Morgunblaðið - 24.06.1959, Side 17

Morgunblaðið - 24.06.1959, Side 17
MiðviKudagur 24. júní 1959 MORCU1SBLAÐ1Ð 17 Fimmtugur Séra Císli Brynjólfsson prófastur að Kirkjubœjarklaustri Þótt vík sé milli vina og torleiði margs konar, er eitt samt víst, að hugur manns hefur það að éngu, ef honum býður svo við að horfa. Á broti úr augnabliki, þegar hugann fýsir á vit fornra og nýrra kynna, er hann horfinn þangað, sem hann í það skiptið langar að dveljast. Hann gengur á fund þess, sem hugfólginn er til þess að njóta mikilla minn- inga, er liðni tíminn elur og brjóstfæðir. Þá birtast undra- verðir og heillandi atburðir í sömu andránni, sem ekki yrðu sagðir nema í löngu máli, ef þeir ættu að segjast. En þeir eru ekki sagðir. Verða e. t. v. aldrei sagð- ir, bara sjást í leðftri tímans smæstu brota. Eru samt perlur og skírður málmur. Ég er einn þeirra, sem lífslánið hefur elt á röndum, svo er Guði fyrir að þakka. Eitt þeirra lífs- lána, sem mér hafa hlotnazt eru fáeinir, harla góðir vinir. f þeim hópi eru nokkrir skólabræðra minna, sem eru mér því ógleym- anlegri og hugstæðari sem við áttum fleiri sameiginleg áhuga- mál á æskunnar örfleygu stund, tíma fylltan fyrirheitum hins ókomna, en jafnframt tíma ör- lyndis og óþolinmæði vegna seinagangs á viðurkenningu sem fullveðja maður eða menn. Það er varla nokkurt tímabil ævinnar jafn frjótt sem æskuár- in í þeim efnum að byggja upp ævilanga tryggð og óslítandi vináttubönd. Einn þeirra vina minna, er standa í fremstu röð skólabræðra minna, er síra Gísli Brynjólfs- son prófastur í Vestur-Skafta- fellsprófastsdæmi. Það hefur víst aldrei verið ætlun okkar að geta þessa opin- berlega eða á prenti en þegar ég heyrði að síra Gísli yrði fimmt- ugur í dag, gat ég ekki annað en sent honum kveðju opinberlega héðan úr fjarlægðinni, vegna hollustu við þrjátíu ára gömul kynni. Okkar vináttu eigum við vissu lega tveir einir saman, og það er ekki meiningin með línum þessum að fjölga hluthafendum um okkar tveggja einkamál, heldur til að undirstrika hann sem mann, góðan dreng og lífs- þegn, sem gjarna má koma ofur- lítið meira fram í dagsbirtuna, fram fyrir almenningsaugað, eftirbreytnisverður en hlédræg- ur maður, því þá ekki einmitt að gera það á tyllidegi, er hann sjálfur stendur upp á sitt bezta? Síra Gísli er kominn af merk- um ættum, fæddur í Skildingar- nesi við Skgrjafjörð þann 23. júní 1909. Foreldrar hans og systkini eru öllum gömlum 'Eeykvikingum að góðu kunn. Hann varð stúdent Alþingishá- tíðar vorið 1930 og kandidat í guðfræði 1934. Síra Gísli er mörgum góðum kostum búinn, enda gefnar miklar gáfur. Á meðan hann var í skóla, var kennara sinna *vegna prúð- mennsku og ágætra námshæfi- leika. Framar mörgum öðrum hans jafnöldrum á þeim árum, ávann hann sér traust hinna fullorðnu, er sáu í hinum unga sveini mikinn efnivið til dugandi átaka við vandasöm verkefni, enda falin ábyrgðarmikil trún- aðarstörf. Ég gat þess hér að framan, að sira Gísli væri drengur góður. Það þykir e. t. v. mörgum nú heldur bragðdaufur kostur. En því er nú ekki hér til að dreifa, því að hann er góður drengur á gamla íslenzka vísu og hinn ágæt asti félagi, traustur og ráðhollur, raungóður, og metinn í fremstu röð skólasystkina sinna. Hann er einn hinn skemmti- legasti maður í sínum hóp, sem ég hef kynnzt og hrókur alls fagnaðar. Hann er líka mjög orð heppinn, og í ríkari mæli en flestir aðrir fundvís á hinar broslegu hliðar lífsins. >á lætur hann stundum gamminn geisa með tilþrifamikilli, en græsku- lausri kímni. Þar er alltaf öllu vel í hóf stillt, sem hefur ætíð verið