Morgunblaðið - 26.11.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.11.1959, Blaðsíða 8
8 MORCVNBLAÐIÐ Fimmfudagur 26. nóv. 1959 Búnaðarháskóli Norðmanna 100 ára Í>AÐ var bjart yfir smábænum Ási í Noregi fyrstu daga septem- bermánaðar 1959. Hið undurfagra landslag speglaði sig í sumardýrð og sólskini. Uppskerustörfin voru í fullum gangi. Fólkið var í há- tíðaskapi, og ýmsir höfðu meira að gera en venja var til, því að um þessar mundir var haldið há- tíðlegt 100 ára afmæli Búnaðar- háskóla Norðmanna. Mikið var rætt um fortíð, nú- tíð og framtíð þessarar stofnunar. Hinir eldri glöddust í hjarta sínu yfir þeim miklu framförum, sem æðri búnaðarfræðsla hefði tekið og þeim áhrifum, sem hún hefði haft á búskap Norðmanna. Þeir yngri litu björtum augum tilfram tíðarinnar og hugsuðu með þakk- látum huga til þeirra mörgu hug- sjónamanna, sem höfðu lagt grunninn að þessu starfi. Allir voru sammála um það, að norski Búnaðarháskólinn hefði haft ó- metanleg áhrif á stórstígar fram- farir innan landbúnaðarins og væri þannig búinn að kennsiu- kröftum og tækjum, að mjög mik ils mætti af honum vænta á næstu áratugum og öldum. í sambandi við þessi merku tímamót var margt rætt og ritað um fyrri daga og mörg nöfn nefnd, sem nú eru aðeins til á spjöldum sögunnar. Veglegt af- yrði á fót æðri búfræðikennslu í landinu sjálfu. Raddir komu fram um þetta fyrir og um 1840, en sitt sýndist hverjum og ríkis- valdið var ekki við því búið þá strax að leggja fé í slíka stofnun. Menn voru hræddir um, að hann yrði dýr og þeir „fúskarar", er þaðan kæmu. En 1854 ákvað Stórþingið að eftir Guðmund Jónsson skóla- stjóra á Hvann- eyri hefjast handa og stofna æðri bún- aðarskóla. Sama ár var keypt í þessu skyni prestsetrið Ás og ári síðar búgarðurinn Vollebekk, alls um 350 ha land, byggingar reistar og ráðnir kennarar. Hinn 1. okt. 1859 hóf nýi skólinn starf sitt og hlaut nafnið „Hinn æðri búnaðarskóli í Ási“ Auk skóla- stjóra voru 2 fastir kennarar og 3 aukakennarar, en nemendur 32 að tölu. Búnaðarháskólinn mælisrit var gefið út. Er það rúmar 00 bls. að stærð, prýtt fjölda mynda. Vil ég leyfa mér að bregða upp nokkrum svip- myndum úr riti þess, en nafn þess er: Norges landbrukshögskole 1859—1959. Fyrir og um aldamótin 1800 voru uppi raddir um það í Nor- egi og víðar á Norðurlöndum að nauðsyn bæri til að hefja fræðslu um landbúnaðarmál. í fyrstu var rætt um málið á þeim grundvelli, að búnaðarfræðsla skyldi tekin sem ]:ður í æðra námi, þ. e. við háskó. , i -.nnig að embættismenn þjóðanna kynnu nokkuð fyrir sér í búfræði. Voru gerðar tilraunir í þessa átt í Lundi í Svíþjóð o. v. Ekki varð framhald af þessari stefnu og tóku menn nú að velta fyrir sér möguleikum fyrir því að setja á stofn sérstaka skóla fyrir bændaefni — búnaðarskóla. Af Norðurlandaþjóðum riðu Norðmenn á vaðið í þessu efni og stofnsettu fyrsta bændaskóla þar í landi árið 1825. Reyndist þetta vel, svo að fleiri komu á eftir. í fyrstu var framþróun búnaðar- fræðslunnar mjög hæg. Það tók tíma að átta sig á þessari ný- breytni, og 1840 voru bændaskól- arnir aðeins 2 að tölu. En eftir það kemur skriður á málið, og 1857 er tala bændaskóla komin í 18. Þessi tiltölulega mjög öra þró- un í framgangi bændaskólanna leiddi að sjálfsögðu af sér það vandamál, að örðugt reyndist að fá þangað hæfa kennara. Forystu menn landbúnaðarins sáu fram á það, að slí'kt yrði ekki gert nema með því eina móti að komið Námið í þessum skóla var bók- legt og verklegt og stóð yfir í 2 ár. Það var því ekki mjög frá- brugðið venjulegum bændaskóla. En eftir 8 ára starf (1865) var hert á inntökuskilyrðum. Nem- endur þurftu að hafa verklega æfingu í bústörfum (minnst 1 ár) og vissa lágmarkskunnáttu í móð urmálinu, sögu, landafræði og stærðfræði. Við þessa breytingu minnkaði aðsókn að skólanum, enda kom það einnig til, að bændaskólum fækkaði um þessar mundir og áhugi fyrir búnaðarfræðslu