Morgunblaðið - 04.07.1959, Side 1
20 siður og Lesbök
íw <» ^
v%
46. árgangur
140. tbl. — Laugardagur 4. júlí 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Varnagarbinum. við
lokad s. /. nótt
Nýr forseti hefur verið kosinn í Vestur-Þýzkalandi. Fór kjör
hans fram í Berlín 1. júlí. Kosningu náði Heinrich Lubke, fram-
bjóðandi Kristilega lýðræðisflokksins. Hér sést Adenauer, for-
sætisráðherra, óska honum til hamingju skömmu eftir að úrslit
voru kunn. Lubke er 64 ára. Hann hefur undanfarin sex ár
gegnt embætti landbúnaðarráðherra í stjórn Adenauers.
Kommúnistar skjóta
á mótmælagöngu
L Kerala
MILLI kl. átta og níu í
gærkvöldi vao* byrjað að
loka seinna skarðinu,
sem brast í varnargarð-
inn undir Dráttarhlíð á
dögunum. Va*r gert ráð
fyrir, að búið yrði að
fylla upp í skarðið þegar
kæmi fram á nóttina.
BELGHAD. — Ný refsilöggjöf
hefur öðlazt gildi í Júgóslavíu.
Ævilöng fangelsisvist er numin
úr gildi, en 20 ára fangelsi lög-
leitt f staðinn, dauðarefsing að-
eina leyfð, ef um er að ræða
glæpi gegn ríkinu og afbrigðileg
morð, eins og blóðhefnd, sem
enn tíðkast sums staðar í landinu,
og loks eru fóstureyðingar leyfð-
ar, nema móðirin sé því andvíg.
I»AÐ er baft eftir áreiðanleg-
um heimildum, að Ben Guri-
on, forsætisráðherra, hafi í
byggju að efna hið fyrsta til
nýrra kosninga. Áður var
ætlað að kosningar færu fram
um miðjan nóvemher, en hin
harða deila Ben Gurions við
samstarfsflokkana um vopna
sölur til Vestur-Þýzkaland,
veldur því að hann vill flýta
kosningunum.
Fréttirnar af vopnasölunni til
Vestur Þýzkalands hafa valdið
miklum æsingum í ísrael, vegna
þess, að það er fjarri því að Gyð-
ingar hafi enn fyrirgefið Þjóð-
verjum að þeir myrtu um 6 millj-
ónir Gyðinga á valdaárum Hitl-
ers. Ben Gurion hefur hins vegar
lýst því yfir, að öll aðstaða sé
breytt og Vestur-Þjóðverjar megi
nú teljast bandamenn ísraels um
varðveizlu vestræns lýðræðis.
Ben Gurion hefur skýrt frá því
að sjálfur ætti hann harma að
hefna á nazistum, sem hefðu lagt
ættarþorp hans í Póllandi í rústir,
meðan að bróðurdóttir hans,
eiginmaður hennar og tvö börn
létu lífið í fangabúðum nazista.
Þrátt fyrir þetta teldi hann að nú
verandi stjórnarvöld í Þýzka-
landi væri ekki hægt að saka um
þessa glæpi liðinnar tíðar, þau
væru allt annars eðlis en harð-
stjórn nazista.
Þýzkaland nútímans, sagði Ben
Gurion er ekki hið sama og
Þýzkaland Hitlers. Þeir sem tala
um að nazisminn geti aftur kom-
ið upp í Þýzkalandi skilja alls
ekki þá þjóðfélagsþróun, sem nú
hefur gerzt þar og er enn að ger-
ast.
