Morgunblaðið - 22.10.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.10.1959, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. okt. 1959 MORCUlVnLAÐIB 13 Sólveig Einarsdóttir Arnardal — Minning í Gjafir til Dómkirkjunnar c HÚN andaðist í sjúkrahúsi Akra- nesi 1. þ. m. þá tæplega 85 ára gömul. Sólveig var fædd í Arnardai við'Skutulsfjörð 31. okt. 1874. Þar ólst hún upp og þar mótaðist skapgerð hennar og þroski, innan hárra fjalla, svalra vinda og hrynjandi öldufalla. En í dalnum hennar, Arnardal, gat einnig að líta sólríka sumardaga, hrífandi útsýni frá öllum hliðum, og það- an blasir við auga hið blikandi haf, er sólin rís og hnígur við haf flötinn og hellir geislum sínum um lög og láð. Einmitt á þessum stað ól Sólveig Einarsdóttir aldur sinn frá vöggu til grafar, utan fimm síðustu æviárin, er hún dvaldist hjá dætrum sínum á Suðurlandi, þá farin að heilsu og kröftum. Árið 1895 giftist Sólveig Katarín usi Jónssyni Arnardal, og reistu þau þar bú á föðurleifð hans og bjuggu samfleytt í Arnardal til ársins 1935, fyrst á Ytrihúsum og síðan á Fremrihúsum. Byggðu þau þar upp myndarlegt íbúðar- hús og bættu jörðina á annan hátt, eftir þeirra tíma mæli- kvarða. DOMKIRKJUNNI hefur borizt vegleg gjöf frá kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar. Eru það 4 kertastjakar og kross, allt úr góðmálmi, í fornum sniðum. Frú Dagný Auðuns, formaður nefnd- Kínverjar ógna Suður-Asíu NEW YORK. 21. okt. (NTB). — Haldið var áfram að ræða um Tíbetmálið á Allsherjarþingi S.þ. í dag. Þar talaði m.a dr. Tingfu Chiang fulltrúi kín- verskra þjóðernissinna. Hann lagði áherzlu á að stöðug efling kínverska herliðsins í Tíbet, lagn ing flugvalla og herflutninga- brauta fæli í sér geigvænlega hættu fyrir löndin sunnan Himalaya-fjalla. Sagði hann að 50 þús. kínverskir hermenn væru í Tíbet. Fulltrúar írlands og Malaja hafa lagt fram ályktunartillögu í málinu. Tillagan er orðuð var- færnislega. T.d. er framferði Kín verja ekki fordæmt beinum orð- um, heldur er þess krafizt, að grundvallar-mannréttindi Tíbeta verði virt. Meðal ræðumanna í dag var fulltrúi Hollands, W. A. Chur- mann, sem andmælti þeim skoð- unum sem komu fram í ræðu rússneska fulltrúans, að stinga bæri ,Tíbet-málinu undir stól vegna þess, að umræður um það myndu hafa skaðvænleg áhrif á þá þróun sem nú á sér stað til bættrar sambúðar stórveldanna. Þetta sagði hollenzki fulltrúinn að væri alveg rangt. Það væri skoðun sín, að alþjóðavandamál ætti ekki að leysa með því að víkja frá grundvallarreglum. Hann tók fram, að ekkert raunhæft væri hægt að gera til að koma í veg fyrir kúgunarað- gerðir Kínverja í Tíbet. Hins vegar taldi hann að það ætti að vera verkefni Sameinuðu þjóð- anna að fordæma slíkt framferði. Myndi það veita yfirgangsseggj- tim bæði nú og í framtíðinni nokkuð aðhald, ef þeir mættu eiga von á umræðum á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. — Utan úr heimi Framh. af bls. 10 unum, hitastig o. fl., og er þau hafa svifið aftur til jarðar í fallhlífum sínum, geta menn lesið af þeim og kynnzt þann- ig ástandi loftsins á hverjum tíma. Hafa þannig fengizt ýmsar mikilsverðar upplýs- ingar. arinnar afhenti sóknarnefnd kirkjunnar þessa gjöf sl. laugar- dag. Hefur kvennanefndin í nokkur ár unnið að því marki að búa altari kirkjunnar og áður gefið altarisklæði úr rauðum flosdúk. Er það silfurbúið, lagt gullhúðuðum vínviðarsveig úr silfri á öllum jöðrum, en í milli gullhúðaður silfurkross. Alturis- brún er einnig búin vínviðar- sveig úr silfri, prýddum íslenzk- um steinum. Er óhætt að fullyrða að bún- aður altarisins sé einstakur í sinni röð hér á landi og hin mesta I gersemi