Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 22

Morgunblaðið - 23.09.1959, Síða 22
22 MORGVNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 23. sepf. 1959 Frumkvöðull frjáls- íþrótta og taðir víða- vangshlaupsins kvaddur TIL eru þeir menn, sem trúa á verk sín og athafnir — menn sem standa með ákvörðunum sínum, hvað sem á bjátar, — menn sem ekki leggja út í neitt, án þess fyrirfram að ætla sér að koma áhugamálum sínum í fram- kvæmd. Einn af þessum mönnum er Helgi Jónsson frá Brennu. Taki hann sér verk fyrir hendur, þá má treysta því að það verði framkvæmt. Áhugi hans á mál- um, sem á annað borð hrífa huga hans er ódrepandi og engin hindrun fær stöðvað hann við framkvæmd þeirra. Þetta voru inngangsorð að við- tali sem undirritaður átti við Helga frá Brennu í apríl 1956. Þessi orð koma fram 1 hugann aftur nú er þessi merkf frum- kvöðull íþrótta og útivistar ligg- ur á líkbörum. í dag minnast vinir hans, skari íþróttamanna, ferðamanna og flestir eða allir eldri íbúar Reykjavíkur, þessa merka manns — þessa borgarinn ar barns, sem átti það áhugamál heitast að laða unga sem gamla að íþróttum og útivist. ★ ★ Já, margir þekkja það, að Helgi frá Brennu trúði á þann málstað sem hann barðist fyrir — og ótalmargir eru sigrar hans. Hann vann aldrei í eiginhags- munaskyni. Félög hans, aðrir menn, málefnið, sem hann barðist fyrir sátu alltaf í fyrirrúmi. Hann var sérstæður á þessari öld, sannur „sportmaður" eins og hsuin sjálfur vildi kalla það. ★ ★ Það vill svo til að á þessu ári eru liðin 50 ár frá því fyrst var keppt hér á landi í frjálsum íþróttum. Fremst í hópi frum- kvöðla þeirrar íþróttar var Helgi frá Brennu. Hann barðist fyrir því að áhöld fengjust til frjáls- íþróttaiðkana, keppti sjálfur og hvatti aðra. Hann var sívaxandi við fræðslu um réttar aðferðir við iðkun hinna ýmsu greina, las erl. bækur, Þýddi, lærði og kenndi öðrum. Helga frá Brennu má áreiðanlega öðrum fremur kalla „föður frjálsíþrótta á ís- landi“. Hann trúði á gildi íþrótt- anna, hann trúði því að málstað- ur hans væri réttur. Hann var fyrirfram viss um að það áhuga- mál hans, að berjast fyrir út- breiðslu íþróttanna væri fram- faramál. Og þegar Helgi frá Brennu var fullviss um eitthvað þá gat enginn stöðvað hann. Hann á sinn mikla þátt í því að frjálsar íþróttir hafa verið iðkaðar í 50 ár á íslandi, og á því tímabifi hefur hann verið marg- efldur baráttumaður íþróttanna. Spor hans hafa víða legið til upp byggingar og framfara, svo víða Helgi frá Brenmu að of langt yrði upp að telja. Hann lagði allt í sölurnar — jafnvel störf sín — af því hann trúði á málstað sinn og hafði dug og þor til að standa og falla „í krafti hins réttláta máls“. Sömu sögu er áréiðanlega af Helga frá Brennu að segja í mál um ferðafélaga spm hann hefur starfað í. En þá sögu þekki é'g ekki eins vel. ★ ★ Þessi grein hófst á upphafsorð um í samtali okkar Helga fyrir hálfu fimmta ári. Tilefni samtals ins var 40 ára afmæli Víðavangs- hlaups ÍR. Helgi var upphafs- maður þess — og sá sem aldrei fékkst til að gefa eftir, þegar aðrir töldu vonlaust að viðhalda hlaupinu. Fyrir ódrepandi áhuga Helga — kannski það sem hann sjálfur kallaði „Brennuþráa" og taldi sig hafa nokkuð í ríkum mæli — er þetta hlaup nú elzta, fastmótaðasta og ein skemmtileg- asta hefð íslenzkra frjálsíþrótta í dag. í áðurnefndu viðtali kom Helgi að því að lítill áhugi hefði verið fyrir hlaupinu á árunum eftir að það var stofnað, og Helgi sagði í viðtalinu: „Svo fór meira að segja að Björn Ólafsson (fyrrv. ráðherra sem var aðalstuðnings- maður Helga um stofnun hlaups- ins) sagði við mig: „Eigum við ekki að hætta þessu?