Morgunblaðið - 11.10.1959, Qupperneq 12
12
MORCTJTSBT/AÐ1Ð
Sunnudagur 11. ok't. 1959
JMwgitftifritaMfr
TJtg.: H.f. Arvakur ReykjavDL
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá T'
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsíngar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands-
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
Á FRAMTÍÐARVEGI
Upp úr votri gröf
Í^ngin þjóð þarf fremur tn
| íslendingar á að halda
J æskuþrótti og áræði. —
Styrkur Sjálfstæðisflokksins með
þjóðinni stafar ekki sízt af þvi,
hversu traustum böndum flokk-
urinn hefur ætíð verið tengdur
æsku landsins.
Auðvitað spretta öðru hverju
upp tízkustefnur, sem nokkur
hluti þjóðarinnar, þ. á. m. æsku-
lýðurinn, aðhyllist um sinn. Þeir:
sem nú skipa hina öldnu sveii
Alþýðuflokksins, voru einu sinni
ungir menn. Síðar varð um skeið
móðins meðal æskufólks að vera
kommúnisti. Og sú var m. a. s.
tíðin, að Fromsókn gat sótt efni-
lega unga frambjóöendur annað
en í fjármálaráðuneytið og fast-
an starfsmannahóp SÍS.
Þrátt fyrir þessar stundar-
hræringar hefur fylgi Sjálf-
stæðisflokksins á meðal íslenzks
æskufólks ætíð verið mikið. En
að sjálfsögðu nokkrum breyting-
um háð. Stundum hafa menn
látið blekkjast af gylliloforðum
og fögrum framtíðarhillingum.
Eitt af því sem sumir féllu fyrir,
var alsælan, sem koma átti, ef
viiistri stjórn tæki við völdum.
Nú hafa menn reynt þá stjórn-
arhætti. Þeir eiga sízt við skap
ungra manna. Æskumenn vilja
njóta frjálsræðis og réttlætis.
Þeir hafa andstyggð á því að
mega ekki hreyfa sig nema fá til
þess leyfi frá fjarlægum stjórn-
arherrum, hvað þá þegar yfir-
völdin eru á borð við Hannes
Páisson og Sigurð Sigmundsson.
★
Unga fólkið vex nú svo ört
upp, að þjóðfélag okkar á eftir
að gerbreytast á næstu áratug-
um. Til þeirrar uppbyggingar
þarf víðsýni og þor.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
markað stefnuna sem fylgja ber
á leiðinni til bættra lífskjara.
Þær tillögur, sem þar eru settar
fram, eru eins og talaðar úr hug-
um íslenzkra æskumanna.
Það er því eðlilegt, að ungra
manna gæti mjög í hópi fram-
bjóðenda flokksins nú. Yngsti
maðurinn á síðasta Alþingi var
Matthías Mathiesen, sem felldi
sjálfan forsætisráðherrann. —
Matthías er að sjálfsögðu í kjöri
á ný, nú í Reykjaneskjördæmi.
Hann er gjörvilegur, ungur mað-
ur, sem líklegur er til að láta
margt gott af sér leiða í íslenzk-
um stjórnmálum.
SPILLINGAR
Framsókn jók fylgi sitt við
þingkosningarnar í sum-
ar hér í bæ meira en
flestir höfðu búizt við. Astæð-
urnar til þess voru tvennskonar.
Annars vegar hafði átthagaástar-
áróðurinn einhver áhrif. Úrsiita-
þýðingu hafði hins vegar mis-
notkunin á atvinnuvaldi og'fjár-
magni SÍS og ýmissa almanna-
stofnana, sem Framsókn hefur
ráð yfir.
Það er hygginna manna háttur
að gera sér ætíð grein fyrir
hættu, sem að steðjar, þótt lítil
kunni að virðast. Kjördæmamál-
ið er nú úr sögunni og átthaga-
blekkingarnar duga ekki lengur.
En SÍS-valdið og Framsóknar-
hjörðin í almannastofnunum eru
óhreyfð.
Úti á landi þar sem menn eru
misnotkuninni vanir, vöruðust
Hér í höfuðstaðnum er þriðj-
ungur frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins úr röðum unga fólks-
ins. Tvö þeirra skipa örugg sæti,
þau Ragnhildur Helgadóttir og
Pétur Sigurðsson.
Ragnhildur Helgadóttir, sem
enn hefur ekki náð þrítugsaldri,
hefur þegar getið sér afbragðsorð
fyrir þingmennsku sína frá 1956.
Pétur Sigurðsson mun aftur á
móti nú í fyrsta skipti taka sæti
á Alþingi.
