Morgunblaðið - 24.06.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.06.1959, Blaðsíða 24
130. tbl. — Miðvikudagur 24. júní 1959 Vestfirzkir Fromsóknarmenn vildu klutfal’skosningar í 6 stórum kjördæmum ÞAÐ hefur vakið athygli, a3 nýlega hefur verið minnt á tillögur Fjórðungsþings Vestfjarða árið 1950 varðandi kjördæma- skipanina. Samþykkt þingsins um kjördæmin var svohljóðandi: „Alþingi sé ein málstofa og séu þingmenn 36. Landið skal vera 6 kjördæmi, sem skiptast á sama grundvelli og fram eru tekin í III. kafla um fylkjaskiptingu þannig: 1. Reykjavík og Hafnarfjörður með næsta nágrenni. 2. Vesturland frá Hvalfjarðarbotni að Gilsfjarðarbotni. 3. Vestfjarðakjálkinn allur frá Gilsfjarðarbotni og að Hrútafjarðarbotni (þ. e. Barðastrandarsýslur, ísafjarðar- sýslur og Strandasýsla). 4. Norðurland frá Hrútafjarðarbotni að sýslumörkum Norð- ur-Þingeyjarsýslu og Norður-Múlasýslu. 5. Austurland: Norður-Múlasýsla og Austur-Skaftafells- sýsla að Skeiðará. 6. Suðurland frá Skeiðará og Reykjanesskaga. I hverju kjördæmi skal kjósa 6 þingmenn hlutbundnum kosningum, og skulu þingmenn vera búsettir í kjördæmum sínum“. — Á þinginu voru 6 Framsóknarmenn, 9 úr öðrum flokkum og einn utan flokka. Kemur fram við atkvæðagreiðslurnar, að Framsóknarmenn hafa stutt samþykktina, sem birt er hér að ofan. — SfrjálhýliÖ heldur sínum fulla rétti Sigurður Ó. Ólafsson. Misræmi á kosningarrétti milli kjósenda, eftir því hvar þeir bjuggu á landinu var orðið svo mikið að óhjákvæmilegt var að breyta kjördæmaskipaninni. Við breytinguna gat sú hætta vofað yfir að þéttbýlið heimtaði sinn rétt á kostnað strjálbýlisins. Þessari hugsanlegu hættu hefur verið afstýrt. Kjördæmamálið er leyst á þann hátt að strjálbýlið heldur sinni þingmannatölu, sínum fulla rétti sem það áður hafði. Rússneskir kafbátar við jr Island hafa flugskeyti SL LAUGARDAG var birt hér í blaðinu mynd af rússneskum kafbáti við íslandsstrendur og var hún tekin úr bandaríska vikuritinu Newsweek. Undir myndinni stóð, að kafbátar af þessari gerð gætu ekki borið eld- flaugar, en í júní-hefti ,Aviation Week“, sem einnig birtir þessa merkilegu mynd, segir, að þessir rússnesku kafbátar geti flutt fliugskeyti. Minnnmst þess MINNUMST þess, að Tíminn sagði 6. júní 1956 í forystu- grein, sem nefndist „Olíuverz un hins nýja tíma“: „Þetta er líka reynslan af starfi olíuverzlunar samvinnu manna. Hún hef'ur unnið stór virki á skömmum tíma. Hún er fyrirtæki hins nýja tíma“. Þá var ár síðan „olíuverzlun samvinnumanna“ hafði í hæstarétti verið dæmd til að greiða í ríkissjóð vegna olíu- hneykslisins no. 1 1.180.000 kr. og tveir stjórnendur í sekt- ir, 100 þús. kr. og 20 þús. kr. Lízt mönnum ekki vel á „fyrirtæki hins nýja tíma,‘? SOLUBORN óskast til þess að selja Kjósendahandbókina. Bók- in er afgreidd á 2. hæð Morgun- blaðshússins. Góð sölulaun. IIEIMDALLUR, F.U.S. lega þegið. ÞEIM, sem vilja leggja nokkurt fé af mörkum í kosningasjóð Sjálfstæðisflokksins, skal bent á að skrifstofa Fjáröflunarnefndar er í Morgun- blaðshúsinu á 2. hæð, símar 24059 og 10179. — Sér hvert framlag, stórt eða smátt, er þakksam- — Fjáröflunarnefnd Sjálfstæðisflokksins. „Ég gerði mér að vísu aldrei miklar vonir um þessa stjórn, eins og allt var í pottinn búið. Og ef satt skal segja, held ég að þessi tilraun hafi ekki heppnazt miklu lakar en efni stóðu til. Stjórnin fór vel af stað og hefur komið mörgu nytsamlegu til leiðar, en þegar frá leið var eins og eitthvað bilaði innan í henni, svo hún tók að ganga seint