Morgunblaðið - 30.08.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.08.1959, Blaðsíða 18
18 MORCTJNBIAÐ1Ð Sunnudaeur 30. agflst 1959 Spann Spánarför okkar í september er fullskipuð en fá- einir farþegar að auki geta fengið flugfar með Viscountflugvél til MadricJ 7, sept. og frá Barcelona til Reykjavíkur 29. sept. Fljót og þægileg ferð og hagstætt verð. FERÐAFÉLAGH) íiTSÝN Nýja Bíó — Sími 23510 kl. 5 til 7 e.h. Haust- og vetrartízkan nýkomin: frönsk, þýzk og ensk síðdegis- og kvöldkjólaefni. * ic Vesturgötu 2 * JVýtt „Guitare“ Varalitirnir margeftir- spurðu komnir í 7 lit- um. Ailir nýjustu litirnir I Lous Philippe Vonder Base cream foundation Nýjung CUTIPEN naglabandaeyðir Augnskuggar margir litir NÝTT fyrir karla og konur cool and dry sprey i brúsum við fótraka mjög gott. Snyrtivörubuðin Laugaveg 76 — Sími 12275. JVýtt Á eftirfarandi stöðum óskast strax UMBOÐSMENN til sölu og dreifingar á okkar heimsþekktu Tréveggtjöldum KÓPAVOGI — KEFLAVlK KEFLAVÍKURFLUGVELLI SANDGERÐI — HELLISSANDI ÓLAFSVÍK — GRAFARNESI BÍLDUDAL — FLATEYRI SUÐUREYRI — HNlFSDAL HÓLMAVK — HVAMMSTANGA RAUFARHÖFN — DdUPAVOGI EYRARBAKKA — HVERÁGERÐI iinkasalan GLUGGAR H.F. Skipholti 5 — Reykjavík — Sími 23905. 75 ára á morgun Snorri Sigfússon námsstj. Á MORGUN verður einhver mætasti barnafræðari þessa lands 75 ára. Hann er Svarfdæl- ingur og mun það vera eitt af því fáa, sem hann sjálfur telur sér til ágætis. Ég hefði síður en svo haft á móti því, að þessi sómamaður gæti rakið ættir sín- ar til Skaftfellinga austan Mýr- dalssands. Afmælisbarnið heitir Snorri Sigfússon. Ekki kann ég að rekja ætt né uppruna Snorra, en trúlega er hann af konungum kominn langt fram í ættir. Og einhvers staðar hefur einhver formóðir hans hrifist af góðum söngmanni og skáldi, því að hvorttveggja er honum í blóð borið, söngur og hagmælska. Hér skulu eigi heldur talin hin margvíslegu störf, sem Snorri hefur tekið sér fyrir hendur um dagana. En aðalstarf hans um liðlega hálfrar aldar skeið var í þágu uppeldis og fræðslu barna, Hann var lengst af skólastjóri, fyrst á Flateyri og síðan á Akur- eyri, en flestir munu þó hafa kynnzt fjölhæfni Snorra, starfs- gleði hans, hvetjandi leiðbein- ingum til starfs og dáða þau árin, sem hann var námsstjóri á Norð- urlandi. Þau urðu býsna mörg bréfin, sem Snorri námsstjóri sendi kennurum á Norðurlandi, til leiðbeininga á mörgum svið- um, og margar greinar ritaði hann í tímaritið HEIMILI OG SKÓLA, sem hann stofnaði og ritstýrði í mörg ár. Þá hefur hann einnig ritað um áhugamál sín í ýmis blöð og tímarit og flutt fjölda útvarpserinda. Mý- margt fleira mætti segja um skólamanninn Snorra Sigfússon, en hér skal látið staðar numið. Að lokum þó þetta: Uppistaðan í störfum Snorra er hin þjóðlega menning, sem horfnar kynslóðir hafa mótað, en ívafið er siðgæðis hugsjón kristinnar trúar. Þótt 5 ár séu nú liðin síðan Snorri „lét af embætti fyrir ald- urs sakir", þá hefur hann verið — og er enn — sístarfandi og hugsandi um þau mál, sem verða mega æskufólki þessa lands og þjóðinni til heilla og velfarnaðar. Þannig verður Snorri meðan hann heldur lífi og heilsu. Um þessar mundir dvelur Snorri í kóngsins Kaupinhöfn ásamt sinni ágætu konu, Bjarn- veigu Bjarnadóttur, sér til hress- ingar. Ég sendi honum hugheilar afmæliskveðjur, þakka honum lærdómsríkt samstarf og óska þess, að hann megi enn um langt skeið miðla öðrum af þekkingu sinni og reynslu. Lifðu heill og sæll sem lengst, ■ kæri vinur, Snorri. Helgi Elíasson. Ms. TUNGUFOSS fer frá Reykjavík þriðjudaginn 1. sept. til Norður- og Vesturlands. V iðkomustaðir: Bíldudalur Akmreyri Siglufjörður ísafjörður Vörumóttaka á mánudag. Hf. Eimskipafélag tslands. Akranes Til sölu er bílskúr úr timbri, járnklæddur, til flutnings. — Nánari upplýsingar veitir Val garður Kristjánsson, lögfræð- ingur, Akranesi, sími 398. VII NIIIIIRITIWIRK ZWOHITZ Við framleiðum: Segulbandstæki — diktafóna Bifilar — Oseiilógrafa Katódugeisla — Oscillógrafa Elektrokradiografa — Kardioskópa Mælitæki fyrir Encefalografa. Vinsamlegast biðjið um myndalista með öllum upplýsingum hjá: Handelsvestretung der Kammer fúr Aussenhandel, Austurstræti 10 A, Reykjavík Deutscher Ihnen- und Aussenhandel Elektrotechnik Berlin C 2. Liebknechtstrasse 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.