Morgunblaðið - 11.10.1959, Page 20
20
MORCVTSBtAÐlÐ
Sunnuclagur 11. okt. 1959
mér sannleikann. Hvar varst þú,
þegar Hermann var myrtur?“
„Ég var að ganga mér til
skemmtunar".
„Og sá þig enginn?"
„Ekki það ég til veit“.
„Hvar varst þú að ráfa um?“
Nú leit hún niður fyrir sig í
fyrsta skipti. Það varð snöggv-
ast þögn í herberginu. Þá mælti
hún:
„Nálægt húsinu".
„Nálægt húsi Hermanns?“
„Já“.
„Þá hlýtur þú að hafa heyrt
skotið“.
„Það gerði ég líka“.
„Og hvað gerðir þú þá?“
„Ég hljóp burt“.
„Verneuil trúir þér aldrei til
þess og rétturinn ekki heldur.
Þeir hengja þig“.
Nú horfði hún aftur framan í
hann og hristi höfuðið.
„Ástkona þin guggnar áður en
svo er komið“, sagði hún. „Hún
mun meðganga morðið".
„Hún er ekki ástkona mín og
hún er ekki morðinginn“, sagði
Anton.
Hann sá það um leið, að það
var þýðingarlaust að ganga frek-
ar á Lúlúu. Hann hafði ætlað að
sannfæra stúlkuna, en í þess stað
hafði hún sáð fræi tortryggni í
hug hans. Verneuil var trúandi
til þess að hafa tekið svörtu stúlk
una fasta til þess eins að koma
inn öryggi hjá Veru, sem var
grunuð um morðið.
Hann gekk þegjandi til dyr-
anna og kallaði á lögreglustjór-
ann.
Lúlúa lét leiða sig á brott. Hún
leit ekki við á Anton.
„Jæja?“ sagði hinn litli lög-
reglustjóri, þegar þeir Anton
voru orðnir einir.
„Það er þýðingarlaust. Hún
mun aldrei játa það“.
Verneuil lyfti augabrúnunum.
„Eruð þéí þá sannfærður um
sekt hennar?"
„Ég veit það ekki, Verneuil".
„Ég þakka yður samt fyrir fyr-
irhöfn yðar“.
„Ekkert að þakka".
Lögreglustjórinn fylgdi hon-
um til dyra. Þegar hann var með
höndina á handfanginu aftraði
Verneuil honum enn einu sinni.
Hann mælti kæruleysislega:
„Mér dettur nokkuð í hug. —
Hver var í rauninni tilgangur
yðar, þegar þér lögðuð fram
tryggingarféð fyrir hana?“
„Hver skyldi hafa verið til-
gangur minn? Ég vildi ekki að
hún sæti í fangelsi vegna hníf-
stungumálsins".
„Það er gott — ég ætlaði að-
eins að fá að vita-----“
Skömmu síðar stóð Anton úti
fyrir húsi lögreglustjórnarinnar.
„Það er gott, ég ætlaði aðeins
að fá að vita — —“. Verneuil
spurði aldrei óþarfa spurninga.
Lögreglustjórinn grunaði hann
um að hafa lagt fram tryggingar-
féð í því skyni, að Lúlúa væri
laus á þeirri stundu, þegar Her-
mann var myrtur. Lögreglustjór-
inn var sannfærður um, að hann
hefði fengið Veru morðvopnið í
hendur.
Anton hallaði sér upp að hin-
um gráa húsvegg. Alla ævina
hafði hann staðið á eigin fótum.
Nú þurfti hann hjálpar. Það var
aðeins einn maður, sem gat
hjálpað honum.
Þessi maður var Adam Sewe.
Tveimur dögum síðar var
Anton boðið að taka þátt í „litlu
samkvæmi" hjá varalandstjóran-
um. Hann hafði í nokkra daga átt
heima í litlu herbergi nálægt
Avenue Lieutenant Valcke og
pósturinn hafði verið sendur
þangað frá „Hótel Memling".
Hetja dagsins, hugsaði hann
gramur, meðan hann var að láta
á sig hálsbindið fyrir framan
spegilinn. Þeir hafa hingað til
ekki boðið mér til kvöldverðar í
landstjórahöllinni. Nú heiðra þeir
mig, af því að ég hugsaði ráð
mitt og sór ekki rangan eið og
af því að ég er þeirra megin,
sem voru að sigra.
