Morgunblaðið - 04.07.1959, Blaðsíða 2
2
MORCZJNBLAÐlh
Laugardagur 4. Júlí 1959
Björn Ólafsson og Jón Sen komnir
heim úr hljómleikaför vestan hafs
f»EIR fiðluleikararnir Bjöm Ól-
afsson og Jón Sen eru nýkomnir
heim úr hljómleikaför um Banda-
ríkin. Þeir hafa verið um mánað-
arskeið vestanhafs í hljómleika-
ferð ásamt tveim bandarískum
hljómlistarmönnum, úr Boston-
Binfóníuhljómsveitinni, þeim Ge-
orge Humphrey fiðluleikara og
Karl Zeise sellóleikara. Þessir
fjórir tónlistarmenn hafa myndað
með sér strengjakvartett og í
fyrrasumar fóru þeir í hljómleika
för um ísland og spiluðu á 13
stöðum við mikla hrifningu.
Aðdragandinn að stofnun þessa
strengjakvartetts var í stuttu
jnáli sá, að hingað komu árið 1955
aokkrir menn úr Boston-sinfóní-
unni og ferðuðust um landið.
Meðal annarra staða, sem þeir
Hverjír vilja hjálpa löin-
uðum pilti til að
cignast bíl?
TVÍTUGUR piltur hér í bænum
er búinn að vera lamaður síðan
hann var um fermingaraldur. —
Hann hefur fengið leyfi til að
kaupa bíl, er þannig sé útbúinn,
a3 unnt sé að nota hendurnar
einar við akstur. Þessi farkost-
ur er honum nauðsynlegur til
þess að hann geti fengið tækifæri
til að vinna fyrir sér. — Þarf ég
eigi fleiri orð um þetta að hafa,
svo fólki skiljist, hvers hér sé
þörf, þar sem ungi maðurinn
sjálfur er eigi þannig efnum bú-
inn, að hann geti greitt þær 60
þúsund krónur, er nú vantar á,
til þess að hann geti eignast far-
artæki. — Vil ég nú beina þeirri
ósk til yðar, sem eigið hvort-
tveggja, góðan vilja og góð fjár-
ráð, að þér hjálpið hinum unga
manni til að sigrast á örðugleik-
unum. Gerið svo vel að senda
framlög yðar til blaðsins eða til
mín við fyrstu hentugleika.
Með fyrirfram þökk.
Jakob Jónsson,
preptur.
ætluðu að heimsækja, voru Vest-
m^nnaeyjar en þangað komust
þeir aldrei vegna veðurs, en þeir
George Humphrey og Karl Zeise
notuðu tímann til að æfa með
Birni Ólafssyni og Jóni Sen. Þá
vaknaði áhugi þeirra fyrir mynd-
un þessa íslenzks-ameríska
strengjakvartetts og var George
Humphrey aðalhvatamaður að
þeirri hugmynd. Og sem fyrr
segir léku þeir víðs vegar um
ísland í fyrrasumar og höfðu
mikinn hug á að geta farið sams
konar hljómleikaför um Banda-
ríkin. Þetta mun vera í fyrsta
skipti, sem samleikur Bandaríkja
manna og erlendra tónlistar-
manna er leyfður í Bandaríkjun-
um. — Þeim félögum var boðið
utan þann 23. maí. Strax eftir
komuna til New York hófust æf-
ingar og var síðan haldið til
Boston og æft þar í viku en síðan
hófst hljómleikaförin. Fyrstu tón-
leikarnir voru í Boston, þá í New
Ýork og á tímabilinu 8.—17. júní
léku þeir í 12 borgum víðs vegar
um Bandaríkin, «g var þeim hvar
vetna tekið með ágætum. Megin-
hluti áheyrenda þeirra voru há-
skólakennarar og nemendur
þeirra.
