Morgunblaðið - 04.07.1959, Síða 20
VEÐRIÐ
A og NA-gola, skýjað
OiWlMíMaÍHfo
140. tbl. — Laugardagur 4. júlí 1959
Adenauer og Erhard
Sjá bls. 11.
Vautar um 500
lestir af kartöflum
til að birgðir
nái saman
-----------------------------E G A R
Fleiri farþegar ufan í júní
nú en i fyrra
FORSTJÓRI Grænmetissölú
landbúnaðarins er nýkominn til
landsins úr kartöflukaupaför um
meginlandið. Er erfitt að fá kart
öflur keyptar í ár vegna stöð—
ugra þurrka, sém gengið hafa
yfir. Þó festi forstjórinn kaup
á 450 lestum af snemmsprottn-
um kartöflum í Hollandi og koma
þær til landsins með Dísarfelli
um helgina. Þá keypti hann
einnig 60 lestir af kartöflum á
Ítalíu og er gert ráð fyrir að
þessar birgðir endist tæplega út
þennan mánuð.
Yantar því útn fimmhundruð
lestir af kartöflum fram að þeim
tíma er innlend uppskera berst
á markað. Verður í næstu viku
tekin ákvörðun um hvar borið
skuli niður til kartöflukaupa, ef
kartöflur verður þá nokkurs
staðar að fá.
Góð skepnuhöld,
DESJAMÝRI, Borgarf. eystra, 3.
júlí: — Nær fiskilaust hefur ver-
ið á miðunum hér í kring það sem
af er sumri. Hafa bátar fengið
sáralítnn afla og rétt að menn
hafi fengið í soðið.
Skepnuhöld hafa verið góð í
vor og lambahöld ágæt. Varð
hvergi stórtjón í veðrunum, sem
gengu yfir um miðjan júní, sem
voru verstu veður, sem hér hafa
komið um þetta leyti árs. Rúning-
ur sauðfjár hefst í næstu viku.
— Ingvar.
Skemmtun Sjálf-
stæðisfólks í Borg-
arf jarðarsýslu
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Borg
arfjarðarsýslu efna til kvöld-
fagnaffar fyrir stuffningsmenn
Sjálfstæffisflokksins í Alþingis-
kosningnum aff Hótel Akrancs í
kvöld. Hefst samkoman kl. 10
síðdegis.
Leikararnir Bessi Bjarnason,
Knútur Magnússon og Steindór
Hjörleifsson flytja skemmti-
þætti. Dans.
ÞAÐ var skýrt frá því í blöðun-
um fyrir nokkrum dögum, að
lögreglan hefði handtekið ungan
mann, sem gerzt hafði sekur um
innbrotsþjófnað í skemmu varn-
arliðsins í Hafnarhúsinu. Hafði
hann verið tekinn höndum á
stolnum bíl undir Ingólfsfjalli.
Við framhaldsrannsókn málsins
heíur komið 1 ljós að pilturinn,
sem er 17 ára, var ekki einn að
verki við innbrotið, heldur tók
þátt í því með honum 14 ára
érengur. Voru þeir saman í bíln-
um er rannsóknarlögreglumenn
handtóku þá.
Bílnum, sem þeir voru á höfðu
þeir stolið úr porti Eimskipafé-
lagsins við vöruskálana miklu við
Borgartún. Hafði strákunum tek-
izt að klifra yfir girðinguna án
þess að næturvörðurinn þar yrði
þeirra var. Inni í portinu stóðu
allmargir bílar. Komust þeir inn
í einn þeirra, amerískan bíl, ár-
gerð 1959, sem var á Ameríku-
númeri.
Um klukkan 6 opnaði vörður
ÍSLENDINGUM er útþráin í
blóð borin og fjölmargir eyða
sumarfríinu sínu í ferðalög til
útlanda. Mbl. reyndi í gær að
afla sér upplýsinga um ferða-
mannastrauminn til útianda á
þessu sumri. Starfsmönnum út-
lendingaeftirlitsins sýnist hann
lítið eða ekkert minni en undan-
farin ár. Þó er lítið farið að reyna
á þetta ennþá. Mestu ferðamán
uðirnir eru júní, júlí og ágúst.
