Morgunblaðið - 29.09.1959, Síða 23
Þriðjudagur 29. sept. 1959
MORCUWBL 4Ð1Ð
23
Macmillan segist hafa greitt tyrir að
Eisenhower og
Krúsjeff hittust
Mynd þessi var tekin á síðasta fundi þeirra Krús jeffs og Eisenhowers í Camp David á sannudag-
inn. Krúsjeff ér að kveðja forseta Bandaríkjanna.
ar enda myndu þeir hafa náin
samráð við forustumenn banda-
mannaþjóða sinna um Berlínar-
málið og um fund æðstu manna
stórveldanna.
LONDON, 28. sept.
— (Reuter) —
MACMILLAN, forsætisráð-
herra, ítrekaði í kosninga-
ræðu í dag fyrri fullyrðingu
sína um það, að hann hefði
brotið ísinn í samskiptum
austurs og vesturs með
Moskvu-ferð sinni snemma á
þessu ári. Þannig hefði hann
rutt brautina að samningavið-
ræðum Krúsjeffs og Eisen-
howers.
Yfirlýsingu þessa gáf Mac-
millan á fundi í Acton, einu
Húsfylli ú fyrírlestii Valdimars
Björnssonar ú sunnudaginn
— Camp David
Framh. af bls. 1.
enn áherzlu á það, að varðveita
bæri heimsfriðinn.
Móttökur í Moskvu
Til Moskvu kom Krúsjeff eft-
ir 10% klst. flug. Ýmsir forustu-
menn í stjórn og her og erlendir
sendimenn tóku á móti honum á
Vnukovo-flugvelli.
Krúsjeff birtist í útgöngudyr-
um flugvélarinnar, teygði upp
báða handleggi og hrópaði
„Okay“, en þetta ameríska mál-
tæki hefur hann lært og notað
mjög mikið í Ameríkuferðinni.
Mikil hyllingaróp glumdu við á
flugvellinum.
Síðan ók Krúsjeff rakleitt til
hinnar miklu íþróttahallar
Moskvu og flutti ræðu yfir þús-
undum áheyrenda.
Það var meginefni ræðu Krús-
jeffs, að hann spáði friðaröld,
sem byggðist á friðsamlegri sam-
búð austurs og vesturs. Það sagði
hann að væri eina leiðin til að
tryggja framtíð marmkynsins á
tímum langdrægra eldflauga, sem
gætu borið vetnissprengjur um
gervalla veröld.
Krúsjeff lofar Eisenhower fyrir
stjórnvizku
Sagði Krúsjeff, að menn sem
ekki gerðu sér þetta Ijóst væru
eins og strútar sem stingju hausn
um ofan £ sandinn. Hins vegar
sagði hann, að Eisenhower for-
seti væri ekki í þeirra hópi, hann
gerði sér fulla grein fyrir hætt-
unum. Sagði Krúsjeff m. a.: —
Ég verð að lýsa því yfir úr þess-
um háa ræðustóli og fyrir
Moskvubúum, fyrir allri þjóð
minni, ríkisstjórn og flokki, að
forseti Bandaríkjanna, Dwight
Eisenhower hefur sýnt frábæra
stjórnvizku, hugrekki og dyggð
í viðhorfum sínum til alþjóða-
stjórnmála.
Krúsjeff sagði, að það væri
ekki hægt að ætlast til þess að
öll vandamál leystust þótt hann
færi í eina heimsókn til Banda-
ríkjanna og skoðaði nokkrar
borgir, en viðræðurnar í Camp
David hefðu verið mjög hrein-
— Serkir
Framh. af bls. 1.
væri alger misskilningur hjá
Frökkum, ef þeir héldu að
þeir gætu gengið fram hjá
henni.
Ferhat Abbas forsætisráð-
herra Serkjastjórnar sagði, að
Serkir gætu ekki með nokkru
móti sætt sig við tillögur, sem
miðuðu að því að skipta landi
þeirra. Baráttunni yrði haldið
áfram, því að þjóðfrelsisher-
inn væri eina trygging Alsír-
búa fyrir því að sjálfstæðis-
vonir þeirra fengju að rætast.
Hinsvegar væru Serkir ætíð
reiðubúnir að semja við
Frakka um vopnahlé og að
Alsírbúar skyldu sjálfir á-
kveða framtíð sína.
