Morgunblaðið - 30.08.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.08.1959, Blaðsíða 1
20 siðuv 46. árgangur 188. tbl. — Sunnudagur 30. ágúst 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kínverjar ógna Indlandi SAMKVÆMT fréttum, sem norska fréttastofan NTB hafði ettir AFP-fréttastofunni frönsku í gærmorgun og símaðar voru frá Nýju-Delhi, höfðu Kínverjar þá sett niður fallhlífa- herlið Kína-megin við landamæri Indlands. Samkvæmt sömu lieimildum hafa Kínverjar einnig varpað niður birgðum af vopnum, skotfærum og vistum til herja sinna á þessu svæði. Kínverskar sprengjuflugvélar hafa einnig sézt á sveimi á þessum slóðum. Ekki hefur þó dregið til neinna frekari átaka. f>á segir 1 frétt AFP, að indverski herinn, sem falið hef- ir verið að stjórna landamæra- vörzlunni, hafi fengið fyrir- skipanir um að hrekja til baka kínverska herflokka, sem kynnu að ráðast yfir landamærin. Hafa Indverjar sent liðstyrk til norð- austurlandamæranna og til Ass- amhéraðsins. Samkvæmt sömu heimildum benti ekkert til þess í gær, að kínverski herflokkurinn, sem tók indverska landamærastöð her- skildi s.l. þriðjudag, mundi hverfa þaðan á brott af fúsum vilja. ★ Eftir Reutersfréttum frá Lond- on að dæma, er það skoðún stjórn málamanna þar og | Washing- ton, að Kínverjar hafi einmitt val ið þennan tíma, meðan á Evrópu- <Að kveða niður I s s íenska drau«a j | VIENTIANE, Laos, 29. ágúst. | s (Reuter) — Ibúar þorpsins s i Nam Teo í Norður-Laos hafa S \ loks eftir langa mæðu fundið ■ S ráð til þess að kveða niður ( í „illa anda“, sem lengi hafa s ^ haft sig í frammi í grennd við ■ S gamlan, enskan kirkjugarð í s s þorpinu. — Vofurnar eru sem S ^ sé enskar og hafa ráfað þarna ■ s um frá því á siðustu öld — s ) svo að það var sannarlega mál, i \ að linnti. ■ S Þorpsbúar segja, að það sé s ) óbrigðuit ráð til þess að kveða i S niður „enska drauga“ — að • S setja fullan tebolla á leiðin kl. s \ 11 að morgni og 4 síðdegis. — s S Merkilegt, að þeir skyldu ( S ekki finna þessa aðferð fyrr. s s „Satúrnus46 tilbúinn eftir ár? Frankfurt, V-Þýzkalandi, 28. — (Reuter), WERNHER von Braun, eldflauga- sérfræðingurinn, kom hér við í dag á leið sinni til Bayern, en þangað fer hann til þess að sækja foreldra sína heim. Hann sagði við fréttamenn, að hin nýja risaeldflaug, „Satúrnus sem hann vinnur nú að, yrði e.t.v. tilbúin eftir eitt ár eða svo. „Sat- úrnus“ á að geta komið gervi hnöttum á braut hvort heldur er um jörðu, sólu eða einhverja af reikistjörnunum, enda langtum aflmeiri en aðrar eldflaugar, sem Bandaríkjamenn hafa fréunleitt. för Eisenhowers stendur. til þess að sanna Rússum, ekki síður en Vesturveldunum, að taka verði Kínverja „með í reikninginn“ við hverja tilraun, sem gerð er til þess að draga úr spennunni milli Austurs og Vesturs. Kínverska utanríkisráðuneyt- ið vildi ekkert segja í gær um ræðu Nehrus í indverska þing- inu í fyrradag, þar sem hann sakaði Kínverja um að hafa gert herhlaup inn fyrir landamæri indlands á Subansiri-svæðinu. Embættismenn indverska sendi- ráðsins í Peking vildu ekki held- ur neitt um málið segja. Indversk blöð fordæmdu i gær mjög framferði Kínverja og lögðu yfirleitt áherzlu á það, að Indverjar yrðu að verja landa- mæri sín með öllum þeim ráðum, sem tiltæk þættu. — Eitt blaðið, Ambalas Tribune, lét í ljós þá skoðun, að Rússar ættu að grípa í taumana og koma vitinu fyrir Kínverja. Sagði blaðið, að Rúss- ar hlytu að gera sér Ijóst, að Kínverjar sköðuðu fyrst og fremst sjálfa sig og settu frið- inn í Asíu í hættu með framferði sínu. Slíkar aðgerðrr hlytu að leiða til frekari andstöðu við kommúnismann