Ferðaskrifstofunni sýnist að
þátttaka í hópferðum til útlanda
ætli að verða heldur minni í sum
ar en í fyrra, en þó er erfitt að
skemmanna hliðið að portinu. Þá
fór annar piltanna til hans og gaf
sig ó tal við hann. Á meðan setti
hinn stolna bílinn í gang og ók
á fleygiferð út úr portinu, án
þess að næturvörðurinn fengi
neitt að gert. Bílnum ók þjófur-
inn spölkorn frá, þar sem hann
sást ekki frá hliði vörugeymslu-
portsins. Hinn náunginn sleit
síðan samtalinú við næturvörð-
inn, sem ekki mun hafa vitað að
hér voru höfð í frammi við hann
skipulögð brögð, til þess að kom-
ast undan á bílnum.
Næst er það að þjófarnir óku
á nýja bílnum austur að Álfta-
vatni, þar lögðu þeir sig til svefns
í tvo tíma eða svo. Lögðu svo af
stað aftur, og óku beint í fangið
á rannsóknarlögreglumönnum,
sem grun höfðu um hvar þeirra
væri helzt að leita.
Þá hafa unglingar þessir viður-
kennt að hafa stolið bílum nokkr-
um sinnum, en þeim hafi þeir
skilað aftur á sama stað, að öku-
för lokinni. Rannsókn í máli
þeirra heldur enn áfram.
gera sér fulla grein fyrir því enn-
þá.
Aftur á móti hafa flugfélögin
flutt fleiri farþega en í fyrra.
Flugfélag íslands hefur flutt 4ó32
farþega milli landa það sem af er
árinu, þar af 1483 í júnímánuði.
í júnímánuði í fyrra flutti félag-
ið aðeins 1210 farþega milli landa.
Hversu mikill hluti farþeganna
eru íslendingar, sést ekki í skrám
félagsins.
Hvað fólksflutningum Loftleiða
viðvíkur, hafa þeir aldrei verið
meiri í sögu félagsins, en að und-
anförnu, enda ferðir aldrei jafn-
margar og nú. Hafa flugvélarnar
alltaf verið fullsetnar bæði vest-
ur og austur um síðan sumaráætl-
Reykvískir hesta-
menn norður Kjöl
í GÆRKVÖLDI, milli kl. sjö og
átta, komu til Þingvalla nokkrir
reykviskir hestamenn. Voru Þing
yellir fyrsti áfanginn á ferðalagi
þeirra norður Kjöl á gæðingum.
Hestamennirnir voru vel útbúnir
með marga trússhesta og var 31
hross í hestalestinni er ferðalang
arnir komu niður Aimannagjá.
Allt voru þetta kunnir hesta-
menn, m.a. Björn Gunnlaugsson,
fyrrum form. Fáks og bróðir hans
Árni járnsmiður; Ólafur Björns-
son, stórkaupmaður og frú og
sonur þeirra, Ólafur. Þá Óli M.
ísaksson, framkvstj., og Jean
Claesen, framkvstj.
Á laugardaginn var ferðinni
heitið allt að Geysi og síðan um
Hveravelli norður Kjöl. Ætlaði
Páll Sigurðsson í Varmahlíð að
koma til móts við hópinn á Hvera
völlum, en Reykvíkingarnir ætla
að taka þátt í miklu fjórðungs-
móti hestamanna, sem haldið
verður á Sauðárkróki 11. og 12.
þ.m.
unin hófst og farbeiðnir fleiri en
nokkru sinni. Aukin kynningar-
starfsemi beggja megin Atlants-
hafsins veldur því að hlutfails-
tala hinna erlendu farþega fer
síhækkandi, en farbeiðnir eru þó
svo margar frá Reykjavík, að
alltaf fyllist í skörðin, sem mynd-
ast í farþegahópana, við það að
fólk fer úr hér.