Leiðrétting:
í síðasta Velvakanda varð sú
villa, að ritað var bleyja í stað
teygja. Leiðréttist þetta hér með.
skilnar. Kvaðst Krúsjeff hafa
lagt til, að efnt yrði hið fyrsta
til fundar æðstu manna stór-
veldanna.
Þröskuldum rutt úr vegi
Eisenhower forseti átti
fund með blaðamönnum í gær
morgun og vék talið mjög að
viðræðum hans við Krúsjeff
í Camp David.
Forsetinn sagði m. a., að
hann teldi að ýmsum þrösk-
uldum hefði verið rutt úr
vegi fyrir fundi æðstu manna
stórveldanna. Hann benti sér-
staklega á það, að Krúsjeff
hefði fullvissað hann um, að
hann hefði engar hótanir í
huga í sambandi við Berlínar-
málið.
Eisenhower kvaðst hafa rætt
Berlínarmálið langa stund við
Krúsjeff. Kvaðst hann telja eft-
ir þær viðræður, að veðráttan í
samskiptum austurs og vesturs
væri að batna. Frekari samninga-
viðræðum um Berlínarmálið
hefði ekki verið ákveðinn neinn
viss tími. Sagði Eisenhower, að
Bandaríkjamenn væru enn sem
fyrr ákveðnir í því að framselja
"Rússum ekki íþúa Vestur-Berlín-
Þrír héðan
til Peking
SL. föstudagsmorgun lögðu þrír
menn upp í langa reisu austur á
bóginn, alla leið til Peking, höf-
uðborgar Kína. Hér var um að
ræða þrjá gamalkunna kommún-
ista, sem fóru austur til þess að
samfagna félögum sínum eystra
á 10 ára afmæli kommúnistabylt-
ingarinnar í Kína hinn 1. okt.
Þremenningarnir eru þeir Sig-
urður Guðnason, fyrrum alþm.,
Gunnar Benediktsson, rithöfund
ur Hveragerði og Eggert Þor-
bjarnarson, skrifstofumaður hjá
Útflutningssjóði. Þeir voru til-
nefndir af Sósíalistaflokknum, til
að fara austur.
Athugasemd
Athugasemd frá flugvallar-
stjóranum á Keflavíkurfiug-
velli við greinargerð flug-
málastjóra (sem birtist í Mbl.
sl. siunnudag):
HVAÐ snertir það sem fór milli
mín og flugmálastjóra í sam-
bandi við atburðinn á Keflavík-
urflugvelli þann 6. þ.m. vil ég
taka það fram, að það eina sem
flugmálastjóri fór fram á að ég
aðhefðist í máli þessu var það að
ég kæmi á fund með honum og
yfirmanni flughersins daginn eft-
ir, en á fundi þessum átti að fjalla
um framangreinda atburði. Af or-
sökum sem mér eru ókunnar var
fundur þessi aldrei haldinn.
Pétur Guðmundsson.
VALDIMAR Björnsson fjármála-
ráðherra talaði á vegum íslenzk-
ameríska félagsins í veitingahús-
inu Lído kl. 3 eftir hádegi á
sunnudag. Var húsið þéttskipað
áheyrendum og meðal þeirra for-
seti Islands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, biskupinn yfir íslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson,
ásamt frú sinni sendiherra Banda
ríkjanna, John Muccio og séra
Friðrik Friðriksson í KFUM.
Formaður Íslenzk-ameríska fé-
lagsins, Gunnlaugur Pétursson
borgarritari, setti samkomuna og
bauð þau hjónin Guðrúnu og
Valdimar Björnsson velkomin.
Jón Þorvaldsson,
kaupmaður Akur-
eyri áttræður
JÓN Þorvaldsson, kaupmaður,
Hafnarstræti 45, Akureyri, er
áttræður í dag. Jón er fæddur á
Finnastöðum í Hrafnagilshreppi.
Hann lagði stund á trésmíðanám
á Akureyri frá 1906 og lauk
sveinsprófi í þeirri iðn 1909.
Næstu ár var hann við nám á
Norðurlöndum og var síðan
smíðakennari á Hólum frá 1912
til 1918.
Frá 1918 til 1931 vann Jón við
verzlunarstörf á Akureyri, en þá
stofnaði hann sína eigin verzlun,
Nýju kjötbúðiha, sem hann hefur
rekið síðan.
Jón er tvíkvæntur. Fyrri konu
sína, Margréti Valdimarsdóttur,
leikkonu, missti hann eftir rúm-
lega árs sambúð. Eignuðust þau
eina dóttur.
