Morgunblaðið - 24.06.1959, Page 15

Morgunblaðið - 24.06.1959, Page 15
Miðvilíudagur 24. júní 1959 MORCVNBLAÐIÐ 15 Christian Sivertz, kona hans ogr dæturnar tvær, Sigrid og Kristín, 8 ára. Christian Sivertz v-ís- lenzkur prófessor í Sigurður Kristjánsson Grímsstöðum — minning heimsókn EINN hinna mörgu V-íslendinga, sem hér hafa dvalizt 1 vor, er prófessor Christian Sivertz frá London, Ontario. Hann kom hér við með konu sinni kanadískri og tveimur dætrum á leið til megin- lands Evrópu, en hann mun heim sækja . nokkur Evrópulönd í embættiserindum. Siverzt-bræðurnir eru vel þekktir meðal V-lsIendinga. Fað- ir þeirra, Kristján Sigurgeirsson Sivertz frá ísafirði, fluttist vest- ur um haf árið 1885, en 9 árum síðar komu foreldrar hans ásamt systkinum einnig vestur til Kan- ada — og settust þar að. Kristján Sivertz starfaði löngum hjá kanadisku póstmálastjórninni, en hefur nú látið af störfum fyrir aldurs sakir. Kona hans, Elinborg Samúelsdóttir, ættuð úr Húna- þingi, er lótin. Synir þeirra Kristínar og Elin- borgar hafa getið sér frama vestra. Bent Gestur er ráðuneytis stjóri í Ottawa og fer með æðstu völd, næstur ráðherra, í stjórn allra norðurhéraða Kanada. Gustaf Sivertz er aðstoðarrit- stjóri „Vancouver Sun“, Samuel efnafræðingur og Victorian og Christian, sá sem hér var á dög- unum, eru bóðir prófessorar við háskólann í London, Ontario, Christian í efnafræði. Christian og fjölskylda hans hafa aldrei áður komið til ís- lands. „Mig hefur lengi langað til þess að koma hingað“, sagði prófessorinn, þegar fréttamaður Mbl. hafði stutt tal af honum á dögunum, „en tækifærið hefur aldrei komið fyrr en nú“. „Ég á hér mikið af frændfólki, sem við höfum alltaf haldið sam- bandi við. Bræður minir tveir og ég vorum sendir á vígvöllinn í Evrópu í fyrri heimsstyrjöldinni — og í þeirri ferð kom ég hvað næst íslandi“. „Ég get því sagt, að ég hafi komið til Evrópu, enda þótt langt sé nú um liðið — og mikið breytt frá því, sem þá var. í rauninni varð ég hvorki undrandi né fyrir vonbrigðum, þegar ég.kom hing- að til íslands. Reykjavík er ósköp svipuð því, sem ég hafði gert mér hana í hugarlund, en ég varð mjög hrifinn af því að koma á Þingvöll. Við fengum þar gott veður, alveg eins og við höfðum óskað okkur“. „Hvað strafi mínu viðvíkur, þá stunda ég nú mikið rannsóknar- störf auk fyrirlestra, sem ég flyt í háskólanum. Mitt starf hefur m. a. þýðingu fyrir iðnaðinn — og í því sambandi fer ég nú ein- mitt til skrafs við starfsbræður mína, m. a. í Englandi og Belgíu", sagði Christian. Hann talar ekki íslenzku. „Að vísu var hún töluð heima í for- eldrahúsum. En langt er nú liðið síðan ég fór þaðan — og ég hef lítið haldið íslenzkunni við, en skil þó töluvert enn. í London, Ontario, hitti ég sjaldan íslend- inga — og þess vegna er þetta allt eðlilegt. Líka vegna þess, að ég hef í rauninni aldrei haft trú á því að ég ætti eftir að heim- sækja ísland. En nú finnst mér ekkert fjarri lagi, að ég eigi eftir að koma öðru sinni“, sagði Christian og bað fyrir kveðjur til ættingja og vina. Hinn 13. þ. m. var til moldar bor- inn Sigurður Kristjánsson fyrrv. hreppstjóri og oddviti á Gríms- stöðum á Fjöllum. Hann fædd- ist að Hamri í Laxárdal S-Þing 22/6 ’81, sonur hjónanna Aldísar Einarsdóttur og Kristjáns Sig- urðssonar, Sigurður fluttist með foreldrum sínu; að Grímsstöð- um á Fjöllum 