Morgunblaðið - 09.08.1959, Blaðsíða 19
SunnuSagur 9. ágúst 1959
MORCTJNM 4ÐIÐ
19
78 karíar og konur keppa á
Meistaramótinu í frjáls
íþróttum
Mótið hefst i kvöld og
lýkur á mibvikudag
MEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum hefst á Laugardals-
vtllinum í kvöld kl. 8.30. Mótinu verður síðan fram haldið á sama
s(að á mánudags- og þriðjudagskvöld. Þetta er í 33. sinn sem þetta
mót fer fram og samtímis því fer fram 10. kvennameistaramót
Islands í frjálsum íþróttum. Keppendur á mótinu eru 60 í karla-
greinum og 18 í kvennagreinum. Mjög er til mótsins vandað og
má ætla að um tímamót verði að ræða i framkvæmd móta hér
á Iandi ef vilji framkvæmdanefndarinnar nær fram að ganga.
Vel undirbúið Ijónsson, Jóhannes Sölvason og
í framkvæmdanefnd mótsins Einar Kristjánsson. Hefur nefnd-
hafa starfað' Guðmundur Sigur- |in unnið mikið starf að undirbún
ingi mótsins og það er von henn-
ar og vilji að framkvæmd móts-
ins takist eins og bezt verður á
kosið og tiðkast erlendis. Hefur
nefndin sett upp ákveðnar reglur
til að flýta framkvæmd mótsins,
t.d. dregið í riðla og um stökkröð
fyrirfram, skipað fyrirliða kepp-
enda frá hverju félagi og lagt
mikið kapp á að vélja til mótsins
góða og örugga starísmenn en
þeir verða alls um 40 talsins.
Framkvæmdanefndin og Bryn-
jólfur Ingólfsson form. FRÍ,
ræddu við blaðamenn í gær.
Lögðu þeir áherzlu á vilja nefnd-
arinnar til að láta mótið ganga
vel og greiðlega en til þess að
svo yrði yrðu bæði keppendur og
starfsmenn að leggja sig fram.
Athugasemd
EINS og skýrt hefur verið frá á
Alþingi og í blöðum, fól ríkis-
stjórnin okkur undirrituðum að
gera þær breytingar á lögum um
kosningar til Alþingis, sem nauð-
synlegar yrðu vegna fyrirhugaðr-
ar stjórnarskrárbreytingar. f um-
ræðum á Alþingi og í ummælum
blaða hefur ýmist verið fullyrt
eða látið að því liggja, að þau
mistök hafi orðið af okkar hálfu,
að ekki hafi verið fylgt ákvæðum
stjórnarskrárfrumvarpsins um
niðurfellingu landslista, og hafi
stjórnarskrárnefnd n.d. af þeim
sökum orðið að semja yfir 40
breytingartillögur við kosninga-
lagafrv. Með því að hér er ýmist
rangt eða mjög villandi með mái
farið, teljum við óhjákvæmilegt
að birta eftirfarandi /athuga-
semdir:
1. Þó að við tækjum að okkur
að fella nauðsynlegar bveytingar
inn í kosningalögin, réðum við
engu um efni þeirra að öðru
leyti. Af því hafði ríkisstjórnin
veg og vanda, þar á meðal því,
að látin var haldast heimild
flokka að hafa landslista í kjöri.
Meðan á samningu frv. stóð, var
jafnan haft samráð við ríkis-
stjórnina um efni þess, og er við
skiluðum henni frv., kynnti hún
sér það og lýsti sig samþykka því
í öllum greinum. Lét hún og
prenta frv. og lagði það fram á
Alþingi.
2. Þegar við unnum að samn-
ingu frv., kom það vitanlega til
umræðu milli okkar, hvort fyrir-
huguð stjórnarskrárbreyting væri
því til hindrunar, að flokkar bæru
fram landslista. í 31. gr. núgild-
andi stjórnarskrár er berum orð-
um tekið fram, að flokkum sé
heimilt að hafa landslista í kjöri,
en svo er ekki í fyrirhugaðri
st j ór nar skr árbrey tingu. Þetta
þarf að sjálfsögðu ekki að hafa
aðra þýðingu en þá, að flokkar
hafa ekki lengur stjórnarskrár-
tryggða heimild til að bera fram
landslista. Hinsvegar útilokar það
ekki, að flokkum sé veitt slík
heimild í kosningalögum, þar sem
engin ákvæði væntanlegrar stjórn
arskrárbreytingar banna það né
mæla því í gegn. f stjórnarskrár-
frv. er ákveðið, að 11 landskjörn
ir þingmenn skuli eiga sæti á Al-
þingi ,en þess ekki getið, hvernig
þeir skuli kjömir, og er almenna
Utanhúsmálun
Mála allt utan húss. —
Sími 9384.
löggjafanum ætlað að ákveða það
nánar í kosningalögum. Þess eins
er getið í stjórnarskrárfrv., að
hinir landskjörnu þingmenn skuli
vera „til jöfnunar milli þing-
flokka, svo að hver þeirra hafi
þingsæti í sem fyllstu samræmi
við atkvæðatölu sína við almenn
ar kosningar“. Þessum tilgangi
yrði engan veginn betur náð en
með því að leyfa landslista, svo
sem verið hefur. Framboðslistar
í kjördæmum- njóta og góðs af
þeim atkvæðum sem á landslista
falla. Ákvæðin um landslista í
kosningalagafrv. brutu því ekki
að neinu leyti í bága við fyrir-
hugaða stjórnarskrárbreytingu.