Síðari kona Jóns er María Guð
mundsdóttir frá Hnífsdal og eiga
þau tvær uppkomnar dætur.
Hinir mörgu vinir Jóns Þor-
valdssonar senda honum hugheil-
ar kveðjur á þessum merkisdegi.
B. H.
Síðan tók Valdimar til máls og
hélt fyrirlestur sem hann nefndi
„Það er svo bágt að standa í
stað“. Fjallaði hann um viðhorf
Vestur-lslendinga fyrr og nú,
?ær breytingar sem orðið hafa
á síðustu áratugum bæði í Vest-
urheimi og hér heima á íslandi,
viðleitni Vestur-fslendinga til að
halda þjóðararfi sínum við lýði
og elztu leiðir til að styrkja
böndin milli íslands og íslend-
inga vestan hafs..
Að síðustu 'tók Sigurður A.
Magnússon blaðamaður til máls
og þakkaði fyrirlesaranum fyrir
hönd Íslenzk-ameríska félagsins
og áheyrenda. Kaffi var veitt á
eftir og heilsuðu þau hjónin,
Guðrún og Valdimar, upp á ýmsa
gamla kunningja meðal áheyr-
enda.
úthverfi Lundúnaborgar. Um
1000 manns voru á fundinum.
„Mig langar til að spyrja ykk-
ur einnar spurningar“, sagði Mac
millan. „Ég held það sé ekkert
ósanngjörn spurning. Haldið þið,
að Krúsjeff og Eisenhower for-
seti hefðu rætt saman í Camp
David í síðustu viku, ef ég hefði
ekki ákveðið að brjóta ísinn og
fara til Moskvu?“
Macmillan var ákaft hylltur á
þessum kosningafundi. Hann
sagði, að Verkamannaflokkurinn
væri mjög skiptur í utanríkismál
um og þess vegna væri hann ó-
fær að annast samninga um al-
þjóðamál fyrir Bretland.
Hugh Gaitskell, foringi Verka-
mannaflokksins var á allt ann-
arri skoðun í dag, þegar hann
flutti kosningaræðu í Norður-
Englandi. Taldi hann enga fær-
ari til samninga um heimsvanda-
málin en foringja Verkamanna-
flokksins. Um viðræður Krús-
jeffs og Eisenhowers í Camp
David, sagði Gaitskell, að enn
væri allt á góðum vegi. Hann
hefði ekki búizt við neinum
samningum, en ástandið í alþjóða
málum hefði batnað.
Gaitskell kvaðst því fylgjandi,
að fundur æðstu manna stórveld-
anna yrði haldinn í vetur, áður
en Eisenhower færi til Rússlands.
Vildi hann að Vesturveldin legðu
fram ákveðnar tillögur varðandi
Berlínarvandamálið, um bann
við kjarnasprengjutilraunum, og
myndun vopnlauss svæðis í Mið-
Evrópu. Gaitskell sagði, að sumir
héldu því fram, að Krúsjeff
myndi ekki vilja fallast á neitt
afvopnunareftirlit. Þetta kvað
hann þurfa að reyna á og sjá
hvað Krúsjeff meinar með af-
vopnunartillögum sínum.
Innilegar þakkir færi ég börnum, tengdabörnum og
öðrum vinum er glöddu mig á sjötugsafmæli mínnu, með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Kristinn Steinar Jónsson, Laufásvegi 50.
Faðir -okkar,
ÞÓBÐUR JÓNSSON
bókhaldari frá Stokkseyri,
andaðist í Landsspítalanum 28. þ.m.
Helga Þórðardóttír, Kristín Þórðardóttir.
Guðrún Þórðardóttir, Sigurður Þórðarson,
Bagnar Þórðarson.
Útför fósturföður míns
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR
frá Vestmannaeyjum
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. okt. kl.
10,30 fyrri hádegi. Athöfninni verður útvarpað.
Guðrún Helgadóttir
Hjartans þakkir til allra nær og fjær er sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
PÁLS ÁRNASAONAR
á Þverá.
Sérstakar þakkir færum við prestshjónunum á Grenj-
aðarstað.
Vandamenn.
Þökkum innilega hluttekningu og vinsemd sýnda við
andlát og jarðarför
ÞÓRHALLS SIGTRYGGSSONAR
fyrrverandi kaupfélagsstjóra.
Kristbjörg Sveinsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.