Morgunblaðið - 31.05.1959, Page 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 31. maí 1959
Francesco nokkur Gasparinl
segir: Það var ég sem fann upp
skrímslið í vatninu Loch Ness.
Sumarið 1933 var lítið um að
vera í Lundúnaborg, að því er
hann segir, og ládeyða í stjórn-
noálunum. Gasparini var þá frétta
ritari fyrir kvöldblað eitt og átti
að síma inn eina góða frétt á
hverju kvöldi. Þá las hann dag
einn í tveggja mánaða gömlu
Glasgow-blaði, að einhver hefði
veitt skrýtinn fisk í Loch Ness.
Hann gerði svo úr skrýtna fiskin-
um heila ófreskju. Ritstj. blaðsins
heimtaði framhaldsfrétt, frétta-
ritarar streymdu að og vísinda-
menn skipuðu skepnunni í ákveð-
inn dýraflokk. Árið eftir birti
Daily Mail mynd af skrímslinu.
Og enn þann dag í dag neita
menn að trúa því sem Gasparini
heldur fram, að hann hafi búið
skepnuna til. Einhver bezta lyga-
saga 20. aldarinnar þrjóskast við
að deyja.
Meðfylgjandi mynd sýnir póst-
kortið, sem ferðamönnum er selt
við Loch Ness, og á það að vera
mynd af þessari furðuskepnu.
EINN frægasti „tízkukóngur"
Itala er Emilie Schuberth, bú-
settur í Róm. Meðal fastra við-
skiptavina hans eru svo frægar
konur sem hertogayngjan af
Windsor, Gina Lollobrigida, Sop-
hia Loren og Martine Carol.
Hann hefir nýlega látið sér um
munn fara nokkrar athugasemdir
um klæðnað Margrétar Englands
prinsessu, sem vakið hafa gremju
í Bretlandi — ekki sízt meðal
„tízkukónganna"
berth segir,
sé gamaldags í
klæðaburði —
fylgist alls ekki
með tímanum.
Ég vil láta hana
breyta algjör-
lega um „stíl",
sérstaklega hvað
snertir hatta,
skó og veski. —
Hann lætur ekki
sitja við gagnrýnina eina, heldur
hefir hann lagt fram tillögu um
það, hvernig hann telur, að prins-
essan eigi að klæðast — og til-
lögunum beinir hann til hinna
ensku starfsbræðra sinna.
Þeir kváðu hins vegar ekki
vera sérlega hrifnir af afskipta-
semi Schuberths — en vilja fátt
um tillögur hans segja. — Ég get
ekkert um það sagt. En hver er
eiginlega þessi Schuberth? sagði
Victor nokkur Stiebel í Mayfair.
Meðfylgjandi mynd af Mar-
gréti prinsessu er tekin, er hún
kom til tízkusýningar í London
fyrir skömmu — klædd nær skó-
síðri minkakápu, svörtum skóm
— og með brúnt veski.
FYRIR skömmu beindi austur-
rískt blað þeirri spurningu til les
enda sinna, hvaða Austurríkis-
mann þeir teldu hafa stuðlað
mest að því — fyrr og síðar —
að varpa Ijóma á nafn landsins
í augum heimsins.
Almenn þátttaka var í skoðana
könnun þessari — og það lék
enginn vafi á um úrslitin. —
tveir menn fengu svo að segja
jafnmörg atkvæði, tónsnillingur-
inn Wolfgang Amadeus Mozart
og — skíðakappinn Xoni Sailer.
Austurríkismenn virðast ekki
vilja gera upp á milli andlegs og
líkamlegs atgervis.
Dr. Salazar, einvaldi Portu-
gals, telur sig víst hafa efni á því
að gera góðlátlegt grín að stöðu
einvaldans, því að þetta kvað
vera eftirlætissagan hans:
Einvaldi nokkur vildi gjarnan
kynnast því af eigin raun, hvað
fólk segði um
hann sín á milli,
og því fór hann
að dæmi kalíf-
ans fræga. Har-
ún-al-Rachid,
dulbjó sig vendi
lega og gekk út
í borgina. Hann
fór inn í veit-
ingahús, og var
brátt kominn í
einn gestanna.
Er þeir höfðu skálað nokkrum
sinnum í mestu vinsemd, spurði
hann manninn, hvernig honum
líkaði við einvaldann. — Mann-
garmurinn leit fyrst hræðslulega
í kringum sig, en þegar hann
hafði fullvissað sig um, að eng-
inn var nógu nærri til að heyra
til þeirra, sneri hann sér bros-
andi að hinum dulbúna einræðis-
herra og hvíslaði:
— Ef ég á að segja alveg eins
og er, þá geðjast mér bara prýði-
lega að karlinum.
AKRANESI, 28. maí. — Radar-
tæki eru nú komin í þrjá báta
Haraldar Böðvarssonar & Co, og
komið er sjálfstýristæki í einn
bát, Höfrung. Hér hafa verið tvö
fisktökuskip, og er annað þeirra
Henry Denny, hollenzka skipið,
sem svo mjög kom við sögu
fyrir um það bil mánuði, er það
lenti í hrakningum í hafi a leið
hingað. Hér tók skipið frysta
síld til A-Þýzkalands. — Oddur.
Glæsileg kjallaraíbúð
til leigu
íbúðin er 3 herb., eldhús og bað á bezta stað bæjar-
ins nálægt Tjörninni. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir
þriðjudag merkt: „Rólegt — 9082“.
Verzlun til sölu
Einhver bezta nýlenduvöruverzlun og
kjötverzlun í Reykjavík er til sölu.
Húsnæðið selst með, ef um mikla út-
borgun etr að ræða.
Þeir, sem hug hefðu á þessum kaupum,
leggi nöfn sín inn á afgreiðslu blaðsins
fyrir n.k. fimmtudag merkt: ,,Stór verzl-
un — 4477“.
Tiifooð öskast
í utanhúsmúrhúðun á raðhúsum við Langholtsveg.
Nánari upplýsingar gefur
GOTFRED BERNHÖFT
Símar 15912 og 13499.
í fréttunum
Byrjað er <S byggingu II. deildar.
fáum íbúðum óráðstafað.
Upplýsingar alla daga vikunnar k/. 20,30
til 22,00 á skrifstofunni að Flókagöfu 3
II. h. - Sími 19 7 03.
Byggingasamvinnufélagið
F r a mt a k