Ben Gurion krafðist þess, að
stjórnarflokkarnir veittu stjórn-
inni traust í vopnasölumálinu og
kvaðst myndi segja af sér ef
nokkur ráðherra greiddi atkvæði
á móti honum í því. Þing ísraels
veitti honum traustyfirlýsingu,
Svo mjög hefur nú dregið
úr rennslinu úr Þingvalla-
vatni í Sogið síðasta IV2
sólarhring, að vatnsborð Þing
vallavatns er nú aftur tekið
að hækka. — Vatn var með
SETE í Suður-Frakklandi, 3. júlí
(Reuter) — Hið mesta eldsvíti
varð í morgun í höfninni í Sete,
þegar gat kom á skrokk olíuskips,
sem var á siglingu í höfninni,
olían lak út, breiddist út um höfn
ina og kviknaði í hennL
Tilefni ógæfunnar var að
ítalska olíuskipið Ombrina, sem
er 6000 smálesta rakst samtímis
á vindbrú og enska skemmti-
snekkju í hafnarmynninu. Við
áreksturinn á brúna kom gat á
en fjórir ráðherrar greiddu at-
kvæði gegn honum. Þess vegna
hefur verið búizt við lausnar-
beiðni forsætisráðherrans, en í
þess stað þykir nú flest benda til
þess að hann ætli av sitja áfram
í stjórn, reka hina fjóra óhlýðnu
ráðherra og efna hið bráðasta til
nýrra kosninga.
HELSINGFORS 3. júlí. — (NTB)
Bændaflokkurinn finnski beitir
sér fyrir því, að gerðar verði
tilraunir til að mynda nýja rík-
isstjórn í Finnlandi á sem breið-
ustum grundvelli. Er búist við
að fundir og viðræður milli flokk
anna hefjist um miðjan þennan
mánuð.
Menn bíða þess með nokkurri
eftirvæntingu, að samningarnir
hefjist og er t. d. rætt mikið um
það, hvort stjórnarmyndun fleiri
flokka nuni takast fyrir heim-
sókn Krúsjeffs í ágúst-mánuði
Stórtjón í Fimm-
hyrningnum
WASHINGTON, 3. júlí (NTB).
Það var upplýst í dag, að brun-
inn í „Fimmhyrningnum“, bygg-
ingu bandaríska landsvarnarráðu
neytisins í gær hefði valdið
skemmdum á rafeindatækjum,
sem metin væru á um 700 millj-
ónir íslenzkra króna. í brunan-
um eyðilögðust einnig fjölmargar
ar segulbandsupptökur, sem
geymdu ýmiss landvarnarleynd-
armál, en það kemur ekki að
sök, þar sem önnur eintök af upp-
tökum þessum e*u geymd á öðr-
um stað.
Efra-Sog
minnsta móti í Úlfljótsvatni
í gærkvöldi, en rennslið í Sog
ið verður aukið aftur þegar
hinn eðlilegi farvegur vatns-
ins um Þrengslin verður opn-
aður á ný. Átti að byrja á því
í nótt, strax og lokið væri að
fylla upp í skörðin í varnar-
inn.
olíuskipið og olían flæddi út. —
Skemmtisnekkjan sökk, en talið
er að í henni hafi logað á gas-
lampa og nægði það til þess að
kveikja í fljótandi olíunni. —
Breiddist logandi olían út um
alla hafnarkvína og varð af því
feikilegt bál, sem náði hæst í 15
metra hæð yfir sjávarflötinn.
Þrjú flutningaskip voru við
bryggju skammt frá. Umlukti eld
flóðið þau og kviknaði í skipun- |
um. Slökkviliðið í Sete og nær-
liggjandi þorpum streymdi að og
sömuleiðis veitti slökkvisveit af
bandarísku skipi, sem þarna var
satt, mikilvæga aðstoð. — Tókst
eftir langan tíma að vinna bug
á eldinum með sápufroðu og
öðrum tiltækjum slökkviefnum.
Hluti af farmi hins ítalska skips
var benzín, en það tókst að
hindra að eldurinn kæmist í það.
Einnig varð eldurinn slökktur í
hinum skipunum. Þrír menn létu
lífið í bálinu, þeirra á meðal ensk
ur maður, sem var um borð í
skemmtisnekkj unni.
eða hvort Bændaflokkurinn
verði þá enn einn í ríkisstjórn.
Ástæðan til þes að Bænda-
flokkurinn óskar eftir gamstjórn
fleiri flokka, er þó efnahagsmál-
in, sem enn eru í hinu mesta
öngþveiti. Grundvöllur nýrrar
stjórnarmyndunar hlýtur því að
verða eitthvert bráðabirgðasam-
komulag um efnahagsmálin.
LONDON 3. júlí (Reuter) —
Brezka stjórnin hefur skorizt í
leikinn vegna verkfalla í prent-
iðnaðinum. Efndi McLeod í dag
til sáttafundar til þess að reyna
að bægja frá öllum miskilningi
milli deiluaðilanna. Lítill ár-
angur varð á fundinum, en ann-
ar slíkur fundur er boðaður á
morgun.
