Morgunblaðið - 04.10.1959, Síða 20
20
MORCVIVBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. okt. 1959
„Af því að það er flótti, dreng
ur minn, annað ekki. Yður finnst
áreiðanlega, að þér séuð orðinn
heilagur maður, þegar þér eruð
að lækna sár, sem górillaapar
hafa veitt innbornum monnum".
Hann hló. „Vitið þér að górilla-
apar ráðast aðeins á hausinn. —
Þeir draga húðina af höfði inn-
fæddra manna. Jæja, margir lifa
l>að af. En á meðan þér eruð að
sauma saman húðina á hausnum
á svertingjunum er úran fram-
leitt í Kongó. Og úr úran eru
kjarnorkusprengjur búnar til og
fyrir hvern einn, sem gerist lið-
hlaupi eins og þér, gefur sig fram
heill tugur annarra, sem hafa
ekkert á móti því, að fljúga ofar
skýjunum og leika Guð almáttug
an“. Hann þagnaði. Hann fann
greinilega að orð hans voru ekki
Sannfærandi. „Það getur hver
gert eins óg hann vill“, sagði Da-
yid, „ég get ekki komið í veg
fyrir það. En ég ætla ekki að
taka þátt í því. Ég veit, að þér
álítið mig heimskan ungling,
Antóníó, en það veit ég að ef
hver og einn gerði það sama, þá
myndi það nægja". Hann kom við
öxl Antóníós. „Getið þér flutt
mig til Adams Sewe?“
Anton stóð upp, kastaði seðli
á afgreiðsluborðið og kveikti sér
í vindling.
„Það er ekki örðugt að finna
Adam Sewe“, sagði hann. „Á
morgun verður hann fyrir rétti.
Þér þurfið ekki annað en að
ganga inn í dómhöllina, til þess
að kynnast honum — nákvæm-
lega eins og hann er“. Hann leit
framan í Davíð og brosti, og bros
ið var vingjarnlegt. „Gangi yður
vel“, sagði hann.
„Mig langar til að hitta yður
aftur“, sagði Ameríkumaðurinn
og reis lika á fætur.
„Það er ekki erfitt, drengur
minn. Ég verð líka í réttarsaln-
um á morgun“.
Síðan sneri hann sér snöggt við
og hraðaði sér út að dyrunum.
Hann fann hið undrandi og sorg-
mædda augnaráð flugmannsins
að baki sér. Hann vissi, að hann
mátti ekki snúa sér við, því ef
hann gerði það, þá sæi hann and-
lit, sem var líkt andliti hans frá
fyrri árum. Hann hratt upp hurð-
inni eins og flóttamaður, sem er
kominn að landamærunum, þar
sem honum er borgið.
Gatan var dimm og auð af
fólki. Það var kalt og stjörnu-
bjartur himinn hvelfdist yfir
Leopoldville.
Anton leit upp.
Kirkjuklukka sló tólf.
Dagur málaferlanna gegn
Adam Sewe var byrjaður.
Það var eftirvænting í Leopold
ville, þegar málið var hafið gegn
Adam Sewe, en þegar það var
tekið fyrir á ný, biðu allir í of-
væni.
Leigubíllinn, sem Yera kom í
til dómhallarinnar, átti erfitt með
að komast í gegn um mannþyrp-
inguna, sem var í kring um hús-
ið. Lögregluþjónar með hvíta
hjálma, reyndu hvað eftir annað
að dreifa mannfjöldanum. Barni
var þrýst upp að grindunum á
dýragarðinum á móti og varð að
flytja það burt í sjúkravagni. —
Það leið yfir nokkrar konur, sem
höfðu staðið klukkustundum
saman í sólskininu um' morgun-
inn. Aðgöngumiðar voru boðnir
og seldir fyrir svartamarkaðs
verð. Hópar innborinna manna
voru eins og svartir blettir á
hvítu svæðinu. Einstöku hópar
bóru spjöld, þar sem á var letr-
að með viðvaningslegri skrift:
„Sleppið Adam Sewe“, en á öðr-
um stóð betur gert: „Bindið endi
á úran-brask Sewes“.