Leikin voru verk eftir Haydn,
Beethoven, Shostakovich og
Dvorak. Blaðadómar voru hinir
lofsamlegustu og ferðalagið gekk
öllum vonum framar. Hitinn olli
þeim dálitlum óþægindum og
langar ferðir og erfiði í sambandi
við hljómleikana voru þreytandi,
en það mátti sin lítils samanborið
við ágætar móttökur og hrifn-
ingu áheyrenda. Alls munu þeir
hafa ekið um 8000 kílómetra inn-
an Bandaríkjanna. Þess má geta
að Karl Ziese, annar Bandaríkja-
maðurinn í kvartettinum, málaði
milli 40—50 vatnslitamyndir, er
hann var í hljómleikaförinni hér-
lendis í fyrra. Voru myndir Zeise
sýndar á þeim hljómleikastöðum,
þar sem því var við komið. Þess-
ar vatnslitamyndir eru væntan-
legar hingað til lands með haust-
inu. —■
Vöruskiplajöfn-
urinn hagstæðari
en á sama tíma
íb
yrra
VÖRUSKIPTAJ ÖFNUÐURINN
fyrstu 5 mónuði þessa árs var
óhagstæður um 121,8 millj. kr., en
var í fyrra á sama tíma óhag-
stæður um 216,7 millj. Frá jan.
og fram í maí þessa árs var út-
flutt fyrir 428,4 millj. kr., en inn-
flutningur nam kr. 550,2 millj. kr.
í maímánuði var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 45
millj. kr., flutt út fyrir 101,3
millj., en inn fyrir 146,3 millj. kr.
1-2 tonn af
höfnina við
ÞÓ NOKKURT olíumagn er nú
hér í Reykjavíkurhöfn, eftir ó-
happ, er varð er. verið var að
setja olíu um borð í togarann
Brimnes, sem þá fór vestur á
Nýfundnalandsmið. Krani hafði
opnazt án þess að því yrði veitt
eftirtekt fyrr en farin var í sjo-
inn 1—2 lestir af olíu.
Þorvarður Björnsson, yfirhafn-
sögumaður, sagði að olíubrákin
Bergsteinn Guðjónsson
formaður Hreyfils 50 ára
í haust verður Bifreiðastjóra-
félagið Hreyfill 25 ára. Það hef-
ur verið mikið lán fyrir félagið
að eiga góða og ötula forustu-
menn allt frá byrjun. Á þessum
25 ára starfsferli félagsins hefur
mörgum og þýðingarmiklum mál
um fyrir bifreiðastjórastéttina
verið ráðið til lykta, en þó tel ég
sl. 10—12 ár hafi verið mestu
framfaraár í sögu félagsins.
Fyrir nokkrum árum voru sam
þykkt lög frá Alþingi, þess efnis
að takmarka tölu þeirra manna,
sem stunda akstur leigubifreiða
í Reykjavík og miðist leigubíla-
fjöldi við tölu ibúa borgarinnar.
Þetta mál tel ég eitt mikilvæg-
asta hagsmunamál fyrir leigubif-
reiðastjóra í Reykjavík. Fyrir um
það bil tveimur árum festi fé-
lagið kaup á húsnæði fyrir starf-
semi sína og verður það að teljast
stórt átak af ekki stærra stétt-
arfélagi. Þau tvö mál, sem ég hef
minnzt hér lauslega á, eru aðeins
örlítið brot af öllum þeim merku
málum, sem félagið hefur komið
í framkvæmd.
Bergsteinn Guðjónsson er fimm
tugur í dag og mun hans ætíð
verða minnzt, sem eins dugmesta
og framsýnasta formanns, er bif-
reiðastjórafélagið Hreflill hefur
átt.
Ég óska Bergsteini heilla og
hamingju á þessum tímamótum
í ævi hams og að við megum njóta
hæfileika hans við félagsstjórn
um mörg ókomin ár.
Gestur Sigurjónsson.
BERGSTEINN Guðjónsson, for-
maðar bifreiðastj.fél. Hreyfils,
er fæddur 3. júll 1909 að Bakka-
gerði á Stokkseyri. Foreldrar
hans voru þau hjón Guðjón Páls-
son vegaverkstjóri og kona hans
Vilborg Magnúsdóttir.
Bergsteinn hóf bifreiðastjóra-
starf hjá Bifreiðastöð Reykjavik-
ur árið 1929. Árið 1934 er stofn-
að bifreiðastjórafélagið Hreyfill
og tók Bergsteinn sæti í stjórn
þess árið 1940 og varð formaður
félagsins 1943 og hefur nær óslit-
ið átt sæti í stjórn þess síðan,
ýmist sem formaður eða varafor-
maður og verið formaður félags-
ins nú samfelh í 9 sl. ár. Árið
1943 var stofnað Samvinnufé-
lagið Hreyfill og var Bergsteinn
aðalhvatamaður að stofnun þess
félags.
olíu fóru í
Ingólfsgarð
hefði vegna vindáttar í höfninni,
haldizt í krikanum við Ingólfs-
garð, sem er austasta bryggjan
í höfninni. Það myndi vera erfitt
að ná olíunni upp, a. m. k. myndi
skorta æfingu til þess. — Ekki
hefur sem kunnugt er orðið tjón
af völdum þessarar olíubrákar, t.
d. hafa hafnsögumenn ekki orðið
varir við að fuglar hafi lent í
brákinni. Helzt uru það mávar,
sem eru í höfninni og við hana.