hans von og vísa, því að hann er maður, er hefur gott vald á sjálfum sér. Þótt gaman sé að minnast lið- inna stunda, þegar gleðin ljóm- aði og hlátrarnir gullu, var það ekki þetta, sem kenndi mér að meta síra Gísla og gerði hann að vini mínum, heldur hitt, sem engum getur dulizt, sem honum kynnast, að hann er fyrst og fremst hinn íhuguli alvörumað- ur og raunsær hugsjónamaður. Þessi þátturinn kemur líka ein- kennandi fram í lífi hans og hvernig hann velur sér ævistarf. Eins og ég hef áður getið, átti hann margra kosta völ, þegar í æsku. Honum stóðu ýmsar leiðir opnar, sem jafnan eru í háu mati á venjulegan og verald- legan mælikvarða. En þegar í æsku hafði hann fengið köllun til kristinnar þjónustu í íslenzkri þjóðkirkju, og hann gengdi því kalli. Hann hlaut prestlega vígslu 17. sept. 1937 er hann varð sóknar prestur í Prestsbakkaprestakalli og hefur verið þar æ síðan. Hann er samviskusamur og einlægur í þjónustu sinni, heill og innilegur trúmaður og yfirlætislaus. Og þótt ég vegna fjarlægðar sé ó- kunnur í sóknum hans, veit ég fyrir forn og ný kynni, að hann er einn af fyrirmyndar og höfuð klerkum íslands, enda vottfest af kunnugum, að hann nýtur bæði virðingar og trausts í sóknum sínum. Síra Gísli er kvæntur Ástu Þóru Valdimarsdóttir, hinni á- gætustu konu og húsfreyju. Þessi afmælisgrein mín mun birtast degi síðar en ég hefði kosið, en það út af fyrir sig á ekki að gera mikið til. Það sem mestu varðar fyrir mig og ég veit, okkur báða, er sú reynsla, er við fyrr áttum saman og áhuga mál, er við í næði spjölluðum sam an næstum sem börn og gerðum okkur háar vonir, er margar hafa ræzt. Það er einmitt þetta, sem hefur þýðingu fyrir okkur og alla sanna vináttu manna á meðal. Frá þeim stundum sprettur ang- an og ilmur er sífellt varir, æfina út, hafi sambandið verið virki lega gagnkvæmt og hlýtt. í þeim efnum fá hvorki víkur né tor leiði nokkru breytt. Lifðu heill, gamli vinur. Guð gefi þér og þínum blessun sina og farsæld. P. t. Reykjavík 23. júní 1959. Þorsteinn L. Jónsson. Dr. Sverrir Magnússon lyfsali fimmtugur SÚ TÍÐ er ekki langt að baki, aðl systkin mannvænleg og framkvæmd lyfsölumála á ís- ist vel. farnaö- landi væri að mestu í höndum útlendinga. Þá voru jafnvel brögð að því, að erlendir lyfja- fræðingar stunduðu það sem eins konar sport að skreppa til íslands og reka þar lyfjasölu í nokkur ár, en hyrfu síðan með drjúgan hagnað alfarnir af landi brott. Á þessu hefur nú orðið gagnger breyting, því að á síðustu ára- tugum hefur vaxið upp alíslenzk stétt, sem tekið hefur þessi mál að fullu í sínar hendur. Einn af frumherjum hinnar ungu stéttar íslenzkra lyfjafræð- inga er lyfsalinn í Hafnarfirði, dr. phil. Sverrir Magnússon, sem í dag verður fimmtugur. Dr. 'Sverrir er fæddur á Hofs ósi við Skagafjörð þann 24. júní 1909. Foreldrar hans voru Magn- ús Jóhannsson héraðslæknir á Hofsósi, vænn maður og vel met inn, og kona hans, frú Rannveig, dóttir séra Tómasar Hallgríms- sonar á Völlum (heitin eftir lang ömmu sinni Rannveigu Hallgríms dóttur systur Jónasar skálds). Magnús lézt á miðjum aldri frá stórum barnahóp; en öll voru þau Júlíana Jensdóttir Minning ÞAÐ dregur oft ský fyrir sól um miðjan dag, og er þá ekki svo auðvelt að geta sér til hvað á eftir muni koma. í janúar síð- astliðnum fór Júlíana Jensdóttir frá heimili sínu í Reykjavík, ti.1 stuttrar dvalar austur í Hvera- gerði, en kom ekki aftur lifandi heim, hún varð bráðkvödd með- an hún stóð þar við þann 17. janúar, aðeins 45 ára að aldri. Eins og nærri má geta, kom þessi harmafregn eins og þruma úr heiðskíru