Morgunblaðið - 22.10.1959, Page 3

Morgunblaðið - 22.10.1959, Page 3
Fimmtudagur 22. okt. 1959 *fO R C VIV n 1. 4 Ð 1Ð LÍFÆÐ hvers byggðarlags er samgöngukerfið. Það hefur margsinnis komið í ljós við rannsóknir, að efnahagsaf- koma einstakra byggðarlaga hefur staðið í réttu hlutfalli við samgöngukerfi þeirra. Ólafsfjörður er eitt þeirra héraða, sem hefir jafnan átt við fremur lélegt samgöngu- kerfi að búa, þótt vissulega hafi það farið batnandi með lagfæringu Lágheiðarvegar og stórum bættri höfn. Þó er það svo, að í slæmum veðrurri geta skip ekki athafnað sig í höfn- inni og Lágheiðarvegurinn er ófær meira en hálft árið. Það verður þvi ekki sagt, að byggð arlagið með jafn stórum og vaxandi kaupstað búi við við- unandi samgöngur. Af þessum sökum hefur á undanförnum árum verið ríkj andi mikill áhugi fyrir því meðal Ólafsfirðinga ag lagður væri vegur fyrir Ólafsfjarð- armúla og til Dalvíkur. Byrjaði fyrir tilstilli áhugamanna. Fyrst var byrjað á þessum framkvæmdum fyrir tilstitii áhugamanna í Ólafsfirði og framlagi frá Akureyrarbæ, sem að sjálfsögðu telur það mikið hagsmunamál að greið- ari samgöngur komist á hér á milli. Hófst vinna við veginn 1954, en á vegalög komst hann 1955. í upphafi var unnið nokkuð fyrir fjallvegafé. Aðalframkvæmdir í sumar. Aðalframkvæmdirnar við veginn voru unnar nú í sum- ur og í fyrrasumar, þá fyrir % milljón, en nú í ár fyrir 400 þúsund. Alls er búið að verja 1,1 milljón til vegarins Myndirnar eru teknar í Ófærugjá á Múlavegi. og er hann kominn út í svo nefnda Ófærugjá, en þar er erfiðasti kafli leiðarinnar.Hef- ur þurft að sprengja þar mikla kletta úr fjallshlíðinni og er talið að nú sé lokið við versta verkið. Friðgeir Árnason vegaverk- stjóri frá Siglufirði hefur stjórnað þessu verki í sumar og telur hann að ekki muni þurfa yfir eina milljón króna til viðbótar til þess að koma veginum fyrir sjálfan Múlann. Heildarkostnaður við lagningu vegarins allt til Dalvíkur er talinn 4—5 milljónir króna. Verkið gengið vel. Ólafsfirðirigar róma mjog hve vel hefir gengið að leggja veginn það sem komið er, og mun betur en vonir bjartsýn- ustu manna stóðu til. Vegurinn fyrir Ólafsfjarð- armúla er ekki nema 18 km. allt til Dalvíkur. Er þá leiðin frá Ólafsfirði til Akureyrar 65 km. í stað þess að nú er hún 230, þar sem fara þarf véstur í Skagafjörð. Mikið hagsmunamál. Ólafsfirðingar telja vegar- STAKSTEI^AR Enn er Tíminn hræddur við Egil Tíminn er í stökustu vandræð- um með að verja miliiliðakostn- aðinn í mjólkursölunni. Eins og oft ella reynir hann að skjótast á bak við bændur til að fela óreiðu og óstjórn sinna manna. í gær segir hann t.d.: „Morgunblaðið hefur talað nokkuð um hve dreifingarkostn- aðar við sölu mjólkur og mjólk- urvara væri mikill, og talið slíkt óhæfu. Segja má, að svo til öll dreifing mjólkur og mjólkur- vara sé í höndum bændanna sjálfra, og Mogginn telur hann of mikinn. Hann er innifalinn í flutningi á mjólkinni frá bænd- unum til mjólkurbúanna, mjólk- inni og vörunum frá búunum á sölustað. greiðslu kaupgjalds sem allt fer eftir samningum við verkalýðsfélögin og fl.“ Hver af þessum verkum vinna bændur sjálfii-.’ Hvcrnig er það hugsanlegt, að lækkun miliiliða- kostnaðar, sem allur rennur til annarra, verði bændium til ó- liags? Mundi lækkuni'n ekki þvert á móti greiða fyrir sölu afurð- anna? Tíminn fer í kringum óhæfu Egils Thorarensen eins og kött- ur í kringum heitan graut. Hann þorir ekki að nefna benum orð- um það, sem á er deilt, að Egill Thorarensen skuli hafa byggt upp „stórveldi" á Selfossi fyrir fé, sem hann hefur ranglega tekið af neytendum í Reykjavík og annarsstaðar. 5050 Tíminn lét lengi svo sem það væru einungis nokkrir forystu- menn Sjálfstæðisflokksins, sem greiddu lægra útsvar en tekju- skatt. Raunar er eignaskattinum stundum bætt við, ef á því þarf að halda einhverjum til svívirð- ingar. Nú er að smáfjölga í upp- talningunni. í gær er t.d. þessi romsa: Tekju- skatt Útsvar kr. kr. „Áki Jakobsson . . . 23538,00 14000,00 Gylfi Þ. Gíslason . . 33037,00 20600,00 Jón Axel Pétursson 37804,00 28100,00 Magnús Ástmarsson 22424,00 18700,00“ . (Ljósm. vigj lagninguna fyrir Múlann mesta hagsmunamál hyggðar- lagsins þegar frá er talin end- urbót hafnarinnar. Vilja þeir leggja alla áherzlu á að verk- inu fáist lokið á næsta ári og treysta í því efni á samstöðu byggðarlaganna, sem hags- muna hafa að gæta í þessu efni og nefna þar fyrst og fremst til Akureyri og Dalvík. — Einnig vænta þeir ríks skiln- ings Alþingis á málinu. Nú er í ráði að bjóða út innlent skuldabréfalán og aíla þannig fjár til lokaátaksins við þessa framkvæmd. Engin furða er, þótt Tíminn geti ftundið ýms nöfn andstæð- inga sinna, sem greiða lægra út- svar en tekjuskatt, því að svo er um a. m. k. 5050 í útsvarsskránni, auðvitað án tillits til flokka og stjórnmálaskoðana heldur eftir „efnum og ástæðum" að mati nefndarinnar. Heilindi Tímans sjást hins vegar af því, að Iiann hefur enn ekki nefnt eitt cinasta nafn Framsóknarmanns, þó að honum væri ekkert hægara. En um sína flokksmenn þegir liann af því að hann óttast, að þá muni rógurinn missa marks. Minna á eigin óvirðing Kommúnistar eru einkennilegt fólk. Þeir halda, að þeir afli sér kjósenda með því að minna sem allra oftast á sína eigin skömm. Allt af öðru hvoru eru þeir að brydda upp á umræðum um varn- armálin. Hvergi hafa þeir þó komist lengra í niðiurlægingunni en þar. En þeir láta sér þetta ekki nægja. Nú ætla þeir að byrja á Iandhelgismálinu. í gær segir Þjóðviljinn: „íslendingar tóku ekki nægi- lega eftir aðvörunum Alþýðu- bandalagsins um landhelgismál- ið í sumarkosningumum". Allir nema kommúnistar skilja, að ein af ástæðunum fyrir ósigri þeirra í vor var hin bersýnilega viðleitni til þess að nota land- helgismálið sjálfum sér til fiokks- legs framdráttar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.