Morgunblaðið - 31.05.1959, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 31. maí 1959
Dömur
Ný sending frá New York:
Blússur, sumarpils,
sportbuxur í öllum lengdum,
strandtöskur, innkaupatöskur og fl.
Hjá Báru
Austurstræti 14
Aðalfumdar
Aðalfundur Nemendasambands Samvinnuskólans
verður haldinn á nemendamótinu í Bifröst sunnudag-
inn 7. júní kl. 10,00 f.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN
Kbúð eða einbýlishús
minnst 5 stór herbergi, óskast til leigu 1. október
á rólegum stað, helzt í suðausturbænum eða við
Ægissíðu eða nágrenni, fyrir þýzkan sendiráðsritara.
Aðeins fullorðið í heimili. Afnot af garði æskileg,
einnig bílskúr. — Tilboð, merkt: „Diplomat—9035“,
sendist afgr. Mbl.
Verð fjarverandi
Um tveggja mánaða tíma. Gunnar Benjamínsson
læknir gegnir læknisstörfum mínum á meðan. Við-
talstími hans er kl. 4—5, nema laugardaga kl.
10—10,30.
JÓNAS SVEINSSON
SkrifstoíumaBur
Eitt af stærstu innflutningsfyrirtækjum bæjarins,
óskar eftir að ráða til sín skrifstofumann um tvítugt
með verzlunarskóla eða hliðstæðu prófi.
Framtíðarstarf. Umsóknir merktar:,, Skrifstofu-
maður—9083“' óskast sendar afgr. Mbl. fyrir
10. júní.
Skólagarkr Reykjavíkur
hefja sumarstarfið 8 júní. Garðarnir eru fluttir í
Aldamótagarðana við Hringbraut. Öllum börnum
10—14 ára er heimil þátttaka. Innritun fer fram í
görðunum 2. og 3. júní frá kl. 1—5. Þátttökugjaldið,
150 krónur, greiðist við innritun
GARÐYRKJTJSTJÓRI
HRINGUNUM
FRÁ
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 13.
að rifja upp fyrir sér það, að
ekki er hollt að verða neinum
einum of háður. Hvert stefnt hef-
ur verið í þeim efnum má m. a.
marka af frásögn af aðalfundi
Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðenda, sem birt var hér í
blaðinu hinn 28. maí sh:
„Ennfremur skýrði formaður
fró því, að unnt hefði veriö að
selja stórum meira af saltfiski að
þessu sinni en framleiðslan
leyfði. Óskir lægju fyrir frá
Grikklandi, Ítalíu og Jamica um
frekara kaup á íslenzkum sait-
fiski og unnt hefði verið að seíja
meira magn til Portúgal, en ó-
gerningur að verða við þeim ósk-
um, Fiskur til þessara landa væri
seldur í frjálsum gjaldeyri og
því mjög óhagstætt fyrir þjóðar-
búið, að ekki væri unnt að sinna
þessum mörkuðum, og þá væri
einnig mikil hætta á, að gamlir
og traustir markaðir rýrnuðu að
mun, er kaupendur þyiftu að
leita til annarra aðila um kaup
á þeim fiski, sem þeir áður hefðu
fengið frá íslandi."