“ Ég sagði: „NEI — heldur fer ég niður í Verkamannaskýli og kaupi ein- hverja menn til að hlaupa, held- ur en að hlaupið falli niður“ — En til þess kom aldrei, sagði Helgi og alltaf hefur það farið fram — og vonandi fer það alltaf fram“. Þessi stutti kafli viðtalsins gef ur hugmynd um einn sterkasta þáttinn í skapferli Helga frá Brermu — þann að gefast aldrei upp við áhugamál sín að trúa á máistað sinn. ★ ★ Helgi var „borgarinnar barn“ og frásögur hans sjálfs þar um tek ég úr viðtali er Matthías Jo- hannessen ritstjóri átti við hann sjötugan. Við spumingu Matt- híasar um það hvort Helgi sé ekki Reykvíkingur í húð og hár, svarar Helgi. — Já, og foreldrar mínir báð- ir. Og „— kúgaður kominn i heim inn“, eins og allir Suðurnesja- menn. En auðvitað er ég fyrst og fremst Austurbæingur. Þegar Er- lendur (heitinn) Pétursson átti merkisafmæli eitt sinn, sagði hann í blaðaviðtali við Mbl., að hann hefði aldrei sofið fyrir aust- an Læk. Ég sendi honum þá af- mælisskeyti og sagði, að það væri frá manni, „sem hefur aldrei sofið viljandi fyrir vestan Læk“. Og síðar í þessu viðtali við Helga sjötugan falla orð þannig: — Þú hefur alltaf haft mikla ánægju af að ferðast. — Já, það er ein mesta ánægja mín í lífinu. Ég hef aldrei farið £ gönguferðir heilsunar vegna, heldur aðeins vegna þeirrar ánægju sem þær veita manni. Það er alltaf gaman að ná einhverju takmarki, sigrast á erfiðleikum — það er alveg sama hvort það er fjallstindur eða kvenmaður. Maður á aldrei að gefast upp! — En þó er kannski aldrei hægt að ná takmarkinu, því alltaf bíður manns nýr tindur ,sem aldrei hefur verið sigraður. — Ég þýddi þessi orð einu sinni úr ensku og gerðu margir grín að mér fyrir bragðjð: Engin keppni er töpuð fyrr en hún er unnin! Það er mikið til í þessu, hvað sem hver segir“. ★ ★ Þetta urðu einkunnarorð Helga frá Brennu. Hann gaf sig aldrei — og sigraði oftast að lokum. Ævibraut hans er þakin sigurvörðum — fyrir íþróttir og útilíf. í keppninni að því tak- marki sinu — tapaði Helgi ekki, heldur þvert á móti — hánn vann glæsilegan sigur. A. St. 45,8 400 sek í\ m VESTUR-ÞJÓÐVERJINN Carl Kaufmann setti á laugardaginn jiýtt Evrópumet í 400 m hlaupi. Náði hann undragóðum tíma 45,8 sek. Hlaupið var ein grein í landskeppni Pólverja og Þjóð. verja. Kaufmann sigraði í hlaupinu og var um 10 m á undan næsta manni, landa sínum Kinder sem hljóp á 46,7 sek. Þriðji var Pól- verjinn Kowalski á 47,0 sek. Fyrra Evrópumetið var 46,0 og áttu það Þjóðverjinn Rudolf Ilarbig og Rússinn Ignatiev. ingimar flýði skattinn — er fluttur til Sviss INGIMAR JOHANSON heims- meistari í hnefaleikum flýði á föstudaginn undan skattayfir- völdum Svíþjóðar. Leigði hann sér fallegt og íburðarmikið ein- Bíkorkeppni í stað haustsmót UM HELGINA fóru fram tveir leikir í haustmóti reykvískra knattspyrnu- manna. KR vann Víking með 4 gegn 1 og Fram sigr- aði Þrótt með 2 gegn 1. — Lítill spenningur er í mót- inu, knattspyrnan þykir heldur léleg og dauf. KR hefir nú forystuna með 4 stig eftir tvo leiki. Vinni KR mótið, vinnur fé- Iagið bikarinn, sem um er keppt, til eignar. — Fari svo, er það ósk margra knattspyrnuunnenda, að eitthvað skemmtilegra verk- efni og meira spennandi verði skapað fyrir knatt- spyrnumenn að haustinu, t. d. bikarkeppni, annað- hvort