Morgunblaðið - 26.11.1959, Síða 20
20
MORCVN BLAÐ1Ð
Fimmtudagur 26. nóv. 1959
^J£)rotL
22
cjecjn
nincj,
viljci áínum
EFTIR
RITA
HARDINGE
Þegar aftur blikaði á sverð,
sleit Janet sig lausa frá Helgu.
Hún gekk á milli mannanna.
— Stephan ofursti — Mauban
majór — ^hún endurtók nöfnin,
sem hún hafði heyrt Rupert
segja. — Þekkið þið mig?
— Yðar hátign!
— Þið segist þjóna konungin-
um, sagði hún hraðmælt. — Þýð-
ir það ekki líka, að þið þjónið
drottningunni?
—■ Ég þjóna hásætinu, yðar
hátign, svaraði ofurstinn stolt-
ur.
— Ég á hlutdeild í hásætinu,
sem nú tilheyrir Páli prinsi! —
Janet ók kjarkur við að sjá
tryggð og hollustu í augum
gamla hermannsins. — Þið vitið,
að ég hef reynt að gera allt, sem
í mínu valdi stendur fyrir þetta
land. Og það er mín heitasta ósk
að bjarga landinu og gera það
farsælt. En ég get það ekki ein.
Ég er aðeins kona, og ég þarfn-
ast hjálpar. Þið hafið þjónað
konunginum af hollustu, en nú
þegar hann er dáinn, viljið þið
þá ekki veita mér þessa hollustu,
styðja mig í því, að setja nýja
konunginn, Pál prins, í hásætið
Og veita þjóðinni hamingju?
Hún sá, að þeir hugsuðu sig
um, hún var ringluð og skildi,
að spilið var ekki unnið ennþá.
Þess vegna sneri hún sér að
Rupert. — Þú hefur unnið gegn
konunginum, af því að þú vissir,
að hann skaðaði Androvíu. Nú
spyr ég þig, og menn þína, þá
sem hér eru: Hver eru ykkar
áform?
Án þess að hika gekk Rupert
fram, féll á hnéð, greip um hönd
hennar og bar hana að vörum
sér eitt andartak.
— Ég og allt mitt er drottn-
ingunni og Páli konungi tif þjón
ustu, sagði hann blátt áfram. Aft
ur blikaði á sverð, en nú í heið-
urskveðju, og sem í leiðslu
heyrði Janet menn Ruperts
hrópa:
— Guð varðveiti drottning-
una!
Hún sneri sér aftur að liðsfor-
ingjum konungs og sá, að þeir
stóðu báðir og lyftu sverðunum
henni til heiðurs.
Tárin komu fram í augu
henni. Hún tók höndunum fyrir
andlitið og brast í grát. En svo
rétti hún úr sér aftur, keik og
stolt.
— Það er þá afráðið að við —
við öll — styðjum hásætið —
styðjum Pál! hrópaði hún, og
sneri sér ósjálfrátt að Rupert.
Hvað getum við gert til að
leyna — þessu?
Það fór hrollur um hana, þeg-
ar hún neyddist aftur til að líta
á líkið af Michael, og Rupert
flýtti sér að taka um handlegg-
inn á henni.
— Láttu mig um það, sagði
hann. — Helga — aðstoðið henn
ar hátign. Fylgið henni fram í
forsalinn.
Hann leit til unga liðsforingj-
ans við dyrnar.
— Þú ferð með þeim, Maurice,
skipaði hann. — Gættu þeirra!
— Með mínu eigin lífi, yðar
tign!
Janet fannst hún svo undar-
lega magnlaus, þegar hún fór,
með handlegg Helgu ástúðlega
utan um sig. Og nú brast hún í
grát, eins og þreytt barn, en
Helga kraup við hlið hennar, og
hinn hávaxni Maurice stóð yfir
þeim, afar hrærður á svip.
Um síðir var lokið upp og
Rupert og nokkrir hinna komu
út. En Janet sá þá ekki, því að
Maurice tók sér stöðu milli
kvennanna og byrðarinnar, sem
mennirnir báru á milli sín, svo
þær sáu hana ekki.
