Morgunblaðið - 24.07.1959, Síða 1
20 siðuv
Myndin var tekin við flugvél Nixons. Lengst til vinstri eru Muccio, sendiherra Bandaríkjanna
eg kona hans, þá George V. AUen, yfirmaður upplýsingaþjónustu Bandarikjanna, og Milton Eisen-
hower, bróðir Bandaríkjaforseta. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Nixon kom v/ð d Keflavíkur-
flugvelli á /e/ð til Moskvu
MeB honum var 40 manna fylgdar-
/ið og aukaflugvél fylgdi
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 23. júlí: — Richard Nixon, varafor-
seti Bandaríkjanna, kom við á Keflavíkurflugvelli í morgun á leið
sinni til Moskvu. Varaforsetinn og föruneyti hans, alls um 40 manns,
ferðast með farþegaþotu af gerðinni VC 137, sem samsvarar Boing
707 farþegaþotunum, sem Pan American hefur nú í reglulegu far-
þegaflugi á Norður-Atlantshafi. Flugvélin, sem flutti Nixon lagði
npp frá flugvellinum í Washington kl, 1 sl. nótt og lenti á Kefla-
víkurflugvelli kl. 6,26 eftir íslenzkum tíma, eða eftir tæplega 5Í4
stundar flug. Bjart og gott veður var í Keflavík, þegar flugvél vara-
forsetans lenti. —
Mikill undirbúningur
Flugvél Nixons ók upp að flug-
vallarbyggingunni kl. 6,30 og var
þar margt manna og auðséð að
mikill undirbúningur hafði farið
fram til að afgreiða flugvél vara-
forsetans á sem skemmstum tíma.
Gífurlega stórir tankabílar
renndu þegar upp að flugvélinni
og hófu að dæla eldsneyti á
geyma hennar. Slökkviliðsbílar
voru til taks, ef eitthvað skyldi út
af bera og herlögreglumenn voru
á verði allt umhverfis flugvélina.
Nixon hvíldist
Sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi. Mr. Muccio. og Henry J.
Thorne J.r.. hershöfðingi, gengu
þegar um borð í flugvélina, en
höfðu þar skamma viðdvöl, því
Nizon mun hafa hvílzt í svefn-
klefa sinum, enda hánótt ennþá,
samkvæmt Washington-klukk-
unni og langur og erfiður dagur
framundan. Með sendiherranum
og hershöfðingjanum stigu á land
nokkrir af fylgdarliði Nixons.
Báru menn þar kennsl á dr.
Milton Eisenhower, bróður for
setans og Hyman Rickover að-
mírál. þann er gat sér mestr-
ar frægðar fyrir smíði kjarn-
orkuhreyfilsins i Nautilus og
baráttu sinni fyrir að Banda-
ríkjamenn hæfu smíði kjarn-
orkukafbáta. Rickover aðmír-
Framh. á bls. 3
Mótmæla
Bls.
Föstudagur 24. júlí.
Efni blaðsins m.a.:
2: Frá umræðunum á Alþingi
gær.
— 6: Fyrirlestur Carlo Schmid um
Mazhicivelli.
— S: Vigurhjónin sjötug.
— 10: Ritstjórnargreinarnar: Hræðslu
óp Framsóknar — Heimsókn,
sem ekki var farin.
— 11: Engar skottulækningar á sár-
um Þingvalla, eftir sr. Jóhann
Hannesson.
— 19: íþróttir.
PRAG. 23. júlí
stjórnin hefur
Bandarí k j astj órn
vikunnar“, sem
— Tékkneska
mótmælt við
vegna „bæna-
nú er haldin
vestra fyrir leppþjóðum Rússa.
Telur tékkneska stjórnin þetta
íhlutun í innanríkismál Tékka.
I föruneyti Nixons var Rick-
over aðmíráll, sá hinn sami og
talipn er frumkvöðull að smíði
kjarnorkukafbáta Bandaríkja-
manna.
Krúsjeff gerði
leifturárás,
fyegar Nixon kom til Moskvu
MOSKVU, 23. júlí — Flugvél Nixons, varaforseta Bandaríkj-
anna, lenti á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu í dag í sömu
mund og Krúsjeff réðist óvænt og ofsalega á Bandaríkin í
ræðu, sem útvarpað var og sjónvarpað um öll Ráðstjórnar-
ríkin. Krúsjeff hafði komið flugleiðis úr Póllandsheimsókn-
inni klukkustundu áður og haldið beint á pólsk-rússneska
friðarsamkomu, þar sem hann flutti ræðu sína.
Um 200 fréttamenn höfðu safn-
ast saman á flugvellinum til þess
að vera viðstaddir komu Nixons.
Voru þeir sýnu fjölmennari en
rússneska móttökunefndin og
áhorfendur til samans. Kozlov,
varaforsætisráðherra, var formað
ur móttökunefndarinnar — og
bauð hann Nixon velkominn.
★
Sem von er hafði Nixon ekki
hugmynd um ræðu þá er Krúsjeff
flutti á vináttufagnaðinum ein-
mitt um þetta leyti — en í ræðu
þeirri. er Nixon flutti á flugvell-
inum kvaðst hann vonast til þess,
að koma hans og bandaríska sýn-
ingin. sem hann mun opna í
Moskvu á morgun, yrði til þess
að auka skilning Rússa á Banda-
ríkjunum og e. t. v. til þess að
mjókka að einhverju leyti bilið
milli þessara tveggja stórvelda.
