Morgunblaðið - 01.12.1959, Síða 10

Morgunblaðið - 01.12.1959, Síða 10
10 M O R c rn\ n r 4 n 1Ð Þriðjudagur 1. desember 1959 Þvottahúsið Skyriur og sloppar hf. Brautarholti 7, sími 15790. Tökum að okkur þvott og frágang á skyrtum og sloppum, en því miður tökum við ekki á móti slopp- um fyrst um sinn frá fisk- og kjötvinnsluhúsum. Leggjum áherzlu á vandaða og góða vinnu, fljóta og örugga afgreiðslu. Skyrtunum veitt móttaka á eftirtöldum stöðum: Efnalaugin Glæsir Laufásavegi 19, Hafnarstræti 5, Blönduhlíð 3 og Reykjavíkurvegi 6, Hafnarfirði. Hfnalaug Austurbæjar Skiptolti 1 og Tómasarhaga 17 Fatapressan Austurstræti 17 cig hjá Skyrtur og síoppar h.f., Brautarholti 7, Sími 15790. iVotaðar birreioar frá D.S.A. Útvegum með næsta skipi allar tegundir notaðra bifreiða. Lægsta fáanlegt verð. Hver bifreið valin af starfsmanni okkar í New York sem tryggir að bif- reiðin verður í samræmi við óskir yðar. Útvegum einnig allar tegundir vörubifreiða á lægsta verði. Jón Loftsson hf. Bifreiðadeild — Hringbraut 121 — Sími 10600 íbúðir til sölu 4ra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Laugarnesveg. Á hæðinni, sem er ea. 90 ferm., eru 3 herbergi, eldhús, bað, skáli. í kjallara fylgir stórt og rúmgott íbúðar- herbergi auk geymslu o. fl. Nýtízku þvottavélasam- stæða. Vandaðar innréttingar. Ibúðin er á 2. hæð og enda-íbúð. íbúðin er svo til ný. 3ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Álfheima. Á hæðinni eru 2 herbergi, eldhús, bað, skáli. í kjallara fylgir gott íbúðarherbergi auk geymslú. íbúðar. hæðin er öll á móti suðri og ný. Góð innrétting. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. — Símar: 13294 og 14314. IMýkomið Spónskir og Tékkneskir barnaskór Skósalan Laugavegi 1 Nemendur ræða við listamanninn. Lisfkynning í ) l í ) I I ) 1 ) I l NÝLEGA fór fram í Lista- mannaskálanum á vegum Menntamálaráðs listkynning á verkum Svavars Guðnasonar, listamálara, fyrir skólanem- endur — en þar er um þessar mundir haldin yfirlitssýning á verkum listamannsins í tilefni af fimmtíu ára afmæli hans. Þarna var samankominn hópur nemanda úr Kennara- skóla íslands, ásamt kennur- um og skólastjóra. ing á verkum íslenzkra list- málara hefði fram að þessu verið lítil, en þessi kynning á verkum Svavars Guðnasonar væri tilraun til að bæta úr því. Þá flutti Hjörleifur Sigurðs- son, listmálari erindi um æfi og list Svavars og benti á helztu einkenni listar hans, runnin úr möld og mann- virkjum. Að lokum bað hann nemendur um að leita til lista- hverfis listamanninn, eftir nokkurt hik, og spurðu hann ýmissa spurninga. Einn vildi vita, hversvegna ákveðin mynd væri skýrð nafni fyrirbrig’ðis, sem mynd- in virtist ekki vera af. — Nei myndin var ekki af fyrirbrigðinu, en gat hafa orð- ið til út frá áhrifum fyrirbrigð isins á listamanninn. Aðal- atriðin væri að myndin væri gerð af sönnu brjósti. Svo væri myndinni gefið nafn eft- ir á, aðallega til að muna eftir henni. — Annar nemandi var svo djarfur að spyrja hvort ein myndanna væri ekki ómerki- leg, bara strik eins og eftir barn. — Nei, svaraði listamaður- inn, hún er ekki ómerkilegri en hinar myndirnar — í henni liggur mikil vinna og aðal- atriðið í uppbyggingu hennar er hrynjandin, innra samræmi og reisn myndarinnar. — Þá var spurt um myndir, sem báru músíknöfn t.d. fúga, þar sem sjálfstæð litastef flétt ast saman og mynda eina heild — hvort þau væru gerð undir áhrifum einhvers ákveðins tónverks. — Nei, en myndirnar eru byggðar á svipuðum lögmál- um og gilda í tónverkum. Síðan dreifðist hópurinn um salinn, og hver skoðaði með sínum augum. — Að lokum var fámennur hópur, sem á verkum Svavars Cuðnasonar í upphafi listkynningarinn- ar flutti Baldvin Halldórsson, leikari ávarp, bauð nemendur velkomna og kynnti listamann inn. Baldvin gat þess að kynn- mannsins sjálfs. ef þeim lægi eitthvað á hjarta, í sambandi við list hans, sem hann gæti leyst úr. • Hópuðust nemendur um- gekk með listamanninum og skoðaði verkin í tíma, eða þróunarröð þeirra, og virtust báðir aðilar hafa gagn og ánægju af. Leikfélag Hveragerðis