Þegar hann vék aftur til hlið-
ar, sá Janet, að Rupert stóð við
hlið hennar. Ungi liðsforinginn
tók í höndina á Helgu og leiddi
hana burt, og hún tók eftir,
hversu innilega þau leiddust. —
Þessi sýn kom henni til að snúa
sér að Rupert, því á þessari
stundu þarfn. hún framar öllu
að finna huggun og vernd í örm-
um þess manns, sem hún vissi
nú, að hún elskaði svo innilega.
En hann stóð kaldur og virðu-
legur nokkur skref frá henni.
— Janet, sagði hann stillilega,
og hún skildi, að hann þekkti
léyndarmál hjarta hennar. — Nú
kalla ég þig það í síðasta sinn.
Héðan í frá ert þú Gloría drottn
ing.
— Nei — nei!
— Jú, vina mín. Það, sem þú
gerðir í kvöld, er meira um vert
en allt það, sem systir þín gerði
allan tímann, sem hún var hér,
en aðalverkið er enn eftir, og
þú ert sú eina, sem getur leyst
það af hendi. Við setjum Pál í
hásæti með drottninguna sem
ríkisstjóra — og þá verður þjóð-
in hamingjusöm!
— Rupert!
Hálfkæft hróp hennar kom
honum til að missa sjálfstjórn-
ina, og hann tók örmunum utan
um hana. Varir þeirra mættust
og þau þrýstu sér hvort að öðru.
En svo sleppti hann henni aftur.
— Það þarf víst ekki að segja
neitt, Janet — er það? Ég elska
þig, og þú elskar mig, og það er
það dásamlegasta í heiminum
fyrir nokkur bæði. En við meg-
um ekki hugsa eingöngu um
okkur sjálf. Þú ert drottningin.
Hún hristi höfuðið, en hann
stöðvaði mótmæli hennar með
kossi.
— Þú átt mikið verk fyrir
höndum, sagði hann, — og ég
líka. Það er eftir að bæta úr
öllu því illa, sem Michael hefur
gert, og við verðum að vinna það
í sameiningu. Það verður að
ganga fyrir, en svo —
Allt í einu brosti hann blítt og
ástúðlega til hennar.
— Ástin mín litla, hvíslaði
hann með gamla stríðnishreimn-
um í röddinni, — jafnvel drottn
ing getur gifzt aftur, eftir hæfi-
legan tíma og hugsaðu þér, hví-
lík ánægja það myndi verða fyr-
ir fólkið, ef þú skyldir velja —
Svarta Rupert!
Hún þrýsti sér að honum. Nú
vissi hún fyrir víst, að ekki kom
til mála að snúa við. Janet —
hárgreiðslustofan — gamla borg
in í Englandi — allt var það að
baki fyrir fullt og allt. Það, sem
hún átti eftir ólifað, yrði hún í
Andróvíu, hjá manninum, sem
hún elskaði.
10. kafli.
Hamingjan gerði hana jafnvel
ennþá ringlaðri en hinir átakan-
legu atburðir höfðu gert, og
henni var ekki vel Ijóst, hvað
fram fór, þegar henni og Helgu
var komið með leynd inn í höll-
ina aftur. En þegar hún var kom
in inn í herbergi sitt, gat hún
hlustað á Helgu, sem með mikiili
ákefð skýrði henni frá, hvað
væri gert til að breyta dauða
konungsins í sigur, í stað ósig-
urs. Á meðan hjálpaði hún Janet
til að hafa fataskipti og fara í
fallegan kjól af Gloríu.
— Stephan ofursti og Mauban
majór komu með konunginn til
hallarinnar á milli sín, sagði
Helga áköf. — Þeir gengu undir
honum sinn hvorum megin, og
létu sem hann væri miður sín.
Það hefur svo oft verið komið
með hann heim á þann hátt, jafn
ófæran um að ganga og hann er
nú, svo það var enginn vandi að
koma honum upp í íbúðina.
Helga þagnaði, því að þær
heyrðu háreysti úti fyrir. Marg-
ar raddir heyrðust hrópa, og
stúlkurnar hlupu báðar til dyra.
Þær sáu ákafa ringulreið
frammi í ganginum, og allt í
einu kom Arnberg greifafrú
hlaupandi til Janet.