★
Hvatti Nixon til ferðalaga Rússa
til Bandaríkjanna, því að slíkt
væri bezt fallið til þess að auka
gagnkvæman skilning þjóðanna.
ÞeTgar tillit er tekið til hins mikla
eyðingarmátts nútíma vopna,
sagði Nixon, vitum við. að í öðru
stríði verða engir sigurvegarar.
þar tapa allir. Nú er runnin upp
sá tími, að þjóðirnar verða að
læra að lifa saman. að öðrum
kosti munu þær deyja saman.
Kozlov flutti einnig ræðu á flug
vellinum og stakk hún meira en
lítið í stúf við ræðu Krúsjeffs.
Kozlov var mjúkur á manninn og
kvaðst vona hið bezta um sam-
búð Rússa og Bandarikjamanna,
því hvorug þjóðin vildi aðra
styrjöld.
Kona Nixons var i förinni — og
rfieðal ferðafélaga þeirra hjón-
anna voru Dr. Milton Eisenhower
bróðir forsetans, HymanRickov-
er, .,faðir“ bandarísku kjarnorku-
kafbátanna. og George V. Allen,
Framhald á bls. 19.
Egypfar eiga stóran kaf-
bátaflota
KAIRO, 23. júlí — Abdel Hakim
Amer. varaforseti Arabíska sam-
Blaðaskrifin oímet
Unclen
m -
segir
STOKKHÓLMI. 23. júlí — Unden
utanríkisráðherra Svía ræddi um
hina afboðuðu Norðurlandaheim-
sókn Krúsjeffs £ útvarpi í dag.
Kvað hann menn bæði heima og
erlendis velta vöngum yfir því
hvað raunverulega hefði valdið
því, að Krúsjeff hætti við að
koma. Sagði hann, að bezt væri
að halda sig við yfirlýsingu Ráð-
stjórnarinnar — og segja mætti,
að ummæli og blaðaskrif þeirra
Svía. sem andvígir hefðu verið
heimsókninni, hefðu borið árang-
ur. ef tilgangurinn hefði verið að
koma í veg fyrir heimsóknina.
En samkv. áliti sænsku stjórnar-
innar hefði Ráðstjórnin ofmetið
þessi blaðaskrif. Stjórnin vænti
þess, að atburðurinn yrði ekki til
að skaða samskipti þjóðanna.
bandslýðveldisins s.agði í ræðu í
dag, að egypzki herinn, sem hlaut
mikil skakkaföll í átökunum við
Israelsmenn haustið 1956, hefði
nú verið endurskipulagður og
efldur á ný svo að hann gæti
hrundið hvaða árás sem væri.
Amer flutti ræðuna í tilefni
þess, að sjö ár eru liðin frá
„egypzku byltingunni". Mikil her
sýning var og við þetta tækifæri.
Rússneskir skriðdrekar óku í fylk
ingum og einnig var þar að sjá
annan rússneskan og tékkneskan
vopnabúnað. MIG-þotur og Ilyus-
hin sprengjuflugvélar flugu yfir
— og Amer bætti því við. að
Egyptar ættu nú stærri kafbáta-
flota en nokkur í þessum heims-
hluta.
5 ,
minna Krúsjeff enn á
ana- og prentfrelsi
skoð-
KAUPMANNAHÖFN, 23. júlí — I orðsendingu dönsku stjórnarinn-
ar til Ráðstjórnarinnar er lýst furðu yfir því, að Krúsjeff skyldi
hætta við hina fyrirhuguðu Norðurlandaheimsókn. Segist danska
stjórnin vart skilja ákvörðun þessa og harmar það jafnframt, að
Ráðstjórnin skyldi hafa tekið meira tillit til yfirlýsinga ýmissa
manna og ummæla nokkurra blaða en velviljaðs heimboðs dönsku
stjórnarinnar.
Danska stjórnin kveðst ekki Viðvíkjandi hinni svonefndu
geta fallizt á það, að ekki hafi herferð gegn heimsókninni
verið fyrir hendi hagstæður sem Ráðstjórninni hafði orðið
grundvöllur fyrir heimsóknina, svo tíðrætt um, lagði danska
stjórnin áherzlu á það, að skoð-
ana og prentfrelsi væru grund-
vallaratriði stjórnarskrárinnar.
Þá var vikið að þeim ummæl-
um Krújjeffs, að formlegar heim
sóknir væru einskis nýtar. Segir
danska stjórnin, að hún hafi
ekki ætlazt til þess að heimsókn
hans yrði annars eðlis. Hún hafi
ekki undirbúið neinar pólitískar
viðræður, en vænzt þess, að leið-
togarnir mundu skiptast á skoð-
unum — og slíkt væri alltaf til
góðs.
Ovinur Kassems
dæmdur til
hengingar
BAGDAD, 23. júlí. — Rashid >
Ali, maðurinn, sem stóð að j
baki nazistabyltingunni í írak S
1941, hefur verið dænrdur til J
j hengingar af leynilegum rétti ^
5 — fundinn sekur um að hafa s
J ráðgert uppreisn gegn stjórn i
S Kassems í desember sl. Dóm-)
urinn hefur verið lagður fyr- s
ir Kasscm til undirskriftar. — S
Rashid Ali er sagður hafa J
verið í nánu sambandi við J
erindreka Arabíska sambands S
lýðveldisins og hafa unnið að >
því að dreifa vopnum og mútu ■
fé, sem allt miðaði að því að s
koma Kassem fyrir kattarnef. i