Enda þótt hvert sæti 'æri
Það er barnaleikur að strauja þvott-
inn með „Baby“ borðstrauvélinni.
IlAriS WOIJFGANUí
Baby er einasta borðstrau-
vélin, sem stjórnað er með
fæti og því hægt að nota
báðar hendur við að hagræða
þvottinum.
Takmarkaðar birgðir
Pantanir óskast strax.
HM&
Austurstræti 14
Símar 11687.
skipað, var hinn mikli réttarsal-
ur eins og kyrrlátur blettur við
hliðina á háreysti götunnar.
Dómarinn var ekki ennþá kom
inn inn í salinn og því beindust
allra augu að Veru, þar sem hún
tók sér sæti í annarri röð í hin-
um einföldu, svörtu fötum sín-
um. Það heyrðist hvíslað: „Hvað
er kona hins myrta að vilja hing
að inn í réttarsalinn?" „Hún er
falleg á að líta, það má hún
eiga!“ „Hún er þýzk og henni er
trúandi til alls“. „Sjáið þið,
þarna er hún — káta ekkjan“.
Vera spennti greipar og horfði
fram fyrir sig. Hvers vegna var
Verneuil lögreglustjóri að leggja
þetta á hana? Hvað bjóst hann
við að hafa upp úr því, að hún
var viðstödd? Hún hugsaði um
Hermann, sem hafði setið við
hlið hennar við réttarhöldin síð-
ast. Hún var sannfærðari um það
en nokkru sinni áður, að dauði
hans væri í dularfullu sambandi
við réttarhöldin. Á þeirri stundu,
þegar málafærslumaður Sewes
krafðist þess, að Lúlúa væri yf-
irheyrð, virtust örlög Hermanns
ráðin. Þá varð henni hugsað til
Antons. Hún hafði misst föður
barnanna sinna í þessum afríska
réttarsal. Myndi hún líka missa
þar manninn, sem hún elskaði?
Anton hafði ekki komið til henn-
ar síðustu tvo dagana. Börnin
spurðu um hann. — Hann hafði
ekki komið vegna þess að hann
gat ekki litið í augu henriar. —
Hann hafði ekki komið vegna
þess, að hann ætlaði að fara að
sverja rangan eið.
Nú varð hún að svara kveðju
Verneuil löreglustjóra. Hann var
að taka sér sæti í fremstu röð.
Því næst kinkaði hún kolli til
Delaporte, sem var að ryðja sér
braut í einni bekkjaröðinni. —
Adam Sewe og forstjóri Adam-
Sewe-félagsins, André Martin,
tóku sér sæti á ákærðrabekkn-
um. Vera, sem eitt sinn varð að
snúa sér við, þar sem einhver
fór til sætis fram hjá henni, sá
hið eldrauða höfuð Zentu, söng-
konunnar í Perroquet-vínstof-
unni, í einni aftari röðinni. Ákær
andinn og verjandinn lutu yfir
skjöl sín. Það var naerri því eins
og fyrsti dagur yfirheyrslunnar
væri genginn aftur. Allir leikend
urnir í hinum mikla leik, sem
hét „Leopoldville“, virtust vera
saman komnir í réttarsalnum. —
Það var Hermann einn, sem
vantaði.
Vera var svo niðursokkin í
hugsanir sínar, að hún tók ekki
eftir því, að dómstjórnirin og með
WWWWÍW
Skrifborðslampar
Hentugir tyrir
skólafólk
Tfekla
Austurstræti 14
Sími 11687.
>■
aðu i burtu.
dómendur hans gengu inn í sal-
inn, fyrr en allir risu úr sæt-
um. Hún stóð skjótlega upp. —.
Annað réttarhaldið í Adam-
Sewe-málinu var byrjað.
„Ég segi réttarhaldið sett“
hljómaði rödd dómarans.