Höll vara-landstjórans stóð,
eins og höll landstjórans, á hæð
nálægt Pointe Kalina og var það-
an vítt útsýni yfir Kongó-fljótið.
Það var uppljómað, þegar Anton
kom. „Litla samkvæmið" gat
ekki verið mjög iítið, því að
minnsta kosti tólf bifreiðum hafði
verið lagt við hina löngu akbraut
heim að höllinni. Anton þekkti
vagn olíubraskarans Luvin, og
honum varð ónotalega við.
Það var ekki dansað. Hljóm-
sveit spilaði lög eftir Schubert og
Mozart. Allt hið mikla hús var
lýst með kertaljósum. Karlmenn
í hátíðabúningi og konur í flegn-
um kvöldkjólum gengu hægt og
virðulega um í kertaljósinu. Það
var ekki orðið svalara með
kvöldinu, aldrei þessu vant. —
Loftið virtist vera grafkyrrt. —
Það lagði fúlan þef frá fljótinu
upp á hæðirnar og hann blandað
ist lyktinni af ilmvötnum kvenn-
anna.
Anton dró að sér athyglina
meira en klukkustund. Fagrar
konur jusu yfir hann forvitnis-
legum spurningum. Vara-land-
stjórinn dró hann inn í ýtarlegar
samræður. Menn, sem hann hafði
aldrei séð áður, spurðu hann um
áform hans.
Hann hugsaði nærri stöðugt
um Veru. Hann hafði verið hjá
henni nærri allan daginn í gær.
Erfðaskráin hafði verið opnuð.
Það var ekkert í henni, sem kom
á óvart, nema ef til vill helzt
það, hve lítið fé Hermann lét eft-
ir sig. Vera myndi standa uppi
algerlega efnalaus eftir eitt ár í
lengsta lagi. En Anton fannst eitt
ár vera heil eilífð. Vera skildi
ekki, hvers vegna hún mátti ekki
fara enn frá Leopoldville. Verne
uil hafði sárbænt hana að vera
kyrra, þangað til Lúlúa hefði
meðgengið. En myndi Lúlúa
nokkurn tíma meðganga? — Var
hún sek? 1 augum Veru hjaðnaði
grunur Antons gegn ekkju bróð-
ur hans alveg niður. Hann fyrir-
varð sig fyrir tortryggni sína og
reyndi að dylja hana með því að
eyða öllu tali um rannsóknina.
Myndin af hinni fölu, grönnu
konu í svörtu fötunum hvarf
aldrei úr huga hans. Hann hafði
hvað eftir annað hert upp hug-
ann til þess að tala við hana um
ást sína, en það virtist líka
ómögulegt á meðan ekki var upp-
lýst um morðið á Hermanni. —
í Rókókó-sal landstjórans varð
hann að minna sjálfan sig á það
hvað eftir annað, hvar hann var
staddur. Hann varð að svara
spurningum, brosa, látast hafa
áhuga, — en í raun og veru hafði
hann ekki áhuga á neinu nema
Veru.
EGGERT CLAESSEN ot
GtSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Te mplarasuna
..... Pparió yðux hlaup
fi köUí offlxgra verzlana'.
ÚÓRUÚÖL
«n
MWJM!
- Austurstræti
aitttvarpiö
Sunnudagur 11. október
9.30 Fréttir og morguntónleikar.
(10.10 Veðurfregnir).
a) Svíta nr. 3 í D-dúr eftir Joh.
Sebastian Bach. — Kammer-
hljómsveitin í Stuttgart leik-
ur. Stjórnandi: Karl Míinch-
inger.
'j b) Clara Haskil leikur þrjár
píanósónötur eftir Domenico
Scarlatti.
c) Kirsten Flagstad syngur lög
eftir Franz Schubert. Píanó-
undirleik annast Edwin Mc-
Arthur.
d) Konsert fyrir óbó og hljóm-
sveit í C-dúr K314 eftir Mozart.
Frantisek Hanták leikur með
tékknesku fílharmoníuhljóm-
sveitinni undir stjórn Milan
Munclinger.
11.00 Messa í barnaskóla Kópavogs
(Prestur: Séra Gunnar Arnason;
organleikari: Guðmundur Matt-
híasson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 Erindi: ,,Með lögum skal land
byggja'*. Valdimar Björnsson fjár
málaráðherra í Minnesota flutti
þennan fyrilestur á fundi 1 Stúd-
entafélagi Reykjavíkur 4. þ.m.
og svaraði síðan fyrirspurnum.