1893 og hefur dval- izt þar æ siðan að tveimur vetr- um undanskildum er hann var við nám á Hólum í Hjaltadal, en þaðan er hann búfræðingur 1904. Kvæutur var Sigurður, Krist- jönu Pálsdóttur -’rá Landi í Axar- firði og eignuðust þau 5 börn þau Aldísi og Pal sem létust uppkom- in fyrir nokkrum árum, Unni hús freyju á Halldórsstöðum í Reykja dal og Kristján og Benedikt sem nú búa á Grímsstöðum. Kristjana lézt 1952. Sigurður var elztur 4 bræðra þeirra Arnbjarnar Kjart- ans og Ingclfs, sem nú eru látnir að Kjartani undanskildum. Enn fremur átti hann tvö hálfsystkin Gangið í Heimdall EINS og áður hefur verið skýrt frá, er hafin víðtæk söfnun nýrra íélaga í Heimdall, félag ungra Sjálfstæðismanna. Er gert ráð fyrir, að þessari söfnun ljúki á kjördag. Skv. 4. gr. félagslaga geta allir Sjálfstæðismenn á aldrinum 16—35 ára orðið meðlimir í félaginu. Sjálfstæðisflokknum er að sjálfsögðu mikill styrkur í, að sem ílestir fylgismanna hans gangi í eitthvert sjálfstæðisfélag. Þess vegna hvetur Heimdallur allt reykvískt æskufólk, sem stuðla vill að sigri Sjálfstæðisflokksins, að ganga í félagið. Það er hægt að gera með því að klippa út meðfylgjandi seðil og senda hann útfylltan til skrifstofu Heimdallar, Valhöll, Suður- götu 39. — Ég undirritaður(uð) óska að ganga í Heimdall, félag ungra Sj álf stæðismanna. NAFN: .............................. F.d. Karl og Aldísi af síðara hjóna- bandi Kristjáns. Mikil sam heldni var með þessum systkin- um og bjuggu 1 eir bræður allir hér á Hólsfjöllum að Arnbirni undanskildum, en hann bjó Landi í Axarfirði, sem er næsti bær í næstu sveit. Sigurður var jafnan fyrir þeim bræðrum og þótti hans forsjá góð. Hann var kosinn í hreppsnefnd 1907 og var lengst af oddviti til 1958. Hrepp- stjóri varð hann 1924 til 1958. Sigurður var starfsmaður Lands símans frá 1906 er síminn var lagður I-ó- um og til siðustu ára- móta og var hann sæmdur Ridd- arakrossi Fálkaorðunnar fyrir þau störf. Jafnlengi var hann starfsmaður Veðurstofunnar. Eins og sézt á framansögðu ar Sigurður á Grímsstöðum hlaðinn trúnaðarstörfum og mik- ils metinn fyrir þau, en við sem þekktum hann minnumst hans ekki fyrst og fremst fyrir þau heldur fyrir hans afburða mann- kosti, gestrisni, hjálpsemi og traust sem han.. sýndi hver’jum þeim sem til hans leitaði. Á öll- um hans hreppsstjóraárum vorn hér margir fátækir en enginu þurfandi maður af hreppsfé. Sigurður á Grímsstöðum hafði lag á <-ð hjálpa mönnum þannig að þeir urðu ekki þurfandi, frá sínu eigin heimili. Okkar fyrstu kynni urðu með þeim hætti að þegar ég fluttist hingað frá Reykjavík var honum, sem hreppsstj.-a, send skuldakrafa á mig. Ég sagði honum að ég gæti ekki borgað hana og ætti ekkert sem væri lögtakshæft. „En má ég þá ekki borga kröfuna fyrir þig“, spurði Sigurður. Ég hafði og hefi ekki enr. kynnzt eða heyrt getið um slíkt yfirvald á íslandi, en síða; komst ég að því að þetta voru Sigurði á Grims- stöðum aðeins smámunir. Grundarhóli 13/6 ’59, Víkingur Guðmundsson. Kosningaskrif- stofur úti ú Inndi Kosníngaskrifstofan í Kópavogi er að Melgerði 1. — Skrifstofan er opin frá kl. 10—22 e. h. Símar: 19708 — 24626. Kosningaskrifstofan á Seltjarnarnesi er í Útsölum. Opin daglega frá kl. 7—10 sd. Sími 14434. Kosningaskrifstofa fyrir Borgarfjarðarsýslu er á Akranesi. Sími 400. — Skrif- stofan er opin daglega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Mýrasýslu er í Borgar- nesi. Skrifstofan er opin dag lega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Isafjörð og Norður-lsa- fjarðarsýslu er á ísafirði. — Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Húnavatnssýslur er á Blönduósi. Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Skagafjarðarsýslu er i Sauðárkróki. Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa á Siglufirði er opin dagleg* frá kl. 10—22. Sími 56. Kosningaskrifstofa fyrir Eyjafjarðarsýslu og Ak- ureyri er á Akureyri. Siml 1578. Skrifstofan er opin dag- lega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Austurland er á Nor®- firði. Skrifstofan er opin dag- lega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa í Vestmannaeyjum er opia kl. 10—22 daglega. Kosningaskrifstofur í Gullbringu- og Kjósarsýsl* eru í Keflavík, sími 21, og Kópavogi, sími 19708. Skrif- stofurnar eru opnar daglega kl. 10—22. Kosningaskrifstofa fyrir Árnessýslu er á SelfossL Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa í Rangárvallasýslu er á Hellu. Skrifstofan er opin daglegm frá kl. 10—22. Kosningaskrifstofa í Hafnarfirði er opin daglega frá kl. 10—22. Sími 50228. HEIMILI: ............................... SÍMI: VINNUSTAÐUR: ..............SKÓLI: Tunasláttur haf- inn í Holtunum MYKJUNESI, 22. júní. — Sláttur er að hefjast. Á stöku bæ hér í Holtunum er búið að slá bletti. Vegna kuldanna undanfarið hef- ur. dregið mjög úr grassprettu og geta tún yfirleitt ekki talizt vel sprottin miðað við óvenju hag- stæða tíð allan maímánuð. Hér hefur kuldanna undanfarið gætt sem annars staðar og hefur gras- sprettu lítið farið fram síðustu vikurnar. Nú hefur aftur hlýnað í veðri og verði ekki afturkippur má búast við að góð spretta verði komin um mánaðamót og þá get- ur sláttur almennt hafizt. Til marks um kuldann má geta þess að aðfaranótt 18. júní gerði hér svo mikið næturfrost að kartöflugrös eyðilögðust í görð- um og það mátti einnig sjá frost- skemmdir á lauftrjám í görðum. Mun þessi eina frostnótt seinka verulega uppskeru kartaflna. — Magnús. Akranesbátar AKRANESI, 22. júni — Nú eru allir Akranesbátar farnir eða eru á förum norður. Sveinn Guð- mundsson og Heimaskagi fara í kvöld og Ásbjörn á morgun. Er það síðasti báturim., sem fer héð- an norður. Togarinn Bjarni Ólafsson land- aði hér í dag 200 lestum af karfa og 20 lestum af þorski. Aflann fékk hann á Nýja-Fylkismiðum. KosnirLgaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik AÐALSKRIFSTOFUR Sjálfstæðishúsið, sími 17100. Valhöll Suðurgötu 39, sími 18192 — 17100. HVERFASKRIFSTOFUR: 1. Vesturbæjarhverfi: Morgunblaðshúsinu, U. hæð, sími 23113. 2. Miðbæjarhverfi: Breiðfirðingabúð, sími 23868. 3. Nes- og Melahverfi: KR-hús, sími 23815. 4. Austurbæjarhverfi: Hverfisgötu 42, sími 23883. 5. Norðurmýrarhverfi: Skátaheimilinu við Snorrabraut, sL... vo. 6. Hlíða- og Holtahverfi: Skipholti 15, sími 10628. 7. Laugarneshverfi: Sigtún 23, sími 35343. 8. Langholts- og Vogahverfi: Langholtsveg 118, sími 35344. 9. Smáíbúða og Bústaðahverfi: Breiðagerði 13, sími 35349. Hverfaskrifstofurnar eru allar opnar frá kl. 2 e. h. til 10 e. h. daglega og veita allar upplýsingar varðandi kosn- ingarnar. — Stuðningsfólk D-listans er hvatt til að hafa samband við kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.