á takmörkuðu svæði eða öllu landinu. - Slík keppni tíðkast í flestum eða öllum Evrópulöndum og þyrfti sem fyrst að athuga hvort ekki bæri að taka hana hér upp. Reg Matthews, markmaður Chelsea, kastar sér fyrir fætur Woosnam, hægri innherja West Ham og grípur knöttinn örugglega. Myndin er tekin úr Ieik milli Chelsea og West Ham, sem fram fór sl. laugardag. — West Ham vann 4—2. býlishús í Genf — með öllum hús gögnum — og lýsti því yfir að hann héðan í frá ætti heimili sitt í Sviss“. Ingimar kom á föstudaginn til Genfar og fór þegar á fund eigna miðlara og hitti síðan banka- stjóra og fór svo að skoða íbúð- arhús. Hann kærði sig ekki um hin fallegustu og eftirsóttustu íbúðarhús við Genfarvatnið, en vildi fá eitthvað meira ,útúr“. Fyrir valinu varð lítið en fall- egt hús með húsgögnum. Og heimsmeistarinn hafði ekki fyrr skrifað undir leigusamninginn, en hann tók sér flugfar til Gauta. borgar. í flughöfninni brosti hann breitt og yppti öxlum þeg- ar hann var spurðu að því, hvort hann „flytti" tií Genfar á flótta undan skattyfirvöldunum. Ingimar sagði að hann myndi. halda til Genfar aftur í næstu viku og hafa það gott í nýju íbúð inni unz hann færi til Holly- wood í næsta mánuði, en þá hefst taka kvikmyndar sem hann leik ur í — og þar með hefst hans kvikmyndaferill. Myndin heitir All the young men — og fjallar um atburði í Kóreustríðinu. Borgaryfirvöldin í Gautaborg staðfestu að Ingimar hefði til- kynnt brottflutning úr borginni. Það þýðir þó ekki að hann sé ekki sænskur ríkisborgari. Honum er heimilt skattyfirvaldanna vegna að hafa íbúð í Sviss og vera áfram sænskur ríkisborgari. Hafa ísl. handknattleiksmenn ekki áhuga á Evrópukeppninni? FYRIR nokkru var komið á handknattleikskeppni í Ev- rópu, sem almennt gengur und ir nafninu „Evrópubikara- keppnin", því til hennar mæta eitt lið frá hverju landi og keppa um bikar og — Evrópu- meistaratitil. Keppni þessi stendur nú fyrir dyrum í Frakklandi og hafa svo mörg lönd tilkynnt þátttöku að - Frakkar, sem sjá eiga um keppnina að þessu sinni, eru að hugsa um atf setja upp riðla keppni og láta aðeins úrslita- keppni fara fram í Frakklandi. Nú stendur til að skipta þátt- tökuríkjunum í fjóra riðla, þ. á m. einn norrænan, þar sem AGF (Danmörk, Redbergslid frá Sví- þjóð, Helsinki (Finnland) og Fredensborg (Noregi) keppa. — Ennþá er ekki endanlega ákveðið að riðlaskipting verði. Stendur það og fellur með því, að Frakk- ar fái leyfi alþjóðasambandsins til þess að taka Spánverja með í keppnina (en þá verða þátttöku ríkin 16), en Spánverjar eru í 1 árs keppnisbanni hjá alþjóðasam- bandinu. En standi alþjóðasam- bandið fast við keppnisbannið, þá verður auk norræna riðilsins, riðill í mið- og Austur-Evrópu, þriðji riðillinn í V-Evrópu og sá fjórði í S-Evrópu. Spánverjarnir eru í banni vegna þess að þeir hættu svo skyndilega við til- kynnta þátttöku í heimsmeistara keppninni á sl. ári. Lítur al- þjóðasambandið þá ákvörðun mjög alvarlegum'augum og eru því litlar líkur til að þeir fái ryi að losna undan banninu. Evrópubikarskeppninn hefur vakið mikinn áhuga í röðum handknattleiksmanna um attR álfuna. Ekki er blaðinu kunn ugt um að Handknattleikssam- band íslands hafi gefið mái- inu nokkum gaum — en verið gæti að meistarar okkar hefðu hug á slíkri þátttöku upp á sinn kostnað, þó kannski hand knattleikssambandið, sem slíkt, gæti ekki staðið straum að kostnaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.