Morgunblaðið - 24.06.1959, Qupperneq 1
24 siður
46. árgangur
130. tbl. — Miðvikudagur 24. júní 1959
Prentsmiðja M irgttnblaðslna
Kúgunarvél SÍS
sett í gang gegn
Reykvíkingum
Þórarinn Þórarinsson
kallar á hjálp utan-
bœjarmanna
Einstök uppgjöf frambjóðenda
Bréf Þórarins og þeirra félaga, sem kallar á hjálp SÍS til að
kúga Reykvíkinga.
ÁKEFÐ Framsóknar-for
ingjanna í að hindra að
3ÍS op dótturfélög þess
sæti sömu lögum og aðr-
ir landsmenn á sér auð-
sæar orsakir. Þessi eini
auðhringur landsins er
skefjalaust notaður 1
flokksbágu Framsóknar.
Talið er, að 30 þúsund manna
sé í þessum samtökum. Við síð-
ustu þingkosningar fékk Fram-
sóknarflokkurinn ekki nema
1292'5 atkv. Vegna Hræðslubanda
lagsins kom raunar ekki allt
fylgi flokksins fram í atkvæða-
magni hans við kosningarnar.
Mennirnir, sem nú býsnast mest
yfir ógnum flokksvaldsins, ráð-
stöfuðu þá þúsundum kjósenda
sinna til annars flokks. En auð-
vitað er sjaldnast nema einn á
Frá úfvarpsumræðunum i gærkvöldi
V-stjórnin var atbafnaminnst
og svikulust allra stjórna
SjálfsfœBisflokkurinn sœkir á sundr-
aða og rökþrota andstœBinga
VIÐ Sjálfstæðismenn kröfð-
umst kosninga í vor, hvernig
sem kjördæmabreytingunni
reiddi af á Alþingi, sagði Ól-
afur Thors í útvarpumræðun-
um í gærkvöldi. Það erum því
við, sem stefnt höfum söku-
dólgunum, vinstri stjórninni,
fyrir dómstól þjóðarinnar. —
í umræðunum sýndu ræðu-
menn Sjálfstæðisflokksins
fram á vanefndaferil vinstri
stjórnarinnar og báru saman
feril hennar og störf Sjálf-
stæðisflokksins í ríkisstjórn,
áður en vinstri flokkarnir
tóku höndum saman. Einnig
ræddu Sjálfstæðismennirnir
um kjördæmabreytinguna og
sönnuðu með ljósum rökum,
hvílíkt réttlætismál hún er. —
Málflutningur vinstri flokk-
anna einkenndist af hörðum
ásökunum um að einn hefði
annan svikið í vinstri stjórn-
inni í öllum málum, sem ræðu
mönnum komu í hug. Málefna
leg sókn Sjálfstæðismanna og
tilraunir vinstri flokkanna til
að firra sig ábyrgð á eigin
gerðum, innbyrðis ákærur
þeirra og illyrði sýndu alþjóð,
að til komandi kosninga geng-
ur Sjálfstæðisflokkurinn
styrkari en nokkru sinni fyrr.
Athafnaminnst og svikulust
Langflestir fulltíða íslendingar
vita, að svokölliuð vinstri stjórn
var athafnaminnst, sjálfri sér
sundurþykkust og svikulust allra
stjórna, sem íslendingar hafa
þurft að þola, sagði Ólafur Thors
í upphafi ræðu sinnar, og síðan
rakti hann Ioforö hennar og svik
hvert af öðru.
Ragnhildur Helgadóttir, annar
ræðumaður Sjálfstæðisflokksins,
ræddi einnig um vinstri stjórn-
ina og hét á kjósendur, ekki sízt
unga kjósendur, að minnast þess,
að enn væru til menn, sem vildu
nýja vinstri stjórn, og gætu kom-
ið henni á, ef styrkur Sjálfstæðis-
Framh. á bls. 2.
Eflir samhug og snmstnrf
Wms
Sigurður
Ágústsson.
Framsóknarmenn telja, að það sé verið
að minnka áhrifavald strjálbýlisins með
stækkun kjördæmanna. Það munu tímarn-
ir sanna, að þetta er röng ályktun. Rétt-
lát kjördæmaskipun er hyrningarsteinn
lýðræðisins, og sú breyting á kjördæma-
skipuninni, sem hefur verið samþykkt á
Alþingi, mun ábyggilega efla samhug og
nauðsynlegt samstarf í strjálbýlinu, sem
aldrei hefur verið meiri þörf á en nú.
hverju heimili í samvinnufélagi,
svo að hluti Framsóknarmanna
í tölu meðlima félaganna er
miklu minni en , kjósendatölu
flokksins nemur. Sennilega er
ekki nema h.u.b. einn fimmti
hluti meðlimanna Framsóknar-
menn svo sem raunverulegt
fylgi flokksins í landinu gefur
vísbendingu um.
Tök Framsóknar á SÍS
Þessi litli hluti félagsmanna
hefur hins vegar náð undir sig öll
um yfirráðum í hinum mikla auð
hring SÍS. Með klóklegum kosn-
ingaaðferðum hafa Framsóknar-
menn búið þar svo um sig, að
þeir eru einvaldir.