— Farið inn aftur! Verið
kyrr þar! hrópaði gamla frúin.
— Það er hræðilegt, sem komið
hefur fyrir!
En Janet ýtti henni til hliðar
og hljóp fram ganginn. Hún sá,
að margir menn stóðu í dyrun-
um að herbergi konungs. Hún
byrjaði að troða sér milli þeirra,
en þá hrópaði einhver: „Drottn-
ingin!“ og þá viku allir til hlið-
ar. Svo stóð hún í dyrunum og
horfði inn.
Konungur sat samanhniprað-
ur í sínum venjulega stól við
borðið. Við hlið hans stóð flaska
og og í lífvana hendinni hélt
hann á tómu glasi!
Stephan ofursti stóð og laut
niður að honum, en Mauban
majór þefaði grunsamlega úr glas
inu, sem.konungur hélt á.
— Stephan ofursti — hvað hef
ur komið fyíir? kallaði Janet.
Hún skildi, að hún yrði að leika
sitt hlutverk og taka þátt í harm
leiknum til enda.
Gamli hermaðurinn sneri sér
að henni.
— Ég bið yðar hátign, komið
ekki inn! kallaði hann.
— En ég er neydd til þess.
Hvað hefur komið fyrir konung-
inn?
— Hann — hann var úti í
kvöld, yðar hátign. Mauban
majór og ég fylgdum honum
heim, og svo yfirgáfum við hann
andartak — til að ná í lækni, því
hans hátign var óvenjulega mið-
ur sín. Og svo komum við að
honum —
— Hann hefur drukkið eitur!
hrópaði Mauban majór hárri
röddu. — Lyktið bara úr glasinu!
Hans hátign hefur svipt sig lífi
á eitri!
Þetta bragð lánaðist til fulls.
Læknar komu og staðfestu, að
konungur hefði dáið af eitri, og
það fannst einnig í dreggjum
glassins.
Fréttin barst fljótt út um alla
borgina, og frá hallartorginu
Umhverfis jörðina
á áftatíu dögum
Tryggið yður eintak af bók-
inni Umhverfis jörðina á
áttatíu dögum eftir Jules
Verne, áður en hún selst
upp.
SNIFELL
Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn
HOLMENS KANAL 15 C. 174
1 vetur til V* ’60. — Herb. með morgunrétti frá kr. 12—16
pr. rúm. — í miðborginni — rétt við höfnina
í
á
á
1 CAN'T STAY JOHNNV...GOT
^ A PATE IN MINNEAPOLIS/
SUE, PIP YOU KNOW THAT MARK
TRAIL IS TAKING A GROUP OF OUT-
POOR WRITERS ANP PHOTOGRAPH-
ERS TO NORTHERN MINNESOTA r
r NEXT WEEK? »___A*
PATE? VOU?
WHAT ABOUT
CHEREE'?
CHERRV IS
MY PATE ... ANP
WE'RE GOING OUT THERE
TO HELP THEM CELE-
BRATE THE MINNESOTA
CENTENNIAL /
Wr ^ OF COURSE...
P'"”1 l'p HOPEP VOU'P SENP ME, Þ-
MR. ARNOLP...VOU KNOW I CARRV
A SMALL TORCH FOR THAT GUY /
Ég get ekki verið lengur, Jo-
hnny, ég á stefnumót í Minnea-
polis. Þú á stefnumót, hver ætti
það svo sem að vera, vinur?
Það er Sirrí, sem ég á stefnumót
við, og við ætlum að fara til
Minneapolis til þess að hjálpa
þeim þar að halda upp á hundrað
ára minningarhátíð.
Vissir þú það, Súsanna, að
Markús fer með hóp dýralífsrit
höfunda og ljósmyndara til Norð
ur-Minneasota í næstu viku?
Auðvitað vissi ég það, Árni, og
ég var að vona að þú myndir
senda mig þangað. Þú veizt að
ég hef áhuga fyrit þessum ná-
unga.
heyrðist brátt eins og brimgnýr,
þegar meiri mannfjöldi en
nokkru sinni fyrr safnaðist þar
saman.