lofti til eiginmanns, barna, foreldra og annarra ætt- ingja og vina. Júlíana var glað- sinna og greind kona, orðvör og fáskiptin um annarra hagi, en hrókur alls fagnaðar í vina hóp, og í allri háttprýði var hún til fyrirmyndar, enda vildi hún láta gott af sér leiða í hvívetna, en að sjálfsögðu var það eiginmað- urinn og börnin sem nutu mest og bezt hennar miklu og góðu mannkosta, er því sár harmur kveðin að eftirlifandi ættingjum og vinum. Júlíana fæddist 26. des. 1913 í Geirakoti í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, hún var dóttir þeirra valinkunnu hjóna Jéns Kristjánssonar og Þorgerðar Guð mundsdóttur sem bjuggu þar, Þau hjón eignuðust 6 börn, þrjá syni sem allir eru dánir og þrjár dætur og var Júlíana elzt barna þeirra. Þegar hún var tólf ára fluttu foreldrar hennar til Hafn- arfjarðar. Þar gerðist faðir henn- ar fisksali og hefur stundað það síðan. Júlíana var hjá foreldrum sínum til tvítugs aldurs, giftist hún þá eftirlifandi manni sín- um Karli Björnssyni gullsmið, Fuchs kjarnorkunjósnari látinn laus London, 22: júni. — KLAUS FUCHS, kjarnorkuvís- indamaðurinn, var í dag fluttur úr fangelsi því sem hann hefur setið í undanfarin hálft tíunda ár, en hann var dæmdur til 14 ára i fangelsisvistar 1950, fundinn sek- ur um að hafa látið Rússum í té leynilegar upplýsingar um kjarn- orkumál. Fuchs, sem hefur verið náðað- ur sakir góðrar hegðunar, verður ekki látinn laus í Bretlandi. hann jafnan í miklu uppáhaldi i Hann var einn aðalmaðurinn í kjarnorkurannsóknum Breta á styrjaldarárunum og þar til hann var handtekinn. Fuchs, selfl er fæddur Þjóð- verji, hefur verið sviptur brezk- um ríkisborgararétti, en verður leyft að fara til hvers þess lands, sem vill taka við honum. Sjálfur hefur hann látið í ljós óskir um að fara til 84 ára gamals föður síns, sem á heima í Leipzig í A- Þýzkalandi. Fuohs er 48 ára. Butler, innanríkisráðherra Breta, skýrði svo frá á þingi fyr- ir skemmstu, að hættulaust væri að láta Fuchs hverfa austur fyr- ir járntjald, þvi að öll hans kjarnorkufræði væri úrelt orðin. ættuðum austan af Vopnafirði, mesta dugnaðar og myndar- manni. Bjuggu þau fyrst nokk- ur ár í Hafnarfirði, en fluttust svo til Reykjavíkur og bjuggu þar æ síðan. Þau hjón eignuðust fimm syni, einn dó í æsku, en þeir sem upp komust eru þeir Björn bifvélavirki, Jens verzl- Unarmaður, Karl Valur sjómað- ur og Garðar sem er nýfermdur, allir eru þeir atorku- og dugnað- armenn, reglusamir og háttprúð- ir í allri framkomu sem ávalt hugsa til horfnar móður, með barnslegri hlýju, þökk og virð- ingu, þannig hugsa margir til Júlíönu. Fylgi þér Drottins friðar andi fáguð prýði tign og ró, inn á fögru Ijóssins landi þar lausnarinn öllum sælu bjó. Hannes Jónsson frá Spákonufelli. Fjölmenn og virðu leg jarðaríör Staðarbræðra LAUGARDAGINN 13. þ.m. fór fram að Stað í Hrútafirði útför þeirra Staðarbræðra Jóns og Gísla Eiríkssonar, sem létust með tveggja daga millibili í byrjun júní, báðir á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Verður þeirra bræðra minnzt síðar hér í blað- inu. Útför þessi var ákaflega fjöl- menn. Var þar fjölrr.enni úr riæstu sýslum og Reykjavík. Hús kveðju flutti sr. Jón Guðnason og ennfremur talaði sr. Þórir Stephensen. Bjarni Þorsteinsson kennari á Lyngholti flutti frum- ort kvæði. Sóknarpresturinn. sr. Yngvi Þ. Árnason á Prestbakka, flutti líkræðuna í kirkju og jarð söng og sr. Gísli Brynjólfsson, prófastur á Kirkjubæjarklaustri, talaði líka í kirkjunni. Allan söng við útförina anaðist Karlakór Miðfirðinga með undirleik Ingi- bjargar Pálsdóttur frá