„Oflæti
Framsóknar66
En um leið og við minnumst
ofiætis annarra og íhugum hætt-
una við að verða oflætismönn-
um of háðir, þá verðum við ekki
síður að forðast að ala með okk-
ur sjálfum þann hugsunarhátt,
að meðhöndla megi aðra menn
sem hunda, sem að vísu „megi
ekki berja meðan þeir liggja", en
krefjast eigi skilyrðislausrar
hlýðni af, ef öðru hvoru er fleygt
í þá beini. Nú þegar ganga skal
til kosninga á ný, er eðlilegt, að
menn renni huganum til banda-
lagsins, sem Framsókn og Alþýðu
flokkur mynduðu fyrir þremur ár
um. Hvað, sem um bandalag
þetta, Hræðslubandalagið, a5
öðru leyti verður sagt, var þá
látið svo sem það væri gert milli
tveggja jafn rétthárra flokka,
sem þóttust með sameiginlegu
ótaki ætla að vinna staríhæfan
þingmeirihluta, er gæti tryggt
landinu starfshæfa stjórn. Raun-
in varð þó brátt sú, að annar að-
ilinn í bandalaginu, Framsókn,
tók sér þar húsbóndavaldið. Um
það sagði í stórri grein í Alþýðu-
blaðinu hinn 14. marz sl.:
„Framsóknarmenn hafa undan
farin ár oft miklast yfir því, að
þeir geti eignað sér vissa þing-
menn Alþýðuflokksins, sem
kjörnir hafi verið með Framsókn
aratkvæðum. í þessu felst oflæti,
sem í sjálfu sér er ein orsök þess,
að samstarf flokkanna varð ekki
lengra en raun ber vitni."
Þrátt fyrir það. að reynsla síð-
Birgir Jónsson — Kveðja
„Er þegar ungir
öflugir falla,
sem sígi í ægi
sól að dagmólum".
MÁNUDAGINN 1. júní verður til
moldar borinn Birgir Jónsson, Álf
hólsveg 47. Birgir var fæddur
28. júní 1947, en andaðist 24. maí
sl. Hann var sonur hjónanna
Jónu Sigurðardóttur og Jóns
Andréssonar, Álfhólsveg 47, Kópa
vogi.
— Aðeins 11 ára, lífið gefur
og tekur og virðist oft miskunn-
arlaust.
Þrátt fyrir allt sem mennirnir
geta og þykjast vita, standa allir
jafnfávísir gagnvart hinum
hinstu rökum.
Allir eiga þessa skuld að
gjalda, en það er erfitt að sætta
sig við, að sjá blóma æskunn-
ar fölna svo skyndilega.
Það var ekki að undra þó for-
eldrarnir bindu miklar vonir við
þennan fallega og alhliða vel-
gefna dreng, því engum, sem
þekkti til, duldist að þar var
gott mannsefni.
Þrótturinn og fjörið gneistaði
úr augum hans og þegar hann
var að leikum með jafnöldrum
sinum, hafði hann alltaf forust-
una. Mér er það fast i minni hvað
hann var gerhugull og þráði að
setja sig inn í hlutina og festa
sér í minni það sem talað var
um. Ásamt bernskuleikjunum
hafði hann logandi áhuga á
íþróttum og var merkilega góð-
ur í skák af barni á hans aldri.
Allt sem hann fékk áhuga fyrir,
lá svo einkennilega opið fyrir
honum.
— En svo kom hinn banvæni
sjúkdómur og heltók þetta efni-
lega barn.
Það var einskis manns að
lækna þær undir, sem hér hafa
opnast. Þrátt fyrir samhjálp, geta
mennirnir svo sáraiítið hjálpað
hverir öðrum á mestu örlaga-
stundum lífsins, þá verður hver
og einn að treysta á sinn eigin
innra mátt.
Þó lífið virðist oft miskunnar-
laust, þá á það sín lífgrös, þau
einu sem græða sárin, væri það
ekki svo, mundu flestir bugast
undir byrði sinni. Lífið gefur
og græðir, jafnhliða því, sem
það tekur.
Ævi mannsins mætti líkja við
festi, þar sem minningarnar eru
dregnar á þráð, og það er þessi
festi, sem er undirstaða lífs
okkar.
Jafnvel hinir dýpstu harmar,
hefja okkur yfir smámunina og
ylja þegar tímar líða.
Birgir litli er horfinn sjónum
okkar og ástvinir hans standa
harmi losnir, en minninguna um
litla fallega og velgefna dreng-
inn, getur enginn af þeim tekið,
hún mun verða sá sólargeisli sstn
lýsir þeim út úr svartnætti sorg-
arinnar. Þess mundi Birgir litli
óska ef hann mætti.