Reknetjasíld
til Akarness
AKRANESI, 3. júlí. — Hingað
komu í dag þrír reknetjabátar
með síld, sem þeir fengu út af
Garðskaga. Farsæll hafði 91
tunnu, Glaður 145 og Bjarni Ól-
afsson 58 tunnur. Báðir síðast-
töldu bátarnir eru frá Ólafsvík.
Síldin er hraðfryst. Fjórði bát-
urinn er væntanlegur í kvöld
með síld í bræðslu. — Oddur.
EINS og kunnugt er af fyrri frétt
um hefur þar til kjörin arkitekta
nefnd starfað að því að undan-
förnu að gera uppdrætti að ráð-
húsi Reykjavíkur. Var svo ráð
fyrir gert, að uppdrættir þessir
yrðu tilbúnir til athugunar fyrir
1. júlí og hefur það staðizt áætl-
un.
Að því er Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri skýrði blaðiriu frá,
var í gær fundur í ráðhúsnefnd
Reykjavíkur og sýndu arkitekt-
arnir þar uppdrætti og líkan. —
Stóð fundurinn frá kl. 2 til kl.
4 sd. Eru þessar teikningar nú
til umræðu og athugunar hjá ráð
húsnefnd, en er hún hefur lokið
störfum verða þær birtar almenn
ingi.
Gullfoss, flaggskipiff
okkar, leggur úr höfn, er jafnan
margt um manninn á hafnar-
bakkanum. Fólk er aff kveffja
kunningjana og affrir bara aff for-
vitnast, sýna sig og sjá affra. —
Þessa mynd tók ljósmyndarl
blaffsins, ÓI. K. Magnússon, viff
slíkt tækifæri.
Um hádegi í dag leggur Gull-
foss frá hafnargarffinum í
Reykjavík í fjórffa sinn, síffan
sumaráætlun skipsins hófst 16.
maí. Á þessum tíma hefur hann
flutt 2200 farþega, aff meðtöld-
um þeim sem í dag fara utan.
Fólk viil gjarnan ferffast meff
GuIIfossi, sem sést á því aff skip-
iff hefur flutt 55000 farþega frá
upphafi, effa á 9 árum. Nú mun
vera svo aff segja upppantaff í
allar ferffir fram í september.
Affur en Gullfoss hóf sumar-
áætlun sína, fór fram á honum
klössun í Kaupmannahöfn og um
Ieiff var gert viff undirstöffur vél-
arinnar, í þeim tilgangi aff
minnka titringinn, sem jafnan
fylgir mótorskipum, og sumir
kunna illa viff. Segja sjómenn-
irnir aff titringurinn hafi greini-
lega mikiff minnkað við þessa
viffgerff.
Auk borgarstjóra, sem er for-
maður ráðhúsnefndar, eiga þau
sæti í nefndinni, frú Auður Auð-
uns, forseti bæjarstjórnar, Jó-
hann Hafstein, bankastjóri og
bæjarfulltrúarnir Magnús Ást-
marsson og Guðmundur Vigfús-
son.
Fjórir menn hafa unnið að upp
drætti að ráðhúsinu að undan-
förnu, þeir Einar Sveinsson, húsa
meistari Reykjavíkur og arkitekt
arnir Gísli Halldórsson, Halldór
H. Jónsson og Sigvaldi Thord-
arson. Með þeim störfuðu þeir
Gunnar Ólafsson, skipulagsstjóri
Reykjavíkur og Sigurður Guð-
mundsson, en þeir eru, sem kunn
ugt er, báðir látnir.
Sígaretfs’:jófurinn fékk
14 ára dreng í liö meö sér
Teikningar og líkan aÖ
ráÖhúsi Reykjavíkur
lagt fyrir ráöhúsnefnd