á götuna. Þar
m'ðri gengur glaésileg kona upp að
dyrum hússins nr. 13. Hún gengur
hægt og með vaggandi göngulagi.
Það dregur niður í Emile, þegar
hann segir:
„Þetta er frú Bouffeti"
„Við verðum fyrir alla muni að
forðast að vekja eftii-tekt“, segir
Bleiöher. „Við megum ek'ki taka
hana fasta í íbúð hennar. Þjónustu
stúlkan gæti þvaðrað um það og
þar með væri Páll aðvaraður og
allir þeir, sem eru að baki“.
Því næst gerir hann áætlun sína:
Emile á að fara til frúarinnar og
ginna hana til Café de la Paix,
tveim þvergötum fjær, undir þvi
yfirskini að beðið sé um viðtal við
hana. Á leiðinni þangað, við næsta
götuhorn. mun vagn frá GFP bíða
hennar. Þar á það að gerast. —
Fljótt og án þess að vekja athygli.
Emile kinkar aðeins kolli. Hann
var aldrei orðmargur maður, og
alls ekki á þessari stundu, þegar
eitthvað virðist lama rödd hans.
Hann er dálítið rakur í lófunum
og undarlega magnlaus í hnjálið-
unum. En þá verður honum hugs-
að til þessa Páls, til hins illgirnis-
lega bross hans og hins háðslega
augnaráðs frúarinnar, þegar hann
stóð fyrir framan hana. Honum
verður hugsað um Sévres-postulin-
ið sitt heima og um hin áhrifaríku
orð Hugo Bleiohers........1 snar-
kasti steypir hann Baskahúfunni á
höfuð sér, kveður með tveim fingr-
um og gengur rakleitt að dyrun-
um á húsinu nr. 13.
Mönnunum í dökku Limoges-bíln
um við næsta götuhorn finnst
næstu mínútumar vera eins lengi
að líða og 'klukkustundir. Sekúndu-
vísarnir á úrum þeirra snúast
storkandi hægt, þá — loksins opn-
ast dymar á húsinu nr. 13 og og!
frúin gengur út á götuna. — Við
hlið hennar gengur Emile og bað- í
ar höndunum. Þau koma hröðum
skrefum að bílnum, sem er lagt,
meinleysislega við stéttarbrúnina. j
Það, sem því næst gerist, er [
nokkurra sekúndna verk. Þrír,
menn úr GFP hlaupa skyndilega
út úr bílnum. Áður en frúin er bú- |
in að jafna sig eftir hræðsluna er
Skoda — Staíson
er kaupandi að SKODA-STATION. Tilboð er greini
verð og með upplýsingum um vagninn sendist afgr.
Mbl. fyrir 2. maí merkt: „1201-—9702“.
Stúlka eða eldri kona óskast til
afgreiðslustarfa
nú stj-ax eða frá mánaðamótum. Tilboð sendist Mbl.
merkt: „9705“.
íbúð til leigu
Glæsileg ný íbúð 95 ferm. 3 herb. og eldhús, neðri
hæð, til leigu í Kópavogi. Reglusemi áskilin og
greiðsla húsaleigu ca. 1 ár fyrirfram. Upplýsingar um
fjölskyldu óskast tilgreindar í umsókn merktri:
„Kársnes—9724“, sem sendist Morgunblaðinu.
Bieflavík lieflavík
LÖGTÖK
Eftir kröfu bæjarstjórans í Keflavík og að undangengn-
um úrskurði fógetaréttar Keflavíkur uppkveðnum í dag,
fara lögtök fram fyrir ógreiddum fasteignaskatti, hol-
ræsagjaldi og vatnsskatti, í Keflavík fyrir árið 1959, sem
gjaldféll 2. janúar síðastliðinn, að 8 dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar.
Bæjarfógetinn í Keflavík, 25. apríl 1959.
ALFREÐ GÍSLASON
hún gripin af sterkum k-arlmanns-
höndum, haldið fastri og sett í aft-
ursætið í vagninum. Enginn þeirra,
sem fara um, hefur tekið eftir þess
um atburði.
Emile grípa lí,ka stedkar hendur.
Með skelfingu í augnaráðinu og
opnum munni starir hann á menn-
ina, sem ætla að fjötra hann.
Jæja, það var þá svona, hugsar
hann. Það var þá aðeins blelcking,
nýja íbúðin, Sévres-postulínið —
allt eintóm svik, til þess að öðlast
þakklæti hans og láta hann Ijóstra
upp um hina samseku, svo að þeim
yrði náð.