Deilurnar í prentiðnaðinum
brezka eru tvíþættar. í fyrsta
lagi vinnustöðvun hjá prent-
smiðjum utan stærstu borga Eng
lands. Við það hefur útkoma
þúsund héraðsblaða stöðvazt og
200 þúsund manns eru frá verki
af þessum sökum.
Hafa nu. fangelsað
nærri 6000 manns
Trivandrum í Kerala
á Indlandsskaga, 3. júlí.
(Reuter)
LÖGREGLA kommúnista-
stjórnarinnar í Kerala hóf í
dag skothríð á and-kommún-
ískan mannsönfuð og mót-
mælagöngu í bænum Cheriat-
hura skammt frá höfuðborg-
inni, Trivandrum. — Kona
nokkur fékk skot í brjóstið og
lét þegar lífið. Sjö manns
særðust og dó einn þeirra
í öðru lagi er hér um að ræða
verkfall 2500 meðlima í stétt-
arfélagi starfsmanna við prent-
svertuverksmiðjur. Er prent-
svertuskortur þegar farinn að
gera vart við sig sérstaklega í
blaðaútgáfunni. Sum minni blöð-
in eru hætt að koma út og stærri
blöðin hafa orðið að draga saman
seglin og eru þriðjungi minni en
venjulega. Ef verkfallið dregst
fram yfir helgi, má búast við að
þau verði einnig að hætta út-
komu.
í báðum þessum verkföllum
hafa verkfallsmenn gert sömu
kröfur, 10% launahækkun og
styttingu vinnutímans niður í 40
klst. á viku.
skömmu eftir að hann hafði
verið fluttur í sjúkrahús.
Þetta er síðasti áreksturinn
sem orðið hefur vegna hinnar
þegjandi 'mótspyrnu og mótmæla
verkfalla gegn stjórn kommún-
ista í þessu indverska fylki.
Tveir af foringjum stjórnarand
stöðunnar í fylkinu, þeir Sang-
kar, úr þjóðþingsflokknum, og
Pattom Thanu Pillai, úr jafnaðar-
mannaflokknum, fóru þegar á
staðinn er þeir fréttu um þessi
átök. Þeir ræddu við fjölda fólks,
sem hafði orðið sjónarvottar að
skothríð kommúnistalögreglunn-
ar og kveðast hafa fullvissað sig
um að mótmælaaðgerðirnar, sem
kommúnistar töldu vera ástæðu
til skothríðar, hafi verið skipu-
lagðar og á engan hátt ósæmi-
legar. Skothríðin hafi ekki verið
framin til að bæla niður æsingar
eða ofbeldisverk, heldur hafi hún
aðeins verið einn liður í hermd-
araðgerðum kommúnistastjórnar
innar.
Síðan deilurnar um hina nýju
skólalöggjöf hófust fyrir 18 dög-
um hafa 14 menn beðið bana af
skotum lögreglumanna og komm
únistar fangelsað nærri 6000
manns fyrir þegjandi mótmæla-
aðgerðir. En andstæðingar þeirra
beita sömu aðferðum og Gandhi
Frh. á bls. 19.
★-------------------—----★
,augardagur 4. júlí
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Bandalag ísl. skáta 35 ára.
— 6: Frægur fjallamaöur í heimsóJUI
— 8: Verðlaun fyrir umgengni.
— 10: Forystugreinarnar: „Eitt rekw
sig á annars horn‘% „Þjóðlegur
og frjálslyndur“ og „Fólkið sér
gegnum skrípaleikinn“.
Fylkisstjórinn í gæzluvarðhaM
(Utan úr heimi).
— 11: Adenauer og Erhard.
— 18: Landslið Norðmanna o. fl.
íþróttafréttir.
*------------------------
Ben Curion hyggur á
nýjar kosningar í ísrael
Tel Aviv í Israel, 3. júlí.
(Reuter)
Höfnin logaði
Reynt að koma á samstjórn
fleiri flokka í Finnlandi
Prentsverlumenn í verkfalli
að stöðva ensku stórblöbin
0