og prýði kirkjunnar. Með vinnu sinni og gjöfum góðra safnaðarmanna hefur kvenna- nefndin nú náð marki sínu um búnað altarisins. Formaður sóknarnefndar þakk aði fyrir hönd nefndarinnar og safnaðarins — Hver hátur á sjó Framhald af bls. 8. hinna vinnandi stétta“, en eins og allir vita hafa lífskjör launa- fólks í landinu aldrei verið skert jafnmikið á jafnskömmum tíma og á valdaferli vinstri stjórnar- innar. Þess minnast verkamenn nú ef til vill betur en flestir aðrir launþegar 1 landinu. For- sprakkar vinstri stefnunnar, hélt Jóhann Sigurðsson áfram, neyttu allra tiltækra ráða til að telja fólkinu trú um, að þeir einir væru þess megnugir að leysa öll vandamál þjóðfélagsins á réttlát- an og varanlegan hátt. Þeir gáfu fyrirheit um þúsund ára ríkið á íslandi og þóttust búa yfir þeim lífsins elexír, sem einn gæti ráð- ið bug á sérhverjum vanda. En þegar á reyndi spratt ekkert af þessum elexír annað en fullkom- in rangindi, stjórnleysi og alger uppgjöf að lokum. Nú undanfar- ið hefur launafólkið í landinu ekki haft við að bíta úr nálinni með afglöp og sviksemi vinstri stjórnarinnar, sem lagði meiri og þyngri álögur á þjóðina en nokk- ur stjórn fyrr og síðar. Þá ræddi Jóhann Sigurðsson nokkuð húsnæðismálin og sagði, að vinstri stjórnin hefði gengið svo frá þeim, að stöðvun hefði verið á næsta leyti. Á meðan a1- menningur fékk enga fyrir- greiðslu hjá húsnæðismálastjórn- inni léku fulltrúar vinstri flokk- anna þar einhvern hinn Ijótas'a leik, sem þekkzt hefur hér á landi, misbeittu völdum sínum og litu á hverja umsókn með flokkssjónarmið fyrir augum. Hefur klíkustarfsemi vinstri flokkanna sjaldan birzt eins vel og í þessu máli, sagði Jóhann, og bætti við: — Efnahagskerfið er fjöregg frjólsra framfara í þjóðfélaginu og það fer eftir því, hvort það er sjúkt eða heilbrigt, hvort tekst að sigrast á erfiðleikunum á leiðinni til bættra lífskjara. Um þetta verður fyrst og fremst kosið um næstu helgi. 1 tíð vinstri stjórnarinnar var öllum stoðum kippt undan heilbrigðu efnahags- lífi í landinu og höfum við nú sopið seyðið af því káli undan- farna mánuði. Það er lífsspuis- mál fyrir þjóðina að úr þessu verði bætt og það er trúa mín, að engum flokki verði treystandi til þess að lækna þennan sjúk- dóm öðrum en Sjálfstæðisflokkn- um. Sjálfstæðisflokkurinn einn allra flokka lítur vandann raun- sæjum augum og hefur lagt fram stefnuskrá sína í samræmi við það. Hann einn gengur beint framan, að vandanum og brýtur málin til mergjar og segir þjóð- inni satt til um ástandið, eins og það er, að vandinn verði ekxi leystur með gylliloforðum og glamuryrðum, né yfirboðum rétt fyrir kosningar, heldur verði að koma til sameiginlegt átak allra stétta þjóðfélagsins og erum við þá komin að kjarna málsins og því sem sker úr um það, að Sjálf- stæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka í land- inu. Hann vill, að stétt vinni með stétt að framfaramálum, - hann veit, að uppbygging íslands verð- ur aldrei farsællega til lykta leidd með því móti að egna stétt- irnar saman og efna til sífelldra illdeilna þeirra í milli. Hann vill, að allir beri sem mest úr být- um, en er öndverður þeirri stefnu, sem vinstri stjórnin mark- aði á sínum tíma, að ýmsar vel launaðar stéttir þjóðfélagsins fái launahækkanir, á meðan verka- mönnum er bannað að krefjast þeirra. Og Jóhann Sigurðsson sagði að lokum: — Vinstri flokkarnir hafa fengið sín tækifæri, en glatað þeim vegna sérhagsmunatog- streitu. Fólkið vill, að Sjálfstæð- isflokkurinn vísi veginn á kom- andi árum, því að það veit sem er að honum einum er til þess treystandi. Launþegar telja að kaupbindingarlögin í fyrravetur hafi