Af 10 mönnum í stjórn og vara
stjórn SÍS er hver einasti flokks-
bundinn Framsóknarmaður, 5
þeirra eru núverandi eða fyrrver
andi þingmenn flokksins. Þessi
litli hópur ráðstafar hinu gífur-
lega fjármagni, sem þarna er
saman komið, eins og honum hent
ar. Þar er ekki um persónulegar
eigur valdamanna að ræða held-
ur almennings og af því fé eru
þeir sannarlega ósínkir á allar
fyrirgreiðslur við flokkinn. Reynt
er að dylja hina sönnu starfs-
hætti. Ársskýrsla þessara 30 þús-
und manna samtaka er aðeins
prentuð sem handrit og iátin í
hendur nokkurra útvaldra.
Oft hafa Framsóknarmenn tal-
ið mikið við liggja, en aldrei
annað eins og nú. Sjálft valda-
kerfi Framsóknar er í hættu. Ef
réttlátari kjördæmaskipun kemst
á, telja broddarnir sig hafa misst
þá lykilsaðstöðu, sem þeir hafa
haft til þessa í íslenzkum stjórn-
málum. Nú er því öllu teflt fram
sem Framsókn telur geta tryggt
sig.
Kaupfélögin hafa aukið útlán
sín. Kaupfélagsstjórar ferðast um
eða kveðja menn fyrir sig og
blaða í skuldaskrám eftir því,
sem henta þykir á hverjum
stað.
Valdabraskarar
misnota samtök
almennings
Auðvitað eru til kaupfélags-
stjórar eða áhrifamenn innan
SÍS, sem láta ekki hafa sig til
þessa. En þeir vita sjálfir, að með
hlutleysi stefna þeir sér í hættu
gegn hefndarráðstöfunum for-
kólfanna. Eysteinn Jónsson viður
kenndi á Alþingi í vetur, að hann
hefði ferðazt um landið og boðað,
að kaupfélagsmenn ættu að
styðja Framsókn. Þeir, sem ekki
hlýða þessu boði, eiga víst að
falla í ónáð þeirra, sem ráða
stöðuveitingum og frama hjá
fyrirtækjum SÍS. Þeim mun
meira ber að virða þá, sem þetta
standa af sér, og eru þeir þó
einungis að vernda samtök sín
fyrir þeim voða, sem þeim er
búinn með misnotkun Eysteins
Jónssonar á þessum nauðsynlega
félagsskap almennings. Um nauð
syn hans efast enginn og enginn
vill á þeim níðast. Hættan stafar
Þórarinn
er nú svo hræddur, að hann
hefur leitað ásjár utanbæjar-
manna sér til hjálpar.
frá þeim einum, sem nú spenna
hann fyrir sinn eigin hagsmuna-
vagn.
Víða -úti um land eiga menn I
harðri baráttu gegn þessu ofur-
valdi. En það hefur aldrei náð
tökum hér í Reykjavík. Þess
vegna telur Framsókn sig von-
lausa um verulegt fylgi hér,
nema eitthvað óvenjulegt komi
til. Vonleysið er því meira sem
foringjarnir starfa hér, og Reyk-
víkingar þekkja þá því bæði af
sjón og raun. Af öllum hópnum
er þó enginn ólíklegri til að fá
fylgi hér en Þórarinn Þórarins-
son, sem nú er efsti maður á
lista Framsóknar í Reykjavík.
Neyðaróp Þórarins .
Þórarinn og félagar hans hafti
þess vegna gripið til þess ráðs
að leita liðs úti um land sjálfum
seT til styrktar. Þeir vita, að
sjálfir fæla þeir frá en
draga ekki að. Þess vegna telja
þeir sér lífsnauðsyn að fá hjálp
annars staðar að.
Þessi er skýringin á því furðu-
lega bréfi, sem hér er birt mynd
af. Það hefur verið sent til allra
þeirra forráðamanna kaupfélaga
úti um land, sem Eysteinn Jóns-
son telur reiðubúna til að hlýða
kalli flokksvélar Framsóknar.
Þessir menn eiga ýmist sjálfir að
reyna að hafa áhrif á Reykvík-
víkinga eða útvega aðra til þess
að gera það. Sjálfsagt ljá sig ein-
hverjir til þeirrar þjónustu, þó
að nauðugir sé.
En bréfið sannar, að hver sem
röddin verður, þá er skipunin
Eysteins. Slíkt hugleysi fram-
bjóðenda hefur aldrei fyrr
þekkst hér í bæ, að þeir leituðu
á náðir utanbæjarmanna til að
fá kosningu í Reykjavík.
Reykvíkingar munu sýna, að
þessi kúgunarleið er sízt vænleg
til sigurs. Reykvíkingar munu
rísa upp sem einn maður og
sanna, að þeir eru fullfærir um
að velja sér þingmenn án leið-
beiningar kúgunarvalds SÍS.
Miðvikudagur 24. júni
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Málstaður okkar hefir aldrei
verið betri en nú. Úr útvarps-
ræðum Sjálfstæðismanna.
— 6: Lífsánægjan mun aldrei finn-
ast í fangelsinu, eftir Eðvald
Hinriksson.
— 8: Við skulum unna hvort öðm
jafnréttis, eftir Eggert Jónsson*
bæjarstjóra.
— 10: Utan úr heimi.
— 11: Stækkun kjördæmanna leiðir
til vinsamlegri samvinnu fólks.
Rætt við Baldur Kristjánsson á
Ytri-Tjörnum.
— 12: Ritstjórnargreinar: — Öllum
ógnað. — Enn sver Eysteinn.
— 13: Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins utan Reykjavíkur.
— 14: Hlíðardalsskólinn í Ölfusi.
— 22: íþróttir.