Janet herti sig upp af öllum
mætti. Hún vissi, að hún átti
mikla þrekraun í vændum. En
hún leyfði greifafrúnni að fylgja
sér aftur til herbergis síns. Þar
sat Helga og beið hennar, og hún
hafði verið nógu skynsöm til að
ná í Pál litla. Með gleðihrópi
faðmaði Janet drenginn að sér.
.......aparið yCfuj hlaup
6 railli xuaxgra vr.Tzkuia1-
mw i
ú ijllUM
tfWM!
- Ausfcurstrseti
ailltvarpiö
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleikar.
— 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar.
9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tón-
leikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
12.50—14.00 „A frívaktinni'* — sjó-
mannaþáttur (Guðrún Erlends-
dóttir).
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfr.).
18.30 Fyrir yngstu hlustendurna (Mar-
grét Gunnarsdóttir).
18.50 Framburðarkennsla í frönsku.
19.00 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.30 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Ríkisútvarpið í nýjum húsakynn
um: Avörp flytja Vilhjálmur í\
Gíslason, útvarpsstjóri; Sigurð-
ur Bjarnason, formaður útvarps
ráðs og dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra.
20.55 Einsöngur: Arni Jónsson syngur;
Fritz Weisshappel leikur undir á
píanó.
a) „I fjarlægð'* eftir Karl O.
Runólfsson.
b) „Ef engill ég væri“ eftir Hall-
grím Helgason.
c) „Horfinn dagur“ eftir Arna
Björnsson.
d) „Þei, þei og ró, ró“ eftir
Björgvin Guðmundsson.
e) „Til skýsins“ eftir Emil Thor-
oddsen.
f) „Til hafs“ eftir Nordquist.
21.15 Upplestur: Andrés Björnsson les
ljóð eftir Matthías Johannessen.
21.30 Erindi; Aldarminning Jósefs
Björnssonar skólastjóra á Hól-
um. (Steingrímur Steinþórsson,
búnaðarmálast j óri),
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Smásaga vikunnar: „Tveggja
mínútna þögn“ eftir H. C. Brann-
er (Karl Isfeld skáld þýðir og
les).
22.35 Tónleikar: Atriði úr óperunni
„Pélleas og Mélisande" eftir De-
bussy (Janine Micheau, Camille
Maurane og Rita Gorr syngja
ásamt Elisabeth Brasseur-kórn-
um; Lamoureux-hljómsveitin leik
ur undir stjórn Jeans Fournet),
23.25 Dagskrárlok.
Föstudagur 27. nóvember:
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleikar,
— 8.30 Fréttir, — 8.40 Tónleikar.
9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tón-
leikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfregnir).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Mannkynssaga barnanna: „Oli
skyggnist aftur í aldir“ eftir
Cornelius Moe; IV. kafli (Stefán
Sigurðsson kennari).
18.50 Framburðarkennsla 1 spænsku.
19,00 Þingfréttir. — Tónleikar. — 19.25
Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Músíkvísindi o galþýðusöngur;
III. erindi (Dr. Hallgrímur
Helgason).
21.00 Tónleikar: Passacaglia eftir Pái
Isólfsson (Sinfóníuhljómsveit IS"-
lands leikur; Olav Kielland
stjórnar).
21.15 Lestur fornrita: Gísla saga Súrs
sonar; IV. (Oskar Halldórsson
cand. mag.).
21.35 Islenzk þjóðlög:
a) Karlakórinn Fóstbræður syng
ur sjö lög raddsett af Jóni Nor-
dal og Emil Thoroddsen; Ragn-
ar Björnsson stjórnar.
b) Sinfóníuhljómsveit Islands
leikur rímnalög í útsetningu Jóns
Leifs. Stjórnandi: Olav Kielland.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Upplestur: „Hildigunnur læknir'*
ljóðaflokkur eftir Arna G. Ey-
lands (Magnús Guðmundsson).
22.30 I léttum tón: Lög eftir Jón Múla
Arnason úr söngleiknum „Rjúk-
andi ráð“. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar leikur. Söngfólk;
Kristinn Hallsson, Sigurður Ol-
afsson, Jón R. Kjartansson,
Steinunn Bjarnadóttir, Guðrún
Högnadóttir, Erlingur Gíslason
o. fleiri.
23.00 Dagskrárlok.