Morgunblaðið - 22.10.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.10.1959, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. okt. 1959 MOUCT’Mlf 4Ttin 11 Siysabæturnar hafa minnkað. V IÐ vitum öll, hvað verð- bólga er. Það er að fá minna fyrir meiri peninga. Fyrst fáum við að vísu meiri pen- inga, og þá höldum við að lífið leiki við okkur. En eins og nótt fylgir degi, fylgia verðhækkanir peningafloð- inu. Vörurnar hækka, húsa- leiga hækkar, allt hækkar og niðurstaðan verður, að við verðum enn lakar settir en Bakkabræður, þegar þeir voru að moka í botnlausu tunnuna, því að við fáum stöðugt minna fyrir meira erfiði. Almennar afleiðingar verðbólg unnar eru svo kunnar, að ég fer ekKi að rekja þær hér, enda get- ur hver litið í eiginn barm og skygnzt uni eftir því, hvernig dýrtíðin hefur skammtað honum naumari kjör. Það hafa að vísu staðið hærri tölur á umslaginu með vikukaupinu, en buddan hef ur samt verið enn þá galtómari í hver vikulok. Verðbólga á háu stigi er beint efnahagslegt böl, getur riðið efnahagskerfi þjóðar- innar að fullu og valdið þjóðfé- lagslegri upplausn. Hún er því þjóðfélagsvandamál, sem stjórn og stofnanir þjóðarinnar verða að fást við, meinsemd, sem þeir aðilar verða að leitast við að lækna. Jafnframt er hún einstaklingsviðfangsefni, vágest- ur heimilanna. og þar þarf hver fjölskyldufaðir að mæta sínum vanda og reyna að bregðast til varnar. Eins og títt er um plágur og drepsóttir, ræðst verðbólgan frek ast þar á, sem garðurinn er lægst ur, þar sem fyrirstaðan er minnst og varnirnar veikastar. Þeir gjalda því veðbólgunnar venju- lega harðast í þjóðfélaginu, sem sízt skyldi, þeir, sem við kröpp- ust kjöria búa eða lengst og mest hafa erfiðað fyrir þeim verðmæt- um, sem varpað er í svelg verð- bólgunnar. Það er því engin til- viljun, að byltingarforingjar, sem vilja ríkjandi þjóðfélög feig, Á 30 árutn hefur verðgildi krónunnar lækkað um 93%. hafa talið verðbólguna til sinna traustustu bandamanna, því að ems og Lenin sællar minningar benti á, þá er auðveldasta leiðin til þess að kollvarpa þjóðskipu- lagi, að eyðileggja pemngakerfi þess. Athugum því, í hvaða knérunn verðbólgan heggur tíðast og hvar hún~ er jafnframt stórhöggust. Það eru þá fyrst og fremst spar- endurnir í landinu. Það fólk, sem setur til hliðar af tekjum sínurn og leggur í sparisjóð eða banka. Þetta fólk erfiðar fyrir framtíð- ina. í stað þess að veita sér í dag eitt eða annað, sem hugann girn- ir, þá neitar það sér um ýmsar lífsins lystisemdir, en safnar fé, sem síðar á að nota til þess að stofna heimili, eignast íbúð, koma börnunum til mennta, eða leggja það í varasjóð til elliár- anna, þegar starfsþrekið þrýtur. Þetta fólk er traustasti horn- steinn sérhvers þjóðfélags. Að rót arslíta það er að kippa stoðum undan þjóðfélagsbyggingunni. Á sparsemi þessa fólks byggjast möguleikar þjóðarinnar til fjár- festingar og nýsköpunar atvinnu veganna. Sparifé landsmanna nemur í dag 1916 milljónum kr. Það hefur um það bil þrítug- faldazt á síðustu tuttugu árum. En verðgildi þess hefur ekki auk- izt að sama skapi og krónutalan hefur vaxið_ því að á liðnum 30 árum hefur verðgildi krón unnar rýrnað um ca. 93%. Verð- bólgan hefur stöðugt seilzt í vasa sparendanna og rænt þá arðin- um af öllu erfiði þeirra og sjálfs- afneitun. Þjóðfélagið hefur látið þessa þörfustu og traustustu þegna sína standa uppi með öllu varnarlausa gegn verðbólgu- ófreskjunni, og það þótt hið opin- bera hafi verið að hvetja jafn- vel börnin til sparnaðar með því frá því árið 1954 að gefa um 38 þúsund skólabörnum sparisjóðs- bækur, til þess að hefja spari- fjársöfnun samtímis skólagöng- unni. En það er víðar, sem verðbólg- an hefur skorið vænar sneiðar af kjarabrauði fólksins. Þannig hef- ur hún hrifsað til sín drjúgan skerf af ýmsum þeim félagslegu umbótum og þeirri lýðhjálp, sem frekast er ætlað að létta lífsbar- áttu þeirra, sem við krappari kjör búa, og sömuleiðis glefsað í þær bætur, sem tryggingarnar láta mönnum í té, er á bjátar. Má þar fyrst nefna fjölskyldu- bæturnar. Ef- tekin er fimm barna fjölskylda, þá væri vísitala fjölskyldubóta hjá henni í dag 238, ef reiknað væri með, að vísi- tala Dagsbrúnarkaups væri 255. Það þýðir, að fjölskyldubæt- urnar hefðu síðan 1947 hækkað 17 stigum minna en kaup Dags- brúnar-verkamannsins. Ef bæt- urnar yrðu reiknaðar á barn, (breytingar hafa orðið á fjölda þeirra barna_ sem bætur miðast við), þá liti þetta samt miklu ver út, því