Allir, sem hlustað hafa á ræð-
ur Péturs Sigurðssonar, vita, að
hann er óvenjulega málsnjall og
einbeittur maður. Hvar vetna
þar sem Pétur hefur verið, hef-
ur hann skjótt komizt í fremstu
röð. Hann var höfuðtalsmaður
Sjálfstæðismanna á hinu sögu-
lega Alþýðusambandsþingi á sl.
vetri. Hann og félagar hans þar
gátu sér þá það orð, sem seint
mun gleymast.
Pétur Sigurðsson hefur ekki
einungis setið á málþingum
Hann hefur frá bemsku sótt sjó-
inn, á vélbátum, togurum og nú
farskipum. Hann talar á mergj-
uðu máli íslenzkra sjómanna.
★
Allir hinir ungu mennimir á
lista Sjálfstæðisflokksins hér í
bæ eru einnig listanum til prýði
og styrktar. Geir Hallgrímsson er
ungur að árum, en er nú þegar
viðurkenndur einn dugmestu
manna í sinni stétt og í fremstu
röð innan bæjarstjórnar.
Baldvin Tryggvason er ötutl
formaður Heimdallar og hefur
unnið ágætt starf fyrir fulltrúa-
ráð flokksins hér í bæ.
Guðmundur Garðarsson er for-
maður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og nýtur að verðugu
mikils trausts innan þeirra fjól-
mennu samtaka.
Pétur Sæmundsen hefur starf-
að mikið að félagsmálum, verið
formaður Heimdallar og reynzt
árvakur og gerhugull starfsmað-
ur í félagsskap iðnrekenda.
Jón Kristjánsson er vel þekkt-
ur af starfi sínu meðal verka-
manna í bænum og Birgir Gunn-
arsson er í fremsta hópi stúd-
enta.
Þessi álitlegi liðskostur er
Sjálfstæðisflokknum ómetanleg-
ur. Hann sannar hversu vitt
fylgi Sjálfstæðisflokksins grein-
ist á meðal æskumanna Reykja-
víkur. Hann sýnir, að fiokkurinn
á framtíðina fyrir sér.
- HÆTTAN
menn hana. Hér í bæ gættu
menn sín ekki eins og skyldi.
Framsóknarherrarnir beita ótrú-
legustu aðferðum, jafnvel í smá-
atriðum. í einni ríkisstofnun, þar
sem lítið er stundum um fé, hef-
ur gjaldkerinn, skjólstæðingur
Eysteins Jónssonar, iðkað það, að
láta þá'starfsmenn sitja fyrir um
launagreiðslur, sem keyptu happ
drættismiða Framsóknar.
Því miður hafa of margir látið
ánetjast í veiðivél Framsóknar.
Fólkinu er talin trú um að allir
stjórnmálaflokkar séu sama eðlis
og úr því að illt eigi að vera, þá
sé bezt að ganga þeim á hönd,
sem slyngastur sé í vélabrögðum.
Gegn þessari spillingu hljóta
öll heilbrigð öfl að rísa til varnar
Sjálfstæðismenn vara nú almenn
ing rækilega við hættunni. Þeir
munu ekki láta af baráttu sinni
fyrr en henni er eytt.
eftir 331 ár
JJINN 10. ágúst árið 1628 lét
hið nýja og glæsilega
flaggskip Gústavs Adolfs
Svíakonungs úr höfn í Stokk-
hólmi. Konungurinn hafði
sjálfur haft hönd í bagga með
teikningu og smíði skipsins,
og var ekkert til sparað að
gera það-sem glæsilegast úr
garði, enda var það stolt kon-
ungs og allrar þjóðarinnar.
En þetta glæsta .stríðsskip,
„Vasa“, sem átti að vera kór-
ónan á flota Svía (þetta var
á tímum 30 ára stríðsins),
varð aldrei sá ógnvaldur ó-
vinanna, sem því var ætlað —
það lagðist á hliðina, skömmu
eftir að lagt var úr höfn, og
sökk — aðeins nokkur hundr-
uð metra frá landi.