sýnir ,,Stubb" LAUGARDAGINN 21. þ.m. sýndi Leikfélag Hveragerðis gaman- leikinn ,,Stubb“ eftir Arnold & Bach, í Hveragerði. Leikstjóri var Jóhann Pálsson, en leikendur allir voru Hvergerðingar. Stjórn Leikfélags Hveragerð- is skipa nú: frú Magnea Jóhannes dóttir, formaður, Herbert Jóns- son, ritari og Ragnar G. Guð- jónsson, gjaldkera. Frú Magnea hefur um margra ára skeið sýnt frábæran dugnað og áhuga í leik- listarmálum þorpsins. í flestum leikritum, sem héT hafa verið sýnd, hefur hún farið með aðal- hlutverkið og stundum haft á hendi leikstjórn. En í þetta sinn lék hún ekki sjálf. Leikritið er fjörugt og skemmti legt, svo sem algengast er um verk þessara höfunda, en þó er á því nokkur tæknilegur galli í lok þriðja — síðasta — þáttar. Slakar þar skrambi mikið á spennu, svo að erfitt er fyrir leikstjóra og leikendur að halda í horfinu. En það skal sagt öll- um til hróss, að ekki urðu áhorf- endur mikið varir við þennan smíðagalla í þetta sinn. Þorgils Balagils verksmiðju- eiganda, sjálfan Stubb, lék Ragn- ar G. Guðjónsson kaupmaður. Ragnar er góður og vaxandi gam anleikari og fór vel með þetta hlutverk. í byrjun fyrsta þátt- ar var hann þó eilitið hikandi og daufur, en brátt hristi hann af sér doða þann og gerði hlutverk- inu hin beztu skil eftir það. Sem „giftur maður í siglingu“ var hann mjög svo trúverðugur og mörg af viðbrögðum hans fram- I kölluðu ósviknar hláturrokur í 1 áhorfendasalnum. Áróra kona hans var leikin af , Geirrúnu ívarsdóttur af mikilli prýði. Geirrún er örugg á sviði og leikur hennar hnökralaus; henni tókst vel að gera þessa þrautsnobbuðu, nýríku frú bæði hlægilega og mannlega í senn. Eiríka dóttir þeirra hjóna var leikin af Guðrúnu Magnúsdóttur. Guðrún er falleg stúlka og hefur skíra rödd; kom henni þetta hvorttveggja til góða á sviðinu, íbúðir til sölu Til sölu eru góðar 2ja og 4ra herb. íbúðir i sambýlis- húsi á fögrum stað í Háaleitishverfi. Ibúðirnar eru seldar með fullgerðri miðstöð, tvöföldu gleri, úti- dyrahurðum, múrhúðun á allri sameign inni í hús- inu, handriði á stiga og húsið fullgert að utan. Ný- tízku sjálfvirkar þvottavélar fylgja. Bílskúrsréttur. Hagstætt verð. Lán kr. 50 þús til 5 ára á 2. veðrétti. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314. og svo það hversu eðlileg og ófeimin hún var, en ekki var þarna um mikla leiklist að ræða. Bóndi úr Ölvusi, Sigurjón Guð- mundsson, lék Öllebröd Gylden- örn greifa svo sannfærandi, að það vakti aðdáun allra. Bæði persónugerðin og framkoman var vel og skemmtilega mótuð; hann var blátt áfram ágætur danskur „töfragreifi", eins og þeir gerðust fyrir svo sem aldar- fjórðungi síðan. Alphonse Vallé alias Gylden- svans greifa lék Valgarð Runólfs son skólastjóri. Persóna hans. tal og framkoma var eðlilegt og hæfði hlutverkinu, leikurinn létt ur og hressilegur. Aðalbjörg M. Jóhannsdóttir lék heimslystarkonuna Massí Peder- sen með ágætum. Persónugerð, hreyfingar, tal og framkoma var allt samræmt á slíkan hátt, að það vakti aðdáun og kæti áhorf- enda. Viðbrögð hennar vöktu oft hlátur í salnum. Guðjón Björnsson lék Magnús Tobíasson stórkaupmann. Það er lítið hlutverk, en var ágætlega af hendi leyst. Pétur Mjófjörð, systurson hans og erfingja lék Gestur Eyjólfsson af snilld og prýði. Hafði hann mótað þennan aulabárð með svo öruggri kýmnigáfu, að áhoriend- ur veltust um af hlátri hvert sinn er hann kom inn á sviðið. Gestur er vaxandi leikari. Hóteleiganda lék Herbert Jóns- son óaðfinnanlega. Herbert Jóns- son lék einnig Sigga pól, Viká- dreng Kristinn Antonsson. En þjóninn Jósep, sem er frem- ur litið áberandi hlutverk lék Jón H. Hálfdánarson svo snillilega að hann „stal“ stundum sviðinu. Það var alveg bráðskemmtilegur persónugerfingur. Leiktjöldin gerði Gunnar Bjarnason. Jón Guðmundsson var leiksviðsstjóri. Förðun og hár greiðslu annaðist Sigríður R. Michelsen. Bæði leikstjóri og leikendur voru hylltir að leikslokum og voru leikhúsgestir sammála um að hvorirtveggja hefðu gert vel. Húsið var fullskipað. Kristmann Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.