orðið til góðs, en þau hafa ekki læknað meinið heldur að- eins heft útbreiðslu sjúkdómsins. Þegar vinstri stjórnin hljóp fiá borði, virtist þetta vera eina leið- in, sem til greina kæmi í bili. Og sannleikurinn er sá, að hag- ur verkalýðsins í dag er mun betri en ef vinstri stjórnin hefði haldizt áfram við völd. En lækn- ing ó efnahagsmeinsemdinni er nauðsynleg og hún verður að fara fram á nýju þingi —, undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Skammt var til fiskjar í Arnar- dal og gaf það oft björg í bú, enda barnahóprinn orðinn stór er árin liðu og því full þörf á fyrirhyggju og dugnaði að standa straum af heimilisþörfunum. Mann sinn missti Sólveig árið 1938, höfðu þau þá brugðið búi sem nærri getur, og áttu heima i Garðshorni í Arnardal, því að sjálfsögðu var það Arnardalur, sem heillaði hugann, og átthaga- tryggðin batt henni fjötur um fót. Við þennan dal voru minn- ingarnar tengdar, þar hafði hún slitið barnsskónum, þar hafði hún lifað manndóms- og þroska- árin, með öðrum orðum, þar hafði hún klofið öldur lífsins, í blíðu og stríðu. En það var ekki krókur að koma í Garðshorn til þeirra hjóna og síðan Sólveigar einnar. Þar hlaut hver og einn gestrisni og hlýjar móttökur, enda höfðu þau hjón sameiginlega, á langri leið, veitt mörgum ferðamanninum greiða og gistingu. í þá tíð rann ekki ferðamað- urinn í fínum bíl fyrir mynni Arnardals eins og nú. Nei, þá var venjan að nota tvo jafnfljóta, og mátti gott heita væru þeir fjórir, kom það sér því oft vel fyrir ferðamanninn að eiga hauk í horni í Arnardal, þar sem hægt var að fá gistingu og góðan beina. Bar því oft gest að garði hjá Sól- veigu og manni hennar. Það bar og við að sjómenn, er leituðu vars undan vondu veðri lentu í Arn- ardal, er þau veittu hálp og fyrir greiðslu. Það gefur því að skilja að oft hefur verið þröng á þingi í Fremmrihúsum og naut heim- ilið þess þá, að Sólveig var dug- mikil og úrræðagóð kona, er kunni skil á að leysa vandann eftir því, sem horfði hverju sinni. Þau hjónin Sólveig og Kata- rínus eignuðust 9 börn, 3 misstu þau í æsku, en 6 lifa, öll gift og mannvænlegt dugnaðarfólk. Jón, búsettur í Reykjavík, Halldóra í Arnardal, Katrín í Grindavík, Guðmunda í Engidal, Guðjóna á ísafirði og Þórdís á Akranesi og að auki tóku þau eitt fósturbam frá fæðingu, Jónu Jónsdóttur, húsfrú á ísafirði, er þá hafði nýverið misst föður sinn. Það fylgja því 'Sólveigu kærar miniv- ingar frá börnum og barnabörn- um, fósturdóttur og öllum oðr- um, er henni voru samferða á lífsleiðinni. Sólveig Einarsdóttir var glæsi- leg kona, með frjálslegri fram- komu og hressilegu viðmóti. Naut hún almennrar hylli sam- tíðarinnar. En nú er hún horfin sjónum, og bikar lífsins tæmdur í botn. En minningin um góða konu, móður og ömmu, lifir björt og fögur. — Sólveig var lögð til hinztu hvíldar í grafreit ísafjarð- arkirkju 10. þ. m. við hlið manns síns, Katarínusar Jónssonar, og ætlum við að sólsetrið í Arnardal visi henni veginn inn á land ódauðleikans. Blessuð sé minning hennar. Vinur. Efri hœð og ris í villubyggingu til sölu. Sér inng. Sér hiti. Afgirt ræktuð lóð. Eignaskipti möguleg á minni íbúð. HARALDUR GUÐMUNDSSON lögg. fasteignasali. — Hafnarstræti 15. Símar: 15415 og 15414, heima. Opel Caravan '55 T I L S Ö L U Bifreiðin, sem hefir verið í eign opinberrar stofn- unar verður til sýnis í dag á horni Skólavörðu- stígs og Grettisgötu. Dugleg afgreiðslustúlka getur fengið atvinnu í sérverzlun í Miðbænum 1. nóv. Þarf að vera vön afgreiðslu. Eginhandarum- sóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 25. okt. merkt: Vön—8823“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.