yfirleitt — og Kina sér i lagi. Varnarliðsmenn skyldir til oð ganga undir blóðrannsókn Yfirmaðurinn er kallabi út her- lögregluna farinn af landi burt MEÐ hinum nýju umferðarlög- um frá sl. ári er þeim, er grun- aður er um ölvun við akstur, gert skylt að hlýta því, einnig gegn vilja sínum, að læknar opni honum æð og taki þaðan blóð til rannsóknar áfengismagns. Fyrir gildistöku þessara Iaga töldu læknar sér ekki skylt að fram- kvæma slíkar blóðtökur gegn mótmælum sökunauts og eftir gildistöku Iaganna synjaði for- stöðumaður Slysavarðstofunnar í Reykjavik um blóðtöku þegar kærður ökumaður mótmælti, nema fenginn væri úrskurður dómstólanna um skyldu og heim- ild lækna til blóðtöku þegar þannig stæði á. Úrskurður Hæsta réttar um þetta atriði féll 10. desember sl. á þá leið, að kærður var skyldaður til að þola þessa meðferð og læknirinn skyldaður til að framkvæma aðgerðina. Eftir gildistöku hinna nýju um ferðarlaga var varnarliðinu til- kynnt um efni þeirra og eftir uppkvaðningu dóms Hæstaréttar var liðinu einnig tilkynnt um niðurstöður hans. Af hálfu varn- arliðsins var því haldið fram, að ákvæðin um blóðtöku gæti ekki tekið til varnarliðsmanna, þar eð blóðtaka væri óheimil að banda- rískum lögum án samþykkis sökunauts. Af íslands hálfu var þá lögð fyrir varnarliðið grein- argerð, þar sem sýnt var fram á, að samkvæmt varnarsamningn um bæri varnarliðinu að hlýta ís- lenzkum lögum í þessu efni sem öðrum og liðinu tilkynnt, að ís- lenzkir löggæzlumenn myndu að sjálfsögðu framfylgja ákvæðum laganna án tillits til mótmæla. Framkvæmd ákvarðana um- ferðarlaganna um blóðtöku fór fram án árekstra við varnarliðið þar til miðvikudaginn 5. ágúst að lögreglulið varnarliðsins hindraði islenzka löggæzlumenn með valdi í að færa konu varnar- liðsmanns til blóðtöku eftir að hún hafði neitað blóðtökunni. Utanríkisráðuneytið tók málið þegar upp við sendiráð Banda- ríkjanna og krafðist þess, að fullnægjandi ráðstafanir yrðu gerðar til að koma í veg fyrir að atburðir sem þessir endurtækju sig og að þeim, sem ábyrgð bæru á ofbeldisaðgerðunum gegn ís- lenzku löggæzlumönnunum yrði refsað. Málið er nú endanlega leyst og eru niðurstöður þess eftir- farandi: Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur viðurkennt skyldu varnarliðsmanna til þess að gangast undir blóðrannsókn og jafnframt skyldað lækna Framh. á bls. 2. Skálholts- \ kirkjan nýja og j jarðgöngin Þ E S S A R myndir tók ljós- myndari Mbl. í fyrradag af Skálholtskirkju hinni nýju og jarðgöngunum undir henni, en þau liggja inn í væntan- legt „grafhýsi“ gamalla bisk- upa, sem verður undir kirkju- gólfinu. Göngin eru frá 12. öld og voru gerð upp í haust og sumar undir eftirliti þjóð- minjavarðar. Fyrir göngin hefur verið sett hurðin úr þeirri kirkju, sem síðast stóð í Skálholti, og er hún því a. m. k. 104 ára gömul. Eins og myndin að ofan sýnir, er kirkjan mikið mann- |virki og rúmar meira en Krists kirkja kaþólskra í Reykjavík. í ráði er að hún verði fullgerð 1961. Eitrun loftsins NÝJU-DELHI, 29. ágúst. — (Reuter) — Nehru, forstætisráð- herra Indlands skoraði í dag á sérfræðinga í alþjóðalögum, að gera sitt til að skapa almenn- ingsálit í heiminum, sem for- dæmdi allar tilraunir með kjarn- orkuvopn. *--------------* Bls. 3: Þakklætistilfinning trúarinna (Kirkjuþáttur). Innrás kommúnista í Laos. 6: Ögurkirkja 100 ára. — 8: Þættir úr sögu svifflugsins. — 10: Forystugreinin: „Útsvarsfrja auðhringur“. íslendingar ættu að byggja lít gistihús uppi í sveit. (Utan t heimi). — 11: Reykjavíkurbréf. — 13: Fólk í fréttunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.