Halldór Pétursson.
asta vetrar hefði átt að sannfæra
Framsóknarbroddana um, að
jafnvel nánustu bandamenn
vildu ekki una slíku oflæti, gætir
þess enn mjög í málflutningi
Framsóknar. Framsóknaroflætið
bar t. d. alveg ofurliði hógværð
hins hagorða þingmanns Suður-
Þingeyinga, Karls Kristjánsson-
ar, í útvarpsumræðunum á dög-
unum. Hið sama sést nú daglega
í skrifum Tímans.
Islendingar vilja ekki una slík-
um aðförum, m. a. þess vegna
hafa þeir, sem með vafasömum
aðferðum ætluðu fyrir þremur
árum að tryggja sér þingmeiri-
hluta ásamt Framsókn, nú lagst
á sveif með öðrum um að tryggja
rétt sinn og annarra til jafn-
réttis í kosningareglum til Al-
þingis. Þá ósvinnu á Framsóku
erfitt með að fyrirgefa.
V erðlauna veiting
Framsóknar
Á sínum tíma var að þvi vikið
hér í blaðinu, að svo væ-j að sjá
sem Framsókn hefði efnt til sam-
keppni um það. hver gæti skrifað
vitlausustu greinina um kjör-
dæmamálið í Tímann. Var þá
bent á, að greinin, sem nefndist:
„Afnám kjördæmanna felur í sér
dauðadóm hins íslenzka lýðræð-
is“, þar sem boðað var „fall og
endalok hinnar íslenzku bænda-
menningar“ ef réttlátari kjör-
dæmaskipun yrði komið á, mundi
hljóta verðlaunin. Þessi spá Morg
unblaðsins hefur reynzt orð að
sönnu. Einmitt höfundur þessar-
ar greinar hefur verið kjörinn til
þess að gerast ábyrgðarmaður að
kálfi Tímans, sem nefnist Kjör-
dæmablaðið. Það blað hefur
„skrifstofur“ uppi á Njálsgötu
hér í bæ. en er prentað í prent-
smiðju Tímans, og á skrifstofu
hans en ekki í „stoíurnar" uppi
á Njálsgötu sækja þeir launin,
sem starfa fyrir blaðið.
- Utan úr heimi
Framh. af bls. 12
styrjöld. Fyrir milligöngu hans
var hrjáðum fórnarlömbum
styrjaldarinnar úthlutað fæðu,
lyfjum og fatnaði, sem nam að
verðmæti meira en milljarð daía.
Annað dæmi um hina víðtæku
starfsemi er það. að i styrjöldinni
sendi Rauði krossinn frá sér um
120 milljónir sendibréfa.
En það er langt frá bví, að
verkefni Rauða krossins séu ein-
göngu bundin styrjöldum. Á frið-
artímum er einnig nóg að starfa
fyrir þá, er að líknarmáium vilja
vinna — hjálpa bræðrum sínum,
sem í nauðum eru staddn. — Og
þeir eru því miður ætíð margir,
sem neýðin sækir heim. — Þótt
mennirnir kunni að sjá soma sinn
í því að hætta að vega hver ann-
an, er _nn eftir að ráða niður-
lögum hungursins. sem víða veld-
ur hörmungum; og enn kemur
náttúran manninum í opna
skjöldu — flóð, landsskjálftar,
eldgos — og sjúkdómar hafa ekki
heldur verið sigraðir. — Á meðan
svo er, munu ætíð finnast næg
verkefni fyrir Rauða krossinn —
og hugsjónír Henri Dunants
standa enn í fullu gildi.
VORÐIJR - HVÖT - HEIMDALLUR - ÖDINN
Almennur kjósendiafundur
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 2. júní kl. 20,30 ræðuir flytja:
Bjarni Benediktsson, ritstjóri; Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri; Jóhann Hafstein, banka-
stjóri; Ólafur Björnsson, porófessor; Frú Ragnhildur Helgadóttir, lögfræðingur.
Allt stuðningsfólk Sjálfstæðisfokksins velkomið Stjómir Sjálfstæðisfélaganna.