dofn- aði mjög. Komst tala bændaskóla niður í 5 árið 1877 og náði sér ekki að fullu upp aftur fyrr en um aldamót, en árið 1900 voru norskir bændaskólar 20 að tölu. í þessum öldudal að því er snertir áhuga fyrir búnaðar- fræðslu þurfti engan að undra, þótt veðrasamt yrði umhverfis hinn unga skóla, enda varð sú raunin á. Tillögur komu fram um það utan þings og innan, að þessi æðri búnaðarskóli skyldi lagður niður, hann væri kostnað- arsamur fyrir ríkið og gagn hans mjög svo takmarkað. Um þetta urðu langar og harðar deilur um 1870. Sem betur fór lyktaði þeim á þann veg, að skólinn fékk að halda áfram byjunarstarfi sínu, en náminu var breytt (1871). Breyting þessi var einkum fólg in í því, að við skólann var bætt sérstakri framhaldsdeild, þar sem kennd var bókleg búfræði 1 vetur. Varð nú aðsókn að Ási mjög góð, bæði í hið lægra bú- fræðinám, vegna þess að bænda- skólum í landinu fækkaði, og í framhaldsdeildina, en þaðan út- skrifuðust nemendur annað hvert ár, venjulega 10—20 í hvert sinn. Fram til þessa var einungis um búfræðinám að ræða á Ási. En um 1880 var mikið um það rætt að koma þar á fjölbreyttara námi t.d. í skógrækt, landmælingum og garðrækt. Þetta bar þó ekki ár- angur fyrr en síðar. Árið 1887 var sett á stofn deild fyrir garðyrkju með bóklegri og verklegi’i kennslu líkt og í hinni lægri bú- fræðideild, en lengra varð ekki komist í bili. Enn liðu 10 ár. Á þeim tíma urðu miklar og margyíslegar breytingar í viðhorfum manna til búnaðarfræðslu og rannsókna. Bændaskólar risu upp víða um landið á nýjan leik og eftirspurn eftir búlærðum mönnum óx. Framfaramenn landbúnaðarins sáu glöggt, að skólinn í Ási svar- aði ekki lengur kröfum tímans. Það varð að gera námið fjölbreytt ara og betra, auka aðstöðu tii rannsókna og fjölga starfsmönn- um. Og þ. 22. maí 1897 samþ. Stór- þingið lög um „Búnaðarháskóla Noregs“. Með lögum þessum var framhaldsnámið í búfræði aukið í 2 ár, kröfur um undirbúnings- menntun auknar til muna (próf frá bændaskóla, aukin æfing í verklegum störfum og auknar kröfur um kunnáttu í norsku, stærðfræði, landafræði og sögu) og 3 nýjum deildum bætt við, svo að þær urðu 5: búfræðideild, garðyrkjudcild, skógræktardeild, mælingadeild og mjólkurdeild. Nýjar byggingar risu frá grunni með nýja kennslusali, rannsókn- arstofur, söfn og skrifstofur. Mjög var um það deilt áður en lögin frá 1897 voru samþykkt, hvem titil kennarar skólans skyldu bera. Margir töldu sjálf- sagt, að þeir væru kallaðir próf- essorar, en aðrir töldu það úr á þeim grundvelli, að þeir yrðu þá í hærri launaflokki og ykjust við það útgjöld ríkisins og ekki væri viðeigandi að aðrir bæru próf- essorsnafnbót en þeir, sem væru kennarar við háskóla ríkisins (universitet). Deilan varð leyst á þann hátt, að skipaðir voru við skólann, auk skólastjóra, 5 yfir- kennarar, 5 kennarar, 3 auka- kennarar og 3 lærðir aðstoðar- menn, alls 17 manns í stað 7 áður. Kennslan í búfræðideildinni, miðað við árið 1908, var alls 2550 kennslustundir, þar af 1375 fyrir- lestrar og 1175 æfingar. Með aðgerðum Stórþingsins ár- ið 1897 var búnaðarháskóli Nor- egs staðfestur írá lagalegu sjón- armiði, en næstu áf þar á eftir fékk hann einnig viðurkenningu fólksins. Bændur fengu trú á gildi skólans til uppfræðslu og rannsóknarstarfa. Og þetta kom ið lengt í 3 ár í staS 2ja áður og kröfur um undirbúning hertar í málum og stærðfræði með því að setja á fót sérstaka 1 árs deild við menntaskólann í Hamar fyrir þá, sem höfðu ekki stúdentsmenntun. Árið 1914 hafði verið breytt um nafnbót kennaranna og þeir nefndir prófessorar og dósentar í stað yfirkennara og kennara. Síðar komu til stöður fyrir til- raunastjórá og vísindalega mennt aða aðstoðarmenn (amanuenser). Dr. Haakon Wexelsen rektor Þetta var staðfest í lögunum 1919. Þar var og ákveðið, að skólastjóri yrði ekki lengur fastskipaður em- bættismaður, heldur yrði úr hópi prófessora