Emile æpir í æðislegri reiði. —
Hann kastar sér á gólfið, brýtur
gleraugu eins GFP-mannsins og bít;
ur annan í höndina. Hann hamast
eins og æðisgengið, fangað dýr,
þangað til handjárnin lakazt um
úlfnliði hans og honum er kastað
inn í annan vagn.
Á fljúgandi ferð er farið með
báða fangana í kastalann. Þar lok
ast klefadyrnar að baki þeim. —
Frúin getur enn litið snöggvast á
Emile. í augnaráðinu blandast
meðaumkun og dálítil fyrirlitning
á hinum æðislega og kveinandi karl
manni við hlið hennar.
„Vesalings ræfillinn", favíslar
hún. Hún er ekki að hugsa um sín
eigin örlög. Hún vissi það fyrir
löngu, að einhvern daginn myndi
koma að þessu og hafði lengi búið
sig undir það með sjálfri sér. En
þá var það þessi eini maður, og
faans vegna gat hún ekki fyrir
noikkra muni hætt við þennan
faættulega njósnaleik — og þessi
maður hét Páll.
»
„Komið þér út, Emile. — Þér
eruð frjáls!“ Emile trúir ekki sín-
um eigin augum og eyrum, þegar
Hugo Bleicher kemur inn í klefann
hans og klappar hughieystandi á
öxl honum.
Það er of mikið, sem hefur kom-
ið fyrir hann síðustu daga og vik-
ur. Hin trega skilningsgáfa hans
fylgist ekki með.
„Látið þér mig verá, þér, þér,
hræsnari! Þér hafið logið að mér
og svikið mig!“ æpir Emile, nærri
því með ekka.
„En hvað er þetta, Emile?“ seg-
ir Bleicher í sínum rólega, djúpa
róm. „Hvers vegna á að vera að
tala um lygi og svik? Þér eruð
raunverulega frjáls".
Nú botnar Emile ekki lengur í
neinu.
„Hvað á þá þessi leiksýning á
handtöku minni áðan að þýða?“
spyr Emile tortrygginn og hnugg-
inn.
„Leiksýningin var nauðsynleg —
til þess að engum gæti komið til
hugar, að þér vinnið með okkur,
engum, sem fram hjá fóru og frú
Bouffet ekki heldur. Það hefði get-
að borizt leynifélögum hennar til
eyrna og þeir eru ekki lambið að
leika sér við. Kúlu úr launsátri,
handsprengju gegn um svefnher-
bergisgluggann yðar eða nokkra
dropa af eitri í vínið, sem þér
drekkið í einhverri knæpunni —•
það viljið þér sjálfsagt ekki?“ —
Bleicher brosir dálítið háðslega.
Emile sprettur sviti á enni. —
Hann þreifar með tveim fingrum
undir kragann, sem virðist allt í
Akranes
3ja herb. íbúð með öllum þægindum er til sölu á góð-
um stað á Akranesi. Útborgun kr. 100 þús. Veð-
deildarlán ca. kr. 64 þús. Aðrar upplýsingar í síma
259.
Til sölu
Risíbúð í Kópavogi, 3 herbergi og eldhús
RAGNAR JÓNSSON hrl.
Laugavegi 8
Laus staða
Bókavarðarstaðan við Bæjar- og héraðsbókasafnið á
Akranesi er laus til umsóknar. Starfið veitist frá 1. sept.
n.k. að telja. Laun samkvæmt VIII. flokki launasam-
þykktar Akranesskaupstaðár.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, próí og
fyrri störf sendist bókasafnsstjój-n fyrir 1 júlí n.k.
Nánari upplýsingar gefa undirritaður og bókafulltrúi
ríkisins, Arnarhvoli.
F.h. stjórnar Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Akranesi,
23. apríl 1959. RAGNAR JÓHANNESSON
formaður
a
r
L
á
6
1)
veiða
,Svo þú ætlar að reyna að
endur, Linda?“ — „Nei,
það veit hamingjan. Ég kom bara
til að horfa á ykkur.
strax orðið ískalt"
2) „Komið þíð ykkur
Mér er j eru að koma.“ — „Nei, þarna
fyrir, krakkar. Fyrstu endurnar
nú j eru þær“, hrópar Linda.
3) „Linda, þú mátt ekki
standa svona uppi, svo þú sjá-
ist“. — „Nú, gerði ég eitthvað
sem ég mátti ekki?“
einu vera orðinn undarlega þröng-
ur.
„En — hvers vegna sögðuð þér
mér það ekki áður?“. spyr honn
og er nú allt í einu orðinn miklu
rólegri. Þessi Bleicher virðist þó
ekki vera neinn lygari.