Um leið beindust augu allra að
dyrunum til. hægri. Landstjóri
Belgisku-Kongó kom inn og með
honum tveir menn í svörtum föt-
um. Nokkrir menn rýmdu fyrir
honum. Nú voru síðustu þrjú
auðu sætin í fyrstu röð einnig
orðin full. Enginn minntist þess,
að landstjórinn hefði nokkurn
tíma tekið þátt í réttarhaldi. Við-
urvist hans jók á hátíðleik athafn
arinnar.
......gparið yður hlaup
6 ruilli margra venkna!
öÖftUML
Ó CilUM
tlíPUM!
- Austurstrseti
ailltvarpiö
Sunnudagur 4. október
9.30 Fréttir og morguntónleikar.
(10.10 Veðurfregnir).
a) Strengjakvartett nr. 2 í D-dúr
eftir Borodin. «— Hollywood-
strengj akvartettinn leikur.
b) Emmy Loose syngur aríur eft-
ir Mozart. Undirleik annast
Erik Werba.
c) Gina Bachauer leikur píanó-
verk eftir Bavel o. fl.
d) Sinfónía nr. 5 eftir Charles
Effinger. Sinfóníuhljómsveit Is-
lands flytur verkið, sem til-
einkað er hljómsveitinni. —
Stjórnandi: Thor Johnson.
11.00 Messa í hátíðasal Sjómannaskól-
ans. (Prestur: Séra Jón Þorvarðs-
son. Organleikari Gunnar Sigur-
geirsson).
12.15—13.15 Hádegisútvarp.
15.00 Miðdegistónleikar:
a) ,,Liederkreis“, lagaflokkur óp.
24 eftir Robert Schumann. Gér-
ard Souzay syngur með undir-
leik Dalton Baldwins.
b) ,,í>ríhyrndi hatturinn'* — dans
sýningarlög eftir Manuel de
Falla. — Suisse-Romande-
hljómsveitin, kór og sópran
flytja. Stjórnandi: Ernest Ans-
ermet.
16.00 Kaffitíminnr
a) June Cristy syngur létt lög.
b) Bill Rowland leikur vinsæl
dægurlög á píanó.
16.30 Veðurfregnir. — Sunnudagslögin.
18.30 Barnatími (Helga og Hulda Val-
týsdætur).
a) Ævintýrið um Mjallhvít, í
leikritsformi. Leikstjóri: Bald-
vin Halldórsson.
b) Upplestur — og tónleikar.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Géza Anda leikur *
píanóverk.
19.45 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.20 Raddir skálda: Smásaga og Ijóð
eftir Jón Oskar. (Gísli Halldórs-
son, Hannes Sigfússon og höf-
undurinn lesa).
21.00 Tónleikar: Verk eftir Claude De-
bussy:
a) Nan Merriman syngur.
b) ,,Printemps“ — (,,Vorið“) —*
svíta fyrir hljómsveit. Suisse-
Romande-hljómsveitin leikur;
stjórnandi Ernest Ansermet.
21.30 Ur ýmsum áttum (Sveinn Skorri
Höskuldsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög.
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 5. október.
8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05
Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40
Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.).
12.00—13.15 Hádegisútvarp. — (12.25
Fréttir og tilkynningar).
15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir
og tilkynningar).
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Tónleikar. — (19.25 Veðurfr.).
19.40 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Einsöngur: Maria Stader syngur
óperuaríur eftir Gounod, Massen-
et, Mozart, Puccini o. fl.
20.50 Um daginn og veginn (Thorolf
Smith fréttamaður).
21.10 Tónleikar: Hljómsveitarverk eft-
ir finnsk tónskáld:
a) Angoscia eftir Nils-Eric Foug-
stedt.
b) Okon Fuoko, svíta eftir Leevi
Madetoja. Finnska útvarps-
hljómsveitin leikur. Stjórnandi
Nils-Eric Fougstedt.
21.30 Utvarpssagan: Garman og Worse
eftir Alexander Kielland.- XV.
lestur (Séra Sigurður Einarsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Búnaðarþáttur: Sitt af hverju
(Gísli Kristjánsson ritstjóri).
22.25 Kammertónleikar:
Strengjakvartett í As-dúr op.
105 eftir Antonin Dvórák. Barc-
het-kvartettinn leikur.
23.00 Dangskrárlok.