Þórsliafnarbátar
Iiafa íiskað vel
ÞÓRSHÖFN, 3. júlí. — Héðan
eru gerðir út fjórir dekkbátar
og auk þess margar trillur. Hafa
þessir bátar fiskað mjög vel að
undanförnu. grásleppu, ufsa og
þorsk.
Lítill undirbúningur hefur
verið hafinn undir síldarvertíð
hér. Tveir menn eru þó komnir,
sem hyggjast starfrækja söltunar
stöð hér í sumar.
Vorvinna hefur gengið mjög
vel hér um slóðir í ár og lamba-
höld urðu furðugóð þrátt fyrir
hretið í júní. —E.Ó.
Caterina Valente heitir vinsæl dans- og dægurlagasöngkona og
hefur hún Ieikið í kvikmyndum, sem hér hafa verið sýndar.
Undanfarið hefur Austurbæjarbíó sýnt mynd meff söngkonunni,
sem heitir Bravo Caterina. Hefur veriff ágæt affsókn aff mynd-
inni, sem er fjörug og skemmtileg, þar sem söngkonan syngur
ýmis skemmtileg lög. Hún er þar í hlutverki revíusöngkonu og
tekst aff vekja hlátur og gleffi.
Verkamannafél. Hlíf
veitir viðurkenningar-
skjöl
HAFNARFIRÐI — I gær afhenti
formaður Verkamannafélagsins
Hlífar, Hermann Guðmundsson,
þremur fyrirtækjum hér I bæ
viðurkenningarskjöl frá félaginu
fyrir góðar og hreinlegar kaffi-
stofur, sem verkafólk hefur til
afnota. Er í ráði framvegis, að
Hlíf veiti eitt eð.. fleiri slík skjöl
árlega í sama tilgangi.
Var fyrsta skjalið veitt í gær-
morgun Fiskiðjuveri Bæjarút-
gerðarinnar. en kaffisalurinn þar
er afarrúmgóður og hinn glæsi-
legasti í hvívetna. Veitti Krist-
inn Gunnarsson forstjóri því við
töku og þakkaði Hlíf fyrir hið
myndarlega viðurkenningarskjal
með nokkrum orðum. Annað var
veitt íshúsi Hafnarfjarðar og
þakkaði Ingólfur Flygenring fyr
ir, og sagði meðal annars, að það
væri fyrst og fremst verkafólk-
inu sjálfu, sem hjá sér inni, að
þakka, hversu vel hefði tekizt að
halda kaffistofunni hreinni og
vistlegri. Þriðja skjalið var veitt
Olíufélaginu hf. og veitti Hár-
aldur Kristjánsson því móttöku
og þakkaði Hlíf fyrir viðurkenn-
inguna. Eins og fyrr segir, af-
henti Hermann Guðmundsson
skjölin og rakti meðal annars
nokkuð baráttu Hlífar fyrir bætt
um aðbúnaði á vinnustöðum.
Viðurkenningarskjölin eru að
sjálfsögðu innrömmuð og hin
smekklegustu. Er þeim komið
fyrir í kaffistofum fyrrnefndra
vinnustöðva, þar sem þau njóta
sín vel, og munu verða ævar-
andi hvatning til fólks um að
ganga hreinlega um kaffistofur
sínar. Hlíf á þakkir skildar fyr-
ir margháttaðar endurbætur, sem
félagið hefur stuðlað að á síð-
ustu árum. Það hefir beitt sér
Minningusjóður um Púl Arn-
ijóisson til kuupu ú gervinýru
VINIR og kunningjar Páls Arn-
ljótssonar í Nausti, formanns SM
F og Félags framreiðslumanna,
hafa ákveðið að heiðra minningu
hans með því að stofna minningar
og líknarsjóð, er beri nafn hans.