„Af því að þá hefðuð þér leiikið
hlutverk yðar illa og valcið grun
hjá frúnni. Skiljið þér nú?“
Húsrannsókn á að fara fram hjá
frú Bouffet þegar á eftir og þá er
Emile alveg búinn að ná sér. Nú
trúir hann Þjóðverjanum í blindni.
Hugo Bleiaher er nú orðiun ímynd
virðuleika og heiðarleika í hans
augum.
Emile hefur einkennilega nautn
af því, að ganga nú eins og sigur-
vegari og húsbóndi inn í salinn,
þar sem frúin og þessi Páll höfðu
farið svo óvirðulega með hann. —
Hugur Emiles verður gripinn af
eins konar krossferðar-áhuga, og
hann rótar í bræði sinni í sillcikodd-
unum á hægindastólnum, umrótar
með ánægju hinu breiða, franska
rúmi frúarinnar og andar að sér
hinni þægilegu sápu- og ilmvatns-
lykt af dúknum. Hann kastar dýn-
unum á gólfið, dregur skúffurnar
út kófsveittur og kastar næfur
þunnum sokkum og nærfötum í
bendu á gólfið. Hann treður á því
með hinum þungu fótum sínum og
kastar innihaldi þvottaskápsins á
rúmið. Hann finnur ekkert.
„Hættið þessari vitleysu", segir
foringinn úr leynilögreglu hersins
í gremjulegum rómi. „Stúlkan hef
ur ekki verið svo heimsk að fela sín
leynilegustu skjöl í sinni eigin
íbúð“. Hann gefur skipun um að
hætta húsrannsókninni. En Emile
er ekki runnin reiðin. Nú rífur
hann upp gólfábreiðurnar sveittur
og másandi. Fyrst í svefnfaerberg-
inu og síðan í stofunni. Undir
ábreiðunum er gólfið lagt gulu
klæði sem er neglt niður á gólflist
unum. Á einum stað eru naglarnir
gieinilega losaralegir. Eftir eðlis-
hvöt villidýrsins grípur Emile í
það.
Og skyndilega hefur hann í
hendinni blaðabunka seðla upp-
drætti, teikningar, ljósmynduð af-
rit og njósn a raskýrsl ur. Og það,
sem mest var um vert: skrá yfir
dulnefni, nöfn og heimilisfang
alira leynistarfsmanna undir
stjórn frúarinna’r.
ailltvarpiö
Miðvikudagur 29. apríl:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Við vinnuna": Tón-
leikar af plötum. 19,00 Þingfrétt-
ir. — Tónleikar. 20,30 Erindi:
Bi-etar í landhelgi (Júlíus Hav-
steen fyrrum sýslumaður). 20,55
Kórsöngur: St. Olafs-kórinn frá
Minnesota syngur. Söngstjóri: Olaf
C. Christiansen (Hljóðritai á sam-
söng í Dómkirkjunni 20. apríl
1957). 21,25 Viðtal vikunnar (Sig
urður Benediktsson). 21,45 Islenzkt
mál Jón Aðalsteinn Jónsson kand.
mag.). 22,10 Frá sundmeistara-
móti Islands í Sundhöll Reykjavík-
ur; síðara kvöld (Sigurður Sigurðs
son lýsir). 22,30 Islenzikar dans-
hljómsveitir: Hljómsveit Gunnars
Ormslevs leikur. Söngkona: Helena
Eyjólfsdóttir. 23,00 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 30. april:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Á frívaktinni"; sjó-
mannaþáttur (Guðbjörg Jónsdótt-
ir). 19,00 Þingfréttir. Tónleikar,
20,20 Tónskáldakvöld: Jón Leifs
sextugur 1. maí. 1) Ávarp (Dr.
Hallgrímur Helgason tónskáld). 2)
Útvarp frá tónleikum í Þjóðleik-
húsinu; fyrri hluti. Sinfóniuhljóm
sveit íslands leikur verk eftir Jón
Leifs undir stjórn ténskáldsins. —•
a) „Langspilið“, kvæði eftir Einar
Benediktsson (Þorsteinn Ö. Step-
hensen les). fa) íslands-forleikur
op. 9. c) „Grettir og Glámur",
kafli úr Sögusinfóníu op. 26. d)
Tveir íslenzldr dansar úr op. 11.
21,05 Erindi: 1 ævintýralandi
Walts Disney (Axel Tfaorsteinson
rithöfundur). 21,30 Útvarpssag-
an: „Ármann og Vildís" eftir
Kristmann Guðmundsson; XVI.
(Höfundur les). 22,10 Upplestur:
Hannes J. Magnússon skólastjóri
les úr minningabók sinni „Á hörðu
vori“. 22,35 Sinfónískir tónleikar
(plötur). 23,20 Dagskrárlok.