15.00 Miðdegistónleikar:
a) Tríó í d-moll op. 49 eftir Men
delssohn. Artur Rubinstein,
píanó, Jascha Heifetz, fiðla, og
Gregor Piatigorsky, celló,
leika.
b) „Symphonie espagnole", —•
spánska sinfónían op. 21 eftir
Edouard Lalo. Lamoureux-kon
serthljómsveitin leikur. Einleik
ari er Arthur Grumiaux og
stjórnandi Jean Fournet.
16.00 Kaffitíminn: Frá austur-þýzka
útvarpinu. — Þýzkir listamenn
flytja létta tónlist.
16.30 Veðurfregnir.
Færeysk guðsþjónusta (Hljóðrit-
uð í t»órshöfn).
17.00 Sunnudagslögin.
18.30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson
kennari).
a) Sólveig Guðmundsdóttir les
síðari hluta sögunnar ..Silfur-
skeiðin" eftir Sigurbjörn
Sveinsson.
b) Olöf Jónsdóttir flytur bernsku
minningar.
c) Júlíus Sigurðsson (16 ára) leik
ur á harmoniku.
d) Tryggvi Tryggvason kennari
les ævintýrið ..Maðurinn, sem
vildi verða kóngur** eftir
Hannes J. Magnússon.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Wurtemberg-hljóm-
sveitin leikur lög úr óperum.
19.45 Tilkynningar. — 20.00 Fréttir.
20.20 Raddir skálda: Ur verkum Guð-
mundar Inga Kristjánssonar.
a) Ragnar Jóhannesson ræðir við
skáldið.
b) Guðmundur Ingi les úr verk-
um sínum.
21.00 Tónleikar: Walter Gieseking leik
ur ljóðræn píanólög eftir Edvard
Grieg.
21.30 Ur ýmsum áttum (Sveinn Skorrt
Höskuldsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög. — Dagskrárlok.
Mánudagur 12. október:
8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05
Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40
Tónleikar. — 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir,
tilk). — 16.30 Veðurfr.
19.00 Tónleikar. — (19.25 Veðurfregnir)
19.40 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Einsöngur: Elisabeth Schwarz-
alds Moore lög eftir Martini, Men
opf syngur með undirleik Ger-
delssohn, Dvorák, Hahn og Tsjai-
kovski.
20.50 Um daginn og veginn — (Séra
Gunnar Arnason).
21.10 Rússnesk tónlist:
Bamberg-sinfóníuhljómsveitin
leikur verk eftir Anatólí Líadof.
Stjórnandi: Jonel Perlea.
a) Baba Yaga op. 36.
b) Atta rússnesk þjóðlög op. 58.
21.30 Utvarpssagan: Garman og Worse
eftir Alexander Kielland. XVII.
lestur (Séra Sigurður Einarsson.)
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Búnaðarþáttur: Um reynslubú
(Eyvindur Jónsson ráðunautur).
22.30 Kammertónleikar: Tvær norræn-
ar fiðlusónötur:
a) Sónatína fyrir fiðlu og píanó I
E-dúr op. 80 eftir Jean Sibeli-
us. — Fiðluleikarinn Bernhard
Hamann og píanóleikarinn Cyr
il Szalkiewicz flytja. — Hljóð-
ritað á tónlistarhátíðinni 1 Hel-
sinki 14. júní sl.
b) Sónata fyrir fiðlu og pianó
nr. 2 í g-moll op. 35 eftir Carl
Nielsen. Erling Bloch leikur á
fiðlu og Lund-Christiansen á
píanó.
•^00 Dagskrárlok.
ÞVOTTAVÉLAR
f*
Servis-þvottavélar
með og án suðu og rafknúinni vindu
fyrirliggjandi. — Ársábyrgð
Jfekla
Austurstræti 14
Sími 11687
Skrifborðslampar
Henfugir fyrir
skólafólk
T-fekla
Austurstræti 14
Sími 11687.
a
r
L
ú
ð
Ég vona, að vagninn komi á | arinn þinn, ég sagði þér að elta J með að þessu sinni. Farðu heim
réttum Uma. Andi, gamli þorp- ' mig ekki. Ég get ekki tekið þig aftur Andi, heim.