— ★ —
★ í 331 ár hafði Vasa legið í
sinni votu gröf, er hafizt var
handa um það í suraar að lyfta
s'kipinu frá botni og koma því á
þurrt. Ef það tekst, sem allar
horfur eru á, má það teljast ein-
stæður atburður. Ekki aðeins
bættist þannig blað við sögu for-
tíðarinnar, heldur væri það í
fyrsta sinn sem svo stórt skip
er dregið úr þoku aldanna,
★ Á 32 metra dýpi
Það er Andres nokkur Franzén
fertugur skipaverkfræðingur, er
gægzt hefir um gáttir sögunnar í
aldir aftur, einkum að því er varð
ar skipasmíðar og sjósókn, sem
er aðalhvatsmaðurinn að björg-
un Vasa. Það var hann, sem fann
skipið fyrir þrem árum, þar sem
það lá á 32 metra dýpi, hálf-
sokkið í leir sjávarbotnsins fyrir
utan „Beckholmen" við Stokk-
hólm. — Nú, eftir nokkurra vikna
starf, hefir ekki aðeins tekizt að
losa skipið frá botni, heldur er
þegar búið að flytja það alllanga
leið í áttina til lands — að „Kast-
ellholm" — en þar vonast menn
til að ná því á þurrt, jafnvel inn-
an árs.
★ Traust skip, en . . .
Vasa er allstórt skip, jafnvel á
nútímamælikvarða. Það er 50
metra langt, 12,5 metrar á breidd,
og mesta hæð, frá kili og upp á
lyftingu, er hvorki meira né minn
ae 16 metrar. Það hefir verið
traustlega byggt — má m. a.
marka það af því, að kleift reynd-
ist að lyfta því með mörgum,
sterkum stálvírum upp úr botn-
iegjunni — án þess að það laskað-
ist hið minnsta. Burðarviðir eru
gerðir úr eik og eru um hálfur
metri í þvermál.
En , ,traustleiki“ Vasa hefir
líka náð öllu lengra. — Það er
sem sé ekki nóg, að skipið sé
byggt úr traustu efni, ef sjóhæfni
er í öfugu hlutfalli við þol mátt-
arviðanna — en svo hefir sýni-
lega verið um Vasa. Það náði
tæplega eins langt á'jómfrússigl-
ingu sinni eins og nú er búið að
mjaka því í „hengirúmi“ sínu
eftir sjávarbotninum ...
— ★ —
• Eins og fyrr segir, var ekkert
til sparað að gera Vasa sem
skrautlegast og bezt úr garði.
Hátt og lágt, utan og innan, var
það skreytt útskornum myndum
af ljónum, hafmeyjum og drek-
um. Og vel varð það vopnum bú-
ið — með alls 64 fallbyssum, sem
komið var fyrir á þrem „hæðum“,
með tilheyrandi „vígalegum“
skreytingum kringum skotopln
— ljónum og drekum með gap-
andi gin. — Þegar skipið var full
búið vopnum og vistum, gaf
konungur skipun um að það
ir hafa fylgzt af áhuga með
björgunarstarfinu
skyldi sigla úr höfn, halda til
„Álvsnabben“ og bíða þar frekari
fyrirskipana, ásamt nokkrum
fleiri skipum úr flota Svía. En
þetta var á tímum þrjátíu ára
stríðsins, sem fyrr segir, og Sví-
ar áttu í hörðum átökum við
Pólland og Þýzkaland.
— ★ —
• Talið er, að um 500 manns
hafi verið um borð í Vasa, er
skipið lét úr höfn — þar af um
það bil 50 konur og börn, sem
höfðu fengið leyfi til þess að
fylgja mönnum sínum og feðr-
um fyrsta spölinn á jómfrúrsigl-
ingunni. — Skipherrann hét
Söfring Hansson, danskur maður
að ætt. — Mikil „stemning" var
ríkjandi við brottför skipsins.
Þúsundir Stokkhólmsbúa hópuð-
ust saman við höfnina. Fánar
blöktu við hún og fagnaðaróp
gullu hvarvetna.
★ Þoldi ekki sviptivindinn
Suðaustankaldi var á, en sjór
ekki mikill. — Skipstjórinn veitti
því fljótlega eftirtekt, að ekki
Framh. á bls. 17.
★
Anders Franzén
skipaverkfræð-
ingur 1 é t s i g
dreyma um það,
þegar hann var
strákur, að hann
fyndi s o k k i ð
skip, fullt af dýr
um fjársjóðum.
— Draumurinn
rættist, þ e g a r
hann fann Vasa.
- Og hér held-
ur hann á litlum
hluta „f jársjóðs-f
ins“ — einni af
hafmeyjunum,
sem skreyta
lyftingu h i n s
sokkna skips.
í landsteinum rétt eftir að það lagði frá landi í jómfrúrsiglingu
sína, 10. ágúst 1628.
Vel hórfir um að takast muni oð ná
sœnska skipinu Vasa upp af hafsbótni
— en ii»oð sökk í jómfrúarsiglingu
sinni árið 1628, örskammt frá landi