3. Eftir að kosningalagafrv.
hafði verið lagt fram á Alþingi,
ákvað ríkisstjórnin að fella úr
því heimild flokka til að bera
fram landslista. Var þá nauðsyn-
legt að breyta öllum þeim grein-
um kosningalagafrv., sem að ein
hverju leyti snertu landslista. Fól
ríkisstjórnin okkur að gera þær
breytingar, og er meginhlutinn
af þeim breytingatillögum, sem
stjórnarskrárnefndin bar fram,
saminn af okkur (milli 30 og 40).
Þær breytingartillögur, sem
nefndin samdi sjálf, varða yfir-
leitt ekki fyrirhugaða stjórnar-
skrárbreytingu og liggja því utan
þess verksviðs, sem okkur var
falið.
Reykjavík, 7. ágúst.
Reykjavík 7. ágúst 1959.
Árni Tryggvason,
Jónatan Hallvarðsson,
Þórður Eyjólfsson.
Mikil þátttaka
Þeim ber saman um að langt
sé síðan' að jafnmikil þátttaka
hefði verið í mótinu utan af landi,
en sá sé hængur á að utan-
bæjarmennirnir væru aðallega af
Suð-Vesturlandi. Enginn kæmi t.
d. úr Austfirðingafjórðungi, eng-
inn af Vestfjörðum og aðeins 2
úr Norðlendingafjórðungi og eng
inn frá Akureyri sem þó á marga
góða menn. Mun Meistaramót
Norðurlanda sem verður um
næstu helgi eiga sinn þátt í því.
En eigi að síður er þátttaka í
mótinu mikil sem fyrr segir.
Keppendur eru frá 6—11 í stökk
um og köstum og margir í styttri
hlaupum en í þeim lengri er þátt-
takan heldur léleg þetta 2—3 í
hverri grein. í kvennagreinunum
eru þátttakendur allt að 13 í
hverri grein en stúlkurnar keppa
í 9 greinum.
í öllum greinum karla er keppt
um bikara sem vinnast á 3—5
árum.
#
ir Allir þeir beztu
Allir beztu íþróttamenn Suð-
Vesturlands að Hauki Engilberts-
syni undanskildum eru með í mót
inu og segja má að í þeim hópi
séu flestir beztu íþróttamenn
landsins. Af þeim má nefna Vil-
hjálm Einarsson, Svavar Markús-
son, Hilmar Þorbjörnsson, Val-
björn Þorláksson, Þorsteinn Löve,
Jón Pétursson, Hörð Haraldsson,
Hallgrím Jónsson Kristleif Guð-
björnsson, Friðrik Guðmundsson,
Einar Frímannsson, Gunnar Huse
by og Gylfa Gunnarsson svo ein-
hverjir séu nefndir.
Keppnisgreinar í kvöld eru 200
m hlaup, kúluvarp, hástökk, 800
m hlaup, spjótkast, langstökk, 5
km. hlaup og 400 m grindahlaup.
Fréttin um VW-bílinn, sem komst að Jökulheimum í Tungnár-
botnum, vakti athygli sem vonlegt var. Þessi mynd var tekin
af Finnboga Eyjólfssyni við bílinn á hlaðinu framan við
Jökulheiinaskála.
Þrestir verpa oft og iðulega þrisvar á sumri. — 1 einu úthverf-
anna hefur þröstur nú gert sér hreiður heim við tröppur eins
hússins og tók ljósniyndari Mbl. þessa mynd af þrestinum við
hreiðrið sitt. — Þegar verið var að skrifa undir þessa mynd,
skaut einhver því inn í, að það gæti haft í för me'ð sér að
þrösturinn fældist af eggjunum, vegna ásóknar forvitinna ef
sagt yrði nákvæmlega frá því, hvar þetta væri og á það var
fallizt og er þetta þrastarhreiður „einhvers staðar í Reykjavík“.
Verð fjarverandi
til 1. september.
GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON læknir
gegnir fyrir mig.
ERLINGUR ÞORSTEINSSON læknir
Hugheilar þakkir og kveðjur sendi ég ykkur öllum,
sem minntust mín á 60 ára afmæli mínu 1. ágúst s.l.
Erlingur Guðmundsson, Galtastöðum
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 2
mánudaginn 10. ágúst.
Þvottahusið Drífa
Systir mín,
GUÐMUNDlNA HELGADÓTTIR
andaðist að Landakotsspítala laugardaginn 8. ágúst.
Fyrir hönd vandamcuma.
Ingibjörg Helgadóttir
Dóttir mín,
RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR
er andaðist 4. ágúst, verður jarðsett frá Fossvogskirkju
þriðjudag. 11. ágúst kl. 3.
Neríður Ketilsdóttir, Vestmannaeyjum
Móðir okkar,
SIGRlÐUR ÁSTA SNÆBJÖRNSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
andaðist að Elliheimilinu Grund 6. ágúst. Jafnframt
tilkynnist að dóttir hennar Hulda, andaðist í Danmörku
25. júií s.l.
Systkini, börn og tengdabörn hinna látnu
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, við andlát og
jarðarför eiginmanns míns,
FINNBOGA SIGURÐSSONAR
Jóhanna Hannesdóttir
Að heilum huga þökkum við hlýjar kveðjur og samúð
við andlát og jarðarför eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR JÓNU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Mosvöllum í Önundarfirði,
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Guðmundur Bjamason