Hlutverk sjóðs þessa verður í því
fólgið að safna fé til kaupa á
svokölluðu gervinýra, en slíkt
tæki er ekki til í sjúkrahúsum
hér á landi. Páll andaðist úr
nýrnasjúkdómi í Kaupmanna-
höfn, en þangað hafði hann verið
fluttur vegna veikinda sinna.
Gervinýra tekur við hlutverki
nýrnanna, þegar þau verða ó-
starfhæf, og hreinsar blóð sjúk-
lingsins. Ráðgert er að tæki það,
sem minnigarsjóður Páls heitins
mun kaupa, verði afhent Land-
spítalanum.
Minningarspjöld sjóðsins fást
í Nausti og hjá Einari A. Jóns-
syni í Sparisjóð Reykjavíkur og
nágrennis.
Sílcl á Stranda-
grnnnshorni
Ægir varð var við síld um 85
mílur úti í hafi, nánar tiltekið
á Strandagrunnshorni. Víðir II.
fékk gott kast, en ekki hefur
frétzt iiánar hve mikið það var.
Þar úti var logn, en nær landi
austan bræla. Hér inni á Siglu-
firði var sólskin og ágætisveður
í dag. —Guðjón.
fyrir margháttuðum umbótum,
sem orðið hefur hafnfirzkum
verkamönnum til góðs, svo sem
bættum aðbúnaði á vinnustöðum,
eins og Hermann sagð- við af-
hendingu skjalanna. Einnig ber
að þakka atvinnurekendum fyrir
allar þær umbætur, sem gerðar
eru hafnfirzku verkafólki til hag
ræðis við vinnu þess. Er þess að
vænta, að allar kaffistofur verka
fólks hér í bænum megi sem fyrst
prýða með hinu mydnarlega við-
urkenningarskjali vejrkamanna-
félagsins Hlífar. —G.E.
Viiiníngar í 3. fl.
DAS
í GÆR var dregið í 3. fl. Happ-
drættis D.A.S. um 20 vinninga.
1. vinningur 2ja herb., ÍBÚÐ,
ÍBÚÐ, fullgerð að Hátúni 4 3.
hæð kom á nr. 15371 í umboðinu
ísafirði. Eigandi er: Sigurður
Guðmundsson, málari, Aðal-
stræti 19, ís.
2. vinningur OPEL Caravan
Station bifreið m/útvarpi og mið-
stöð kom á nr. 33979 í aðalumboð-
inu Vesturveri.
3. vinningur MOSKVITCH
fólksbifreið m/útvarpi og mið-
stöð kom á nr. 25251 í umboði Sig
ríðar Helgadóttur, en ekki hefir
náðst í eiganda miðans.
Fjórði til tuttugasti vinningur
eru Húsbúnaður eftir eigin vali
vinnenaa.
4. vinningur fyrir kr. 20.000.00,
nr. 54731. Aðalumboð Vesturveri.
5. vinningur fyrir kr. 15.000.00,
nr. 5408. Aðalumboð Vesturveri.
6. Vinningur fyrir kr. 12.000.00,
nr. 21546. Umboð Akureyri.
7. vinningur fyrir kr. 12.000.00,
nr. 21014. Umboð Vestmannaeyj-
ar.
8. Vinningur fyrir kr. 12.000.00,
nr 22272. Aðalumboð VesturverL
9. vinningur fyrir kr. 12.000.00,
nr. 610. Aðalumboð Vesturveri.
10. vinningur fyrir kr. 10.00.00,
nr. 35803. Umboð Sigr. Helga-
dóttur.
11. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 56485. Aðalumoð Vesturveri.
12. vinningur fyrir kr. 10.00.00,
nr. 55127. Aðalumboð Vesturveri.
13. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 21023. Umboð Vestmannaeyj-
ar.
14. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 43149. Aðalumboð Vesturveri.
15. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 9043. Umboð Sjóbúðin.
16. vinningur fyrir kr. 10.00.00,
nr. 36191. Umboð Nekaupstaður.
17. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 44531. Aðalumboð Vesturveri.
18. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 56319. Aðalumboð Vesturveri.
19. vinningur fyrir kr. 10.00.00,
nr. 13057. Aðalumboð Vesturveri.
20. vinningur fyrir kr. 10.000.00,
nr. 40327. Umboð Hafnarfjörður.
(Birt án ábyrgðar).