Morgunblaðið - 04.10.1959, Page 11
Sunnudagur 4. okt. 1959
MORGVNRLAÐIÐ
11
SKI
VARAH LUTIR
Skodaeigendur
Nú er rétti tíminn til að láta gera
upn vél bifreiðarinnar. Nýkomnir
vélavarahlutir. Einungis fyrsta
flokks orginal varahlutir.
V- KRIHGLUMYRARVEG • SfM/ 32SSJ
Eigendur Skodabifreiða
Munið að leita fyrst til okkar er þér
þurfið að láta framkvæma vélaviðgerð
á bifreið yðar.
Höfum öll sérverkfæri og varahluti á
staðnum. Menn með margra ára reynslu
í viðgerðum Skodabifreiða annast allar
viðgerðir. Ákvæðisvinna ef óskað er.
Skodaverkstæðið
við Kringlumýrarveg, sími 32881.
LOKSINS!
gæbapenní sem
allir geta eignast
SheafferS
Verð kr. 254,00.
Heildsölubirgðir:
Iigili Guttormsson
Óska eftir
samstarfsmanni til að hrinda
í framkvæmd nýrri uppfinn-
ingu að nýju fiskveiðitæki. —
Þarf að geta lagt fram nokkra
fjárupphæð. Tilboð merkt: —
„Agóði — 9303“, leggist inn á
afgr. blaðsins fyrir 6. okt.
STRÆXUM VORRA TlMA
Nú á tímum ber götulífið æ meiri svip af umferðinni.
í óslitnum straumi umferðarinnar hreyfist aragrúi farar-
tækja að settu marki. Stöðugt eru gerðar hærri kröfur til
þeirra sem farartækjunuim stjórna um árvekni og einbeit-
ingu hugans við aksturinn. Öryggiskenndin er í þessu sam
bandi tilfinning sem ekki ber að vanmeta. Hámark þessarar
öryggiskenndar hlotnast yður með því að nota hin full-
komnu og traustu reiðhjól frá Fahrradelektrik.
Þauvanir vélfræðingar, tæknimeistarar og fagverkamenn
sérvélaiðnaðar þýzka alþýðulýðveldisirts vinna látlaust að
endurbótum og fullkomnun reiðhjólanna. Vinna þessara
manna er öll í þágu öryggis yðar! Vegna viðurkenndra
vörugæða hafa reiðhjólasmiðir vorir áunnið sé traust innan
reiðhjólaiðnaðarins.
Þetta vita smiðir, reiðhjólasalar og verkstæði.
Hjólreiðamenn finna það af reynslunni.
Útflutning annast:
TRANSPORTMASCHINEN EXPORT-IMPORT
DEUTSCHER INNEN-UND AUSSENHANDEL
DEUTSCHER DEMOKRATISCHER REPUBLIK
Hefi opnað
tannlœkningastofu
mína að Hverfisgötu 50
Eingöngu fannréttingar
Viðtalstími 13,30—15 nema
laugardaga. Sími 14723.
Þórður Eydal Magnússon
tannlæknir
OKKUR VANTAR
skrifstofustúlku
Þarf að hafa vélritunar og enskukunnáttu. Upp-
lýsingar í skrifstofu vorri Skipholti 33 á morgun
máriudag milli kl. 5 og 7 í kvöld.
VIKAN H.F. HILMIR H.F.
Skrifstofur vorar
eru fluttar
úr Tryggvagötu 8
Hafnarhvol
%
við Tryggvagötu II. hæð.
Landssamband íslenzkra útvegsmann.
Innkaupadeild L. í. t).
Félag íslenzkra Botnvörpuskipaeigenda.
VerzlunarhúsnœSi
Höfum til sölu við góða verzlunargötu skammt frá Mið-
bænum tæplega 400 fermetra eignarlóð.
Fyrir hendi er samþykkt teikning af nýju húsi á lóð
ina ,sem er kjallari og 5 hæðir og er 1. hæð hins nýja
húss öll teiknuð sem verzlunarhúsnæði.
Nú er búið að byggja hluta af kjallara og 1. hæð hins
nýja húss og er rekin þar lítil verzlun. Á lóðinni er
ennfremur timburhús, sem í er 5 herbergja íbúð og
geymsluk j allari.
Nánari upplýsingar gefur
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. — Símar: 13294 og 14314.
Listdansskóli
Þjóðleikhússins
Innritun fer fram í æfingasal Þjóðleikhússins uppi,
inngangur um austurdyr, sem hér segir:
Miðvikudaginn 7. október kl. 6 síðdegis fyrir nemendur,
sem voru s.l. ár í A, B, C og D flokkum.
sama dag kl. 7 síðdegis fyrir nemendur, sem voru s.l. ár
í E, F, G, H og I flokkum.
Engir nýir nemendur verða teknir í skólann I vetur.
Innritun fer ekki fram á öðrum tímum og ekki í síma.
Börnin hafi með sér stundatöflur, þannig að þau geti
sýnt á hvaða tíma þau geta verið í skólanum.
Kennslugjald verður sama og áður, kr. 150.00 á mán-
uði, og greiðist fyrirfram. Skólinn starfar til marz-loka
og er ætlast til, að innritaðir nemendur séu allan náms-
„þímann. Kennarar verða sömu og áður.
Kennsla hefst mánudaginn 12. október 1959.
ÞJÓÐJ^EIKHÚSIÐ.