Bjargi. Mikið um refi ÞÚFUM, 18. júní. — Óvenjumik- ið er um refi og gren hér í hér- aðinu. Liggja grenjaskyttur á þeim og gengur misjafnlega. Er þetta að verða einn erfiðasti þátt ur sveitarfélaganna og einn fjár- frekasti. — P.P. Sverrir lauk stúdentsprófi fri Menntaskólanum í Reykjavík ár- ið 1930, og hóf þá nám i lyfja- fræði í Reykjavík. Hélt hann þegar að loknum fyrrihluta til Kaupmannahafnar og lauk þar kandídatsprófi með mjög hárri einkunn árið 1935. Að því búnu vann hann um skeið í dönskum lyfjabúðum og lyfjaverzlunum og kynnti sér vandlega starfsháttu Dana í grein sinni, en þar eru þeir, sem kunnugt er. í fremstu röð. Þegar heim kom, gerðist hann starfsmaður í Reykjavíkur apóteki, og stjórnaði þar dagleg- um störfum í nokkur ár, en hvarf þá að nýju til framhaldsnáms erlenedis. Að þessu sinni lá leið- in vestur um haf, og lagði hann nú einkum stund á lyfjaefnafræði við bandarískar vísindastofnanir og lauk doktorsprófi í þeirri grein við háskólann í Lafayette. Þegar heim kom, var honum veitt lyfjasöluleyfi í Hafnarfirði, sem þar var laust, og hefur hann síðan rekið Hafnarfjarðarapótek. Dr. Sverrir er maður einstak- lega vandlátur í starfi og reglu- samur í öllum viðskiptum. Enda hefur hann með sinni drenglund uðu hógværð unnið traust allra sem til hans þekkja. Hann hefur lagt mikla alúð við fyrirtæki sitt, kappkostað að búa það á allan hátt samkvæmt fyllstu krö.fum nútímans, og lagt sig fram um vanda sem til alls sem þar er unnið; enda er rekstur þess mjög til fyrirmyndar. Ekki gat hjá því farið að svo ötull maður og mikils virtur yrði kvaddur til margvíslegra starfa í þágu félags- og framfaramála stéttar sinnar. Meðan hann starf- aði sem lyfjafræðingur í Reykja- vík, var hann um langt skeið í stjórn Lyffræðingafélags fs- lands og lengst af formaður þess. Má fyrst og fremst þakka það trú mennsku hans og festu, hve það félag varð meðlimum sinum mik ilsverð lyftistöng undir hans stjórn. Meðan Sverrir var í Reykjavík, hvíldi á hans herðum allmikið af kennslu til fyrrihluta prófs í lyfjafræði, og allt til þessa hafa honum verið falin mikilvæg trúnaðarstörf í þágu fræðslumála stéttarinnar. Þar og á öðrum skyldum sviðum á dr. Sverrir merk áhugamál og hefur mörgu nytsömu fram komið, enda þótt hann hafi, eins og gengur, ekki ævinlega mætt skilningi alls staðar, og aðstaða hans í Hafn- arfirði sé að sjálfsögðu örðugri en svo, að menntun hans og at- gjörfi fái notið sín sem skyldi. Sverrir Magnússon er óvenju fjölhæfur mannkostamaður; en fáskiptinn er ham. að eðlisfari, og mun flestum reynast seinlegt að kynnast honum til hlítar. Honum er þvert um geð að halda á loft verðleikum sjálfs sín, og einkamál annarra eru friðhelg í hans augum. Eigi að síður þykir mörgum og furðu ólíkum mönn- um hollt til hans að leita og ráð hans að þiggja í margvíslegum vanda. Hann seilist ekki til kunn ingsskapar, en góð er vinátta hans. Kona Sverris er Ingibjörg Sig- urjónsdóttir cand. pharm., dóttir Sigurjóns læknis Jónssonar á Dalvík. Frú Ingibjörg er mikil prýðiskona, vönduð og hrein- lynd. Þeim hjónum hefur lærzt að búa að sínu, og séu þau að heiman, una þau sér bezt í frið- sæld íslenzkrar sveitar, yið fagr- an gróður og fiskivötn; því ekki hefur húsfreyja-i fremur en bónd inn m-kinn áhuga á samkvæm- isglaumi stórbæjarins, en legg- ur þeim mun meiri rækt við sitt indæla heimili, sem fyrst og fremst einkennist af heimahlýju og kyrrlátum men.ringarbrag. Á þessum góða degi sendi ég þeim hjónum beztu árnaðaróskir og hjartanle6a þökk. H. H.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.