kosinn rektor til 4 ára í senn (fyrst 3 ár). Með reglugerð frá 1941 var heimilað að skipta búfræðinám- inu í 4 línur þ. e. búfjárrækt, jarðrækt, búnaðarhagfræði og „teknisk“ fog. Þetta kom þó fyrst til fram- kvæmda 1952. Ennfremur var garðræktinni skipt í 2 línur og skógræktinni í 4 línur. Lögin frá 1919 heimila búnaðar háskólanum að útnefna doktora. Fyrsti skólastjóri hins æðri bún aðarskóla í Ási var sænskur mað- ur, F. A. Dahl að nafni. Var hann áður starfsmaður æðri mennta- stofnunar Svía í Ultuna. Var hann með frá byrjun við að koma stofnuninni í Ási á fót og vann að því með miklum dugnaði og ósérplægni. Hefur hann lengst allra verið skólastjóri í Ási eða alls 22 ár. Núverandi rektor búnaðarhá- skólans er prófessor dr. H. Wex- elsen, og er hann sá 12. í röðinni. Enda þótt kennsla í búfræði hafi ávallt verið megin þáttur í starfi Búnaðarháskólans í Ási, þá hafa jafnan verið tengdar við hann víðtækar tilraunir og rann- sóknir. Hófust þær árið 1863 1 smáum mælikvarða, en eftir breytinguna 1897 jukust þær til muna. Um aldamótin voru jarð- yrkjutilraunir“ Selskapets for Norges vel“ að verulegu leyti fluttar að Ási og stórauknar fóðrunartilraunir með búfé. Árið 1910 var byrjað á verkfæratil- raunum og 1921 flutti Korsmo til- raunir sínar, með illgresi þangað. Á sviði skógræktar og garðyrkju eru einnig tilraunir, og tilrauna- mjólkurbúi var komið á fót. í fyrstu var ekki um að ræða neina sérstaka fjárveitingu til rannsóknarstarfa, en um alda- mótin 1900 var slíkur liður tek- inn upp í fjárlög ríkisins. Hefur hann farið mjög vaxandi hin síð- ari ár og er nú (1958—59) um 1,8 millj. króna (norskar). Auk þess veitir norska búvísindaráðið árið 1958—59 um 1,9 millj. kr. til vís- indastarfsemi á Ási. Sjóðir bún- aðarháskólans veita um 40 þús. kr. til rannsókna og víðar að eru þær styrktar, svo að telja má, að allt að 4 millj. norskra króna sé árlega varið til tilrauna og rannsókna í Ási. Að vísu fer nokk ur hluti af þessari upphæð til nýbygginga og áhaldakaupa vegna rannsóknarstarfseminnar. En jafnframt er fjárhagur fyrir árlegan rekstur rannsóknanna mjög rúmur. Búnaðarháskóli Norðmanna hefur átt marga gjöfula unnend- ur. Eru til 25 sjóðir, sem heyra háskólanum til og fjármunir þeirra námu 1. jan 1959 rúml. 5 millj. norskra króna. Árlegum vöxtum af sjóðum þessum er var- ið til margs konar starfsemi við háskólann, en stærsti hluti þeirra fer til rannsóknarstarfa. Af því má ráða, sem nú hefur verið sagt, að tilraunir og rann- sóknir á sviði landbúnaðar er snar þáttur í starfi skólans og mjög til stuðnings vísindalegri búfræðikennslu. Má segja, að háskólinn sé orðinn miðstöð bún- aðarrannsókna í Noregi. Þar vinna nú um 165 manns við wprrftr. Sambygging fyrir stofnanir tengdar búnaðarháskólanum. meðal annars fram f mjög auk- inni aðsókn að skólanum, svo að ekki var unnt að taka inn alla þá, er þangað vildu komast, og hefur svo æ verið síðan. Enda þótt lögin frá 1897 væru gerð af víðsýni og mjög sniðin við vöxt, þá sýndi það sig þó fljótt, að rammi þeirra varð of þröngur. Vegna styrjaldarinnar 1914—1918 varð þeim þó ekki breytt fyrr en 1919. Þá var nám- Hinn fyrsti var Paul Borgedal 1927. Alls hefur háskólinn útnefnt 24 doktora í landbúnaðarvísind- um, alla norska, en auk þess 11 heiðursdoktora. Með reglugerð frá 3. jan. 1958 fékk búnaðarháskólinn leyfi til þess að útskrifa kandidata með magisternafnbót (lisentiat). Höfðu 31 kandídat sótt um það árið 1958 að fá að taka þessa gráðu. kennslu og rannsóknir, þar af íá 85 greitt kaup og rannsóknar- kostnað frá öðrum stofnunum en háskólanum. Þetta er í stuttu máli ágrip af sögu Búnaðarháskóla Norðmanna í Ási. Hún sýnir, að oft hefur verið við örðugleika að etja, eink um fyrr á tíma, og þjóðin skiln- ingssljó á gildi skólans. Oftar en einu sinni hefur það mjög borið á góma, að flytja skólann um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.