að þá væri vísitala fjöl- skyldubóta aðeins 190 stig og hækkunin þar með 60 stigum á eftir Dagsbrúnarkaupinu. Hliðstæðan samanburð má t. d. gera á ýmsum slysatryggingum, og lítur dæmið þá þannig út: Dagsbrúnarkaup 255. Barnalíf- eyrir 209, Iðntryggingar 209, því að hluta verið gleiptar af verðbólgunni. Þessar tölur, sem hér hafa ver- ið nefndar, ættu að færa launa- fólkinu og verkamönnum heim málastefnu_ sem Sjálfstæðisflokk urinn hefur boðað í stefnuskrá sinni, „Leiðinni til bættra lífs- kjara“ eru úrræði þau, sem flokkurinn berst fyrir til lausn- Tíminn felur samvinnu- félögin hafa beðið ,,hin versiu áföll" síðari ár í FORYSTUGREIN Tímans í gær segir á þessa leið: „Morgunblaðið segir að Framsóknarmenn ráði sam- vinnufélögunum. Það er of- sagt, en væri það rétt mætti ætla, að þeir beittu þeirri skoðanakúgun, sem íhaldið heldur nú fram, á þann veg, að útiloka t. d. íhaldsmenn frá áhrifum og störfum í fé- lögunum. En það er nú síður en svo. Þar eru fjölmargir Sjálfstæðismenn í áhrifa- miklum störfum og stöðum, þótt því miður hafi sumir þeirra reynzt vera hreinir og beinir skemmdarverkamenn, og stafa af því, hin verstu áföll, sem samvinnufélögin hafa hlotið hin síðari ár.“ Það væri fróðlegt ef Tím- inn vildi upplýsa nánar í hverju þessi „verstu áföll“ samvinnufélaganna eru fólg- in. Þar sem þau hafa að sögn blaðsins orðið vegna starfa Sjálfstæðismanna í félögun- um, liggur beinast við að álykta, að hér eigi Tíminn við, að áföllin stafþ af því, að upp hefur komizt í ríkara mæli á síðustu árum um pólitíska misnotkun Framsóknarmanna á samvinnufélögunum í þágu Framsóknarflokksins. Bændur í samvinnufélögunum munu hins vegar ekki vera sammála Tímanum í því að telja upp- ljóstrun á þessari misnotkun „verstu áföíl“. 38 þúsund skólabörnum hafa verið gefnar sparisjéðsbækur. sannindinn um, að verðbólgan ræðst alltaf fyrst og fremst á kjör þeirra. Það eru þess vegna þeir, sem öðrum fremur hafa hag af því að takast megi að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Einn megin þáttur þeirrar efnahags- ar verðbólguvandanum. Sjálf- stæðisflokkurinn heitir því á launastéttirnar og alla þá, sem fryggja vilja traust verðgildi ís- lenzku krónunnar, að veita sér brautargengi við þær kosningar, sem í hönd fara. Fjölskyldubæturnar hafa rýrnað Dagpeningar: Einhl. 180, Kvænt- ir 208, vegna barna 193. Allar þessar tryggingar, sem þarna eru bornar saman við kaup Dagsbrúnar-verkamanns, hafa með vaxandi dýrtíð hækkað tölu- vert minna en kaupið. Raunveru- legar tekjur allra þessara styrk- njótenda og bætur til þeirra hafa Gerum sigur Sjálfstœðis- flokksins, sem stœrstan Góbur árangur Landshappáræffis- ins sfuölar oð Jbví N O E R U aðeins örfóir dagar eftir til kjördags og hið fjölþætta undirbúningsstarf kosninganna gengur greiðlega. En það er mála sannast, að kosningar kosta mikið fé. Svo hörð og umfangsmikil sem kosningabaráttan nú er orðin, verður hún ekki farsællega til lykta leidd nema hún styðj- ist við nokkurt fjármagn, og það þrátt fyrir mikið og fórn- fúst áhugastarf margra, karla og kvenna. Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins, sem hleypt var af stokkunum í vor, til eflingar starfsemi flokksins, hefir vakið athygli sem eitt hið stærsta og glæsilegasta hér á landi. Vinningar eru bæði margir og verðmætir. Miðar hafa verið til sölu hjá umboðsmönnum í öllum sýslum og kaup- stöðum landsins. í Reykjavík fást þeir í skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins, kosningaskrifstofunni í Morgunblaðshúsinu og í happdrættisbifreiðinni í Austurstræti. Þá hafa miðar einnig verið sendir til meðlima Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Sjálfstæðisfólk, og annað stuðningsfólk flokksins, sem veita vill Sjálfstæðisflokknum brautargengi í þessum kosn- ingum, og stuðla þar með að auknum áhrifum Sjálfstæðis- stefnunnar á bætt stjórnarfar £ landinu, leggur vissulega fram sinn skerf til þess með því að greiða fyrir góðum árangri Landshappdrættisins. Fyrir því er skorað á alla þá, sem fengið hafa senda miða og ekki hafa ennþá gert skil, að gera það sem fyrst. Skrif- stofa happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu er opin frá kl. 9 f. h. til kl. 10 á kvöldin, sími 17100. Sjálfstæðisfólk! Takið nú duglega á. Gerið skil. Kaupið miða. Með því eflið þið hina þróttmiklu starfsemi Sjálf- stæðisflokksins og stuðlið að glæsilegum sigri hans í kosningunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.