og óreglulega, líkt og klukka, þar sem eitt- hvert hjólanna er úr lagi gengið“. Úr ræðu eftir Skúla Guðjónsson á Ljótunnarstöðum, sem prentuð er í Þjóðviljanum sl. sunnudag. Vinnið að sigri Sjálfstœðisflokksins ALLT SJÁLFSTÆÐISFÓLK er hvatt til að starfa fyrir Sjálf- stæðisflokkinn á kjördegi. Skrásetning á sjálboðaliðum fer fram í skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu daglega kl. 9—12 og 13—19. Fólk er áminnt að láta skrá sig til starfa sem fyrst. SjálfstœðisfloTckurinn. Þingvallcvatn er hætt að lækka og vatnsborð þess hækkar á ný ÞAÐ er helzt tíðinda austan frá Efra-Sogi, að í gær hætti Þing- vallavatn að lækka og er jafn- vægi komið á. Mun yfirborð þess nú fara hækkandi á ný, því bygg inga varnargarðsins nýja er kom in á lokastigið. Skarðinu í flóðgarðinum verð- ur lokað hægt, þannig að tryggt verði að orkuverin við Ljósafoss og írafoss fái nægilegt vatn til orkuframleiðslunnar. Það verður því að láta nokkurt vatn renna áfram gegnum jarðgöngin í Drátt arhlíð, unz Þingvallavatn hefur aftur hækkað svo, að eðlilegt vatnsrennsli verði um Þrengsla- farveginn. Það er gert ráð fyrir að Þing- vallavatn muni aftur hafa náð sinni venjulegu vatnshæð að svo sem hálfum mánuði liðnum, en vatnsborð þess lækkaði alls um rúma 90 sentimetra. f gær reyndist vatnsrennslið við Ljósafossstöðina vera um 150 teningsm. á sekúndu, en í upp- hafi flóðsins komst það upp í 370 teningsmetra. Tíminn sví- virðir bragga búa EITT af því sem Eysteinn Jónsson hefur sýnt hug sinn til Reykvíkinga í, er, að hann hefur hindrað, að ríkið legði fram af sínum hluta lög- ákveðið framlag til útrýming- ar á heilsuspillandi íbúðum. Meðal annars af þeim sökum hefur útrýming braggaíbúða gengið síðar en skyldi, þó að þar hafi sannarlega verið unn- in stórvirki fyrir forgöngu bæjarstjórnar Reykjavíkur, eins og dæmin sanna. En Framsóknarmenn láta sér ekki nægja að hindra nauð synlegar framkvæmdir til út- rýmingar bröggunum, heldur hafa þeir nú hafið herferð gegn íbúum þeirra. Maður að nafni Baldur Óskarsson skrif- aði fyrir skömmu grein í Tím- ann, sem að smekkvísi minnti helzt á 3. síðu greinina alræmdu. Samúel Haraldsson, sem sjálfur býr í bragga, benti á hinar ósæmilegu aðdróttanir Baldurs. Siðsamir menn hefðu látið aðvörun hans sér að kenningu verða og beiðst af- sökunar á frumhlaupi Bald- urs. A3 sjálfsögðu fara Tíma- menn ekki svo að. I gær er Baldur látinn vaða uppi með persónulegum svívirðingum um Samúel, vegna þess að hann skuli hafa dirfzt að bera hönd fyrir höfuð sér og ann- arra braggabúa! — I öllu er Framsókn söm við sig. IJtvarpsumræð- urnar í kvöld ÚTVARPSUMRÆÐUR stjóm- málaflokkanna halda áfram í kvöld og hefjast kl. 8,10. Um- ferðir verða þrjár, 20, 15 og 10 mínútur og röð flokkanna þessi: Alþýðubandalag, Sjálfstæðis- flokkur, Þjóðvarnarflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðu- flokkur. Ræðumenn af hálfu Sjálfstæðfs flokksins í kvöld verða Bjarni Benediktsson, Ingólfur Jónsson og Jóhann Hafstein. NÚ eru síðustu forvöð senda áskorunarseðlana. Opið frá kl. 10 til 10. Fjáröflunarnefnd SjálfstœðisfloTcTcsins, Morgunblaðshúsinu. að Kosningaskrifstofa Sjálfstœðisflokksins í Morgunblaðshúsinu er opin frá kl. 10—22 alla daga Athugið hvort þér eruð á kjörskrá í síma 1-27-57 Gefið upplýsingar um fólk, sem er erlendis og verður þar á kjördag Þeir, sem fara úr bænum fyrir kjördag eru minntir á að kjósa strax Símar skrifstofunnar eru: 1-35-60 og 10-4-50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.